Morgunblaðið - 19.08.1999, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.08.1999, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 37 * STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. VINSÆLDIR SNORRA ÞAÐ KEMUR vitanlega ekki á óvart að Snorri Sturluson skuli vera vinsæll hjá frændum okkar Sví- um en sjálfsagt hafa margir orðið undrandi yfir hinum háu sölutölum á verkum hans sem sagt var frá í blaðinu í gær. Ný sænsk þýðing á Heimskringlu hefur þannig selst í 28.000 eintökum sem er mjög mikið á þarlendan mælikvarða. Þýðingin er eftir sænska handritafræðing- inn Karl Gunnar Johansson en þýðing hans og Mats Malm á Snorra-Eddu, sem kom út fyrir rúmu ári, hefur einnig notið mikilla vinsælda og selst í tæpum 10.000 eintökum. Johansson sagði í samtali við Morgunblaðið að mikill og vaxandi áhugi væri á Snorra og íslenskum fornbók- menntum í Svíþjóð. Að hans mati er um vissa endurreisn að ræða á þessari öld en fyrstu þýðingarnar birtust þeg- ar á þriðja áratugnum í Svíþjóð. Johansson sagði að mik- ill áhugi væri reyndar á miðöldum meðal Svía og Snorri væri einna mikilvægastur hvað þær varðaði og líka skemmtilegastur. Þetta eru afskaplega upplífgandi fréttir en þær eru ekki einsdæmi, skandinavískar þjóðir líta gjarnan á Is- land sem vöggu norrænnar menningar. Við þekkjum vel mikinn áhuga Norðmanna á Snorra og íslenskum forn- bókmenntum yfirleitt. Til dæmis birtist staða Snorra þar með óbeinum og svolítið óvæntum hætti í auglýsing- um á verkum hans til fermingargjafa á forsíðum dag- blaða. Það lyftist brúnin á Islendingum við að heyra svona sögur en þessi mikli áhugi erlendis leiðir jafnframt hug- ann að stöðu Snorra og fornbókmenntanna hérlendis. Það er kannski ólíku saman að jafna en okkur þætti það sennilega stórfrétt ef ný íslensk útgáfa á Heimskringlu myndi seljast í öðrum eins upplögum og hér hafa verið nefnd. Sjálfsagt er ekkert að óttast en sá grunur gæti læðst að mönnum að nálægðin við þessar gersemar gerðu okk- ur blindari á þær en þá sem standa álengdar. LANDSSÍMINN OG F JARVINN SLA UPP ER komin heldur einkennileg staða í sambandi við fjarvinnslu á landsbyggðinni. Fjarvinnsla er tækni, sem veitir fólki þar aukin atvinnutækifæri. Vegna aukinna tæknimöguleika á gagnaflutningi um ljósleiðara og annars nýs tæknibúnaðar, sem verið er að taka í notkun, getur fólkið unnið fyrir fyrirtæki, sem staðsett eru utan heimabyggðar. Þessi tækniþróun stuðlar því að auknu jafnvægi í byggð landsins. Gjaldskrá Landssíma íslands hf. virðist þó vera flöskuháls, sem gerir fyrir- tækjunum erfítt fyrir, því leigulínur fyrir fjarvinnslu kosta alltof mikið að mati forráðamanna þeirra. Talsmaður Landssíma Islands viðurkennir í samtali við Morgunblaðið í gær að kostnaður við leigulínur sé ekki lengur í samræmi við raunkostnað og að lengi hafí staðið til að breyta gjaldskránni. Meira þarf til að koma og nauðsynlegt er að Landssíminn taki sér tak og lag- færi þessi mál, svo að athyglisverð þróun í átt til fjar- vinnslu á landsbyggðinni stöðvizt ekki. Hvernig getur Landssíminn sent himinháa reikninga, sem ekki eru í samræmi við raunkostnað, og skellt síðan skuldinni á seinagang í samningum við Póst- og fjarskiptastofnun? Hverjum er þessi seinagangur að kenna? Það hlýtur að vera Landssímanum til hagsbóta að fjarvinnsla vítt og breitt um landið blómstri og dafni. Stóraukin fjarvinnsla mun væntanlega skapa Landssímanum auknar tekjur, en það gerist ekki verði kostnaðurinn fyrirtækjunum of- viða. Samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, hefur nú tekið að sér að kanna þetta mál. