Morgunblaðið - 18.03.1999, Qupperneq 72
ORUGG AVOXTUN
BUNAOARBANKINN
VERÐBRÉF
- byggir á trausti
MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Samherji hf.
Hagnað-
- ur 706
milljónir
króna
HAGNAÐUR Samherja hf. á árinu
1998 var 706 milljónir króna en 204
milljónir króna árið 1997. I frétta-
tilkynningu frá félaginu segir að
rekstur Samherja hafi gengið vel á
árinu og öll dótturfélög félagsins
erlendis hafi verið rekin með hagn-
aði.
v Þorsteinn Már Baldvinsson for-
stjóri Samherja segir að þegar á
heildina sé litið sé hann sáttur við
afkomu félagsins á árinu. „Niður-
staðan er svipuð og við gerðum ráð
fyrir í áætlunum okkar. Eitt af
meginmarkmiðum félagsins á ár-
inu 1998 var að bæta rekstur er-
lendu dótturfélaganna og það tókst
eins og tölur sýna,“ segir Þorsteinn
Már.
Hann segist telja horfumar fyrir
árið í ár í heild sinni þokkalegar
,hvað félagið varðar og vonast til
"*■ þess að afkoman verði viðunandi.
„Þá höfum við ákveðið að láta
smíða fyrir félagið nýtt fjölveiði-
skip sem kemur inn í reksturinn á
fyrri hluta árs 2000.“
Sævar Helgason hjá Kaupþingi
Norðurlands segir að uppgjör fé-
lagsins sé nokkuð gott. „I heildina
séð finnst mér að uppgjörið hafi
verið nokkuð gott og sérstaklega
eftirtektarvert að fyrirtækið er
með tæpar 1.400 milljónir í veltufé
frá rekstri sem er mjög jákvætt.
Hagnaður félagsins er þó aðeins
lægri en verðbréfafyrirtækin
gerðu ráð fyrir í spám sínum í
febrúar, eða rúmar 400 milljónir
^jraf reglulegri starfsemi eftir
skatta.“
■ Öll dótturfélög/B2
Skýrsla um flug-
slysið við Bakka
Alvarlegar
athuga-
semdir
gerðar
Rannsóknanefnd flugslysa
gerði fjölmargar athugasemdir
í nýrri skýrslu vegna flugslyss
sem varð á Bakkaflugvelli í
Landeyjum hinn 13. september
sl. Fjögurra sæta eins hreyfils
lágþekja í eigu Flugfélags
Vestmannaeyja með þrjá menn
innanborðs steyptist til jarðar
skömmu eftir flugtak og brot-
lenti. Flugmaðurinn hlaut al-
varleg meiðsl við brotlending-
una en farþegarnir meiddust
minna.
I skýrslu nefndarinnar er
m.a. bent á að flugundirbún-
ingur hafi verið óvandaður og
að líklegasta skýringin á orsök-
um slyssins sé sú að flugvélin
hafi lent í svokölluðu innskriði í
vinstribeygju eftir flugtak,
vegna óstöðugleika sem stafaði
af mikilli afturhleðslu vélarinn-
ar. Nefndin telur að vélin hafi
verið ofhlaðin, að þyngdar-
punktur hennar hafi verið fyrir
aftan leyfð aftari mörk og að
farangurinn verið laus og
óbundinn í farangursrýminu.
Þá segir að flugundirbúning-
ur hafi verið óvandaður og
vinnudagur flugmanns orðinn
nokkuð langur eða a.m.k. 11 til
12 klukkustundir og kunni það
að vera meðverkandi þáttur.
■ Flugvélin ofhlaðin/10
Alvarlegt eitrunarslys um borð í togara í Hafnarfjarðarhöfn
Portúgalskur skip-
verji á gjörgæsludeild
SKIPVERJI af portúgalska togar-
anum Santa Cristina, sem liggur við
bi-yggju í Hafnarfjarðarhöfn, var
fluttur meðvitundarlaus með alvar-
leg eitrunareinkenni á sjúkrahús
eftir mengunarslys um borð í togar-
anum nokkru eftir hádegi í gær.
Maðurinn liggur nú á gjörgæslu-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur í önd-
unarvél og verður í henni áfram að
sögn sérfræðings á deildinni.
Upp kom skyndilegur freonleki í
einu .. vélarrúmi skipsins þegar
frystiefnarör sprakk. Skipverjinn,
sem ætlaði inn í vélarrúmið, hné
niður og missti meðvitund er hann
andaði að sér gasinu, en félaga
hans og landa, sem með honum var,
tókst að koma honum burt.
Efnið barst síðan inn í lest skips-
ins þar sem fyrir voru nokkrir ís-
lenskir löndunarmenn frá Eimskip
og tókst þeim að koma sér burt
þegar þeir fundu lyktina og leituðu
sér aðstoðar hjá lækni vegna
ógleði.
Félagi mannsins var einnig flutt-
ur á sjúkrahús og átti að vera þar í
nótt til öryggis.
Lögreglan í Hafnarfirði var
ásamt Slökkviliði Hafnarfjarðar á
vettvangi í gær til að rannsaka að-
stæður og fóru eiturefnakafarar frá
slökkviliðinu niður í vélarrúm skips-
ins til að loka fyrir freonlekann í
skipinu og loftræsta það.
