Morgunblaðið - 18.03.1999, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 18.03.1999, Qupperneq 60
60 FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999 I DAG MORGUNBLAÐIÐ Matur og matargerð Eggjakrem og tertur Kristín Gestsdóttir vill byrja á að benda lesendum sínum á auðvelda að- ferð við að bræða súkkulaði. Hitið bakarofn í 70°C, setjið súkkulaðið í einfalt lag á eldfast- an, þykkan disk eða fat þar sem það bráðnar á 7 mínútum. Engin gufa fer í súkkulaðið, sem helst lengi mjúkt á heitum diskinum, og hægt er að sitja í rólegheitum við verkið. Verra er að setja þetta í örbylgjuofn þar sem disk- urinn hitnar ekki í honum og súkkulaðið er því fljótara að kólna og stífna. Eg las um daginn grein í tímariti þai' sem kona kvartar yfír umstangi við fermingar- veislur. Hún hélt stóra köku- veislu heima hjá sér, byrjaði mörgum vikum fyrr að baka og setja í frystikistuna - jafnvel fullskreyttar tertur - og hafði ekki pláss í kistunni fyrir neitt annað. Svo voru afgangarnir í kistunni langt fram á sumar. Vonandi er þetta undantekning. Vera í frystikistunni í margar vikur bætir ekki skreyttar tert- ur. Hætta er á að rjómi og ann- að feitmeti taki í sig bragð af öðru í kistunni, og þarf að pakka þessu mjög vel inn svo ekki verði. Hins vegar er sjálfsagt að frysta botnana og kransaköku sem batnar við frystingu. Mar- engs, súkkulaði og frómas eða annað með matarlími á ekki að frysta, að ekki sé talað um ávexti. Fáið heldur hjálp við skreytinguna, munið að margar hendur vinna létt verk. Hér er uppskrift af heima- gerðu eggjakremi, en líklega er hægt að kaupa það í pökkum þótt ég hafí ekki rekist á það. Ekki er uppskrift að þeim köku- botnum sem kremið fer í, önnur er úr smjördeigi en hin svamp- botni. Eggjakrem 3 eggjarauður 1 Vi msk. sykur 1 V2 msk. kartöflumjöl '/2 I nýmjólk V2 vanillustöng 1. Kljúfíð vanillustöngina og setjið helminginn út í mjólkina og látið sjóða. Skafíð þá komin úr stönginni út í pottinn. 2. Setjið kalt vatn í eldhús- vaskinn. 3. Hrærið saman eggjarauður, sykur og kartöflumjöl, setjið út í sjóðandi mjólkina, hrærið hratt í þar til þykknar, takið þá strax af hellunni og skellið pottinum í vatnið í vaskinum og hrærið í þar til mesti hitinn er rokinn úr. Kælið. Þetta magn er ætlað í þær tvær kökur sem uppskriftir eru að hér á eftir. Smjördeigskaka með sultu og kremi 3 bakaðir botnar um 22 sm í þver- mól úr keyptu smjördeigi 20 steinlausar sveskjur % dl jarðarberjasulta eggjakrem, helmingur magnsins hér að ofan 2 dl flórsykur 2 msk. portvín, annað vín eða óvaxtasafi fersk jarðarber eða lítil póska 1. Leggið sveskjurnar í bleyti í 1 dl af vatni í 3-4 klst. Sjóðið síðan í vatninu við mjög hægan hita í 20 mínútur. Saxið sveskjurnar mjög fínt, helst í kvöm, blandið saman við sultuna. 2. Setjið sultu á neðsta botninn, eggjakrem með 1-2 dl af þeytt- um rjóma á annan botninn og síðan er glassúr sem í er flórsyk- ur og vín eða ávaxtasafi á efsta botninn. Ferskum jarðarberjum eða litlum páskaeggjum raðað í kring. Núggakaka með möndlum 1 stór svampbotn sem bætt er i V2 dl af söxuðu súkkulaði helmingur eggjgkremsins hér að ofan ________50 g mjúkt smjör_____ _________100 g núggg_________ 50 g möndluflögur 1. Ristið möndluflögurnar á þurri pönnu, gætið þess að þær brenni ekki. 2. Velgið núggað örlítið og hrær- ið ásamt mjúku smjöri saman við eggjakremið. Smyrjið yfír botn- inn, stráið síðan ristuðu möndlu- flögunum ofan á. Skák/skál HINGAÐ tU hefur það ekki þótt fara saman að stunda íþróttir og drekka áfengi. En nú er öldin önnur. Ný- stofnað íþróttafélag í Reykjavík, Grand-Rokk skákfélagið, hefur blandað þessu tvennu saman með ágætum árangri. Þetta sannaðist áþreifanlega í Deildakeppni Skáksam- bands Islands sem lauk um síðustu helgi. Þar voi-u nokkrir keppendur sem tefldu fyrir hönd Grand- Rokk undir áhrifum