Morgunblaðið - 18.03.1999, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999 51
+ Guðfinna Þor-
leifsddttir fædd-
ist í Reykjavík 3. júlí
1910. Hún lést á
hjartadeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur 8.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Þorleifur Þ.
Thorlacius sjómað-
ur, f. 4. júlí 1865, d.
8. febr. 1916, og
Jdnína Guðnaddttir,
f. 1. febrúar 1888, d.
21. des. 1964. Systk-
ini Guðfinnu eru:
Haraldína Thorlaci-
us, f. 1902, d. 1902; Jdhanna S.
Þorleifsddttir, f. 5. okt. 1903, d.
27. ndv. 1973; Grda Þorleifsddtt-
ir, f. 21. sept. 1904, d. 16. mars
1973; Gísli Þorleifsson niúrara-
meistari, f. 23. okt. 1907, d. 23.
aprfl 1954; Haraldur Thorlacius
sjdmaður, f. 9. júní 1909; María
Thorlacius, f. 22. júlf 1912, d. 15.
okt. 1965; Björgvin Þorleifsson
múrari, f. 6. ágúst 1913, d. 30.
júlí 1966; og Þorleifur Thorlaci-
us, f. í maí 1916, dáinn sama ár.
Guðfinna giftist 1935 Hallddri
Guðmundssyni trésmíðameist-
ara, f. 20. mars 1907, d. 8. maí
1978. Hann er sonur Guðmundar
Einarssonar steinsmiðs, f. 23.
Ekki veit ég hvernig Guðfinnu
hefir litist á unga manninn, sem 1953
var farinn að gera hosur sínar græn-
ar fyrir dótturinni og gerast þaul-
sætinn í meyjarskemmunni á Greni-
mel 5. En hvernig sem því var varið,
fann ég aldrei annað en hið hlýja við-
mót, sem að mér sneri alla tíð og
aldrei breyttist. Svo fór öllum, sem
henni kynntust, að með viðmóti sínu
varð hún minnisstæðari en margir
þeir er meira létu yfir sér.
Grenimelur 5, þar sem þau bjuggu
lengstaf Guðfinna og Halldór Guð-
mundsson maður hennar, var og er í
mínum huga ættaróðal. Þar bjuggu
frændmenni beggja á öllum hæðum,
frá risi niður í kjallara. Fyrstu bú-
skaparár okkar Ninnu bjuggum við í
risinu og leið vel.
Guðfinna og Halldór voru frænd-
mörg og vinmörg og að heimili
þeirra drógust vinir og frændur, því
bæði voru þau glaðsinna og gestrisin
og höfðu þann áhuga á fólki að öllum
leið vel í návist þeirra. Það sem
undraði mig mest þá, ungan mann-
inn, var hversu fólk laðaðist að heim-
ilinu, og var ekki vanur því frá mín-
um heimaslóðum að eiga fullorðið
fólk, annað en foreldra, fyrii' sálufé-
laga. Þar átti Guðfinna mestan þátt-
inn, því hún tók þátt í gleði fólks og
sorgum á svo látlausan og einfaldan
hátt að þar fannst engin uppgerð.
Ekki síst átti þetta við um börnin,
sem Guðfinnu kynntust. Oft hitti ég
ungt fólk, sem minnist veru sinnar á
Grenimelnum með því að spyrja
fyrst af öllu hvernig Guðfinna hafi
það og fer svo að segja frá því
hversu stórkostlega góð hún hafi
verið þegar foreldrarnir leigðu í ris-
inu eða í kjallai-anum. Þannig var
hún, og eins við alla.
Ævisaga Guðfinnu verður ekki
sögð hér, en mig langar að skjóta
hér inn í stuttri frásögn, sem ég
skrifaði niður eftir Guðfinnu fyrir
mörgum árum, um æsku hennar:
„Þegar ég var lítil bjuggum við í
Guðnabæ. Það var lítið hús bakvið
þar sem núna er Laugavegur 28.
