Morgunblaðið - 18.03.1999, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Stjórnkerfískreppa ESB ýtir öðrum mikilvægum málefnum í skuggann
Þjóðverjar reyna að tryggja
árangur á Berlínarfundinum
Reuters
Ómannúðleg
meðferð
PALESTÍNUMAÐURINN Amin
Abu Sneineh hlaut í gær frelsi
sitt að nýju en fjölskylda hans
hafði neytt hann til að dvelja í
helli með geitum fjölskyldunnar
og hænsnum undanfarin fimm
ár. Sneineh, sem er tuttugu ára
gamall, losnaði úr prísundinni
eftir að nágrannar höfðu kvart-
að við palestínsk yfírvöld yfír
meðferðinni á honum og gripu
þau þegar í taumana. Sneineh
dvelur nú á endurhæfíngar-
heimili í Hebron á Vesturbakk-
anum en á myndinni má sjá í
hvernig ásigkomulagi hann var
þegar yfirvöld komu honum til
bjargar.
Skák á
bekk með
íþróttum
London. Morgunblaðið.
BRETAR hafa ákveðið að taka
skák í hóp íþrótta. Þetta þýðir
fyrst og fremst að skákmenn fá
nú aðgang að opinberum
íþróttasjóðum og ættu að fá
sneið af lottókökunni. Tony
Banks íþróttamálaráðherra
hefur að sögn dagblaðsins The
Independent lýst vilja ríkis-
stjórnarinnar til þess að breyta
lögum svo skákin megi teljast
íþróttagrein í Bretlandi til
jafns við fótbolta og aðrar
greinar.
Robin Mackley, fram-
kvæmdastjóri brezka skák-
sambandsins, telur þetta góðar
fréttir og segir skákmenn hafa
barizt fyrir þessu árum saman.
„Snjall leikur" er fyrirsögn
leiðara The Independent og
segir blaðið að þessi ákvörðun
sé löngu tímabær. Loksins lék
Tony Banks ekki af sér!
Allt kapp lagt á
leit að arftaka
Santers
RÍKISSTJÓRNIR aðildarlanda
Evrópusambandsins (ESB) lögðu í
gær allt kapp á að komast að niður-
stöðu um það hverjir gætu tekið
við af hinum 20 meðlimum fram-
kvæmdastjórnar sambandsins,
sem sögðu af sér allir sem einn um
miðnætti á mánudagskvöld, og
hvenær og lögformlega hvernig
þau umskipti ættu að fara fram.
Allar þessar grundvallarspuming-
ar um hvernig brugðist skuli við
þegar framkvæmdastjómin segir
af sér em opnar, þar sem þetta er í
fyrsta sinn í 42 ára sögu ESB sem
slíkt gerist.
í ljós hefur komið að mjög skipt-
ar skoðanir era um það í höfuð-
borgum ESB-landanna 15 hvernig
farið skuli að í framhaldinu og
þýzka stjómin, sem gegnir for-
mennsku í ráðherraráðinu þetta
misserið, þarf nú að finna mála-
miðlun sem allir geta sætzt á, og
það sem allra fyrst.
Gerhard Schröder Þýzka-
landskanzlari hélt í gær áfram för
sinni milli ESB-höfuðborganna, en
tilgangur hennar var uppranalega
að þrýsta á um að leiðtogar ríkj-
anna kæmu sér saman um upp-
stokkun fjármála sambandsins fyr-
ir tímabilið 2000-2006 á fundi í
Berlín í næstu viku, en undirbún-
ingur þessarar uppstokkunar hefur
verið lengi í gangi og hálfs árs for-
mennskutíð Þjóðverja yrði vafa-
laust álitin hálfmisheppnuð ef þetta
samkomulag næst ekki. Þessi upp-
runalegi tilgangur Evrópuferðar
Schröders hefur hins vegar að
mestu fallið í skuggann af leitinni
að lausn á stjórnkerfiskreppunni í
Brussel. Sú leit beinist aðallega að
hentugum frambjóðanda til að taka
við Jacques Santer sem forseti
framkvæmdastjórnarinnar.
Schröder sagðist í gær alls ekki
vilja að leitin að nýrri fram-
kvæmdastjóm beindi sjónum
manna frá þeim mikilvægu málum
sem taka yrði ákvarðanir um á
Berlínarfundinum, sem hefst á mið-
vikudag og á að standa í tvo daga.
Allar ríkisstjómir aðildarland-
anna yrðu að tilnefna frambjóð-
anda í embætti forseta fram-
kvæmdastjórnarinnar á allra
næstu dögum, ef takast ætti að
taka ákvörðun um hverjum ber að
fela að taka við af Santer á fundin-
JACQUES Santer vætir kverk-
arnar við upphaf fundar fram-
kvæmdastjórnarinnar í gær.