áfengis en fóru þó svo vel með að vakti aðdáun annarra skák- manna. Víndrykkjan virtist ekki hafa minnstu áhrif á taflmennskuna, nema síður væri, því kapparnir unnu sína deild með glæsibrag. Segi menn svo að ekki sé hægt að samræma íþróttir og áfengi! Undh-ritaður hef- ur árum saman verið að streða við að tefla bláedrú með lélegum árangri. Nú er tilvalið að snúa við blaðinu og taka til fyrirmyndar hina ágætu drykkju- og skák- menn í Grand-Rokk, Hrafn Jökulsson og Dan Hansson og árangurinn lætur örugg- lega ekki á sér standa. Til hamingju, félagar! Lifi Gi'and-Rokk! Gunnar Finnsson, barnakennari og skákáhugamaður. VELVAKAM)! Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Fulltrúi okkar MAÐURINN sem hvað mest dásamaði sósíalismann í Rússlandi og Austur-Evr- ópu og hvatti til byltingar á Islandi og hvatti tH að koma á sams konar kerfi hér. Auðvaldið og andskotinn stjórauðu Vesturheimi. Það er ekki vitað að maðurinn hafi skipt um skoðun. Þegar rústir hugsjóna hans biasa við er hann sendur vestur um haf sem sendiherra - fulltrúi íslensku þjóðarinn- ar. Manni verður illt. Kristinn Sæmundsson. Að undirbúa sig fyrir elliárin EG horfði á Titring í sjón- varpinu 4. mars. og ég er sammála Margréti, varafor- manni samtaka aldraðra, að það sé tilgangslaust að reyna að búa sig fjárhags- lega undir elliárin. Það er allt tekið af manni hvort sem er. Þeir sem hafa misst maka sína vita að það mun- ar sáralitlu á heimilisrekstri hvort einn eða tveir eru í heimili. Við sem vorum í barneign fyrir pilluna áttum yfirleitt mörg börn og þar af leiðandi stóra fjölskyldu sem við viljum gjaman gleðja með smágjöf á tylli- dögum. Mér finnst það mannréttindi að ekki sé gengið það hart að okkur í skattheimtu að við getum það ekki. Það er ekki hægt að reka heimili og bíl fyrir minna en 150 þús. kr. á mánuði. Félag aldraðra ætti að beita sér fyrir þri að eldri borgarar sem hafa innan við 150 þús. kr. á mánuði séu skattlausir. Nóg erum við búin að borga alla okkar ævi en fengum lítið í staðinn. Við þekktum ekki fæðingar- orlof, barnabætur, námslán, barnaheimili o.fl. o.fl. Og það eru takmörk fyrir því hvað við eigum lengi að borga skatta í þessa mála- flokka. Látum auðugu fyi-ir- tækin og milljarðamæring- ana borga skattana. Kona. Kjör öryrkja MARGIR eru öryi-kjar þótt það sjáist ekki á þeim að þeir séu veikir. Búa þeir margir við lök kjör því þeir geta ekki sinnt öllum störf- um sem boðið er upp á. í dag eru gerðar miklar kröf- ur til starfsfólks, að það hafi góða menntun og sé við góða heilsu og atvinnurek- endur sætta sig ekki við veikt fólk í vinnu. Þess vegna verða öryrkjar að lifa af bótum einum saman, þeir búa margir við lök kjör, þurfa að borga húsa- leigu og lifa af afganginum. Heyrst hefur að fólk telji of marga öryrkja vera á bót- um, en málið er ekki ein- falt, því fólk sem er veikt fær ekki vinnu. Ef fólk sem er í vinnu veikist fær það launin sín í veikindunum, en ef fólk er úrskurðað ör- yrkjar vegna veikinda missir það vinnuna og laun- in sín og verður að lifa af bótunum. Elín. Tapað/fundið Týndir þú GSM-síma? HINN 26. febrúar sl. fann dóttir mín Sony GSM-síma fyrir utan hjá okkur. Eng- inn í nágrenninu kannast við símann. Á Landssíman- um var sagt að kortið í sím- anum væri svokallað „frjálst val“ og þar með væri ekki hægt að sjá hver eigandinn væri. Búið er að auglýsa símann á FM 95,7 og Bylgjunni en ekkert hef- ur komið út úr þvi. Ef ein- hver kannast við að hafa týnt símanum sínum er hann vinsamlega beðinn að hafa samband við okkar í síma 555 2212. G-Schock úr týndist G-SCHOCK úr týndist í Betrunarhúsinu fyrir u.þ.b. 2 vikum. Það er auðþekkjan- legt, grátt, svart og hvitt, keypt erlendis. Þeir sem hafa orðið vaiir við úrið hafi samband í síma 555 3911. Fundailaun. SKAK IJm.sjón Margcir Pétursso 11 ÞETTA endatafl kom upp í ís- landsflugsdeild- inni, en keppni þar lauk lyrr í mai'smánuði á Akureyri. Jón L. Árnason (2.535), Helli, hafði hvitt og átti leik, en Askell Öm Kára- son (2.270), Skák- félagi Akureyrar, hafði svart. 