Morgunblaðið/Júlíus
Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf. lokar rækjuverksmiðjunni á Kópaskeri
40% félaga í verkalýðs-
félaginu missa vinnuna
STJÓRN Fiskiðjusamlags Húsavíkur ákvað í gær
að leita eftir sölu á frystitogara félagsins, Húsvík-
ingi ÞH-1, og verður skipið selt ef viðunandi verð
fæst, að sögn Einars Svanssonar, framkvæmda-
stjóra FH. Stjórn FH ákvað einnig í gær að loka
rækjuvinnslu félagsins á Kópaskeri tímabundið á
milli vertíða eða frá maí og fram í október. Jafn-
framt hefur verið ákveðið að draga úr rækju-
vinnslu á Húsavík og fækka vöktum. Gripið er til
þessara hagræðingaraðgerða til að mæta erfiðari
ytri skilyrðum í rækjuveiðum og rækjuvinnslu hjá
félaginu, að því er fram kemur í frétt frá stjórn-
j«»»endum FH.
Að sögn Einars Svanssonar hafa 15-20 starfs-
menn verið verið fastráðnir hjá rækjuverksmiðj-
unni á Kópaskeri en nálægt 20 manns til viðbótar
verið lausráðnir hálft árið þegar vertíðin stendur
yfir frá hausti og fram á vor. Stjómendur FH
héldu fund með starfsmönnum rækjuverksmiðj-
unnar á Kópaskeri síðdegis í gær þar sem greint
var frá ástæðum þessara aðgerða. Aðalsteinn
^Ualdursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur,
var einnig á fundinum. Hann segir að mjög alvar-
leg staða sé komin upp og hún sé mikið áfall fyrir
starfsfólkið en rækjuverksmiðjan er stærsti
vinnustaðurinn á Kópaskeri. Hann bendir á að þar
starfi nú 30-40 manns og eru það nálega 40% allra
félagsmanna í verkalýðsfélaginu á staðnum.
í fréttatilkynningu frá stjórn FH í gær segir að
rekstur rækjuverksmiðjunnar á Kópaskeri hafi
gengið erfiðlega á þessu rekstrarári og þá sérstak-
lega utan þess tíma sem innfjarðarvertíð í Öxar-
firði stendur yfir. Einar Svansson bendir á að í
dag sé búið að loka 10 af 27 rækjuverksmiðjum á
landinu öllu.
Um 30 manns starfa í áhöfn
,_____ og við útgerð Húsvíkings
Vöktum hefur nú þegar verið fækkað í rækju-
verksmiðju FH á Húsavík úr þremur í tvær en að
sögn Aðalsteins Baldurssonar hefur þriðja vaktin
að mestu verið mönnuð starfsfólki af öðrum vökt-
um. Samdráttur í rækjuvinnslunni muni því fyrst
og fremst hafa í för með sér skerðingu á vinnu-
tíma starfsfólksins. Aðalsteinn sagði að mjög al-
varleg staða væri komin upp á Húsavík vegna
þeirrar ákvörðunar að leita eftir sölu á Húsvík-
ingi.
Um 30 starfsmenn á Húsvíkingi
Samkvæmt upplýsingum Einars starfa samtals
um 30 manns í áhöfn eða við önnur störf í tengslum
við útgerð Húsvíkings. Að sögn hans hafa nokkrir
erlendir aðilar falast eftir skipinu á seinustu mán-
uðum og hafa tilboð borist félaginu. Skipið var
keypt 1997 og er smiðað í Noregi 1994 og er því
eitt af nýjustu skipunum í íslenska flotanum. Einar
vildi lítið segja um hvaða áætlanir stjómendur fé-
lagsins hefðu um framhaldið en þær byggðust á því
hvaða árangur yrði af þeim hagræðingaraðgerðum
sem ákveðið hefur verið að grípa til. „Það er nátt-
úrlega Ijóst að það verður eitthvað gert og við veið-
um náttúrlega kvótann okkar. Við erum að skoða
ýmsa möguleika," sagði hann.
Stjóm FH hefur einnig ákveðið að stofna hluta-
félag um netagerð félagsins frá 1. maí næstkom-
andi. Verður félagið í fyi'stu alfarið í eigu FH en
stefnt er að sölu meirihluta í félaginu eða samein-
ingu eða samstarfí við aðrar netagerðir.
Hífður
frá borði
PORTÚGALINN hífður frá
borði í Hafnarfjarðarhöfn síð-
degis í gær. Hann var fluttur
meðvitundarlaus á sjúkrahús og
liggur á gjörgæsludeild í önd-
unarvél.
Víkingalottó
Vann 35
milljónir
ÍSLENDINGUR hafði allar
tölm' réttar í Víkingalottóinu í
gær og fékk í sinn hlut um 35
milljónir króna en Finni og
Norðmaður, sem höfðu einnig
valið réttar tölur, fengu jafn
mikið í sinn hlut.
Vinningsmiðinn var seldur í
Glæsibæ, Álfheimum. Að sögn
Bolla Valgarðssonar, markaðs-
stjóra íslenskrai' getspár, er
þetta í sjötta sinn sem Islend-
ingur fær hæsta vinning í Vík-
ingalottóinu. Vinningshafinn
hafði ekki gefið sig fram í gær-
kvöldi.