Morgunblaðið - 18.03.1999, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999 57
FRÉTTIR
FRÁ afhendingu Gullprjónanna 1999. Frá vinstri Nanna Baldurs-
dóttir, kennari, Erna Björk Sigurgeirsdóttir, fulltrúi nemenda og
Auður Kristinsdóttir, fulltrúi Tinnu.
Gullprjónar ársins
1999 afhentir
Ráðstefna
um öryggis-
mál í ferða-
þjónustu
RÁÐSTEFNA um öryggismál í
ferðaþjónustu verður haldin fimmtu-
daginn 18. mars á Hótel Loftleiðum
við Reykjavíkurflugvöll undir yfir-
skriftinni: Er Island öruggur
áfangastaður ferðamanna? Hefst
hún kl. 9.
Að ráðstefnunni standa Iðntækni-
stofnun, Landsbjörg, Ferðamálaráð,
Ferðamálasamtök Islands, Ferða-
málasamtök höfuðborgarsvæðisins,
Slysavai-nafélag íslands, Umferðar-
ráð, Ferðamálasamtök Vestfjarða,
Leiðsöguskólinn við MK og Sam-
band íslenskra tryggingafélaga.
Meðal innlendra fyrirlesara á ráð-
stefnunni má nefna Guðmund Sig-
urðsson, lögfræðing, sem fjallar um
bótaábyrgðir og tryggingar, Þórhall
Jósepsson, sem fjallar um sam-
gönguöryggi og ógnir aldurhniginna
og umbreyttra tækja, Benedikt Jó-
hannesson, tryggingastærðfræðing,
sem fjallar um áhrif slysa á markaði
erlendis og Pétur Rafnsson, sem
fjallai- um öryggismál í afþreyingar-
ferðaþjónustu.
Upphafserindi ráðstefnunnar flyt-
ur dr. Anders Steene frá háskólan í
Kalmar í Svíþjóð, en hann er sér-
fræðingur um öryggismál og gæða-
stjómun í ferðaþjónustu og hefur
starfað að rannsóknum og þróunar-
starfi í ferðaþjónustu víða um heim á
undanfórnum árum, jafnt innan há-
skóla sem og fyrir stjórnvöld og fjöl-
þjóðlegar stofnanir. Ráðstefnustjóri
er Hallgrímur Jónasson, forstjóri
Iðntæknistofnunar, en Halldór Blön-
dal, samgönguráðherra, mun setja
ráðstefnuna.
-----------------
Borgarnes
Framsókn
opnar kosninga-
skrifstofu
Borgamesi. Morgunblaðið.
Framsóknarflokkurinn á Vestur-
landi hefur opnað kosningaskrifstofu
að Brákarbraut 1 í Borgarnesi.
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigð-
is- og tryggingaráðherra, og Magnús
Stefánsson alþingismaður ásamt
öðrum frambjóðendum voru á staðn-
um og ræddu um menn og málefni
við gesti og gangandi. Skrifstofan
verður opin fyrst um sinn alla virka
daga frá 14 til 19. Kosningastjóri er
Kolfinna Jóhannesdóttir.
GARNBÚÐIN Tinna hefur veitt
Gullprjóna ársins 1999. Að þessu
sinni hlaut handmenntadeild 8.
bekkjar Foldaskóla viðurkenning-
una en henni hefur Nanna Bald-
ursdóttir, kennari, stýrt undanfar-
in ár. Hafa nemendur hennar
bæði sýnt góða kunnáttu, sjálf-
stæð vinnubrögð, svo og sköpun-
argleði sem henni hefúr tekist að
virkja, segir í fréttatilkynningu.
Afhendingin fór fram í Fjörg-
FOSTUDAGSFYRIRLESTUR
Líffræðistofnunar verður haldinn
19. mars að Grensásvegi 12, stofu
G-6, og hefst klukkan 12.20. Allir
eru velkomnir meðan húsrúm leyf-
ir. Menja von Schmalensee, MS
nemi, mun flytja erindi um rann-
sóknarverkefni sitt. Erindið nefn-
ist: Minkar við sjó á Islandi.
Erlendar rannsóknir hafa bent
til að minkurinn sé einfari sem ver
óðal fyrir öðrum minkum með
skýrt afmörkuðum landamærum
og tiltölulega lítilli skörun milli
óðala einstaklinga sama kyns.
