Morgunblaðið - 18.03.1999, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999
MORGUNB LAÐIÐ
FRÉTTIR
Björgnnarsveitir leituðu manns sem villtist í blindbyl á Möðrudalsöræfum
Hafði grafíð sig í fönn
uppi í fíalli er hann fannst
Á ANNAÐ hundrað manns voru í
gærmorgun kallaðir út til leitar að
ungum manni sem villst hafði frá bíl
sínum á Möðrudalsöræfum í blind-
byl. Maðurinn fannst heill á húfí
rámum fímm tímum eftir að hann
hafði farið frá bílnum og hafði hann
þá grafið sig í fönn hátt uppi í fjalli,
um 1-2 km frá bílnum.
Tveir menn voru á leið á vel út-
búnum jeppa frá Egilsstöðum yfir
Möðrudalsöræfí en lentu í snjóbyl
þannig að nánast ekkert sást út.
Annar þein-a ákvað að fara út til að
athuga hvort þeir væru enn á vegin-
um en tókst síðan ekki að fínna bíl-
inn aftur. Félagi hans hringdi þá í
lögregluna úr farsíma.
Gekk tíu skref frá bflnum
„Við höfðum verið í stöðugu sam-
bandi við Vegagerðina, á hálftíma
fresti, og spurðum um færðina og
þeir sögðu að allt væri í lagi. Svo
skall þetta allt í einu á,“ segir mað-
urinn í samtali við Morgunblaðið.
„Eg fór út til að athuga hvar við
værum staddir, hvort við værum
ekki örugglega á veginum. Ég hafði
gengið svona tíu skref frá bílnum,
þá skall allt í einu á svakaleg vind-
hviða og feykti mér til. Eftir það
ákvað ég að gefa mér fímmtán mín-
útur í að fínna bílinn en reyna síðan
að grafa mig í fönn.“
Tónlistarhús
Undirbúnings-
nefnd skipuð
TILNEFNT hefur verið í sam-
starfsnefnd menntamálaráðuneytis
og Reykjavíkurborgar vegna nýrr-
ar tónlistar- og ráðstefnumiðstöðv-
ar í miðborginni.
Ólafur B. Thors, forstjóri Sjóvár-
Almennra, verður formaður nefnd-
arinnar, skipaður af menntamála-
ráðherra. Ami Mathiesen alþingis-
maður verður fulltrúi samgöngu-
ráðherra, Þórhallur Arason skrif-
stofustjóri fulltrúi fjármálaráð-
herra og fyrir hönd Reykjavíkur-
borgar verða Stefán Hermannsson
borgarverkfræðingur, Helga Jóns-
dóttir borgarritari og Þorvaldur S.
Þorvaldsson skipulagsstjóri.
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra segir að nefndinni sé með-
al annars ætlað að koma á sam-
komulagi milli Reykjavíkurborgar
og ríkisins um fjármögnun hússins.
Hann segir að fjárfestar hafí þegar
sýnt áhuga á verkefninu.
„Eftir að við kynntum verkefnið
hafa mjög margir sýnt áhuga á að
tengjast því og margir átta sig jafn-
framt á því að með þessari fram-
kvæmd er ekki aðeins verið að búa
tónlist og ráðstefnuhaldi nýjan
grundvöll heldur er einnig verið að
bæta nýrri vídd við atvinnustarf-
semi í landinu."
Honum tókst ekki að fínna bílinn
aftur enda skyggnið nánast ekkert.
„Ég var hræddur þegar ég gerði
mér grein fyrir að ég væri búinn að
týna bílnum, en mestar áhyggjur
hafði ég af því að félagi minn myndi
reyna að fínna mig. Ég vissi að þá
fyrst værum við í vandræðum.“
Það tók hann um 25 mínútur að
fínna nægilega stóran skafl og þar
gróf hann sig niður. „Ég hugsaði
um það eitt að halda á mér hlýju og
komast heim og bað guð að hjálpa
því fólki sem stendur mér næst. Ég
var viss um að ég myndi fínnast,
enda vissi ég að ég værí ekki langt
frá bílnum.“
Tók ekki eftir brattanum
vegna meðvindsins
Hann segist ekki hafa gert sér
neina grein fyrir því að hann væri
kominn upp í fjallið. „Ég hafði svo
mikinn vind í bakið að ég áttaði mig
ekkert á því að ég væri að hækka
mig, það var svo auðvelt að ganga.“
Holan sem hann hafði grafíð í
skaflinn var ekki mjög djúp, en
skýldi þó fyrir mesta vindinum.
Hann var vel búinn, í skíðagalla,
með skíðahanska, húfu, í ullarsokk-
um og gönguskóm en varð engu að
síður nokkuð blautur og kaldur.
Að sögn Eiríks Skjaldarsonar,
bónda á Skjöldólfsstöðum og for-
HAFNAR eru umfangsmiklar
endurbætur á Dómkirkjunni í
Reykjavík sem munu standa
fram á haust. Rétt þótti að
smíða kassa utan um stytturnar
við kirkjuna til að varna
skemmdum meðan á fram-
manns Hjálparsveitar skáta á Fjöll-
um, voru 116 manns úr björgunar-
og hjálparsveitum af svæðinu frá
Húsavík suður að Fáskrúðsfírði
kallaðir út til leitar. Ekki voru þó
nema 16-20 manns komnir á staðinn
þegar maðurinn fannst um klukkan
hálfþrjú. „Fyrstir á staðinn voru fé-
lagar úr Hjálparsveit skáta á Fjöll-
um og Slysavamasveitinni á Jökul-
dal og fljótlega á eftir komu Egils-
staðasveitimar. Þegar við komum á
staðinn var brjálað veður, en það
lægði um hádegið,“ segir Eiríkur.