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að fram færi skoðun á fjarskiptalöjg- unum og að gagnaflutningur væri þar meðtalinn: „Eg legg mikla áherslu á að það verði sköpuð skilyrði til þess að fyrirtæki á landsbyggðinni geti keppt á jafnréttis- grundvelli í þessari grein,“ sagði ráðherrann. Vigdís Finnbogadóttir er forseti heimsráðs UNESCO um siðferði 1 vísindum og tækniþekkingu Siðferðileg álitamál á sviði vísinda og tækni óendanleg TUNGUMAL, menning og um- hverfismál hafa löngum verið hugðarefni Vigdísar og segir hún að í störfum sínum nú uppskeri hún af því sem hún sáði með störfum fyrri ára. Segja má að Vigdís sé lítið áberandi hérlendis miðað við þau störf sem hún gegnir erlendis. Hér á landi er hún heið- ursforseti Umhverfisverndarsamtaka Is- lands sem stofnuð voru í janúar sl. Á er- lendri grund er Vigdís forseti COMEST- heimsráðsins (Commission Mondiale de l’Ethique en Science et Technologie) sem starfar á vegum Menningar- og vísinda- stofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Hún er einnig stofnandi og formaður í Ráði kvenleiðtoga, sem hefur aðsetur í Haivard-háskólanum í Bandaríkjunum. í því ráði sitja 26 konur og eiga það allar sammerkt að hafa verið forsetar eða for- sætisráðherrar í heimalöndum sínum. „Ráðið fjallar ekki um kvenréttindi, held- ur um viðhorf kvenna til heimsmálanna og þetta er afar skemmtilegt starf. Það er líka ánægjulegt hvað fjölgað hefur í ráð- inu frá stofnun þess árið 1996. Þá vorum við tólf en erum nú orðnar 26,“ segir Vig- dís. Heimsráðið hefur leiðbeinandi hlutverk COMEST-heimsráðið um siðferði í vís- inda- og tækniþekkingu var stofnað í jan- úar 1997 og er Vigdís fyrsti formaður þess og skipuð til fjögurra ára. Átján manns víðs vegar að úr heiminum eiga sæti í heimsráðinu og hefur það komið saman einu sinni, í Ósló fyrr á þessu ári. Viðfangsefni ráðsins eru álitamál sem koma upp í vísinda- og tækniþekkingu á sviði orkumála, vatnsnýtingar og upplýs- ingasamfélagsins. Þrjár undimefndir, skipaðar sérfræðingum og vísindamönn- um á þessum þremur sviðum, fjalla um hvert svið fyrir sig og skila skýrslu til heimsráðsins. Fyrstu skýrslur um orku- mál og um ástand ferskvatns í heiminum era væntanlegar um áramót. Undimefnd- in sem fjallar um upplýsingatækni er að hefja störf, svo von er á skýrslu frá henni síðar. Niðurstöður skýrslnanna verða lagðar fyrir heimsráðið sem með aðstoð Sameinuðu þjóðanna vekur athygli á álita- málum svo víða sem kostur er. „Umfjöllun um þessi málefni er mjög viðamikil og svona nefnd lýkur aldrei störfum. Þær niðurstöður sem unnar hafa verið af undirnefndunum eru áfanga- skýrslur, en álitamál um siðferði á þessum vettvangi eru óendanleg. Það koma alltaf ný vandamál upp. Þess vegna er ráðið ei- líft og verður svo um ófyrirsjá- ______ anlega framtíð," segir Vigdís og bendir á að hlutverk ráðs af þessu tagi sé að vera leiðbein- andi. „Ráð eins og þetta getur engu stjórnað. Það er hins veg- ar vegvísir og vísar veg sem getur aldrei orðið til skaða, heldur getur þvert á móti orðið til góðs. í