Pabbi stundaði sjóinn, en hann dó úr
hálsmeini þegar ég vai- fímm ára. Við
vorum þá sjö systkinin og mamma
ófrísk að yngsta bróður mínum. Ekki
voru nokkur tök á að hún gæti fram-
fleytt okkur öllum og var okkur
komið fyrir hér og þar, mest hjá
vandalausum. Dönsk konfektgerðar-
kona, sem hér bjó, og átti uppkomin
börn, vildi taka mig til fósturs og
þangað fór ég fimm ára. Þarna var
tekið á móti mér með uppbúnu
barnaherbergi með dúkkum og
dúkkuvagni og hinni bestu aðhlynn-
ingu í alla staði. En ég grét stans-
laust og saknaði mömmu, svo hin
danska kona sagðist ekki geta lagt
það á barnið að hafa það svona sorg-
ágúst 1857, d. 17.
júlí 1938, og Dag-
bjartar Brandsddtt-
ur, f. 13. sept. 1863,
d. 23. okt. 1941.
Hallddra og Guð-
finna eignuðust þrjú
börn: 1) Jdnínu
gjaldkera, f. 6. des.
1934. Hennar maður
er Axel Sigurðsson
lyljafræðingur, f.
11. ndv. 1933 og
þeirra synir Hallddr
trésmiður, f. 28.
ágúst 1961 og Sig-
urður starfsmaður
Áss, f. 13. ndv. 1965. 2) Garðar
tæknifræðing, f. 10. sept. 1941.
Hann er kvæntur Lovísu Olvers-
ddttur verslunarmanni, f. 13.
sept. 1940. 3) Dagbjörtu banka-
mann, f. 12. aprfl 1947, gift
Rristni Erlendssyni tæknifræð-
ingi, f. 9. mars 1946. Þeirra börn
eru: a) Haraldur nemi í tölvu-
fræðum, f. 18. ágúst 1971, hann
á dötturina Hafdísi, f. 14. okt.
1998; b) Brynja, nemi í ljösmynd-
un, f. 11. feb. 1977, c) Garðar
framhaldsskölanemi, f. 2. aprfl
1984.
Útför Guðfinnu verður gerð
frá Fossvogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
mætt og ég fór aftur til mömmu og
var með henni þangað til ég giftist."
Guðfinna og Gísli ólust upp með
móður sinni og var alla tíð mjög kært
með þeim. Jóhanna var að verða 14
ára þegar faðirinn dó, gat farið að
vinna fyrir sér, og fór heldur ekki að
heiman. Guðfinna fór að vinna strax
og hún hafði aldur til, vann íyrst á
netaverkstæði og síðan í fiskvinnu
þar til hún giftist, og móðirin sá heim-
ilinu farborða með fiskvinnu.
Hin börnin leituðu saman eftir að
þau fullorðnuðust og mátti þar sjá
mefri samheldni en oft sést hjá þeim
systkinum er saman hafa búið.
Lífsreynsla æskuáranna hefir sjálf-
sagt valdið því að Guðfinna tók
snemma trú á jafnaðarstefnuna. Þeg-
ar ég kynntist henni fyrst var hún
áköf jafnaðarmanneskja og sótti fundi
hjá Alþýðuflokknum. Síðar dalaði trú
hennar á flokkinn, en aldrei held ég að
hún hafi tapað þeim hugsjónum, sem
fólust í jafnaðai-stefnunni.
Jónína, móðir Guðfínnu, bjó sein-
ustu ár ævinnar hjá henni og get ég
ekki látið lokið þessum fáu orðum
um tengdamóður mína án þess að
minnast á hversu umhyggjusöm hún
var um móður sína. Eg kynntist vel,
meðan ég bjó á Grenimel, óendan-
legri þolinmæði og umhyggju, sem
Guðfinna sýndi, en Jónína varð á sín-
um seinustu árum allmjög erfiður
sjúklingur, reyndar allt önnur mann-
eskja en hennar eðli stóð til. Þarna
sýndi sig best hin eðlislæga góðvild
Guðfinnu og umhyggja fyrir móður,
sem hún deildi með erfiðri lífsbar-
áttu, en gat síðar gefið það besta at-
læti, sem hugsast gat.
Ég nefndi fyrr að börn hefðu
hænst að Guðfinnu og barnabörnin
voru að sjálfsögðu ekki undanskilin.
