Morgunblaðið - 18.03.1999, Side 13

Morgunblaðið - 18.03.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999 13 FRÉTTIR SJÖ deildir Háskóla íslands era kjölfestan í meistaranámi í um- hverfisfræðum ásamt Umhverfis- stofnun Háskólans. Ur umhverf- isfræðum mun því útskrifast breiður hópur nemenda en að sögn Geirs Oddssonar forstöðu- manns Umhverfisstofnunar er bi-ýn þörf í þjóðfélaginu fyrir starfskrafta þeiiTa. „Það er skortur á fólki með framhalds- menntun í umhverfisfræðum," segir hann. Tveggja ára meistaranám í um- hverfisfræðum hefst í haust við Háskólann, en forkröfur era 1. stig háskólanáms (BS/BA). Um- hverfisfræðin era þverfagleg og að náminu standa: Raunvísinda- deild, verkfræðideild, viðskipta- og hagfræðideild, félagsvísinda- deild, heimspekideild, guðfræði- deild og lagadeild. „Nemendur út- skrifast svo hver hjá sinni deild, ýmist með M.S.-gráðu eða M.A.- gráðu,“ segir Geir Oddsson sem hefur umsjón með náminu. Fyi-ra árið samanstendur af fóstum grannnámskeiðum en seinna árið er annars vegar lokaverkefni (15 ein.) og hins vegar námskeið (15 ein.) á sérsviði sem mælt er með að tekið sé við erlendan háskóla. Umsóknarfrestur um námið renn- ur út næsta mánudag (22. mars). Atvinnulífið og unihverfismál Umhverfisfræði er hátt skrifað fag í mörgum löndum og hefur verið leitað að menntuðu fólki í þessu fagi á mörgum sviðum at- Nóg að gera fyrir umhverf- isfræðinga vinnulífsins: Sjávar- útvegi, ferðaþjón- ustu, lögfræðistofum, uppeldisstofnunum, stóriðju, viðskiptalífi og fleira. „Bæði rík- isstofnanir og einka- fyrirtæki sækjast eftir umhverfisfræð- ingum,“ segir Geir, „nefna má Hollustu- vemd ríkisins, Skipu- lagsstofnun og sveit- arfélög sem vilja vera með umhverfis- fulltrúa eins og heil- brigðisfulltrúa.“ Geir nefnir einnig verkefni fyrir um- hverfisfræðinga sem felsast t.d. í mati á umhverfisáhrifum, meng- unarvörnum og lagagerð. „Það er sífellt meira verið að fjalla um umhverfismál í lagarömmum," segir hann. „Umhverfisfræðsla er viðamik- ill þáttur í grannskólum 1 mörg- um löndum," segir Geir, „Fræðsluyfirvöld í Reykjavík hafa t.d. mikinn áhuga á þeirri fræðslu og það vant- ar fólk til að búa til námsefni handa öll- um skólastigunum.“ Umhverfisfræðin era vel skipulögð og undirbúin. Geir segir að þau verði sett upp á líkan hátt og í ná- grannalöndunum eins og t.d. Svíþjóð. Námið verður einnig tengt sérvöldum er- lendum háskólum og stofnunum, en einn helsti kostur þess er þverfagleg nálgun. Dæmi um verkefni í umhverfisfræði Geir Oddsson hefui' einmitt menntað sig í fleiri en einu fagi. Hann er B.S. í lífræði við Háskóla Islands, M.S. í tölfræðilegri fiski- fræði frá University of Was- hington í Seattle í Bandaríkjunum og er að leggja síðustu hönd á Geir Oddsson doktorsverkefni við sama skóla um stjóm á grannsjávarveiðum í þróunarlöndunum. Hann hefur fléttað mannfræði og hagfræði inn í nám sitt og rannsókn hans á fisk- veiðum á Grænhöfðaeyjum (lýð- veldi á eyjaklasa vestur af vest- asta odda Afríku) er þverfagleg. „Álagið á grannsævisauðlindir í þróunarlöndunum