Hann hefur einnig verið talinn nán-
ast bundinn við sjávarbakka á
strandsvæðum eða vatns- og ár-
bakka inn til lands.
Frá haustinu 1996 hafa farið
fram rannsóknir hér á landi á rad-
íómerktum minkum, annars vegar
yn, samkomusal Foldaskóla í
Grafarvogi, að viðstöddum for-
ráðamönnum skólans sem og
nemendum. Viðurkenningin eru
innrammaðir 24k gullprjónar
sem þýski prjónaframleiðandinn
ADDI gefúr.
Þetta er í fimmta sinn sem
gullprjónarnir eru afhentir en
þeim er ætlað að efla hand-
menntir landsmanna bæði sem
áhugamál og list.
á ferskvatnssvæði og hins vegar
við sjó, þar sem tilgangurinn hef-
ur m.a. verið að kanna landnotkun
og ferðir dýranna við íslenskar að-
stæður. Þar hafa fengist niður-
stöður sem benda til þess að fé-
lagskerfi og landnotkun dýranna
sé ekki alveg jafn einföld í sniðum
og víða erlendis, e.t.v. vegna
skorts á samkeppni frá öðrum
skyldum rándýrum hér á landi.
Komið hefur í Ijós að dýrin breyta
landnotkun sinni mikið eftir árs-
tíðum og eru ekki alltaf bundin við
vatn.
I fyrirlestrinum verða aðallega
tekin dæmi um þetta frá rannsókn-
arsvæðinu við sjó. Þau gögn verða
síðan tengd við niðurstöður frá
ferskvatnssvæðinu og við fyrir-
liggjandi veiðitölur og þyngdar-
gögn um minka.
Erindi uin minka
við sjó á Islandi
Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni
PÁLL Gíslason óskar Ólafi Ólafssyni til hamingju með formannskjörið.
Ólafur Ólafsson
kosinn formaður
AÐALFUNDUR Félags eldri borg-
ara í Reykjavík var haldinn 7. mars
sl. í félagsheimili félagsins, Ásgarði,
Glæsibæ. í skýrslu stjórnar kemur
fram að síðasta ár var mjög við-
burðaríkt í sögu félagsins. Þar bar
hæst kaup og flutningar í Glæsibæ
sem hefur breytt allri aðstöðu hjá
félaginu.
Félagsstarfið hefur aukist veru-
lega og má ætla að í viku hverri taki
u.þ.b. 1.000 manns þátt í félags-
starfinu með einhverjum hætti.
Kosinn var nýr formaður, en Páll
Gíslason, læknir, gaf ekki kost á sér
áfram af heilsufarslegum ástæðum.
í hans stað var kosinn til tveggja
ára Ólafur Ólafsson, fyrrverandi
landlæknir.
Stjórnin bar fram tillögur um
hagsmunamál sem allar voru sam-
þykktar samhljóða.
LEIÐRÉTT
Leiðrétting við grein
UNDIRRITAÐUR vill koma fram
eftirfarandi leiðréttingu vegna
greinar eftir hann „Um lýðræði og
upplýsingastreymi í íslensku þjóð-
félagi“ er birtist í Morgunblaðinu í
gær, 17. þ.m. Þar fullyrðir undirrit-
aður að Söfnunarsjóður lífeyris-
réttinda hafi veitt ákveðnu fyrir-
tæki lán á þriðja hundrað milljónir
kr. á árinu 1997. Fullyrðing þessi
er byggð á veðbókarvottorði frá
sýslumanninum í Reykjavík dags.
23.1. 1998 og ljósriti af þinglýstu
skuldabréfi dagsettu 18.12.1997 og
fengið frá sýslumanni 29.1. 1998.
Samkvæmt upplýsingum Söfnun-
arsjóðsins hafnaði hann kaupum á
þessum skuldabréfum og skal það
hér með leiðrétt. Samkvæmt veð-
bókarvottorði dagsettu í dag, 17.3.
1999, voru gefin út skuldabréf með
öðrum kröfuhöfum en þeir eru m.a.
Lífeyrissjóður verslunarmanna,
Lífeyrissjóðurinn Framsýn, Sam-
vinnulífeyrissjóðurinn o.fl. Söfnun-
ai-sjóðurinn er sagður kröfuhafi af
einu skuldabréfi að upphæð kr.
20.000.000 en að sögn fram-
kvæmdastjóra sjóðsins er það
rangt.
Þetta leiðréttist hér með.
