Morgunblaðið - 18.03.1999, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999 23
ERLENT
Meðlimur Afríska þjóðarráðsins dæmdur fyrir þjófnað
Stal úr alþjóðlegum
hjálparsjóðum fyrir börn
Höfðaborg. Reuters.
Reuters
BOESAK ásamt Elnu, konu sinni, er hann yfirgaf réttarsalinn í Höfða-
borg í gær. Var hann fundinn sekur um þjófnað og svik en refsingin
verður ákveðin í næstu viku.
SERA Allan Boesak, fyrrverandi
baráttumaður gegn aðskilnaðar-
stefnunni í Suður-Afríku, var í gær
fundinn sekur um þjófnað og svik
varðandi fé, sem einstaklingar og
erlendar hjálparstofnanir höfðu gef-
ið til hjálpar börnum, sem áttu um
sárt að binda vegna aðskilnaðar-
stefnunnar.
John Foxcroft, dómarinn, sem
dæmdi í máli Boesaks, sagði, að
hann hefði verið fundinn sekur um
þrjár þjófnaðarákærur og eina um
svik en sýknaði hann af 23 öðrum
ákærum. Samtals er Boesak sagður
hafa dregið sér 14,7 millj. ísl. kr.
Refsingin verður ákveðin nk.
þriðjudag.
Stal af söfnunarfé
Paul Simons
Foxcroft sagði, að Boesak hefði
tekið við um 7,7 milljónum kr., sem
bandaríski söngvarinn Paul Simon
hefði safnað í hljómleikaferð um S-
Afríku, en aðeins látið um fjórar
millj. kr. renna í sjóð til styrktar
börnum eins og Simon hefði ætlast
til. Mismuninn lét Boesak renna í
eigin vasa. Þá var hann sakfelldur
fyrir að hafa stolið um átta millj.
kr., sem komu frá sænskri hjálpar-
stofnun, en þá peninga notaði hann
til að koma upp hljóð- og myndveri
fyrir Elnu, eiginkonu sína, sem áður
starfaði við sjónvarp. Loksins þótti
sannað, að hann hefði dregið sér
tæpar þrjár milljónir kr. úr Friðar-
og réttlætissjóðnum, sem hann
stofnaði sjálfur, til að kosta tvö
glæsileg hús og launa konu sinni
fyrir störf, sem ekki er vitað til, að
hún hafi unnið.
Boesak, sem var einn af helstu
frammámönnum Afríska þjóðar-
ráðsins og náinn samverkamaður
Nelsons Mandela, forseta S-Afríku,
neitaði öllum sakargiftum en bar þó
ekki vitni sjálfur fyrir réttinum.
Sýndi hann engin svipbrigði þegar
dómurinn var kveðinn upp en ein
dóttir hans brást í grát. Vildi hann
engu svara fréttamönnum og Mand-
ela forseti, sem nú er í heimsókn í
Noregi, sagði heldur ekkert um
dómsniðurstöðuna. Alfred Nzo, ut-
anríkisráðherra S-Afríku, sem er í
för með Mandela, sagði aðeins, að
dómstóllinn hefði kveðið upp sinn
úrskurð en Knut Vollebæk, utanrík-
isráðherra Noregs, sagði, að það
væri dapurlegt, að Boesak skyldi
hafa gerst sekur um misferli, Norð-
menn hefðu einnig afhent honum fé.
Asakanirnar á Boesak kostuðu
hann sendiherraembætti lands síns
hjá Sameinuðu þjóðunum í Genf en
vinir hans í Afríska þjóðarráðinu
studdu hann eftir sem áður. Þegar
hann fór að skorta fé í íyrra til að
kosta málsvörnina kom Mandela
forseti honum til hjálpar og hvatti
ýmsa til að styðja hann með fjár-
framlögum.
LIMMIÐAPRENT
Þegar þig vantar límmiða
|i 14,200 Kópovogi. S. 587 0980. Fax 557 4243
Hetdur þú að
Kalk sé nóg ?
NATEN
- er nóg !
^sWtKN asj.
Skólavörðustíg 35,
sími 552 3621.
Kanebo
Kaneho
HÁÞRÓUÐ TÆKNI
FRÁ JAPAN
0mbl l.is LLTAt= eiTTH\S/\£} NÝTT~
þr. buxur
barna
30-70% AFSLATTUR
Hjólabuxur
3990
Barnagönguskór
verð áður 5990,-
Ensku «
boltavörurnar
30% afsláttur
nú 3490
Man. United
verð áður 6490,
Regngallar
fullorðins
verð áður 5990,-
nú 3990
barna
verð áður 4990,-
Dúnúlpa
verð áður 12.900,
nú 8990,
Finetex úlpa
verð áður 10.990,
nú 6990,
Micro galli
verð áður 6990,
Úlpur fullorðins
verð áður 7990,
nú 3990
barna verð áður 5990,
r S. 511 4747
SPAR SP0RT
TOPPMERKI A LAGMARKSVERÐI