Morgunblaðið - 18.03.1999, Síða 14

Morgunblaðið - 18.03.1999, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Unnið að flutningi framleiðsludeildar Plastos umbúða til Akureyrar Ako-plast vill kaupa húsnæði Rafveitunnar Morgunblaðið/Kristján FORSVARSMENN Ako-plasts hafa gert kauptilboð í húsnæði Rafveitu Akureyrar við Þórsstíg. FORSVARSMENN Ako-plasts á Akureyri hafa sent bæjarráði kauptilboð í húsnæði Rafveitu Akureyrar við Þórsstíg. Húsnæðið er um 1.800 fermetrar að stærð og þar af er skrifstofuálma hússins um 440 fermetrar. Eigendur Ako-plasts eignuðust rúmlega 75% hlut í Pla- stos umbúðum í Garðabæ undir lok síðasta árs og eins og komið hefur fram er stefnt að því að flytja fram- leiðsluþátt fyrirtækisins frá Garða- bæ til Akureyrar. Jafnframt er unn- ið að tækniiegum samruna fyrir- tækjanna undir nafni AKO/Plastos. Við flutninginn myndi starfsfólki norðan heiða íjölga um 50 og verða um 65 talsins. Um er að ræða prent- deild, pokadeild og filmuframleiðslu. Húsnæði Ako-plasts við Tryggva- braut rámai' ekki aukin umsvif á Akureyri og möguleiki til stækkunar er ekki fyrir hendi. Því hafa for- svarsmenn félgasins þreifað fyrir sér á húsnæðismarkaðnum í bænum. Hentugasti og ódýrasti kosturinn „Við óskuðum eftir svari frá bæj- aryfirvöldum fyrir 19. mars en það er ljóst að málið tekur lengri tíma,“ sagði Daníel Ámason, fram- kvæmdastjóri Ako-plasts. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akur- eyri, sagðist hafa gert Daníel grein fyrir því að ekki væri hægt að af- greiða kauptilboðið fyrir umræddan tíma. „Við lýstum hins vegar yfir viija til að skoða málið og þá hvort og hvernig væri hægt að mæta því. í þvi felst þó engin skuldbinding um að við göngum að svona kauptilboði, heldur fyrst og fremst viljayfirlýs- ing um að skoða þetta af fullri al- vöi*u og það verk er hafíð,“ sagði Kristján Þór. Daníel sagði að húsnæði Rafveit- unnar gæti nýst sem skrifstofuhús og hluti af verksmiðju en að byggja þyrfti um 2.000 fermetra hús til við- bótar til að fullnægja húsnæðisþörf- inni eftir flutninginn á framleiðslu- deildinni norður. „Við teljum þetta húsnæði vera hentugasta og ódýrasta kostinn fyrir okkur. Hægt er að koma því í notkun nokkuð fljótt, það er vel staðsett og þarna er gott byggingarland.“ Daníel sagði afar mikilvægt að niðurstaða fengist sem fyrst, þar sem m.a. væru tæki á hafnarbakk- anum í Reykjavík, sem þurfí að koma í notkun. „Þarna er um að ræða tæki upp á tugi milljóna króna sem bíða uppsetningar og stefna okkar er að setja þau upp á Akur- eyri.“ Rafveitustjóri vill ekki selja Aðspurður sagði Daníel að ekki hafí verið leitað eftir beinum stuðn- ingi bæjarins við flutninginn á framleiðsludeildinni í Garðabæ norður. „Frekar óbeinum stuðningi og jákvæð niðurstaða varðandi hús- næði Rafveitunnar kæmi okkur mjög vel. Einnig hefur verið rætt um möguleika á því að Fram- kvæmdasjóður keypti hlutafé í fyi’- irtækinu til að létta undir. Um það hafa þó ekki farið fram neinar við- ræður.