Sveinn Valfells
Fræðslufundur
skógræktar-
felag-anna
um lerki
SKÓGRÆKTARFÉLÖGIN á höf-
uðborgarsvæðinu halda opinn
fræðslufund þriðjudaginn 16. mai'S
kl. 20.30 í sal Ferðafélags íslands,
Mörkinni 6. Þessi fundur er í um-
sjón Skógræktarfélags Reykjavík-
ur.
Þetta er annar fræðslufundur
ársins í fræðslusamstarfi skógrækt-
arfélaganna og Búnaðarbankans.
Aðalerindi kvöldsins flytur Þröstur
Eysteinsson, fagmálastjóri Skóg-
ræktar ríkisins og kallst það
„Lerki“. Þröstur mun í máli og
myndum fjalla um reynslu af rækt-
un lerkis, en hann er einn helsti sér-
fræðingur landsins á því sviði. Hann
mun einnig fjalla um kynbætur á
lerki auk þess að sýna myndir frá
vaxtarstöðum lerkis í Síberíu og N-
Ameríku.
Skógræktarfélögin hafa tekið upp
samstarf við Félag íslenskra hljóm-
listai-manna, FÍH og munu tónlist-
armennirnir Gunnar Gunnarsson og
Gunnar Hrafnsson leika nokkur létt
lög. Allir eru velkomnir meðan hús-
rými leyfir og verður boðið upp á
kaffi.
Fundur í
Breiðholtsskóla
um fíkniefna-
vandann
BREIÐHOLTSSKÓLI ásamt for-
eldrafélagi skólans heldur fund
fimmtudaginn 18. mars kl. 20. Mál-
efnið er viðvörun frá nokkrum sem
lifðu af fíkniefnavandann.
Fundurinn er fyrir foreldra og
kennara bama í 8., 9. og 10. bekk
Breiðholtsskóla. Á fundinum verður
sýnd myndin „Marita II, viðvörun
frá nokkrum sem lifðu af‘. Á þenn-
an fund mæta Anna Elísabet Ólafs-
dóttir, hverfislögreglumaður, Rúnar
Halldórsson frá forvarnarsviði Fé-
lagsþjónustunnar, starfsmenn
hverfaskrifstofu Félagsþjónustunn-
ar í Álfabakka og Jón Indriði Þór-
hallsson, fyrrverandi fíkniefnaneyt-
andi, sem fylgir efni myndarinnar
eftir með umræðu og fræðslu.
EITT glæsilegasta lerkitré
landsins er Evrópulerkið í
garðinum Skrúð í Dýrafirði.
Bæklingur um
grindarlos
kominn út
BÆKLINGUR um grindarlos er
kominn út. Hann er gefinn út af
Faghópi sjúkraþjálfara sem vinnur
að málefnum kvenna tengdum með-
göngu of fæðingu. Öll vinna sjúkra-
þjálfara var unnin í sjálfboðavinnu.
Félag íslenskra sjúkraþjálfara,
Heilbrigðisráðuneytið, Stoð og Öss-
ur styrktu gerð bæklingsins.
Hann er tólf síður með skýring-
armyndum. Fjallað er um gi'indar-
los, hvað það er og hvað sé til ráða,
s.s. rétt líkamsstaða og vinnustell-
ingar, notkun hjálpartækja og
meðferð hjá sjúkraþjálfara.
Hægt er að nálgast bæklinginn
endurgjaldslaust á skrifstofu Fé-
lags íslenskra sjúkraþjálfara í Lág-
múla 7, 108 Reykjavík, eða fá hann
sendan í póstkröfu.
Árshátíð
Bergmáls
LIKNAR- og vinafélagið Bergmál
heldur árshátíð sína í Safnaðar-
heimili Háteigskirkju laugardaginn
20. mars.
Húsið verður opnað kl. 18.30.
Borðhald og þríréttuð máltíð hefst
kl. 19. Pöntun aðgöngumiða fyrir
laugardag, verð miða er 2.000 kr.
Fjölbreytt skemmtiatriði.
Candide eru nýir, bjartir pastellitir,
sem hæfa konum á öllum aldri. LANCÖME
PARIS 5 "V
I.ANCÖMI sérfræðingur býður förðun og ráðgjöf,
í dag og á morgun. Kaupaukar og prufur.
H Y G E A
inyrtivBruvtr* lun
Austurstræti, sími 511 4511
r