Morgunblaðið - 18.03.1999, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Á ifiorgun, 19. marsf
er síiasta tækSfæriö
ti ad iióSca og
fullgreiða ferð og
nýta sér þannig
7.000 kr.
af'Síátt á í
sfíáwmtnterkfar
brottfarir.
Bókunarsími: 569 1010
Samvinnuferðir
Landsýn
Á ver ð i fyrir þig!
Austurstræti 12: 569 1010 Hótel Saga viö Hagatorg: 562 2277 Hafnarfjöröur: 565
1155 Keflavík: 421 3400 Akranes: 431 3386 Akureyri: 462 7200 Vestmannaeyjar:
4811271 ísafjöröur: 456 5390 Einnig umboösmenn um land allt.
LISTIR
Morgunblaðið/RAX
„ATBURÐARAS söngleiksins var einstaklega óspennandi og ómarkviss, persónusköpun einsleit og hæga-
gangur einkenndi alla framvindu leiksins þótt tónlistin standi enn fullkomlega fyrir sínu,“ segir meðal ann
ars í dómi Ieiklistargagnrýnanda blaðsins.
Væntingar og vonbrigði
LEIKLIST
Loftkaslal i nn
HATTUR OG FATTUR. NÚ ER
ÉG HISSA
Texti og tónlist eftir Ólaf Hauk Sím-
onarson. Leikstjórn: Þórhallur Sig-
urðsson. Leikarar: Felix Bergsson,
Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Pálína
Jónsdóttir, Valur Freyr Einarsson,
Davfð Þór Jónsson, Steinunn Ólafs-
dóttir og Sigurþór Albert Heimisson.
Leikmynd og búningar: Vignir Jó-
hannsson. Tónlistarstjórn og útsetn-
ingar: Margrét Öiiiólfsdóttir. Brúð-
ur: Ilelga Arnalds. Danshöfundur:
Astrós Gunnarsdóttir. Hljóð-
stjórn/upptaka: Ivar Ragnarsson.
Ljósahönnuður: Björn Helgason.
Loftkastalinn, 17. mars
ÓLAFUR Haukur Símonarson
hefur spunnið nýtt leikverk í kring-
um gamalkunnar persónur sínar,
Hatt og Fatt, og skemmtilegu
sönglögin af plötunni Eniga meniga.
Hér er um söngleik fyrir yngsta
áhorfendahópinn að ræða. Þeir Hatt-
ur og Fattur hafa tekið nokkrum
breytingum frá sínu upprunalegu
formi og lausoflnn söguþráðurinn
leitast fyrst og fremst við að tengja
saman gömlu lögin í heild með auð-
skiljanlegum boðskap fyrir börnin.
Hugmyndin að endurvekja til lífs-
ins gamalt og vinsælt bamaefni fyr-
ir nýjar kynslóðir barna er í sjálfu
sér allra góðra gjalda verð, en því
miður lifir lítið eftir af þeim krafti
og frumleika sem maður tengir
óneitanlega við þetta efni eins og
það lifir i minningunni. Atburðarás
söngleiksins var einstaklega
óspennandi og ómarkviss, persónu-
sköpun einsleit og hægagangur ein-
kenndi alla framvindu leiksins þótt
tónlistin standi enn fullkomlega fyr-
ir sínu og nýjar útsetningar Mar-
grétar Órnólfsdóttur væru með
mestu ágætum.
Þó að flestir þeir sem að upp-
færslu þessari standa séu bæði
reyndir og vel lærðir leikhúslista-
menn var einhver „amatör“-brag-
ur á heildarsvip sýningarinnar.
Margir leikaranna ofléku og virt-
ust eiga í vandræðum með stöður
sínar og hreyfingar á sviðinu.
Leikstjórn virtist ómarkviss og
hefði sýningin vafalaust þurft
lengri æfingatíma.
Margt er þó vel gert í umgjörð
uppfærslunnar, t.d. var sérlega
skemmtilegt byrjunaratriði þar sem
sviðmynd og -munir eru í aðalhlut-
verkum. Leikmynd Vignis Jóhanns-
sonar er að mörgu leyti byggð á
skemmtilegum hugmyndum en í
heildina er hún of „tómleg“ til að
vekja mikla hrifntngu. Notkun
brúða og ljósa var hins vegar einkar
vel útfærð. I heild vekur þessi sýn-
ing væntingar en allnokkur von-
brigði.
Soffía Auður Birgisdóttir
Lífæðar 1999 opnuð
á ísafirði
MYNDLISTAR- og ljóðasýningin
Lífæðar verður opnuð á Sjúkrahúsi
Isafjarðar á morgun, föstudag kl.
15. Sýningunni var hleypt af stokk-
um á Landspítalanum í byrjun janú-
ar sl. en þaðan fór hún til Sjúkra-
húss Akraness.
Tólf myndlistarmenn sýna sam-
tals þrjátíu og fjögur myndverk og
tólf ljóðskáld birta átján ljóð. Lista-
mennirnir eru: Bragi Asgeirsson,
Eggert Pétursson, Georg Guðni,
Haraldur Jónsson, Helgi Þorgils
Friðjónsson, Hreinn Friðfinnsson,
Hulda Hákon, Ivar _ Brynjólfsson,
Kristján Davíðsson, Ósk Vilhjálms-
dóttir, Ragnheiður Jónsdóttir og
Tumi Magnússon. Ljóðskáldin eru:
Bragi Ólafsson, Gyrðir Elíasson,
Hannes Pétursson, Ingibjörg Har-
aldsdóttir, Isak Harðarson, Kristín
Ómarsdóttir, Sigurður Pálsson,
Sjón, Matthías Johannessen, Megas,
Vilborg Dagbjartsdóttir og Þor-
steinn frá Hamri.
Sýningunni á ísafirði lýkur 19.
aprfl og heldur hún þá til Sjúkra-
húss Sauðárkróks.
Það er menningarsamsteypan
ART.IS sem gengst fyrir sýning-
unni í boði Glaxo Wellcome á Is-
landi.
EITT verka á sýningunni er
eftir Eggert Pétursson.