Morgunblaðið - 18.03.1999, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999 11
FRÉTTIR
Refaskyttan Guðbrandur Sverrisson um slys sitt við refaveiðar í Balafjöllum á Ströndum
Morgunblaðið/Ásdís
GUÐBRANDUR segist ekki vera þannig gerður að hann láti svartsýni
leggjast á sálina enda leggur hann áherslu á hversu lánsamur hann
hafi verið þegar á öllu er á botninn hvolft.
„Atburðarásin
einkenndist af
röð happa“
REFASKYTTAN Guðbrandur
Sverrisson frá Bassastöðum í
Strandasýslu hefur legið á
sjúkrahúsi í rúma viku eftir slys
við refaveiðar í Balafjöllum á
Ströndum 8. mars sl. Hann varð
fyrir skoti úr eigin byssu rétt eft-
ir klukkan 13 er hann var á veið-
um og komst særður á vélsleða
sínum niður af fjallinu og segir
atburðarásina, frá því þegar
skotið hljóp úr haglabyssunni,
þar til er hann hitti óvænt fyrir
björgunarmenn á æfingu með
þyrlu Landhelgisgæslunnar um
10 km frá slysstaðnum, hafa ein-
kennst af röð happa þrátt fyrir
sjálft óhappið.
„Fyrsta happið var að skjóta
ekki í sundur slagæðar, því þá
væri ég sjálfsagt úr leik, anuað
happið var að geta snúið vélsleð-
anum við á grjótholti og þriðja
happið var að hitta á þyrlu Land-
helgisgæslunnar við Laugarhól,"
segir Guðbrandur.
Skotið hljóp úr haglabyssunni
er Guðbrandur rann á svelli og
kom í hægra læri hans rétt fyrir
ofan hné og særðist hann illa.
Á alltaf að setja öryggið
á byssuna
„Þarna gerðist það sem ég er
búinn að prédika fyrir mörgum
og prédika enn, að maður á
alltaf að setja öryggið á um leið
og maður setur skot fram í
hlaup á byssu,“ segir Guðbrand-
ur. „Svo vitlaust sem það nú er
þá hugsaði ég það þegar ég var
að leggja af stað heim hvort ég
ætti ekki að reyna að komast
framhjá bæjunum án þess að
láta vita af mér því ég dauð-
skammaðist mín fyrir að þetta
skyldi koma fyrir mig,“ segir
hann og beinir því til skyttna að
hafa alltaf öryggið á byssum sín-
um ef skotið er komið fram í
hlaupið, jafnvel þótt bráðin sé í
nánd.
Guðbrandur segir að um 15
cm af lærleggnum hafi horfið
þegar skotið lenti í honum, en
þess má geta að skotið í hagla-
byssunni var það sama og oft er
notað við gæsaveiðar, þ.e. 2 3/4
tomma skot með 42 gramma
hleðslu. „Það hefur kannski
bjargað einhverju að ég var ekki
með 3 tomma skot,“ segir Guð-
brandur og bætir við að byssan
hafi verið rnjög nálægt leggnum
þar sem gatið hafi verið mjög
þröngt.
Þegar Guðbrandi var ljóst
hvað hafði gerst hugðist hann
rísa á fætur en komst fljótlega
að raun um að hann gæti með
engu móti stigið í fótinn og
erfitt verk var framundan, en
það var að snúa vélsleðanum við
á grjótholti svo gott sem ein-
fættur.
Vissi að leit yrði ekki hafin
fyrr en um kvöldið
„Ég áttaði mig fljótt á því að
ég yrði að koma mér sjálfur til
byggða og vissi að leit yrði ekki
hafin fyrr en um kvöldið og þá
yrði um seinan að bjarga mér
því það gengur fljótt á menn ef
þeir eru særðir í óbyggðum og
geta ekki búið almennilega um
sig. Ég hugsaði sem svo að ann-
aðhvort yrði ég að spila úr þessu
sjálfur eða vera mát,“ segir Guð-
brandur og hlær við.