Gerhard Schröder sagði í gær
útiiokað að Santer færi fyrir
framkvæmdastjórninni á ný.
alvörvj
Brettapakkar
Pakkavörur á
frábæru verði á útilífsdögum!
Munið eftir
fríkortinu.
Dagana 18. - 21. mars verða haldnir
ÚTILÍFSDAGAR í Útilífi, Glæsibæ.
Kynntir verða ýmsir möguleikar fyrir
alla fjölskylduna til að njóta útiveru
saman á fjölbreyttan og skemmti-
legan hátt.
ÚTILÍF
Skautapakkar
GLÆSIBÆ • S: 581 2922
Skíöapakkar
Ásetning innifalin.
um í Berlín. Heimildamenn
Reuters í aðstoðarmannaliði
Schröders upplýstu, að kanzlarinn
vOdi að tekin yrði á fundinum
ákvörðun um hvaða dag nýtt fimm
ára skipunartímabil arftaka
Santers ætti að hefjast.
Stjórnvöld sumra aðildarríkj-
anna vilja að Santer sitji, þrátt fyr-
ir afsögnina, út sitt skipunartíma-
bil, sem á að ljúka um næstu ára-
mót, en aðrir vilja bíða úrslita Evr-
ópuþingskosninganna, sem fram
fara í júní n.k., áður en nýr forseti
framkvæmdastjórnarinnar er val-
inn.
Schröder útilokaði í gær að til
greina kæmi að Santer fengi end-
umýjað umboð sitt til að fara fyrir
framkvæmdastjóminni. Bæði
þýzka og brezka stjómin vilja að
sem fyrst verði útnefndur arftaki
hans og hann skipaður til næstu
fimm ára.
Röðin komin að Þjóðveija?
Gúnter Verheugen, Evrópu-
málaráðherra Þýzkalands, sagðist í
gær draga í efa að nokkur niður-
staða næðist á Berlínarfundinum
um það hver yrði fyrir valinu í
stöðuna. Hann vildi ekki taka þátt í
vangaveltum um hvaða menn
kæmu til greina. I fjölmiðlum hafa
oftast heyrzt nefnd nöfn Romanos
Prodis, fyrrverandi forsætisráð-
herra Italíu, Antonio Guterres, for-
sætisráðherra Portúgals, og
tveggja Spánverja - Felipe Gonza-
lez, fyrrverandi forsætisráðherra,
og Javier Solana, núverandi fram-
EDITH Cresson lét engan bil-
bug á sér finna í gær og sagðist
í blaðaviðtali hafa orðið fórnar-
lamb ofsókna pólitískra and-
stæðinga í Þýzkalandi og hinum
norðlægari aðildarríkjum ESB.
kvæmdastjóri Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO).
„Það er engin leið að tilgreina
eitthvert einstakt nafn,“ sagði
Verheugen. Einn forystumaður í
þýzka jafnaðarmannaflokknum
(SPD) sá í gær ástæðu tO að lýsa
því yfir að Þjóðverji ætti að verða
eftirmaður Santers. Norbert Wi-
eczorek, Evrópumálatalsmaður
þingflokks SPD, vakti athygli á því
að Þjóðveiji hefði ekki valizt í emb-
ættið frá því Walter Hallstein
gegndi því á áranum 1958-1967.
„Það er raunveralega komin röðin
að Þýzkalandi," sagði Wieczorek, án
þess að nefna neinn. Helmut Kohl,
fyrrverandi kanzlari, hefur þegar
útilokað að sitt nafn verði nefnt í
þessu sambandi. Einnig hefur verið
minnzt á Rudolf Scharping, vamar-
málaráðherra og fyrrverandi for-
mann SPD, í þessu samhengi.
Javier Solana tjáði fréttamönn-
um í gær að hann væri „allt of upp-
tekinn“ til að geta svo mikið sem
leitt hugann að möguleikanum á
því að hann yrði tilnefndur arftaki
Lúxemborgarans Santers.
„Framkvæmdastjórinn er eins
og er á kafi í vinnu fyrir NATO, og
það í mjög mikilvægum verkefn-
um, við að undirbúa [50 ára hátíð-
ar-] leiðtogafund, og Kosovo-deilan
um það bil að ná hámarki ... hann
hefur sannarlega alls ekki tíma til
að leiða hugann að öðram hluturn,"
sagði talsmaður Solana á blaða-
mannafundi.