37. a5! - Bxd2 38. a6 og svartur gafst upp, því hvíta a-peðið verður ekki stöðvað. Jón L. og félagar í Helli hrepptu sinn fyrsta Islandsmeistara- titil á Akureyri, en Taflfélag Reykjavíkur varð að þessu sinni að láta sér nægja ann- að sætið. HVITUR leikur og vinnur. HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrifar... YÍKVERJA varð það á að líta á gosflösku, sem hann var að drekka úr og þar eru upplýsingar um innihald vökvans í flöskunni. Þar seg- ir að í flöskunni sé kolsýrt vatn, litar- efni sýrur, bragðefni, m.a. koffein, rotvarnarefni og fenýlalanín. Magn hvers efnis um sig er alls ekki nefnt. Síðan er upptalning á næringar- gildi innihaldsins í 100 millilítrum og þar segh' að orka sé 1,3 kJ eða 0,3 kkal. Síðan eru talin upp efni, sem alls ekki eru í drykknum: prótein 0,0g, kolvetni 0,0g, sykur 0,0g, fíta 0,0g, mettaðar fitusýrur 0,0g, trefjar 0,0g og natríum 0,01g. Til hvers er verið að telja þetta allt upp, þegar efnin eru ekki í vökvan- um? Af hverju þetta en ekki hitt? Má kannski líka telja upp einhver fleiri efni? Hvar láta menn staðar numið? Getur verið að þetta sé einhver auglýsing, en ekki upplýsingaatriði fyrir viðskiptavininn? xxx LESANDI Víkverja hringdi og var ekki ánægður með bréf Helga Sigvaldasonar, sem birtist í Víkverjapistlinum síðastliðinn sunnudag. Hann taldi, að happ- drættin, sem ekki drægju aðeins úr seldum miðum, ynnu sjálf í sér það sama hlutfall og óseldir miðar væru. Þetta virðist vera eðlilegt. Þótt vinn- ingshlutfall sé hátt, er það ekki eins hátt og um er rætt, ef aðeins er tek- ið mið af seldum miðum. Happ- drættin spila sem sé einnig í sjálfum sér á þá miða sem ekki seljast. Sé gert ráð fyrir að 50% miða séu óseld, má búast við því að um 50% vinn- inga fari aldrei út. Þetta hlutfall get- ur af sjálfu sér raskast í einstökum útdráttum, en þegar litið er til lengri tíma, hlýtur þetta að jafnaði að vera hið sama hlutfall og hlutfall seldra miða er. Raunar var lesandinn sem hringdi hálfergilegur út í eitt stóru happ- drættanna. Hann kvaðst hafa átt miða í einu þeirra áratugum saman og hefði aldrei fengið neinn vinning öll þessi ár. Miðarnir hefðu kostað sig tugþúsundir ef ekki hundruð þús- unda um dagana og þegar hann fór einhverju sinni að reikna út, plúsa og mínusa, hafi dæmið verið svo óhag- stætt sér að hann hafí hætt viðskipt- um við happdrættið. En hann, sem var búinn að eiga miðana svo lengi, mundi auðvitað öll númerin. Og þeg- ar hann var hættur, tóku miðarnir upp á þvi að afla vinninga einn af öðrum. Hann sat eftir með sárt enn- ið, en sagðist hafa hringt í happ- drættið og fengið þær upplýsingar að gömlu númerin hans væru óseld. En þannig er þetta með happ- drættin, „vogun vinnur, vogun tap- ar“ og eitt er víst að vilji menn eygja möguleika á vinningi, verða menn að taka þátt og spila með. Það er frum- skilyrði til að fá vinning. XXX OSKAPLEG óheppni er það hjá ísfirðingum að snjóflóð skuli hafa fallið á Seljalandsdal og eyði- lagt öll þau mannvirki, sem menn höfðu af elju og dugnaði verið að endurreisa eftir snjóflóðið, sem færði öll skíðamannvirkin í kaf árið 1995. En menn virðast ekki tilbúnir til að gefast upp og í viðtölum, sem Víkverji horfði á í sjónvarpi á dög- unum, vildu menn ótrauðir halda áfram. ÞaTvaf bjartsýnin mikil og menn vildu ekki gefast upp fyrir náttúruöflunum. En þrátt fyrir allt verða menn þó að viðurkenna að mannskepnan er harla lítil í viður- eigninni við hamfarir náttúrunnar. Víkverji telur því að menn verði að fara afskaplega varlega í sakirnar. Menn mega ekki storka náttúrunni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.