Morgunblaðið - 18.03.1999, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 18.03.1999, Qupperneq 40
40 FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Ferskir vindar í viðskiptalífínu Stjórnarformannsskiptin í SH eru vonandi forboði um heilbrigðara viðskiptalíf þar sem krafan um ábyrgð og hámarks arðsemi er í fyrirrúmi. KRAFAN um ábyrgð og arðsemi hefur um sumt átt erfitt uppdráttar í íslensku viðskipta- lífi. Öðrum þræði er það vegna smæðar samfélagsins en ekki síst vegna pólitískra ítaka í at- vinnulífinu. I skjóli hafta og pólitísks skömmtunarvalds mynduðust blokkir í viðskipta- lífinu þar sem pólitískur bak- grunnur og fjölskyldubönd réðu tíðum meii'a um frama manna en hæfileikar, dugnaður og áræði. Afleiðingin er sú að nú löngu eftir að höftunum hefur verið aflétt eru alltof mörg ís- lensk fyrirtæki af stærri gerð- inni rekin eins og stofnanir þar sem stjómendur sitja allsráð- andi á toppi VIÐHORF valdapýramída ----- með hersingu Eftir Jakob F. af dyggum Asgeirsson starfsmönnum í kringum sig. í slíkum fyrirtækjum á sér ekki stað nauðsynleg endurnýjun, hæfíleikar fá ekki að njóta sín sem skyldi því hollustan við yf- irmennina er ráðandi og ferskar hugmyndir kafna iðulega í fæð- ingu. Smæð markaðarins og skortur á samkeppni hefur komið í veg fyrir að refsað sé fyrir slíka stjórnarhætti, auk þess sem eigendur slíkra fyrir- tækja hafa löngum gert litlar arðsemiskröfur og sætt sig við þá umbun sem felst í stjómar- setu í virðulegum og markaðs- ráðandi fyrirtækjum. Stjómar- formannskjörið á nýliðnum að- alfundi Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna er vonandi for- boði um heilbrigðara viðskipta- líf þar sem krafan um ábyrgð og hámarks arðsemi er sett í öndvegi - en í þeirri kröfu felst einmitt húsbóndavald virks hlutabréfamarkaðar. Hér skal ekki lagt efnislegt mat á þann ágreining sem ríkt hefur innan SH um markmið og leiðir og á engan hátt skal hér varpað rýi'ð á forystusveit SH undanfarna áratugi. SH er hér einungis nefnt til sögunnar vegna þess almenna mikilvægis sem stjórnarkjörið á aðalfundi fyrirtækisins kann að hafa fyr- ir íslenskt samfélag - ef það boðar breytta tíma. Það sem gerðist á aðalfundi SH var nefnilega að almennir hluthaf- ar ákváðu (með réttu eða röngu) að skýringar forystu- sveitar fyrirtækisins á slæmri afkomu væru ekki viðunandi og að þeir treystu öðrum betur til að stýra fyrirtækinu inn í nýja öld. Vissulega sætir það stór- tíðindum í íslensku viðskiptalífi að hluthafar í fyrirtæki fái vilja sínum framgengt og setji stjórnendum stólinn fyrir dyrnar. Hingað til hafa hlut- hafar og eigendur stærri fýrir- tækja verið býsna leiðitamir, sem fyrr segir, og á stundum ekki virst hafa öðru hlutverki að gegna en að samþykkja og skrifa uppá ákvarðanir stjórn- endanna. Þar með hefur skort nauðsynlegt aðhald í rekstri þessara fyrirtækja og krafan um ábyrgð og arðsemi ekki verið skilgreind af hluthöfun- um eða eigendum (eins og vera ber) heldur af stjórnendunum sjálfum. í kjölfar aðalfundar SH hefur ýmsum orðið tíðrætt um að hlutabréfamarkaðurinn sé harð- ur húsbóndi. I seinni tíð hefur ekki þótt hæfa að tala um harða húsbændur þegar verið er að segja upp eða skáka til almennu verkafólki. Hins vegar hefur nokkuð borið á