Morgunblaðið - 19.08.1999, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 61
BRIDS
Umsjðn Guðmundur
I'áll Arnarson
ÍTALIR urðu efstir í fyrri
hluta heimsmeistaramóts
ungmenna í Florida, en
Bandaríkjamenn, Danir og
Israelsmenn voru í næstu
sætum. Þessar fjórar þjóðir
spila nú útsláttarleiki þar til
yfir lýkur. Hér er spil úr
mótinu, þar sem Danirnir
Konow og Madsen keyrðu í
harða slemmu. Lesandinn
fær fyrst tvær hendur að
glíma við:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
* —
VÁKG8
♦ ÁK94
+ DG762
Suður
+ ÁD10984
V 7532
♦ 2
+ K10
Vestur Noröur Austur Suður
— — — 1 spaði
Pass 21auf Pass 2fýörtu
Pass 31yörtu Pass 41\jörtu
Pass ötíglar* Pass 61\jörtu
Pass Pass Pass
Útspil vesturs er hjarta-
fjarki. Þú lætur ásinn í
blindum og austur drottn-
inguna. Hvernig á nú að
halda áfram?
Það lítur út fyrir að vest-
ur eigi 1096 eftir í trompi.
En það er ekki alvariegt
mál, því sagnhafi getur
brotið sér tvisvar leið heim
til að spiia trompi að blind-
um og djúpsvína áttunni -
fyrst með því að spila laufi
og svo með því að trompa
tígul. Ef ekkert óvænt ger-
ist, ætti slemman þvi að
vinnast.
Norður
+
V AKG8 ♦ ÁK94 + DG762
Vestur Austur
* KG3 + 7652
V 964 V DIO
♦ D1075 ♦ G863
+ Á94 + 853
Suður + ÁD10984 V 7532 ♦ 2 + K10
Það er nefnilega það! Nei,
austur fann ekki þá frábæru
vöm að láta drottninguna
undir ásinn í fyrsta slag.
Hann fylgdi lit með tíunni
og Konow var þá ekki hönd-
um seinni að taka næst á
kónginn og veiða drottn-
ingna, því enginn spilar út
trompi gegn slemmu frá
drottningunni!
Eitt annað par sagði
slemmuna. Sagnhafi fékk út
laufás og síðan tromp. En
það sagði enga sögu og
sagnhafi spilaði með líkum
þegar hann svínaði gosan-
um og fór því einn niður.
*
Ast er...
... aðsóa ekki
samvenistundurmm
í neitt óþarfa stúss.
TM Reg. U.S. Pat. Off. — aJI rigW* ntetvad
(c) 1999 Los Angelcs Times Syndcate
í DAG
Árnað heilla
p A ÁRA afmæli. Á
ö V/ morgun, föstudag-
inn 20. ágúst, verður sex-
tugur Eiríkur Skarphéðins-
son, Móabarði 12b, Hafnar-
firði. í tilefni dagsins taka
hann og eiginkona hans,
Sigríður Óskarsdóttir, á
móti vinum og vandamönn-
um í Haukahúsinu við
Haukahraun í Hafnarfirði,
föstudaginn 20. ágúst miili
kl. 18 og 21.
r A ÁRA afmæli. í dag,
OU fimmtudaginn 19.
ágúst, verður fimmtug Ingi-
björg R. Guðmundsdóttir,
formaður Landssambands
ísl. verzlunarmanna og
varaforseti ASÍ. Hún tekur
á móti ættingjum, vinum og
samstarfsfólki í Rafveitu-
heimilinu í Elliðaárdal, í dag
frá kl. 17-19.
r A ÁRA afmæli. Á
Övf morgun, föstudag-
inn 20. ágúst, verður fimm-
tugur Þórður Ingimarsson,
Kirlguteig 19, Keflavík.
Hann og eiginkona hans,
Margrét Skarphéðinsdótt-
ir, munu í tilefni af afmæl-
inu taka á móti gestum í Fé-
lagsheimili Karlakórsins á
Vesturbraut 17 frá kl. 20.30
á afmælisdaginn.
r A ÁRA afmæli. í dag,
Oö fimmtudaginn 19.
ágúst, verður fimmtugur
Stígur Sæland, garðyrkju-
maður, Garðyrkjustöðinni
Stóra-Fjjót, Reykholti,
Biskupstungum. Hann tek-
ur á móti gestum föstudag-
inn 20. ágúst kl. 19 í Gisti-
heimilinu Geysi, Haukadal,
Biskupstungum.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á úr-
slitamóti norrænu bikar-
keppninnar í Gentofte í
Danmörku sem nú stendur
yfir. Svíinn Jonny Hector
(2.505) hafði hvítt og átti
leik gegn Dananum Lars
Schandorff (2.510).
29. Bh6! og svartur gafst
upp, því hann
getur ekki
varið g7 reit-
inn.
Þegar eftir
er að tefla
tvær umferð-
ir á mótinu er
staðan þessi:
1.-2. Sune
Berg-Han-
sen, Dan-
mörku og Ti-
ger Hillarp—
Persson, Sví-
þjóð 8% v. af
11 möguleg-
um, 3. Simen
Agdestein, Hvítur leikur og vinnur.