“ Svanbjörn Sigurðsson rafveitu- stjóri sagði að þetta mál yrði rætt á fundi veitustjórnar á morgun, (í dag). „Þarna er um að ræða tilboð í hús Rafveitunnar og að mínu á ekki að selja það nema Rafveitan hafi hag af því. Þetta er húsnæði sem við höfum byggt og hentar okkar starf- semi. Það þarf því að vera einhver hagræðing í því að selja þetta hús og byggja annað en ég get ekki séð neina ástæðu til að selja húsið,“ sagði Svanbjörn. títivistar- skógar - ræktun og rekstur RÁÐSTEFNA um útivistar- skóga verður haldin í húsi Flugbjörgunarsveitarinnar á Akureyri, Galtalæk, á morgun, fóstudaginn 19. mars og hefst hún kl. 9. Skógræktarfélag Eyfirðinga og Skógi’æktarfé- lag fslands efna til ráðstefn- unnar. Víða hefur orðið árangurs- ríkt samstarf sveitarfélaga og skógræktarfélaga um ræktun og rekstur útivistarsvæða fyinr almenning. Útivistaráhugi virðist fara vaxandi og er það hluti af umhverfisstefnu margra sveitarfélaga að rækta upp skóglendi til útivistar. í flestum sveitarfélögum lands- ins eru starfandi skógræktar- félög áhugamanna um gi'óður- vernd og ræktun. Á ráðstefnunni verður fjall- að um samvinnu skógræktar- og sveitarfélaga, auk þess sem samstarf Akureyrarbæjar og Skógræktarfélags Eyfirðinga verður sérstaklega kynnt. Úi- vistarsvæðið í Kjarnaskógi verður skoðað og uppbygging útivistarsvæðisins tekin fyrir. Á meðal fyrirlesara verða sveitarstjórnarmenn, skóg- ræktarfélagsfólk og ýmisir notendur útivistarskóga. Ráð- stefnan er öllum opin. Starfsfólki í svarþjónustu Landssímans hefur fjölgað um 10 Morgunblaðið/Kristj án LANDSSIMINN hefur tekið í notkun nýtt afgreiðslukerfi hjá upplýsinga- númerinu 118 á Akureyri og er það mun hraðvirkara en eldra kerfíð. Gúmmívmnslan hf. Úr ársreikningi 1998 Rekstrarreikninqur 1998 1997 Breyting Rekstrartekjur Milljónir króna 143,4 147,1 -2,5% Rekstraraiöld 131,8 129,3 +1,9% Rekstrarhagnaður 11,7 17,8 -34,5% Fjármagnsliðir 3,1 2,7 +12,5% Tekiu- oq eiqnarskattur -6,2 -5,5 +11,3% Hagn. án afkomu hlutdeildarfélaga 8,6 15,0 -42,8% Hlutdeild í rekstri hlutdeildarfélaga -1,0 -1,7 -38,0% Hagnaður ársins 7,6 13,4 -43,3% Efnahaqsreikningur 31. des. 1998 1997 Breyting I Eiqnir: I Veltufjármunir Milljónir króna 108,8 102,1 +6,6% Fastafjármunir 55,0 64,5 -14,7% Eignir samtals 163,8 166,6 -1,6% Skammtímaskuldir 36,7 41,1 -10,7% Langtímaskuldir 23,7 27,8 -14,0% Eigið fé 103,5 97,6 +5,0% Skuidir og eigið fé samtals 163,8 166,6 -1,6% Kennitöiur Veltufé frá rekstri 14,4 21,7 Eiginfjárhlutfall 63% 59% Veltufjárhlutfall 2,96 2,48 Afkoma Gúmmívinnustofunnar lakari en 1997 Hagnaður nam 7,6 milljónum kr. Gífurlegur áhugi fyrir störfunum STARFSFÓLKI svarþjónustunn- ar í upplýsinganúmerinu 118 á Akureyri hefur fjölgað um 10 á síðustu mánuðum, úr 17 í 27, frá því að forsvarsmenn Landssíma Islands kynntu fyrirhugaðar breytingar í byijun desember sl., þess efnis að flytja fjöfda starfa í upplýsinganúmerinu frá Reykja- vík til Akureyrar. Óli Gunnarsson, skrifstofu- stjóri fyrir ritsíma og talsam- bönd Landssímans, sagði mikinn áhuga fyrir störfum