þessari blessuðu eilífð er mannsævin svo stutt. Og það er skylda okkar sem núna lifum að gera okkar besta til að vera vegvísir, svo þær mannsævir sem á eftir okkur koma á jörðina fái að njóta hennar," segir Vigdís. Vatnsskortur vaxandi vandamál Eins og áður sagði eru undirnefndir ráðsins þrjár. Hlutverk undirnefndarinn- ar sem fjallar um orkumál er að gera út- tekt á siðferði orkunýtingar og hvar hún brýtur í bága við siðlega afstöðu. Vinnur hún m.a. að úttekt á losun koltvísýrings í andrúmsloftið vegna orkuneyslu og segir Vigdís að á þvi sviði standi margar þjóðir sekar. Undirnefndin sem fjallar um nýtingu og spillingu vatns í heiminum hefur einnig viðamikið verkefni fyrir höndum. Nefndin hefur skOgreint fimm vandamál sem einna helst þarf að taka á í sambandi við nýtingu vatns. í fyrsta lagi hvernig tryggja megi Vigdís Finnbogadóttir hefur ekki setið auðum höndum frá því hún lét af forsetaembætti árið 1996. Hún sagði Rögnu Söru Jónsdóttur frá helstu viðfangsefnum sínum um þessar mundir, sem lúta meðal annars að umhverfísmálum, tungumálum sem eiga undir högg að sækja og siðferði í vísindum og tækniþekkingu. Morgunblaðið/RAX Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Islands, gegnir fjölmörgum trúnaðarstörf- um um þessar mundir. „Við verðum að ganga var- lega um garð þegar tækni og vísindum fleygir svo hratt fram“ komandi kynslóðum aðgengi að hreinu og ómenguðu vatni á sem flestum stöðum í heiminum. í öðru lagi, hvernig taka eigi á mengun sem berst frá einu ríki til annars. I þriðja lagi hvernig taka eigi á þeim sið- ferðilegu spurningum sem námugröftur og notkun setvatns, eða grunnvatns, vekja. í fjórða lagi að skoða þau vandamál sem koma upp þegar frjáls markaður með hreint vatn verður að veruleika og í fimmta og síðasta lagi að skoða ójafna ________ skiptingu vatnsauðlinda í heim- inum og hvemig tryggja megi fátækum þjóðum vatn í fram- tíðinni. „Talið er að vatnsskortur geti orðið ein helsta orsök styrjalda á 21. öldinni. Aðgengi að vatni er mjög misjafnt og ástandið víða í Afríku, Austur- ——...— löndum og Suður-Ameríku er mjög slæmt,“ segir Vigdís og bendir á nauðsyn þess að taka á vanda- málinu þegar í stað. Á heimsþingi vísindamanna og vísinda- deilda háskóla í heiminum sem haldið var á vegum UNESCO og ICSU í Búdapest í Ungverjalandi í lok júní sl. var COMEST- ráðinu sérstaklega falið að fjalla um sið- ferði og ábyrgð í vísindum. „Á þinginu veltum við upp eftirfarandi spumingum: Hvar erum við stödd? Hverju hefur vís- indasamfélagið áorkað og hver er framtíð vísinda? Um þessar spurningar skapaðist góð og mikil umræða. Grundvallarsjónar- mið í starfi ráðsins og allra undirnefnda þess er að aldrei verði neitt gert and- spænis jörðinni sem við byggjum, og um- hverfinu sem er óafturkræft. Þau sjónar- mið eru skiljanleg í ljósi þess að við verð- um að ganga varlega um garð þegar tækni og vísindum fleygir svo hratt fram. Við verðum að hafa forvarnir og viðvaranir hvar sem því verður viðkomið. Ég hef einnig lengi haft að kjörorði að allar skoð- anir skal endurmeta strax og ný viðhorf myndast." Tekur þátt í að koma á fót vest-norrænni menningarstofnun Að sögn Vigdísar hefur lítið verið fjallað um siðferði í upplýsingasamfélaginu til þessa og stendur vinna þeirrar undir- nefndar sem næst á byrjunarreit. Hinar undimefndir