Synfr okkar tvefr sakna nú sárt vin-
ar, sem alltaf var reiðubúinn að láta
undan duttlungum þein-a og með
framkomu sinni og fyi-irmynd gerði
þá að betri mönnum.
Axel Sigurðsson.
I dag kveðjum við okkar ástkæru
systur og mágkonu hana Guðfinnu
hinstu kveðju. Ég man enn glögg-
lega hvenær ég hitti Finnu fyrst, en
svo var hún ávallt kölluð meðal ætt-
ingja og vina. Og síðar varð hún
mágkona mín, þar sem ég giftist
Haraldi bróður hennar. Nú þegar
Finna er horfin þá er Haraldur einn
eftir af átta systkinum. Finna var
mjög heilsteypt manneskja, góð við
alla, þó sérstaklega góð við þá sem
áttu bágt. Árið 1935 giftist Finna
Halldóri Guðmundssyni sem lést ár-
ið 1978. Þau eignuðust þrjú börn,
Ninnu, Garðar og Daddý. Allt er
þetta sómafólk. Við Haraldur og
okkar fjölskylda eigum öll hlýjar og
góðai- minningar um þessa góðu
konu frá liðinni tíð.
Það var alltaf notalegt að koma til
þín í heimsókn á Grenimel 5, heimilið
þitt hlýtt og þú tókst vel á móti öll-
um sem til þín komu og gestrisni var
þar í fyrirrúmi. Minningarnar eru
svo ótalmargar að það væri efni í
stóra bók.
Elsku Finna, þetta hafa verið
björt og notaleg ár sem við höfum
átt saman. Þó árin hafi liðið og liðið
hratt þá er minningin um þig ljós í
lífi okkar. Það er erfitt að kveðja þig
og sætta sig við að fá aldrei að hitta
þig aftur, heyra þig tala og finna
faðmlag þitt. Við vitum að nú hefur
Halldór þinn tekið þig í faðm sinn og
vitum við að nú líður þér vel.
Með þessum fátæklegu minning-
arorðum langar okkur fyrir hönd
fjölskyldu okkar að votta eftirlifandi
bömum, tengdabörnum og fjölskyld-
um þeirra innilega samúð.
Kæra vinkona, hvíl þú í friði, frið-
ur guðs þig blessi.
Hve erfitt er að trúa því, elsku systir mín,
að aldrei framar líti ég þig á jörðu.
Hve hlý og fus til líknar var höndin ljúfa þín
og hjarta þitt í blíðu og stríði hörðu.
Nú ertu horfin, augu döggvast tárum,
mín elsku systir, jöfn var tryggðin þín.
Frá bernsku dögum fram að elhárum
þú ávallt sama kærleik barst til mín.
(I.S.)
Ólafía og Haraldur.
Nú er hún amma Finna farin frá
okkur. Það var svo margt sem hún
amma kenndi okkur með sögunum
sem hún sagði frá æsku sinni og með
leiðsögn hennar og réttsýni lærðum
við að meta það mikilvæga í lífinu.
Vertu nú yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Góða nótt, sofðu rótt, guð geymi
þig, elsku amma.
Haraldur, Brynja og Garðar.
Mín elskulega föðursystir Guð-
finna Þorleifsdóttir er látin eftfr
stutta legu.
Þó söknuðurinn sé mikill eru
þakklæti mitt og gleði einnig einlæg,
því þannig vildir þú, Finna frænka,
fá að hverfa frá okkur öllum sem
höfum fengið að njóta samveru þinn-
ar svo lengi.
Sambýli foreldra minna með
Finnu og Halldóri á Grenimel 5 var
einstakt, byggt á einlægri vináttu,
elsku og virðingu. Jafntraust sam-
band er ríkti milli móður minnar og
Finnu hef ég aldrei séð.
Ég ólst upp með þessu fólki og átti
hamingjusama bernsku, sem gaf mér
gott og traust veganesti fyrir lífið.
Það ríkti oft mikil gleði á Grenimel
5. Því varð sorgin léttbæraiú er hana
bar að garði. Finna huggaði mig ætíð
á sinn sérstæða hátt. Að eignast
hana sem góðan vin í bernsku veitti
mér mikla gæfu og sú vinátta styrkt-
ist með árunum.
