Morgunblaðið - 11.06.1999, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1999 19
___________________LANPIÐ____________________
Heimsókn dönsku sendiherrahjónanna til ísafjarðar
Morgunblaðið/Halldór
DÖNSKU sendiherrahjónin, Flemming og Hanne Mnrch, ásamt Ruth
Tryggvason, fyrrverandi ræðismanni Dana á Isafirði, við hátíðahöld
sjómannadagsins á Isafirði.
Drógu
þorsk
á sjó-
manna-
daginn
ísafirði - Dönsku sendiherra-
hjónin, Flemming og Hanne
Morcii, ásamt fylgdarliði sínu
og ræðismanni Dana á Isafirði,
Fylki Ágústssyni, brugðu sér á
sjómannadaginn í róður frá Isa-
firði og drógu þorsk. Aflinn var
utan kvóta enda var einungis
verið að veiða í soðið fyrir stór-
íjölskyldur þeirra sem hlut áttu
að máli.
Sendiherrahjónin ásamt
blásarakvintett úr lífvarðasveit
Margrétar Þórhildar drottning-
ar komu til Isafjarðar á laugar-
dagsmorguninn, 5. júm, en það
er þjóðhátíðardagur Dana. Er-
indið var að heimsækja ræðis-
manninn og hitta fólkið í land-
inu, en skammt er síðan sendi-
herrann tók við starfi. Eins og
orðheppinn maður í Netagerð
Vestfjarða sagði, þá var þetta í
fyrsta sinn sem það gerist í ann-
að sinn, að nýskipaður sendi-
herra Danmerkur er í heimsókn
á ísafirði bæði á þjóðhátíðar-
degi Dana og sjómannadegi Is-
Iendinga. Blásarasveitin lék á
hafnarsvæðinu á Iaugardaginn
og í ísafjarðarkirkju fyrir
messu á sunnudagsmorgun.
Á laugardag fóru sendiherr-
ann og föruneyti til Flateyrar,
þar sem m.a. voru skoðuð um-
merki snjóflóðsins og varnar-
garðarnir miklu. Einnig var
farið til Bolungarvíkur. Síðdeg-
is var móttaka í Turnhúsinu í
Neðstakaupstað, en auk for-
ystufólks í bæjarmálum og at-
vinnulífi hafði sendiherrann
óskað sérstaklega eftir því að
hitta skólamenn á svæðinu,
einkum dönskukennara.
Sendiherrann og föruneyti
hans snæddu síðan þjóðhátíðar-
kvöldverð heima hjá Fylki
Ágústssyni ræðismanni og eig-
inkonu hans.
Eftir messu í ísafjarðarkirkju
á sunnudag var farið í sjóferð
með Kiddý og Hafsteini Ingólfs-
syni, enda þótti við hæfí að
kontóristar og aðrir landkrabb-
ar færu af stað þegar sjómenn
voru í fríi. Fyrst var dreginn
þorskur eins og hæfilegt þótti í
matinn en síðan var haldið inn í
Súðavík og skoðað af sjó hvern-
ig heilt þorp hefur flutt sig um
set.
Sendiherrahjónin létu mjög
vel af móttökum öllum hér
vestra. Ekki spillti veðrið, því
að hér var blíðviðri alian tím-
ann sem þau stóðu við.
Fylkir Ágústsson hefur gegnt
starfi ræðismanns Dana á Isa-
firði jafnlengi upp á dag og Da-
víð Oddsson hefur verið forsæt-
isráðherra, en það var 30. apríl
árið 1991 sem hann tók við
embættinu af Ruth Tryggvason.
Orvaycí er
f\jáokkur
Alumina
Lux kerruvagn
Stórhoícla 17, við Gullinbrú,
-sinii S67 4844.
www.flis@flis.is • netfang: flis@hn.is
Skólavörðustíg 35,
sími 552 3621.
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
BIJI Gíslason og Harpa Davíðsdóttir pússa trefjaplast á kanti sund-
laugarinnar.
Viðgerðum á Kolvið-
arnesslaug lokið
Eyja- og Miklaholtshreppi-Lokið er
viðgerðum á Kolviðamesslaug í
Eyja- og Miklaholtshreppi.
Sundlaugin var steypt 1945 af
Héraðssambandi ungmennafélaga í
Snæfellsness- og Hnappadalssýslu
en gefin Laugargerðisskóla 1965.
Sundlauginni hefur verið haldið
ágætlega við en nú voru kantamir
farnir að springa og molna.
Búi Gíslason og Harpa Davíðs-
dóttir hjá Búaplasti hf. klæddu
kantana með trefjaplasti. Fyrst var
það sniðið til, hitað og pressað á
kantana og lofttæmt þannig að það
legðist alveg að steypunni. Síðan var
það pússað og að endingu málað. Að
sögn Búa Gíslasonar er þetta mjög
endingargott og vel til þess fallið að
klæða sundlaugar alfarið á þennan
hátt. Sundlaugin er nú tilbúin og
bíður eftir sumargestunum í sund.
11-11 á
Selfoss
Selfossi - 11-11 verslunarkeðjan
opnaði nýverið verslun á Selfossi.
Þetta er ein fjölmargra verslana
sem keðjan rekur og verslunin á
Seifossi er sú fyrsta á Suðurlandi.
Húsnæði verslunarinnar er Sunn-
lendingum vel kunnugt en þar var
áður verslunin Kjarval til húsa.
Kaupás á og rekur 11-11 versl-
unarkeðjuna. Sigurður Teitsson
er framkvæmdastjóri 11-11.
Verslunarstjóri á Selfossi verður
Ölvar Bjarnason en hann starfaði
áður sem verslunarstjóri Kjarvals.
Morgunblaðið/Sig. Pannar
SIGURÐUR Teitsson, fram-
kvæmdastjóri 11-11, og Ölvar
Bjarnason, verslunarstjóri á
Selfossi.
Skráning skuldabréfa á Veröbréfaþing íslands
Útgefandi:
Lýsing á flokknum:
Nafnverö útgáfu:
Gjalddagar:
Skráningardagur á VPÍ:
Viöskiptavakt á VPÍ:
Lýsing hf., Suðurlandsbraut 22,
108 Reykjavík, kt. 491086-1229.
Heiti flokksins er 1. flokkur 1999. Bréfin eru til 7 ára,
bundin vísitölu neysluverös og bera 4,50% ársvexti.
Heildarfjárhæð útgáfunnar er 1.500.000.000 kr. að
nafnverði. Bréfin eru öll seld.
Greiddar verða 7 árlegar jafnar afborganir af bréfunum
ásamt áföllnum vöxtum. Fyrsti gjalddagi er 14. september
2000 og lokagjalddagi er 14. september 2006.
Bréfin veröa skráð á VÞÍ þann 15. júní 1999.
Búnaðarbankinn Verðbréf verður með viðskiptavakt á
flokknum á VÞÍ.
Milliganga vegna skráningar: Búnaðarbankinn Verðbréf, kt. 491296-2249.
Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík.
Upplýsingar varðandi ofangreind skuldabréf liggja
frammi hjá Búnaðarbankanum Verðbréfum
BUNAÐARBANKl NN
VERÐBRÉF
Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík. Sími: 525-6060 Fax: 525-6099
Aðili að Verðbréfaþingi íslands.