ráðsins eru komnar vel áleið- is í starfi sínu og taka bæði fyrir einstök mál eftir ábendingum auk þess að viðhalda almennri umræðu. Vigdís er forseti alheimsráðs- ins og hefur skrifstofu í París. Hún býr á íslandi en hefur að- setur í Kaupmannahöfn. „Ég þarf að sitja alla fundi undir- nefnda COMEST-heimsráðsins svo ég er mikið á ferð og flugi og þess vegna er gott að hafa aðsetur í Kaupmannahöfn. Þar gegni ég einnig for- mennsku í Den Nordatlantiske Brygge. Markmiðið er að setja á laggirnar miðstöð menningar, viðskipta og rannsókna fyrir norðvestursvæði Átlantshafsins, þ.e. ís- land, Grænland og Færeyjar. Dönsk stjórnvöld afhentu okkur nýlega gamalt pakkhús frá 1766 þar sem íslensk skip komu lengi að bryggju og þar er fyrirhug- að að byggja upp þessa miðstöð menning- ar og viðskipta og það finnst mér ákaflega spennandi verkefni.“ í fyrra var Vigdís útnefnd farandsendi- herra tungumála hjá UNESCO. Embætt- ið var stofnað til þess að hafa eftirlit með ástandi tungumáía heimsins og hvernig hægt væri að styðja við tungumál sem eiga undir högg að sækja. „Rannsóknir hafa leitt í ljós að þjóðir verða árásargjarnar þegar þær skynja að þær eru að tapa tungumáli sínu og öðrum I „Hef haft að kjörorði: Allar skoðanir skal endurmeta strax og ný viðhorf myndast“ þjóðareinkennum. Dæmi um þetta höfum við séð meðal þjóða í Suður-Ameríku, meðal Kúrda og meðal þeirra sem tala makedónsku. Mitt hlutverk er að finna hvar skórinn kreppir og að liðka til og auka skilning á því að tungumál allra þjóða á jörðinni hafa sama rétt til að lifa og varðveita þar með minningar og þjóða- arf. í tengslum við þetta starf er tO gagn- merk áætlun innan UNESCO sem nefnist LINGUAPAX og hefur það að markmiði að um leið og tungumál eru styrkt er hvatt til þess að sem flestir læri annað tungumál en aðeins sitt eigið. Því það að skynja tungu og menningu annarra þjóða en sinnai- eigin eykur mjög víðsýni og skapar umburðarlyndi." Island í alþjóðaumræðunni Vigdís segir að Island beri oft á góma í alþjóðaumræðunni og hún sé mikið spurð út í land og þjóð. Hún segir að athyglin sem Island fær sé mörgum ólíkum þáttum í menningu okkar og náttúru að þakka. T0 dæmis fiskinum sem við veiðum, goðsögn- inni um alhreint og óspOlt land, varðveislu þjóðai'innar á íslenskri tungu og bók- menntaarfinum sem varðveist hefur á þjóðtungunni. Hún segir að þjóðin þyki til fyrirmyndar og þess vegna þurfi hún að ganga varlega um garð til þess að tapa ekki þeh-ri ásýnd í augum umheimsins. „Ég er hrædd um að sú ásýnd kunni að spillast mjög ef fram verður gengið með miðlun á Eyjabökkum án þess að um- hverfismat í þágu landsins fari fram. Ég er öðru hvoru innt eftir því hvort við eig- um svo mikið hráefni að við þurfum að byggja álver. Sem íslendingur á erlendri grund fer ég varlega í öll svör til að halda reisn míns eigin lands eins og unnt er, en maður verður að játa sannleikanum þegar maður er spurður um hann. Það er stund- um sárt að þurfa að viðurkenna að okkar þjóð skuli ætla að velja eitthvað sem aðrar þjóðir eru að reyna að losa sig undan,“ segir Vigdís og bendir í framhaldinu á að við séum skuldbundin alþjóðasamfélaginu enda þótt við séum sjálfstæð þjóð og eig- um okkar land. „Við megum engu síður aldrei gleyma því að við erum hluti af stærri heild,“ segir hún. „Það er kaldhæðni örlaganna