frasanum „nauð- synleg hagræðing". Hæst settu stjórnendur fá há laun og njóta mikilla fríðinda - og eru vænt- anlega vel í stakk búnir til að takast á við mögru árin. Það er ekki bara viðskiptalífið sem er hart, heldur mannlífið allt og margur sem á um sárt að binda fyi’ir engar sakir. Það er því ástæðulaust að gera sérstakt veður út af óréttlæti lífsins þótt fáeinir hátt settir menn bíði ósigur í átökum innan fyrirtæk- is; þeir hafa sjálfir komist til sinna miklu valda og áhrifa með því að bera sigurorð af öðrum - og einhvern tíma hlaut að koma að því að „hagræðingin“ næði til toppanna. Hæst settu stjórnendur í stórum íýrirtækjum eiga að sæta mikilli ábyrgð. Ef við- skiptalífið fer almennt að gera stjómendur stærri fyrirtækja raunverulega ábyrga fyrir rekstri þeirra, svo sem tíðkast í hinum stóra heimi, eykst að sama skapi vægi hinnar löngu tímabæru kröfu um að stjórn- málamenn kalli stjórnendur rík- isfyrirtækja og hlutafélaga á vegum ríkisins til fullrar ábyrgðar á rekstri þeirra. Æskilegt er að sem flest stærri fyrirtæki í einkaeigu fari á hlutabréfamarkað og lúti því húsbóndavaldi sem þar er að finna ef markaðurinn er virkur og hluthafar sofa ekki á verðin- um. Hvað SH varðar er út af fyrir sig ánægjulegt að til forystu í stærsta fyrirtæki landsins skuli veljast maður sem hafist hefur af sjálfum sér til þeirra met- orða. Eins og ýmsir frumkvöðl- ar í sjávarútvegi fyrr á öldinni var Róbert Guðfinnsson sjó- maður áður en hann hóf rekst- ur, lauk m.a. stýrimannaskóla- prófi og var um skeið stýrimað- ur á togara. Og eins og sumir sögufrægir fyrirrennarar hans sýndi Róbert hvað í honum bjó á örlagastundu - hann tók af skarið þegar aðrir sátu með hendur í skauti, lagði allt undir til að reisa við fyrirtæki sem komið var í þrot og gekk svo nærri sér við að koma fyrirtæk- inu á réttan kjöl að honum bil- aðist heilsa um skeið. Svipað áræði sýndi hann í valdabarátt- unni innan SH. Enginn getur sakað hann um að hafa siglt undir fölsku flaggi, allir vissu hvað hann ætlaði sér og hann gerði það sem þurfti til að hafa sitt fram. Fróðlegt verður að fylgjast með þeim breytingum sem verða á starfsemi og rekstri SH í kjölfar stjórnarformannsskipt- anna. Víst er að öll spjót standa nú á hinum nýja formanni. Hans er að sýna að hann sé traustsins verður og að meiri- hluti hluthafanna hafi veðjað rétt. Staðsetning flug- vallar í Skerjafírði Staðsetning flugvall- arins og fuglarnir Flugtæknilega er staðsetning flugvallar úti í Skerjafirði betri kostur en núverandi staðsetning. Hvað varðar umræðu um hugsanleg vandkvæði með fugla á flugvelli í Skerjafirði þá er rétt að benda á að núver- andi staðsetning Reykj avíkurflugvallar er ein sú óheppilegasta sem hægt er að finna á höfuðborgarsvæðinu með tilliti til fugla og hættu á árekstrum við þá. NS- brautin er með aðflug yfir eina þéttustu fuglabyggð landsins, Tjörnina í Reykjavík. AV-brautin er með aðflug yfir eitt stærsta samfelda trjábelti á höfuðborgar- svæðinu, Öskjuhlíðina og kirkju- garðinn. Báðar þessar brautir liggja nánast út í sjó og þar eru grunnfjörur með miklu dýralífi, þar eru matarkistur sjófugla, vað- fugla o.fl. Að flytja flugvöllinn út í Skerjafjörðinn mun einungis bæta þetta ástand og auka öryggi flug- farþega. Brim