hefur aukist og er að breytast í ofveiði en 60% af matfiski er veiddur í þróunar- löndunum. Ég hef blandað saman hagfræði, líffræði og félagsfræði í verkefni mínu og hef búið til líkan (stjórnkerfi) sem hefur vakið at- hygli, en það er um samspil ferða- þjónustu og fiskveiða. Ferðaþjón- ustan gefur fiskimönnum tæki- færi á öðram störfum og betri launum. Þeir ráða sig sem kafara og leiðsögumenn ferðamanna sem vilja til dæmis prófa að veiða. Þetta léttir á veiðunum. Hins vegar er ferðaþjónustan þarna oft ekki umhverfissvæn og auk þess er hún oftast fjármögnuð af er- lendum fyrirtækjum og gróðinn rennur strax úr landi. Hér er því um mjög flókið dæmi að ræða, með margar hliðar." Geir nefnir þetta sem dæmi um umhverfisfræði og einnig að mörg spennandi verkefni eigi eft- ir að vinna hér á landi, t.d. í haf- vemdun og mati á verðmætum ósnortinnar náttúra og strand- svæðum íslands. Til þess henti þverfagleg nálgun umhverfís- fræða vel og einnig að allir sem málið varðar fái að vei-a með til að skapa sátt og trausta niðurstöðu. Yfírheyrð- ir vegna gruns um líkamsárás RANNSÓKNARLÖGREGLAN í Hafnai-firði hefur yfirheyrt tvo grunaða menn vegna rannsóknar á margþættu sakamáli sem upp kom síðastliðinn mánudag þegar brotist var inn á heimili karl- manns á fimmtugsaldri í Hafnar- firði og honum veittir talsverðir áverkar. Auk innbrots og líkamsárásar er sakarefnið ólögmæt nauðung, en mennimir, sem yfirheyrðir hafa verið era grunaðir um að hafa þvingað brotaþola til að skrifa undir bifreiðaafsal og rænt hann fjármunum. Mennirnir era enn- fremur grunaðir um að hafa þving- að manninn með sér út af heimil- inu og ekið með hann til Reykja- víkur þar sem hann var skilinn eft- ir slasaður. Hinir granuðu eru ekki í haldi lögreglu og hefur ekki verið talin ástæða til að krefjast gæsluvarð- halds yfir þeim. Þrátt fyrir að manninum hafi verið veittir talsverðir áverkar var hann ekki það slasaður að ástæða hefði verið til að leggja hann inn á sjúkrahús og er hann að sögn lög- reglunnar talinn óbrotinn þótt hugsanlegt sé að annar augnbotn hans hafi særst í árásinni. Mnm BÍLAR ALLIR SUZUKI MEÐ ERU • vökvastýri • 2 loftpúða • aflmiklar vélar • samlæsingar rafmagn I rúðum og speglum • styrktarbita í hurðum • • samlitaða stuðara • ÞRIR EKTA JEPPAR - EITT MERKI - og JIMNY fékk gullverðlaunin '98 í Japan fyrir útlit, gæði, eiginleika og möguleika! Komdu FULL JIMNY TEGUND: NŒRÐ: Beinskiptur 1.399.000 KR. Sjálfskiptur 1-519.000 KR. VITARA TEGUND: JLX SE 3d JLX SE 5d DIESEL 5d VERÐ: 1.580.000 KR. 1.830.000 KR. 2.180.000 KR. GRAND VITARA TEGUND: VERÐ: GR, VITARA 2,0 L 2.179.000 KR. GR.VITARA EXCLUSIVE2.5LV6 2.589.000 KR. og sestu innl Skoðaðu verð og gerðu samanburð. $ SUZUKI -»•51*- SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, simi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf., Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. Isafjörður: Bílagarður ehf.,Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrísmýri 5, simi 482 37 00. Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.