Guðbrandur þurfti að snúa
sleða sínum fjórðung úr hring til
að kornast til baka og varð að
lyfta honum lítið eitt í þokkabót,
en segist ekki muna nákvæm-
lega hvernig hann hafði það af,
en það tókst engu að síður.
Hann segir að leiðin niður á
aðalveginn frá fjallsbrúninni þar
sem slysið átti sér stað sé frekar
slæm með töluverðum hliðar-
halla og því hafi hann ekki mátt
fara þá leið þar sem hann hefði
ekki getað staðið af sér hliðar-
hallann með skaddaðan fótinn.
Því hafi hann þurft að velja aðra
leið en þá beinustu áður en hann
lagði af stað niður af fjallinu.
„Ég komst niður að Laugar-
hóli áfallalaust en ég get viður-
kennt að það var betra að aka á
snjó heldur en á hörðum grjót-
holtum, en ég varð að fara
hvorttveggja. Þegar ég kom
niður á hæð sem er rétt norðan
við bæinn Reykjarvík og niður á
veginn, taldi ég mig öruggan
með að komast eftir veginum
heim og stuttu síðar sé ég þyrl-
una og þar varð skynsemin vit-
leysunni yfirserkari," segir
Guðbrandur og vísar til þeirra
áforma að reyna að komast
óséður með sár sitt heim til sín
eða jafnvel til Hólmavíkur, sem
er í um 25 km vegalengd frá
Reykjarvík.
„Ég sá að þarna myndi henda
mig eitt lánið enn, sem höfðu
fylgt mér eftir að ólánið henti.
Þyrlan var rétt nýfarin af stað á
leið suður þegar ég kom og ég
sagði björgunarmönnunum, sem
voru þarna við æfingar að nú
skyldu þeir kalla aftur á þyrluna
því ég ætlaði með henni suður,“
segir Guðbrandur.
Hann telur að björgunarsveit-
armennirnir hafi haldið að hann
væri að grínast því sárið sást
ekki mikið á honuin þar sem
hann kom akandi á vélsleða sín-
um, að því er virtist alheill.
„Þeir brugðust fljótt og vel við
þegar sáu hvers kyns var og
þyrlan var komin eftir ör-
skamma stund.“
Guðbrandur segist ekki vera
þannig gerður að hann láti
svartsýni leggjast á sálina enda
leggur hann áherslu á hversu
lánsamur hann hafi verið þegar
öllu er á botninn hvolft.
Meiðslin koma ekki í veg fyrir
refaskyttirí í framtíðinni
Guðbrandur, sem er 53 ára
gamall og atvinnuskytta til
margra ára, mun fá staurfót, en
segir að meiðslin muni ekki
koma í veg fyrir að hann haldi
áfram iðju sinni, en hann vill
vekja athygli á þeirri skoðun
sinni að refnum megi alls ekki
eyða í landinu.
„Refurinn getur lifað með
landinu í sátt ef honum fjölgar
ekki úr hófi og það kostar ekki
mikið að halda stofnstærðinni
hæfilegri og þá verður hann öll-
um til ánægju. En minkurinn er
öðruvísi því hann eyðir vissum
hlutum af náttúrunni, og má þar
nefna teistuna, flórgoðann og
keldusvínið."
Guðbrandur vill að lokum
koma þakklæti til allra þeirra
sem hafa veitt honum og eigin-
konu hans stuðning og aðstoð við
búskapinn á Bassastöðum eftir
að slysið átti sér stað.
Lögreglustjórinn í Reykjaviík ákveður fyrirkomulag skemmtana um páskana
Opið frá miðnætti á föstu-
daginn langa og páskadag
Hafnarfjarðarhöfn
Vinna hafin á
ný við hafnar-
garðinn
DREGIÐ var úr vinnu við nýjan
grjótgarð í Hafnarfjarðarhöfn í
byrjun mánaðarins eftir að garð-
urinn sökk um 2,5 metra á einni
nóttu á um 50 metra kafla. Sigið
hefur stöðvast og er vinna hafin á
ný að sögn Más Sveinbjörnssonar,
framkvæmdastjóra Hafnarfjarðar-
hafnar.
