Morgunblaðið - 18.03.1999, Side 8
C:*l.
8 FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Ráðherra skoðar
fLnnska jólasveinmn
ÞEKKIRÐU mig ekki, ég er bróðir þinn frá íslandi, ég er bara ekki með skeggið.
AEG
wr
_ UPPÞVOTTAVEL - FAVORIT 3430 W
“ Frístandandi H-85, B-45, D-60
Ryöfri. Fjórfalt vatnsöryggiskerfi o. fl.
49.900 kr.
Verð áður 59.900 kr.
AEG
ELOAVÉL - COMPETENCE 5012 V-W
Fristandandi H-85, B-60, D60
Keramik-helluborð, auðvelt að þrifa
Ofn 51 lítra, blástur og grill,
ofninn er mjög auðvelt að þrífa
45
sm
jj§íÉ|
/■JjlliíiUU ú-
r 1
' ÖZJ.1
©Husqvarna
HELLUBORÐ - P04R2
Keramikborð með
snerti takkar
VEGGOFN - QCE 351
Undir og yfirhití, grill, blástur.
Grill með blæstrio.fl.
Þvottavél WG 935
Tekur 5,0 kg., 15 þvottakerfi, stiglaus hitastillir,
500 - 900 sn/mín vinduhraði, ryðfrí tromla o. fl.
Mál: H-85 B-60 D-60 sm
39.900 kr
AEG © Hiisqvarna ^índesíl-
BRÆÐURNIR
momssoK
Láamúla 8 • Sími 533 2800
Sigríður Þorgeirsdóttir
► Sigríður Þorgeirsdóttir er
fædd í Reykjavík árið 1958.
Hún stundaði heimspekinám í
Bandaríkjunum og Þýskalandi
og lauk doktorsprófi frá Há-
skólanum í Berlín árið 1993.
Hún kenndi heimspeki við Há-
skólann í Rostock í Þýskalandi
frá 1993-1996. Sigríður hefúr
verið lektor í heimspeki við
Háskóla Islands frá árinu
1997.
Eiginmaður hennar er
Magnús Diðrik Baldursson, að-
stoðarmaður rektors við Há-
skóla íslands, og eiga þau eina
dóttur.
Málþing um Simone de Beauvoir
Móðir samtíma
femínisma
ITILEFNI 50 ára út-
gáfúafmælis tíma-
mótaverksins Hins
kynsins eftir franska
heimspekinginn og rit-
höfundinn Simone de
Beauvoir stendur Rann-
sóknastofa í kvennafræð-
um fyrir málþingi á
morgun, föstudaginn 19.
mars. Sigríðm’ Þorgeirs-
dóttir er einn sldpuleggj-
enda málþingsins.
„Hitt kynið var tíma-
mótaverk. Þetta er í raun
fyrsta tilraunin á þessari
öld til að kanna stöðu
kvenna í sögulegu og fé-
lagslegu ljósi. Margir
telja að Hitt kynið hafi
komið af stað því sem
kallað hefur verið önnur
bylgja femínismans."
- Hvenærhófst sú bylgja?
„Fyrri bylgja femínismans
kom fram um og eftir síðustu
aldamót þegar konur voru að
berjast fyrir kosningarétti og
kjörgengi. Þegar búið var að
tryggja þau grundvallarréttindi
lægði öldurnar og önnur bylgja
femínismans er talin hefjast á
sjöunda áratugnum sem bein af-
leiðing af þessu tímamótaverki
Simone de Beauvoir."
- Um hvað fjallar bókin Hitt
kynið?
„Þetta er doðrantur upp á tæp-
ar þúsund síður. Simone de
Beauvoir sótti gjarnan efnivið í
skáldsögur í eigið líf. Hún sagðist
þó þurfa að kanna hvað það
merkti að vera kona ef hún ætti
að nota eigið líf sem efnivið. Hún
sá að það skipti sköpum í lífi
hennar að hún væri kona. Því hóf
hún að rannsaka sögu kvenna,
hlutverk þeirra í mannkynssög-
unni og hvers vegna óréttlát
skipting kynhlutverka hefur
komið upp í aldanna rás. I fram-
haldi reyndi hún að beina sjónum
sínum að stöðu kvenna í samtím-
anum í þeim tilgangi að opna
þeim möguleika og tækifæri.