að ég skuli vinna að þessum málum á alþjóða- vettvangi en að í heimalandi mínu skuli vera sitthvað sem flokkast undir þau vandamál sem ráðinu er falið að fjalla um. Mergurinn málsins er þó sá að mínu mati að breyta ekki landslagi og gera ekki eitt- hvað við landið sem aldrei verður bætt. Aðrar þjóðir hafa brennt sig á þessu og mér finnst eins og það sem nú er að gerast hér heima á ís- landi sé á skjön við það sem er að gerast í nútímanum," segir Vigdís og bendir á að hvar- vetna í vísindasamfélaginu þar sem hún þekki tO, kannist fólk við þá umræðu sem á sér stað hérlendis um vernd og virkjan- ______ ir og spurningum sé gjarnan beint til hennar um málið. Vigdís segir aðspurð að þetta einstaka mál hafi ekki verið rætt á fundum heims- ráðsins um siðferði í vísindum og tækni og sem formaður þess geti hún ekki beitt sér fyrir einstökum málum. Hins vegar beiti hún sér íyrir því sem einkaaðOi hérlendis á vettvangi Umhverfisverndarsamtaka Is- lands. „Þessi skoðun mín á Eyjabakkamálinu er í beinu framhaldi af lífsstarfi mínu og löngu staðfastri lífsskoðun. Ég tel mig sjá þess öll merki að nái þessi áform fram að ganga án þess að fram fari það umhverfis- mat sem nú skal alls staðar annars staðar framkvæma samkvæmt lögum, verður aldrei sátt um þetta mál í hugum þjóðar- innar. Mér finnst það vera skylda lýðræð- islega kjörinna fulltrúa þjóðarinnar að sýna kjósendum þá umhyggju að láta gera mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar úr því að það er hægt,“ segir Vigdís að lokum. Hæg samrunaþróun hafin á útgáfu- og miðlunarmarkaði Markaðurinn kortlagður og möguleikar metnir Andstætt því sem gerst hef- ur víða annars staðar í heiminum hefur samruna- þróun verið afar hæg á út- gáfu- og miðlunarmarkaði hér á landi. Eftir að FBA keypti 50% hlut í Vöku- Helgafelli fyrr á þessu ári virðist þróun í þá átt þó vera farin af stað. Margrét Sveinbjörnsdóttir grennsl- aðist fyrir um stöðuna á markaðnum hjá stjórnend- um stærstu útgáfufyrirtækj- anna, Vöku-Helgafells og Máls og menningar. HJÁ Vöku-Helgafelli hafa menn á undanförnum mánuðum verið að kortleggja markaðinn og kynna sér hvernig hliðstæð fyr- irtæki hafa þróast í nálægum löndum. Rætt hefur verið við ýmis fyrirtæki með samstarf eða sameiningu í huga en að sögn Ólafs Ragnarssonar, starfandi stjórnarformanns fyrirtækisins, er ekki tímabært að greina frekar frá þeim við- ræðum að sinni. „Á síðustu árum hefur orðið mikil hag- ræðing í íslensku atvinnulífi. Við höfum séð sameiningu banka, tryggingafélaga, útgerðarfyrirtækja og matvöruverslana og á öOum þessum sviðum hafa fyrirtækin orðið mun sterkari sameinuð en þau hafa verið hvert í sínu lagi. Aftur á móti hafa ekki gerst neinir stórkostlegir hlutir á út- gáfu- og miðlunarsviðinu hér á landi. Þeg- ar horft er til Norðurlandanna, Þýska- lands, Frakklands og annarra landa í Evr- ópu, þá hefur sameining í útgáfu- og miðl- unargeiranum gerst langt á undan öðrum greinum. En hér hafa menn verið hver í sínu horni og frekar tregir til að fara út í samstarf," segir Ólafur, sem telur augljóst að mikil uppstokkun verði í atvinnugrein- inni á næstu árum, sem hljóti að verða tO hagsbóta bæði fyrir fyrirtækin og neyt- endur. Sigurður Svavarsson, framkvæmda- stjóri Máls og menningar, kveðst vissu- lega vona að ekki verði mikið um