Ái' er síðan hafist var handa við
nýtt hafnarsvæði í Hafnarfirði á 22
hektara landfyllingu ásamt varn-
argarði, sem gengur norður úr
landfyllingunni. „Landfyllingin er
á föstum botni en varnargarðurinn
er byggður út á þykkt lag, sem er
leir og sandur og er mjög vatns-
ósa,“ sagði Már. „Þetta hefur allt
verið rannsakað vel og hannað í
samræmi við aðstæður og verkið
skipulagt með tilliti til þess að
miklu sjávarefni er dælt á botninn.
Það verk hófst í mars á síðasta ári
en í nóvember síðastliðnum var
farið að aka landefninu út.“
Már sagði að vel væri fylgst með
sigi og hraða framkvæmda á fyll-
ingunni væri stjórnað með tiiliti til
þess. „Þetta er ákveðinn línudans,"
sagði hann. „Við höfum stundum
keyrt landefnið hratt að en hægt á
okkur ef það fer að síga hratt til að
ofbjóða ekki grunninum."
LÖGREGLUSTJÓRINN í
Reykjavík hefur ákveðið að heim-
ila skemmtanahald frá miðnætti
föstudaginn langa og á páskadag
til kl. 4 og eftir atvikum með
áfengisveitingum. Heimildin er
byggð á lögum nr. 32 frá árinu
1997.
í frétt frá embættinu kemur
fram að almennar skemmtanir eru
heimilaðar fram til kl. 3 eftir mið-
nætti miðvikudaginn 31. mars og
fram til 23.30 á skírdag. Á föstu-
daginn langa er skemmtanahald
bannað fram til miðnættis en
heimilt frá miðnætti fram til kl. 4
og eftir atvikum með áfengisveit-
ingum.
Laugardaginn 3. apríl er
skemmtanahald heimilt fram til kl.
3. Á páskadag, 4. apríl, er skemmt-
anahald bannað fram til miðnættis
en heimilt frá miðnætti fram til kl.
4 og eftir atvikum með áfengisveit-
ingum. Annan í páskum er
skemmtanahald heimilt fram til kl.
3.
Til frekari skýringa segir að á
föstudaginn langa og páskadag séu
skemmtanir óheimilar svo sem
dansleikir eða einkasamkvæmi á
opinberum veitingastöðum eða á
öðrum stöðum sem almenningur
hefur aðgang að. Sama gildir um
opinberar sýningar og skemmtanir
þar sem happdrætti, bingó eða
önnur svipuð starfsemi fer fram.
Jafnframt eru markaðir óheimilir
og verslunarstarfsemi, svo og önn-
ur viðskiptastarfsemi.
Bensínstöðvar mega
hafa opið
Undanþágur frá banni þessa
daga eru starfsemi lyfjabúða,
bensínstöðva, verslana á flugvöll-
um og fríhafnarsvæðum, blóma-
verslana, söluturna og mynd-
bandaleigna. Jafnframt gististarf-
semi og tengd þjónusta.
Sama á við um íþrótta- og úti-
vistarstarfsemi, listsýningar, tón-
leika, leiksýningar og kvikmynda-
sýningar eða sams konar sýningar.
Einnig má halda og veita aðgang
að sýningum er varða vísindi eða
er ætlað að gegna almennu upplýs-
ingahlutverki, t.d. listasöfn og
bókasöfn en starfsemin má ekki
heíjast fyrr en kl. 15. Loks má
heimila dansleiki sem hefjast að
kvöldi laugardags fyi'ir páska og
standa aðfaranótt páskadags sam-
kvæmt almennum reglum.
r
DRAGTIR
SERTILBOÐ
5 slk.- Ferðatöskusett
9900
ALLAR STÆRÐIR • MIKIÐ ÚRVAL
Aðeins
kr. 3290,-
Quelle
VERSLUN
DALVEGI 2 • KÓPAVOGI
SÍMI: 564 2000