og sjávarselta Staðsetning flugvallar á Skerja- firði við Löngusker og Hólma er frá náttúiunnar hendi ákjósanleg. Það er engin tilviljun að menn hafa hoift til þess að gera flugvöll á þessum stað í áratugi. Trausti Valsson kynnti og útfærði hug- myndir að flugvelli úti í Skerjafirði upp úr 1970 og verkfræðingarnir Steingrímur Hermannsson og Guð- mundur G. Þórarinsson lögðu fram tillögu á þingi 1975 að flugvöllurinn yrði fluttur þangað. Meðaldýpi undir vellinum verður um 2,5 metr- ar. Töluvert utar liggur svo Val- húsagrunnið, skerjagarður sem liggur frá Gróttu suður undir Hafnarfjörð. Mynni Skerjafjarðar er girt af með skerjum og boðum og er dýpi þar mest 5 til 10 metrar. Þetta þýðir að það mikla brim og þær miklu öldur sem leika um strendur landsins ná aldrei inn í Skerja- fjörðinn. Þær brotna og grynnast þegar þær fara yfir Valhúsa- grunnið á leið sinni inn Skerjafjörð. Það eru smáöldur sem eru á ferð í Skerjafirðin- um, miðað við það sem við sjáum annar- staðar þar sem haf- aldan skellur óbrotin áð landi. Hvað varðar tærandi áhrif seltu og sjávar á flugvélar, sem sumir hafa nefnt sem ókost ef flugvöllur- inn er fluttur úr Vatnsmýrinni út í Skerjafjörð, þá er það vissulega rétt að slíkt tærandi álag mun væntanlega aukast. Að tæring hafi slík afgerandi áhrif á þær flugvél- ar sem menn eru að nota í dag að Flugvallarmál Staðsetning flugvallar á Skerjafirði við Löngusker og Hólma, segir Friðrik Hansen Guðmundsson, er frá náttúrunnar hendi ákjósanleg. ekki sé forsvaranlegt að flytja völlinn, þau rök er ekki hægt að kaupa. Tæring áls var vandamál fyrir nokkrum áratugum. I dag er ál einn endingarbesti málmurinn á markaðnum. Með nýjum vinnslu- aðferðum er ál gert þannig að það þolir tærandi áhrif sjávarseltu margfalt betur en áður var. Þær flugvélar sem nú eru notaðar þola sjávarseltu betur en gömlu vélarn- ar gerðu. Einkaflugvélar standa inni í flug- skýlum þegar þær era ekki í notkun þannig að ekki verða þær fyrir neinu áreiti frá sjávarseltu nema þegar þær eru í notkun og það er helst í góðu veðri þegar ekkert er sjávan-okið. Hvað varðar áætlunar- vélai'nar þá eru efnin sem eru notuð til að afisa vélamar og til að eyða hálku á flugbrautum flest ætandi og tærandi fýrir alla málma. Það eru aðrir þættii’ en málmtæring vegna sjávarseltu eða annarra efna sem ákvarða endingu flugvéla í dag, þó einhvem tíma um miðbik aldarinn- ar hafi þetta verið vandamál. Snjóléttur flugvöllur Einn af stóru póstunum í rekstri flugvalla hér á landi er snjómokst- ur. Með staðsetningu flugvallar úti í Skerjafirði yi'ði Reykjavíkurflug- völlur einn snjóléttasti flugvöllur landsins og kostnaður við snjó- mokstur yi'ði í lágmarki. Ising á vellinum yrði væntanlega svipuð og nú er, NS-brautin í dag liggur nán- ast út í sjó og aðstæður því áþekk- ar og á flugvelli úti í firði. Það er almenn regla við rekstur flugvalla að bremsuskilyrði eru metin dag- lega og ef þurfa þykir oft á dag og ef ísing er á brautum þá eru þær afísaðar. Við gerum ráð fyrir að flugbrautir verði 150 m á breidd, malbikuð braut yrði 50 m og ör- yggissvæði beggja vegna 50 m. Hliðarhalli er á flugbraut og ör- yggissvæðum frá miðlínu vallar út að brán öryggissvæða. Þar sem axlir öryggissvæða eru komnar neðar en brautin