rekstr- arerfiðleika eða stór gjaldþrot útgáfufyr- irtækja á næstu árum en sjálfsagt muni þó einhver þeirra sameina rekstur sinn eða einhver hinna stærri kaupa önnur smærri. „Hins vegar er ekki hollt að þetta verði í alltof fárra höndum, höfundarnir verða að eiga eitthvert val,“ segir hann. Ýmsir kostir kannaðir „Við teljum að Vaka-Helgafell sé góður grunnur til að byggja á stærra og fjöl- þættara útgáfu- og miðlunarfyrirtæki. Fyrirtækið hefur verið að þróast og vaxa í átján ár og var í upphafi einungis bókafor- lag en síðan höfum við verið að breikka starfsemina og breyta fyrirtækinu í al- hliða miðlunar- og útgáfufyrirtæki, sem sendir á markað bækur, blöð, tímarit, saf- nefni, geisladiska og fleira,“ segir Ólafur. Nýverið keypti Vaka-Helgafell útgáfufyr- irtækið Iceland Review og bókaforlagið Lögberg og að undanförnu hafa ýmsir aðrir kostir verið kannaðir. „Við þurfum að kanna rekstur þeirra fyrirtækja sem kemur til greina að setja inn í slíka sam- steypu og meta hagræðingarkostina sem felast í því og hvort farsælla sé að hleypa slíkri starfsemi af stokkunum á eigin veg- um - og allt tekur það sinn tíma,“ heldur hann áfram. Ólafur segir þessar viðræður allar í algerum trúnaði og meðan menn viti ekki hvernig málin þróist eða hvort af samruna eða kaupum verði, sé ekki hægt að skýra frá þeim opinberlega. „Það er ekki fyrr en mál komast á lokastig og nið- Morgunblaðið/Ásdís Útgáfufyrirtæki víða um heim sem byrjað hafa í bókaútgáfu hafa mörg hver fært út kvíarnar og farið að gefa út blöð, tímarit, myndbönd, geisladiska og margmiðlunarefni. urstaða hefur fengist að hægt er að segja frá slíku,“ segir hann. Að sögn Ólafs hefur vöxtur fyrirtækis- ins verið hraður allt frá því það var stofn- að fyrir átján árum. „Öll þessi ár hefur fyrirtækið verið rekið með hagnaði og . hann hefur verið notaður til að efla það og styrkja, þannig að þetta hefur gerst hægt og markvisst. En okkar mat var að vöxtur á þeim hraða væri ekki nægjanlegur ef við ætluðum að ná ennþá sterkari stöðu á markaðnum og þess vegna var ákveðið að opna fyrirtækið og fá inn nýja hluthafa og nýtt fjármagn til þess að geta stigið stærri skref. Á því stigi erum við núna, við erum að líta í kringum okkur, ræða við aðila, meta markaðinn og möguleik- ana sem eru fyrir hendi og einnig að leggja drög að ýmsum nýjungum innan fyrirtækisins, þannig að vöxturinn verði ekki eingöngu í formi samruna og kaupa á öðrum fyrirtækjum. Við höfum sett okkur það takmark að veltan aukist um- talsvert á næsta ári og í framhaldi af því er stefnt að því að skrá fyrirtækið á hlutabréfamarkaði. Við ætlum okkur eitt ár í þetta verkefni; að efla fyrirtækið, auka veltuna, stækka það og hasla okkur víðari völl,“ segir hann. Samstarfssamningur við Bjart ekki merki um samruna Sigurður Svavarsson segir að hjá Máli og menningu séu ekki uppi sérstök áform um það um þessar mundir að færa út kví- arnar með því að kaupa upp önnur forlög. „Mál og menning hefur á undanförnum árum teldð við nokkrum af helstu útgáfu- verkum ísafoldar, Svarts á hvítu, Arnar og Örlygs, Bjöllunnar og Menningarsjóðs auk þess sem Forlagið hf. var keypt. Það felast óhemjumiklar skuldbindingar í því að taka yfir mörg þau útgáfuverk sem við höfum verið að kaupa af þessum fyrir- tækjum, eins og t.d. allar orðabækurnar,“ segir hann. Nýlega gerðu Mál