hjá 118 á Akureyri og að uin 50 starfsum- sóknir liggi þar inni. Að undan- förnu hefur verið unnið að því að setja upp nýtt afgreiðslukerfi í upplýsinganúmerinu. I þessu nýja kerfi verður m.a. hægt að bjóða viðskiptavinum að tengjast áfram því númeri sem þeir eru að biðja um. Ester Krisfjánsdóttir varð- sfjóri sagði nýja kerfið mun hraðvirkara en eldra kerfið, sem hafi verið nánast aflagt. Nýja kerfið er þó ekki komið í fulla notkun. „Þegar kerfið verður komið í fullan gang verður staðan hér mjög góð auk þess sem vinnuaðstaðan er orðin alveg frábær," sagði Ester. Unnið er í vaktavinnu í upplýs- inganúmerinu á Akureyri, frá kl. 08 til miðnættis og er flest starfs- fólk að störfum á helsta álags- tímanum, frá kl. 10-19. Óli sagði ekki fullljóst á þessari stundu hversu margir starfsmenn komi til með að starfa við 118 á Akur- eyri í framtíðinni en ekki væri óvarlegt að áætla að þeir yrðu nálægt 40 talsins. Skákmót SKÁKFÉLAG Akureyrar heldur sjö mínútna mót í skák- heimilinu við Þingvallastræti 18 í kvöld, fímmtudagskvöldið 18. mars og hefst það kl. 20. Á sunnudag verður á sama stað fímmtán mínútna mót og hefst það kl. 14. REKSTUR Gúmmívinnustofunnar hf. á Akureyri skilaði 7,6 milljóna króna hagnaði árið 1998. Það er nokkru lakari afkoma en á árinu áð- ur sem raunar var eitt besta rekstr- arár Gúmmívinnustofunnar frá upp- hafí, samkvæmt fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Mikil söluaukning frá áramótum gefur á hinn bóginn vonir um upp- sveiflu á yfirstandandi ári, að því er fram kemur í tilkynningunni. „Afkoma ársins hefði vissulega mátt vera betri en í þessum tölum er samt margt jákvætt. Veltan dróst lít- illega saman og má einkum rekja það til samdráttar í sólningu hjólbai’ða, sem er ein af fjórum deildum fyrir- tækisins. I stáldeildinni, þar sem við framleiðum stálbobbinga fyrir físki- skip, var veltan nánast óbreytt milli ára. Ánægjulegustu tíðindin eru aukning í framleiðslu og sölu á vörum úr endurunnu gúmmíi og aukin um- svif í þeirri deild sem sér um rekstur dekkjaverkstæðis og innflutning og sölu á nýjum hjólbörðum,“ segir Þór- arinn Ki’istjánsson framkvæmda- stjóri Gúmmívinnslunnar í fréttatil- kynningunni frá fyrirtækinu. Gúmmívinnslan hefur m.a. einka- umboð hérlendis fyrir Bridgestone hjólbarða og hefur þegar náð tals- verðri markaðshlutdeild. I tilkynningunni segist Þórarinn vera bjartsýnn á reksturinn á þessu ári og segir hann að þegar sé veruleg aukning sjáanleg í stáldeild og eind- umnnsludeild, sem og í sölu á hjól- börðum til notkunar í landbúnaði. Aðalfundur Knattspyrnufélags Akureyrar verður haldinn fimmtudaginn 25. mars kl. 20.30. -Dagskrá:- Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Félagar fjölmennið Aðalstjórn KA. AÐALFUNDUR A ÞROSKAHJÁLP Á NORDURLANDI EYSTRA Þroskahjálp Norðurlandi eystra heldur aðalfund 25. mars kl. 20.00 á Fosshótel Kea. Venjuleg aðalfundarstörf. Félagar fjölmennið. Nýir félagar boðnir velkomnir. Stiómin. <

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.