Morgunblaðið - 18.03.1999, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 18.03.1999, Qupperneq 64
~64 FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Geimsápan Hnetan frumsýnd í kvöld Allt g'etur gerst þegar jörðinni sleppir I kvöld gefst djarflyndu fólki kostur á að » taka þátt í og kanna framandlegar slóðir því frá geimstöðinni Iðnó verður lagt í ferð út í geim í leit að plánetunni Hnetunni. ------^------------------------- Dóra Qsk Halldórsdóttir brá sér í geim- ferð og spjallaði við Lindu Asgeirsdóttur sem er í áhöfninni. EGAR gengið er inn í geimstöðina Iðnó við Tjörnina tekur á móti far- þegunum ábúðarmikil áhöfn. Arið er 2099 og geimferjan er að leggja af stað. Gestir ei-u skannaðir áður en þeim er vísað til sætis og sagt að spenna sætisólarn- ar. Síðan hefst ferðalag sem aldrei verður endurtekið, í það minnsta ekki í sömu mynd. Hið óvænta á sér nefnilega veglegan sess í geimstöð- inni Iðnó og engin ferð annarri lík. Spuni hefur notið mikilla vin- sælda í íslensku leikhúsi síðastliðið ár og er Leikhússportið, Þjónn í súpunni auk sjónvarpsþáttarins Stutt í spunann merki um þann ri3ukna áhuga sem landinn hefur sýnt þessu leikformi. í spuna getur allt gerst og mikið reynir á útsjón- arsemi og snögg viðbrögð leikar- anna. Akveðin hætta og spenna liggur í Ioftinu sem maður er ekki vanur á venjulegum leiksýningum. Einnig skipta áhorfendur miklu máli, enda taka þeir iðulega mikinn þátt í sýningunni, koma með tillög- ur og geta haft talsverð áhrif á framvindu kvöldsins. Leikstjóri Hnetunnar er Sviinn Martin Geijer, en fimm leikarar taka þátt í sýningunni, þau Gunnar Helgason, Ingrid Jónsdóttir, Gunn- ar Hansson, Linda Asgeirsdóttir og Friðrik Friðriksson. Um tónlistina sér Pálmi Sigurhjartarson. Leik- hópur Hnetunnar hefur æft í fimm vikur og að sögn Lindu Asgeirsdótt- ur hefur æfingatímabilið verið óvenjulega skemmtilegt, mjög ólíkt því sem leikarar eru vanir í hefð- bundnum leiksýningum. Arið 2099 um borð í geimskipi -Er ekki einhver grínd í verk- inu? „Jú, umgerðin er geimskipið sem er á leið til geimstöðvarinnar Lax- ness II sem liggur á sporbraut um jörðu og árið er 2099. A leiðinni upp, fyrir hlé, er skemmtun um borð þar sem áhafnarmeðlimir skemmta gestum. Sá hluti verksins er mikið í ætt við Leikhússport, því áhorfendur taka virkan þátt, koma með uppástungur og það er sungið og leikið. Eftir hlé tekur síðan geimsápan Hnetan við.“ -Er Hnetan skyld framhalds- þáttum? Verður spunnið út frá söguþræði kvöldsins á undan? „Að vissu leyti, en þó ekki alveg, því hver sýning verður sjálfstæð. I Stuttermapeysur aðeins 2500- á Kringlukasti | OWOBIU Sokkabuxur frá Oroblu með 30-50% afslætti TISKUVERSLUN KRINGLUNNI Kringlukast er dagana 17. - 20. mars. FÓLK í FRÉTTUM M 11 m hléi fá allir áhorfendur miða og koma með tillögu að söguþræði kvöldsins. Síðan er dregið úr mið- unum og atburðarás þáttarins ráð- in. Þannig geta áhorfendur haft mikil áhrif á söguþráð sápuóper- unnar.“ -Hvernig varð hugmyndin að geimferðinni til? „Leikstjórinn Martin Geijer hef- ur mikla reynslu af þessu formi og hefur sett upp sambærilegar sýn- ingar erlendis. Hugsanlega hefur orkan sem tengd er við landið kveikt þessa hugmynd, því í sögu- þræði sápuóperannar hafa íslend- ingar fundið óendanlega orku í iðr- um Vatnajökuls og verða af þeim fundi ríkasta þjóð í heimi og standa fremstir þjóða í geimferðamálum.