og menning og bókaútgáfan Bjartur með sér sam- starfssamning, sem felst að sögn Sigurðar í því að Mál og menning sér um dreifingu á útgáfubókum Bjarts og Snæbjörn Arn- grímsson hjá Bjarti tekur að sér hönnun- ar- og umbrotsverkefni fyrir Mál og menningu. Sigurður segir að samningur- inn byggist fyrst og fremst á gagnkvæm- um hagsmunum og sé síður en svo merki um fyrirhugaðan samruna, enda viti hann ekki til þess að sjálfstæði Snæbjörns sem útgefanda sé til sölu. Báðir benda þeir Sigurður og Ólafur á þann afgerandi mun á Vöku-Helgafelli og Máli og menningu að hjá síðarnefnda for- laginu einbeiti menn sér fyrst og fremst að útgáfu og sölu á bókum en Vaka- Helgafell beini sjónum æ meir að öðrum miðlum einnig. „Mál og menning hyggst áfram einbeita sér að bókaútgáfu í einu eða öðru formi. Þannig hefur fyrirtækið gefið út orðabækur á rafrænu formi og mun halda því áfram. Eins hefur Mál og menning tekið yfir dreifingu og sölu á hljóðbókum frá Hljóðbókaklúbbi Blindra- félagsins og hyggur gott til þess sam- r starfs á komandi misserum,“ segir Sigurð- ur. „Við bættum við okkur útsölustað í vor, þegar við opnuðum verslunina Mál og menningu - kort og bækur í Bankastræt- inu. Eins má segja að fjórða verslunin hafi verið opnuð þegar netbókaverslunin okk- ar var færð í nýjan og glæsilegan búning. I fyira fórum við líka inn á nýtt svið, kortaútgáfu, sem við teljum eðlilega þró- un á fyrirtækinu. Við höfum gefið út mikið af bókum um íslenska náttúru og margar þeii’ra með kortum, þannig að það liggur beint við og fellur mjög vel að annarri starfsemi fyrirtækisins," heldur hann áfram. Efninu miðlað í því formi sem neytendur óska eftir „Þegar við mörkuðum framtíðarstefnu Vöku-Helgafells fyrir um tíu árum lögðum við áherslu á að meginviðfangsefni fyrir- tækisins væru skilgreind sem alhliða miðl- un og útgáfa á menningar-, upplýsinga-, fræðslu og afþreyingarefni og jafnframt yrði lögð áhersla á að miðla efninu í því formi sem neytendur óskuðu eftir hverju sinni en ekki binda okkur við að efnið rúmaðist milli tveggja bókarspjalda, eins og við orðuðum það,“ segir Ólafur. Vaka-Helgafell hefur að sögn Ólafs átt náið samstarf við fjölmörg útgáfu- og miðlunarfyrirtæki erlendis. „Við erum t.d. í nánu samstarfi við danska fyrirtæk- ið Egmont, sem hefur vaxið mjög mikið og rekur núna útgáfu- og miðlunarfyrir- - tæki í 27 löndum. Við erum í rekstrar- samstarfi við þá um útgáfu á ýmsu barnaefni frá Disney og náum með því ákveðinni hagræðingu. Annað norrænt fyrirtæki sem hefur vaxið mjög mikið og náð að sinna öllu miðlunarsviðinu er Bonniers í Svíþjóð. Bæði hafa þessi fyrir- tæki byrjað að vinna á heimamarkaði og breikkað sinn grunn þar en þegar ákveðnum vexti þar hefur verið náð hafa þau fært sig út fyrir landsteinana," segir Ólafur, sem telur alls ekki fráleitt að ís- lensk fyrirtæki geti haslað sér völl er- lendis á þessu sviði. „Þessi fyrirtæki sem M við erum að taka mið af í nálægum lönd- um hafa öll byrjað í bókaútgáfu, flutt sig yfir í tímaritin og safnefnið og síðan yfír í tónlistina, myndböndin og mörg hver endað í útvarps- eða sjónvarpsrekstri," segir hann. En skyldi Ólafur Ragnarsson vera að undirbúa innreið Vöku-Helgafells á öldur ljósvakans? „Við útilokum auðvit- að ekki neitt,“ segir hann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.