Noregi 7‘A v., 4. Einar
Gausel, Noregi 7 v., 5.-6.
Helgi Áss Grétarsson og
Jonny Hector, Svíþjóð 6!4
v., 7. Heikki Westerinen,
Finnlandi 6 v., 8. Lars
Schandorff, Danmörku 5’/z
v., 9.-10. Helgi Ólafsson og
Ralf Ákesson, Svíþjóð 5 v.,
11. Jón Viktor Gunnarsson
4'/z v., 12. Nikolaj Borge,
Danmörku 3 v., 13. Thor-
björn Hansen, Noregi 2 v.
14. Heini Olsen, Færeyjum
l‘/2 v.
UOÐABROT
STÓÐUM TVÖ í TÚNI
Víglundur Stóðum tvö í túni,
Þorgnmsson tók Hlín um mig sínum
vi®"' höndum, haukligt kvendi,
a ' ° hárfögr ok grét sáran;
títt flugu tár um tróðu,
til segir harmr um vilja,
strauk drifhvítum dúki
drós um hvarminn Ijósa
STJÖRNUSPÁ
eítir Frances Drake
LJÓN
Afmælisbam dagsins: Þú
ert fæddur leiðtogi og átt
auðvelt með að stjórna við
erfiðar aðstæður.
Hrútur —
(21. mars -19. apríl)
Þú munt sjá að samvinna skil-
ar betri árangri en að hver sé
í sínu homi. Gefðu sjálfum
þér tækifæri og og víkkaðu út
sjóndeildarhring þinn.
Naut
(20. aprfl - 20. maí)
Þú hefur verið hrókur alls
fagnaðar að undanfömu og
ættir að gefa sjálfum þér frí
frá félagslífinu. Gefðu þér
tíma til að stunda innhverfa
íhugun.
Tvíburar
(21. maí-20. júní)
Þú verður beðinn um að hafa
yfimmsjón með ákveðnu
verki og munt fara létt með
það. Þú sérð nú framtíðina í
bjartara Ijósi en oft áður.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Einhver kemur þér til hjálpar
á elleftu stundu svo gættu
þess að sýna þakklæti þitt
bæði í orði og í verki svo láttu
hendur standa fram úr erm-
Ljón
(23. júlf - 22. ágúst) A*
Ef þú horfir á allar þess máls
sem helst hvílir á þér muntu
finna réttu lausnina. Útkom-
an mun hafa mikil og góð
áhrif á líf þitt.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) ffib.
Stundum sjá augu betur en
auga svo þú ættir að biðja
þann sem þú treystir best til
að hjálpa þér til að sjá hvar
þú stendur í ákveðnu máli.
V°S m
(23. sept. - 22. október) A 4)
Eyddu ekki óþarfa orku í að
hugsa um það sem miður fór.
Gefðu þér tíma til að skipu-
leggja upp á nýtt og hefstu
svo handa.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember) f“lWC
Láttu neikvæðnina ekki ná
tökum á þér. Gerðu þér grein
fyrir því hvað þú hefur það
gott og sýndu þakklæti þitt
með því að láta gott af þér
leiða.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. desember) nfc r
Þótt aðrir sjái þig ekki í réttu
ljósi núna mun verða breyt-
ing á því þegar árangur verka
þinna kemur í ljós. Sýndu því
skilning.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) +8?
Þótt verkeftiin hlaðist upp
máttu ekki vanrækja sjálfan
þig. Enda skaltu muna að þú
kemur meiru í verk sértu út-
hvfldur og ánægður.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) váw
Stattu við skoðanir þínar og
láttu í þér heyra þegar þörf
krefur. Mundu að ekki hafa
allir sömu skoðanir á hlutun-
um og það ber líka að virða.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Taktu ekki þátt í þrætumálum
af neinu tagi og láttu aðra um
að finna lausn á sínum málum.
Afstaða þín mun koma fjöl-
skyldu og vinum á óvart.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekld byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Bamamyndatökur
Aðeins góðar
Munnar myndir
I myndatökunni hjá okkur
færðu allar myndiraar
fullunnar og stækkaðar í
stærðinni 13 x 18 cm (engar
smáprufur sem þú getur ekki
notað) að auki færðu tvær
myndir stækkað í 20 x 25 cm
fyrir afa og ömmur og síðan
eina í stærðinni 30 x 40 cm
í ramma fyrir sjálfa þig.
Ljósmyndararnír eru meölimir í félagi islenzkra
fagljósmyndara.
Ljósmyndastofa Kópavogs Ljósmyndastofan Mynd
sími: 554 30 20 sími: 565 42 07
i
*
Eru rimlagardínurnar óhreinar!
Vtt hroinium:
Rimla, strimla, plíseruð og sólargluggatjöld.
Setjum afrafmagnandi bónhúft.
Sœkjum og sendum ef óskaö er.
■J'tsekníhreimunin
Sólheimar 35 • Shnit 533 3634 • GSM: 897 3634