Morgunblaðið - 18.03.1999, Qupperneq 48
-^8 FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Spliff
►SPLIFF heitir breakbeat-hljómsveit úr Kefla-
vík sem er reyndar dúett skipaður þeim Inga Þór Ingi-
bergssyni og Þóri Baldurssyni. Ingi er á átjánda ár-
inu en Þórir að verða tvítugur. Þeir félagar eru báðir titl-
aðir forritarar og leika því á tölvur.
Betrefí
►HLJÓMSVEIT Betrefi kemur víða að af Suðvestur-
landi, en hana skipa þeir Dylan Kincla trommuleik-
ari, Karl Jóhannsson gítarleikari, Albert Guðmunds-
son bassaleikari og Guðrún Bernharðsdóttir söng-
kona. Meðalaldur þeirra er slétt tuttugu ár og þau segj-
ast leika rokk.
Hljómar úr bflskúrnum
Músíktilraunir Tónabæjar
Hljómsveitakeppni Tónabæjar,
Músíktilraunir, hófst í síðustu viku.
—7--——-------------------------------
Arni Matthíasson segir frá hljómsveit-
unum sem taka þátt í öðru tilrauna-
kvöldinu sem er í kvöld.
A
RLEG hljóm-
sveitarkeppni
Tónabæjar,
sem kallast Músíktil-
raunir, hófst í síðustu
viku. Keppnin í ár er
sú sautjánda frá 1982
en hún byggist á því
að þrjú til fjögur
kvöld keppa bílskúrs-
sveitir hvaðanæva að
um sæti í úrslitum.
Sigurlaun tilraunanna
eru hljóðverstímar
sem hafa dugað
margri hljómsveitinni
til að komast á plast.
Tilraunimar hófust
í síðustu viku eins og
getið er og í kvöld er
annað tilraunakvöldið.
Á morgun verður það
þriðja, en það er við-
bótarkvöld tO komið
vegna mikillar aðsóknar. Síðasta tilraunakvöldið er svo næstkomandi
fimmtudag og úrslit á fóstudag, 26. mars.
Hefð er fyrir því að helstu verðlaun Músíktilrauna séu hljóðverstímar
og að þessu sinni hreppir sigursveitin 25 tíma í Sýrlandi frá Skífunni,
annað sætið gefur 25 tíma í Grjótnámunni sem Spor gefur, og það þriðja
20 tíma frá Stúdíó Hljóðsetningu. Þetta er þó aðeins hluti verðlauna, því
Tónabúðin verðlaunar besta söngvarann, Rín besta gítarleikarann, Sam-
spil besta trommarann, Hljóðfærahús Reykjavíkur besta bassaleikarann
og besta tölvumanninn, sem BT gerir einnig. Tónastöðin verðlaunar
besta söngvarann og besta gítarleikarann og Japís gefur sigursveitunum
geisladiska og besta rapparanum plötuúttekt.
Styrktaraðilar Músíktilrauna eru Hard Rock Café, Domino’s Pizza,
Flugfélag íslands, Flugleiðir, Pizzahúsið, Rás 2, Vífilfell, Undirtónar,
Skífan og Hljóðkerfisleiga Marteins Péturssonar.
Messías
►HLJÓMSVEITIN Messías er skipuð þeim
Viðari Friðriksen trommuleikara, Valgeiri
Gestssyni gítarleikara og Ágústi Bogasyni
bassaleikara. Þeir eru allir úr Reykjavík og
segjast spila rokk og er meðalaldur hljóm-
sveitarinnar 18 ár.
Jah
►JAH tók einnig þátt í síðustu Músfktilraun-
um og komst þá í úrslit. Nýr maður í sveit-
inni er Kristján Hafberg Kristjónsson, en hin-
ir eru Albert Snær Guðmundsson og Krist-
ján Sv. Kristjánsson. Allir annast þeir félag-
ar tölvur, en meðalaldur þeirra er um tuttugu ár.
Stafræn tækni
►HLJÓMSVEITINA Barnafltu skipa Halldór
Hrafn Jónsson trommuleikari og forritari, sem
hefúr verið í fleiri hljómsveitum á tilraununum
en dæmi eru um, Arnór H. Sigurðsson og Hjört-
ur Gunnar Jóhannsson, en tveir þeir síðarnefndu
eru tölvugúrúar. Þeir félagar eru um átján ára
aldurinn og leika tölvuvædda framúrstefnu.
Dormus
►HLJÓMSVEITN Dormus er reykvísk og skipuð Guð-
mundi Davíð Hermannssyni gítarleikara og söngvara, Dan-
íel Frey Kristínarsyni bassaleikara og Ottó Reimars-
syni trommuleikara. Þeir félagar eru allir á sautjánda ár-
inu og leika „bara rokk“.
Faríel
►ÚR Reykjavík keinur hljómsveitin Faríel sem leik-
ur sígilt rokk og ról. Hljómsveitina skipa Andri Val-
ur Jónsson gítarleikari, Benedikt Jón Þórðarson trommu-
leikari, Björn Halldór Helgason hljómborðsleikari, Brend-
an Þorvaldsson gítarleikari og söngvari og Patrik Þor-
valdsson bassaleikari. Þeir félagar eru tæplega sextán ára.
Sinn Fein
►HLJÓMSVEITINA Sinn Fein skipa þeir Birgir Hilmars-
son gítarleikari, söngvari og tölvari, Nói Steinn Einars-
son trommuleikari og Haraldur Þorsteinsson bassaleik-
ari. Þeir félagar, sem eru ríflega átján ára, segj-
ast leika dularfullt framtíðarrokk.
varahlulaverslun Hafnarfjarðar
DALSHRAUN113 VREYKJÁNESBRAUT- SlHI 6551019
VIÐ HLIDINA Á BYKO
SKEIFUNN111 • SfMI: 520 8000