Hún sagði að konur byggju við
meira ófrelsi en karlar og ein af
grunnhugmyndum tilvistarspek-
innar er að maðurinn sé frjáls og
hafi val. Því fannst henni brýnt
að konur sem og karlar ættu að
geta nýtt sér frelsi sitt.“
- Hver er tilgangurinn
málþinginu?
„Hann er fyrst og fremst að
meta við aldarlok framlag
Beauvoh' til heimspeki, kvenna-
og kynjafræða, bókmennta og
kvennabaráttu. Það er enginn
vafi á að Simone de Beauvoir er
einn merkasti hugsuður úr röð-
um kvenna á þessari öld. Þessi
framúrstefnukona aldamótakyn-
slóðarinnar fór eigin leiðir í lífi
sínu og verki og lagði áherslu á
frelsi kvenna og að þær nytu
réttar til jafns á við ________
karla. Hennar líf var í
raun ein allsheijar til-
raun. Simone de
Beauvoir fór eigin
leiðir og var ásamt Je-
an-Paul Sartre alltaf í
fremstu víglínu samfélagsgagn-
rýnenda í Frakklandi."
Sigríður segir að Simone de
Beauvoir sé móðir femínisma
samtímans. „Innan femínismans
hefur Beauvoir samt verið um-
deild. Allir femínistar eru sam-
mála um áhrifamátt verks henn-
ar, en sumir femínistar eru ósátt-
ir við margt sem hún hafði að
segja um konur eins og t.d. móð-
urhlutverkið. Þeim finnst hún
líka göfga lilutverk karla og
leggja upp úr að gera konur eins
og karla.
Næsta kynslóð femínismans
benti því á sérstöðu kvenna og
jákvæða þætti kvennamenning-
ar. Það var einmitt einkennandi
fyrir málflutning íslenskra
femínista, til dæmis í Kvennalist-
anum, að sýna fram á jákvæða
eiginleika kvenna og hvemig þeir
væru nauðsynlegir í allri opin-
berri umræðu. Það var lögð
áhersla á hina móðurlegu um-
hyggju og samstöðu og svo fram-
vegis. Þessi hugmyndafræði
sætti síðan töluverðri gagnrýni
þegar fi-am í sótti því hún þótti
birta of einhliða mynd af konum.
A þann hátt erum við aftur að
færast nær áherslum Beauvoir á
með jafnan rétt kynjanna til frelsis."
- Hafa samlandar Beauvoir
gagnrýnthana?
„Já, það má eiginlega segja að
hún hafi verið hvað mest gagn-
íýnd af femínískum fræðimönn-
um í Frakklandi. Þar hafa verið
áberandi svokallaðir mismunar-
femínistar sem leggja ríka
áherslu á hvað kynin séu mis-
munandi og þeim hefur fundist
Beauvoir gera lítið úr séreigin-
leikum kvenna. Beauvoir er hins-
vegar um þessar mundir aftur
_________ komin meira inn í
umræðuna í Frakk-
landi. Þar er mikið
vitnað í hana í um-
ræðu um frumvarp til
laga um leiðir til að
“~ jafna hlut kynjanna í
opinberum stöðum.“
Sigríður segir að á málþinginu
verði leitast við að endurmeta
þýðingu Beauvoir iyrir sam-
tímaumræðuna. „Endurskoðun
sígildra verka eins og Hins kyns-
ins gefur okkur tækifæri til að
leita svara við spumingum sem
brenna á okkur.“
Málþingið verður haldið í há-
tíðarsal Háskóla Islands fi-á kl.
14-17.30.
Einn merkasti
hugsuður úr
röðum kvenna
á þessari öld