í fari Finnu var alveg sérstök
hlýja, gleði og mildi, hún skynjaði
þörf allra í kringum sig. Hún sá
alltaf björtu hliðarnar á öllu og átti
jafn auðvelt með að gefa og þiggja.
Því var það alveg ómetanlegt að
alast upp á Grenimel 5 í faðmi stórr-
ar fjölskyldu þai- sem Finna frænka
var alla tíð fasti punkturinn í tilveru
okkai- allra er ólumst þar upp.
Það eru forréttindi að hafa átt
æskuheimili á Grenimel 5 og getað
ætíð leitað til Finnu og verður það
aldrei fullþakkað.
Ég og fjölskylda mín minnumst
Finnu sem okkar besta vinar.
Við vottum Ninnu, Garðari, Dag-
björtu og fjölskyldum þeÚTa okkar
innilegustu samúð.
Blessuð sé minning hennar.
Sigrún Gerða Gísladóttir.
Elsku Guðfínna mín. Ég á eftir að
sakna þín mikið. Þú varst mér ómet-
anleg þegar ég bjó hjá þér og því
gleymi ég aldrei. Hjartahlýrri konu
er vart hægt að finna. Það var alltaf
svo gaman að tala við þig, þú varst
svo kát og ávallt stutt í hláturinn.
Að heilsast og kveðjast er lífsins
saga. Ég man þig um ókomna tíð.
Þín vinkona,
Kristín Björk.
GUÐFINNA
ÞORLEIFSDÓTTIR
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
AÐALSTEINN BRAGI AGNARSSON,
Hæðargarði 33,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur aðfaranótt mið-
vikudagsins 17. mars.
Jarðarförin auglýst síðar.
Erling Aðalsteinsson, Ragnheiður Jónsdóttir,
Viggó Bragason, Hulda Lilliendahl,
Brynjar Örn Bragason, Jóhanna Kjartansdóttir,
Heiðar Þór Bragason,
Hilmar Bragason,
íris H. Bragadóttir, Gunnar Bernburg,
Agnes Bragadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
VIGDÍS KRISTÍN EBENESERSDÓTTIR,
lést þriðjudaginn 16. mars ó Hrafnistu í
Reykjavík.
Jóna Bárðardóttir,
Björk Bárðardóttir,
Reynir Bárðarson,
Sveinn Bárðarson, Heiður Þorsteinsdóttir,
Guðný Bárðardóttir,
Helga Bárðardóttir, Sigurður Bergsveinsson,
Ebeneser Bárðarson, Auður Árnadóttir,
Halldór Bárðarson, Valgerður Hermannsdóttir,
Björn Bárðarson, Jóhanna Óskarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
HILDIGUNNUR ENGILBERTSDÓTTIR,
Brekkubraut 23,
Akranesi,
andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur að kvöldi
mánudagsins 15. mars.
Ásgeir Samúelsson,
Þórunn Ásgeirsdóttir, Gunnar L. Stefánsson,
Einar Ásgeirsson, Helga Jónsdóttir,
Hrönn Ásgeirsdóttir, Svavar S. Guðmundsson,
Svandís Ásgeirsdóttir, Sigurbjörn Guðmundsson
og barnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
BJARNVEIG JAKOBSDÓTTIR,
lóst á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi,
að morgni laugardagsins 6. mars.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Þökkum sýnda samúð.
Ólafur Kristjánsson, Herdís Eggertsdóttir,
Henrý Þór Kristjánsson, Svala Brjánsdóttir,
Páll H. Kristjánsson, Rósa Helgadóttir,
Ragnar Kristjánsson, Shirley Felton,
Símonía Ellen Þórarinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓN ARASON,
áður til heimilis
á Skólabraut 5,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn
15. mars.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudag-
inn 19. mars kl. 10.30.
Sigrún Magnea Magnúsdóttir,
Magnea Móberg Jónsdóttir, Jón Þór Aðalsteinsson,
Guðbjörg Jónsdóttir, Egill Sigurðsson,
Jón Sigmar Jónsson, Sólrún Hvönn Indriðadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.