Cresson segir sig að ósekju
gerða að blóraböggli
Meðan á þessu gekk í gær sýndi
sá meðlimur framkvæmdastjórnar-
innar, sem varð fremur öðram fyr-
ir harkalegri gagnrýni í skýrslu
hinnar sérskipuðu spillingairann-
sóknarnefndar, engin merki um að
vilja viðurkenna sekt sína, nú frek-
ar en áður. Edith Cresson, sem fór
meðal annars með málefni evr-
ópsks rannsóknasamstarfs í fram-
kvæmdastjórninni en var á níunda
áratugnum forsætisráðherra
Frakklands skamma hríð, sagði í
blaðaviðtali sem birtist í gær að
skýrslan, sem varð til þess að
framkvæmdastjómin sagði af sér,
hefði verið endurskrifuð að miklu
leyti á síðustu stundu fyrir birtingu
í þeim tilgangi að láta hennar hlut
líta sem verst út.
„Einhver vildi að fólki væri talin
trú um að ég hefði lengi haft vit-
neskju um það sem aflaga fór og að
ég hefði vísvitandi reynt að villa
um fyi-ir Evrópuþinginu," hafði
franska dagblaðið Le Figaro eftir
Cresson.
Hún sagðist hafa fengið að lesa
þá kafla skýrslunnar sem hana
vörðuðu á sunnudag en hefði dreg-
ið þá ályktun að þeir hefðu verið
endurskrifaðir áður en skýrslan
kom fyrir almenningssjónir síðdeg-
is á mánudag.
í öðra blaðaviðtali sagði hún
einkum þýzka hægrimenn, sem
vildu sjá „höfuð sósíalískra með-
lima framkvæmdastjórnarinnar
fjúka,“ hafa gert hana að blóra-
böggli. Sagði hún þá hafa viljað
bjaga ímynd framkvæmdastjómar-
innar og útmála hana sem óábyrg-
ar eyðsluklær.
„Þetta opinberaði klofning milli
norður- og suðurevrópskra ríkja
innan sambandsins. Það var enginn
frá suðrænu landi sem tók þátt í
þessum mannaveiðum," sagði hún.
Þýzka ríkisstjórnin
Trittin segir drif-
kraftinn farinn
Bonn. Reuters.
JURGEN Trittin, umhvei-fisráð-
herra Þýzkalands og einn leiðtoga
þýzkra græningja, sagði í viðtali
sem útdrættir voru birtir úr í gær,
að brotthvarf Oskars Lafontaines
úr ríkisstjórninni hefði svipt sam-
starfsstjórn jafnaðarmanna (SPD)
og græningja öllum raunverulegum
umbótadrifkrafti.
„Rauð-grænt er búið að vera sem
umbótaafl. í bezta falli höfum við
ýmsa sameiginlega hagsmuni með
SPD,“ segir Trittin í viðtali sem
birtist í nýjasta hefti vikublaðsins
Stern.
Auk þess lét hann svo ummælt,
að sáralítinn mun væri hægt að
greina á stefnu SPD að Lafontaine
gengnum og stefnu stjórnarand-
stöðuflokks kristilegi-a demókrata
(CDU). „Til skemmri tíma litið
mælir jafn mikið með stjórnarsam-
starfi við CDU og SPD,“ sagði
Trittin.
Þessi ummæli ráðherrans mælt-
ust misjafnlega fyrir hjá ráðamönn-
um samstarfsflokksins. Gerhard
Schröder kanzlari sagði aðspurður
um þau á blaðamannafuni í Vín að
það væri fullljóst að samstarfsflokk-
arnir vildu viðhalda góðu samstai'fi-
Peter Struck, framkvæmdastjóri
SPD, sagði ummælin hins vegar
„ekki ýkja hjálpleg" og skoraði á
græningja að færa sönnur á stað-
festu þeirra að ætla að halda stjórn-
arsamstarfinu áfram út kjörtímabil-
ið. Því lýkur árið 2002.
„Ekkert ástarsamband"
„Hið „rauð-græna“ stjómarsam-
starf var aldrei ástarsamband," tjáði
Strack fréttamönnum. „Við höfum
gert sáttmála um samstarf í fjögur
ár til þess að hrinda umbótum í
framkvæmd. Hver sem á í hlut hefur
rétt á að endurskoða þetta samstarf
- að fjóram áram liðnum.“ Struck
minnti á, að daginn eftir afsögn
Lafontaines sagði Schröder kanzlari
að ekki stæði annað til en að hið
„rauð-græna“ stjómarsamstarf
héldist óbreytt út kjörtímabilið.