“ - Nú hefurþú komið víða við eftir að þú laukst leiknámi síðasta vor og menn þekkja þig m.a. sem Spaug- stofukonu og í Hádegisleikhúsi Iðnó auk þess sem þú hefur tekið þátt í ólíkum verkum, bæði hefðbundnum og spuna. Hvernig er að spinna svona heilt kvöld? „Það eru aldrei tveir spunar eins, og stundum finnst manni eitt kvöld miklu betra en annað. En áhorfend- ur gefa svo mikið í spunann. Þeirra hlutur í spuna er mjög stór.“ Falin myndavél og martröð leikarans Linda leikur í Hádegisleikhúsi Iðnó í verkinu Leitum að ungri stúlku á móti Gunnari Hanssyni. Á einni sýningu verksins var falin myndavél sem fylgdist með öllu sem fram fór og höfðu aðstandendur sýningarinnar ákveðið að gera henni grikk. Tjald úr leikmyndinni hrundi og Gunnar gerði ekkert eftir settum reglum. Síðan var hlegið stórkarlalega að öllu sem hann sagði en hún fékk engin viðbrögð. Stöðumælavörður kom inn í salinn þegar langt var liðið á sýninguna og fór að spyrja hana um ólöglega lagðan bíl. Hluti af sýningunni var síðan sýndur í sjónvarpinu í þættin- um Stutt í spunann. -Þú sýndir mikla hörku þegar martröð leikarans var framkölluð í einni hádegissýningunni á dögun- um. „Eg hafði ekki grun um hvað væri á seyði. Mér fannst salurinn vera mjög skrýtinn og óvenjulegur um ieið og ég kom inn. Ég hugsaði með mér að þótt salurinn væri mjög erfiður væri um að gera að halda bara sínu striki eins og ekkert hefði í skorist." - En nú var mikið hlegið að mót- leikara þínum í spunanum, Gunnari Hanssyni. Var það ekki óþægilegt að vekja ekki sömu viðbrögð? „Jú, það var svolítið skrítið. Sýn- ingunni hefur verið svo vel tekið og alltaf mikið hlegið. Því var einkenni- legt að upplifa það ekki gerast þarna. Ég hugsaði að það hlytu ein- hverjir vinir Gunna að vera í saln- um. Örugglega í öftustu sætunum þar sem einhver hló alltaf rosalega þegar Gunni gerði eitthvað." - Datt þér ekki í hug að einhver hrekkur væri í gangi? „Ekki fyrr en undir lokin þegar stöðumælavörðurinn birtist. Én ég trúði því bara ekki að þetta væri mögulegt, að nokkur maður gæti lent í öðru eins, en það var auðvitað tilgangurinn með þessu öllu saman. En svo er svo skrýtið að þegar mað- ur lendir í svona aðstæðum þá fer bara sjálfsbjargarviðleitni leikarans af stað, og maður reynir að spinna sig út úr aðstæðunum.“ Algjört „geimvisjón" Linda sýndi og sannaði við þessar aðstæður að hún var vanda spuna- leikarans vaxin. En það er ekki það eina sem hún gerir í tengslum við sýningu geimsápunnai- Hnetunnar, því í gær fór nýtt lag í spilun á út- varpsstöðvum landsins úr Hnetunni þar sem Linda syngur eins og eng- ill. Hún er spurð hvort söngurinn hafi biundað í henni lengi. „Ég lærði nú söng í Söngskólan- um á sínum tíma þegar ég var í menntaskóla, en ég hef ekkert sung- ið að ráði undanfarin ár. Auðvitað er söngur hluti af leiklistamáminu, en ég hef ekkert sungið opinberlega. En Pálmi Sigurhjartarson ákvað að búa til lagið Meðal stjarnanna og ég var fengin til að syngja það.“ - Hvernig er lagið? „Það er eiginlega í svona evró- visjón-stíl. Svolítil „xanadu“-áhrif í bland við geim-“effekta“. Eiginlega algjört geimvisjón." -Hvernig fannst þér að vera í hlutverki söngkonunnar? „Það var bara mjög gaman. Ann- ars er það ekki Linda sem syngur lagið heldur Alfa, persónan sem ég leik í geimsápunni.“ -En örstutt ílokin. Hverju mega áhorfendur búast við í geimstöðinni Iðnó? ...------- „Fyrst og fremst skemmtun og óvæntum atriðum. Þrátt fyrir að rammi sé um verkið er allt spunnið á staðnum, enginn texti er undirbú- inn og hver sýning getur verið gjör- ólík þeirri næstu. Þetta er því sýn- ing sem hægt er að njóta oftar en einu sinni.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.