vegna hliðarhall- ans geram við ráð fýrir að hlaða brimvai'nargarðinn sem myndar útlínur flugvallarins, 1 til 1,5 m hærra en öryggissvæðið. Þannig verði öryggissvæðið rammað inn með grjótgarði og þær flugvélar sem renna út af flugbraut og yfir öi-yggissvæðin, þær lenda á þess- um grjótgarði og stöðvast þar. Höfundur er verkfræðingur. Friðrik Hansen Guðmundsson Hvað með lávarðadeild? NÚ ÞEGAR ráða- menn þjóðarinnar hafa skipað fimmta stjórn- málaforingjann í feita stöðu á skömmum tíma hlýtur að vakna þessi spurning: Því ekki að stíga skrefið til fulls og stofna lávarðadeild fyrir þessa menn og hætta þessum látalát- um? Stjórnmálafor- ingjarnir gætu þá gengið að því vísu að komast í notalegheitin þegar þeir gerast víg- móðir á vettvangi stjórnmálanna. Nafnið lávarðadeildin væri til að leggja áherslu á að þarna er for- réttindahópur á ferð. Lávarða- deildin réði yfir nokkrum feitustu embættum landsins, svo sem helstu sendiherrastöðum, banka- stjórastöðum hjá ríkisbönkum og Seðlabanka, stöðu forstjóra Lands- virkjunar og Ibúðalánasjóðs. Lávarðadeildin ætti einnig að ráða yfír stöðum í ýmsum gæðaflokkum, sem gætu hentað fyrir jafnvel al- veg niður i varaþingmenn. Hver stjórnmálamaður fengi þægilegheit að verðleikum. Það hefur ótvíræða kosti að koma skipulagi á spillinguna, sem öllum er auðvitað alveg ljós. Tök- um dæmi af Svavari Gestssyni, NATO-andstæðingi, sem Halldór Ásgríms- son utanríkisráðherra hefur nú skipað í sendihen-astöðu hjá NATO-ríki. Með lá- varðadeildinn hefði Svavar getað gengið að því vísu að hann hefði áunnið sér ákveðinn rétt og þyrfti ekki að eiga undir kvótagreifann og pólitískan and- stæðing að sækja. Svavar hefði því getað beitt sér að fullu í samræmi við eigin sannfæringu, fyrir hagsmuni þess fólks sem fól honum umboð sitt. Meðan spillingin er jafn óskipulögð og hún virðist fyrir okkur sem stöndum utan leyniregl- unar (samtryggingarinnar) bindur hún hendur stjórnmálamanna með- an þeir sitja á þingi. Það er ósköp mannlegt að vera með hugann við það hversu langt sé hægt að ganga gegn hagsmunum þess sem útdeilir dúsunum. Þeir sem fylgdust með viðbrögð- um þingliðs Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins gegn kvótadóminum ætti að vera vel ljóst hvað skipulagsleysi á þessu sviði er varhugavert. Allt hefur þetta fólk eflaust verið að hugsa Lávarðadeild Nafnið lávarðadeildin væri til að leggja áherslu á, segir Valdi- mar Jóhannesson, að þarna er forréttinda- hópur á ferð. um framtíð sína þegar það greiddi atkvæði gegn því sem það vissi að var rétt og gegn hagsmunum þjóð- arinnar. Best að styggja ekki sæ- greifana og bandingja þeirra. Hér má raunar spyrja: Hvað sitja margir kvótagi-eifar á Alþingi? Var einhver þeirra sem taldi sig van- hæfan þegar kom að atkvæða- greiðslu um þetta stærsta hags- munamál þjóðarinnar? Svar: Um fjórðungur þingmanna mun eiga kvóta. Enginn þeirra taldi sig van- hæfan til að fjalla um eigin hags- munamál, sem hjá sumum þeirra hleypur á milljörðum króna. Er ekki orðið tímabært að koma skipulagi á sukkið svo þingmenn séu eitthvað líklegi'i til þess að vinna að hagsmunum heildarinnar? Höfundur situr í miðstjórn Fijáls- lyndn flokksins. Valdimar Jóhannesson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.