Styttur
varðar
kvæmdum stendur. Við kirkj-
una er brjóstmynd Siguijóns
Voru orðnir vondaufír
um að ílnna hann
Leitarmenn könnuðu stórt svæði
í kringum bílinn án þess að fínna
manninn og segir Eiríkur að þeir
hafí verið orðnir nokkuð vondaufir.
Það voru tveir merm á vélsleða,
þeir Vernharður Vilhjálmsson,
bóndi í Möðrudal, og Vigfús Jóns-
son frá Egilsstöðum sem fundu
manninn, þar sem hann hafði grafíð
sig í fönn í um 700 metra hæð, ofar-
lega í Miklafelli. Hann var þá um 1-
2 km frá bílnum og sennilega um
200 metrum ofar.
„Hann var sunnan í fjallinu og
kominn í alveg ótrúlega hæð,“ segir
Vemharður. „Maðurinn fyrir aftan
mig á sleðanum sá eitthvað uppi í
fjallinu og ætlaði að spyrja hvort
þarna væri einhver steinn, en sagði
strax, nei, þetta er maður. Hann
hafði þá séð einhverja hreyfingu.
Maðurinn var þá í snjó sem hann
hafði sett að sér.“
Eiríkur segir að maðurinn hafi
verið tiltölulega vel búinn þannig að
hann hefði getað hafst lengur við í
fjallinu. „Hann hefði komið niður
sjálfur seinni partinn í dag því veðr-
ið datt niður.“
Hann segir að erfitt sé að átta sig
á því hvaða leið maðurinn hafi farið
en fjallið er töluvert bratt.
Morgunblaðið/RAX
Ólafssonar af sr. Bjarna Jóns-
syni, minnisnierki Julius Schou
af Hallgrími Péturssyni og
bijóstmynd Ríkharðs Jónssonar
af Jóni Vídalín biskupi. Áætlað
er að ljúka endurbótunum fyrir
þingsetningu í haust,.
Hætt að reikna verð-
bótahækkun leigu
Taka verður
upp ákvæði
eldri leigu-
samninga
FRÁ og með 1. apríl næstkomandi
verður ekki unnt að verðtryggja
húsaleigu með því að miða við verð-
bótahækkun húsaleigu sem Hag-
stofan hefur reiknað út síðastliðin
fímmtán ár, þar sem lög um verð-
bótahækkun húsaleigu falla þá úf
gildi. í frétt frá Hagstofunni segir
að frá og með næstu mánaðamótum
skuli ekki taka slík ákvæði upp í
leigusamninga og taka verði upp
ákvæði eldri leigusamninga hvað
þetta snerti og semja um hvað skuli
leysa þau af hólmi.
I frétt Hagstofunnar segir enn-
fremur að í húsaleigulögum frá 1994
sé ákvæði um að samningsfrelsi ríki
milli manna um húsaleigu og hafi því
við afnám laganna ekki verið tekin
afstaða til þess hvort eða hvaða
verðtryggingarákvæði skuli vera í
leigusamningum.
Jafnframt kemur fram að kjósi
menn að verðtryggja fjárhæðir í
leigusamningum mæli Hagstofan að
jafnaði ekki með einum verðmæli-
kvarða umfram annan, en helstu
vísitölur til verðtryggingar séu
neysluverðsvísitalan sem mæli verð-
breytingar einkaneyslu og sé meðal
annars notuð til verðtryggingar á
sparifé og lánsfé og byggingarvísi-
tala sem mæli breytingar á bygging-
arkostnaði og sé aðallega notuð til
að verðtryggja verksamninga.
---------------
Innbrot á heimasíðu
Framsóknar
Alyktun í
sjávarútvegs-
málum breytt
BROTIST var inn á heimasíðu
Framsóknarflokksins á Netinu á
þriðjudagsmorgun og nýjum texta
bætt við ályktun flokksins í sjávar-
útvegsmálum. Nýi textinn var aðal-
lega árás á Halldór Ásgrímsson,
formann flokksins. Skemmdarvarg-
urinn lét ekki þar við sitja heldur
breytti hann einnig uppsetningu
forsíðunnar.
Að sögn Egils Heiðars Gíslason-
ar, framkvæmdastjóra Framsókn-
arflokksins, var um hreina og klára
skemmdarstarfsemi að ræða og
greinilegt að þarna var enginn við-
vaningur á ferð. Hann sagði að síð-
an hefði fljótlega verið löguð.
Egill sagði að alltaf væri hætta á
að svona gæti gerst en að nú væri
búið að huga að öryggisþættinum
og þar með búið að loka leiðinni
fyrir skemmdarvörgum. Hann
sagði að sér þætti full ástæða til að
láta rannsaka þetta mál frekar en
eins og staðan væri nú væri tölvu-
íyrirtækið sem annaðist rekstur
heimasíðunnar að kanna hvort það
gæti komist að því hver það var
sem þarna átti í hlut.
. . •
„
I * . -
i •
I Sérblöð í dag
12SÉMJR
VIÐSIIIFTlAIVlNNUlÍF
FYRIRTÆKl
Hekla með
hagnað
Veltan jókst um
16% á milli ára /B1
FERÐAÞJÓNUSTA
Sam-
komulag
Aukin framlög til
markaðsmála /B2
• ••••••••••••••••••••••••
: Mistök að hafa ekki valið
: Duranona / C1
l Birkir Kristinsson leikur
• með ÍBV í sumar/C1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is