Morgunblaðið - 19.08.1999, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.08.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 35 Ljóða- nótt á > Alands- eyjum Vindurinn og hafið tóku til sín eina og eina setningu þegar þau Anna Björnsdóttir og Karl-Erik Bergman lásu ljóð sín. SKÁLDKONAN Anna Björnsdóttir tók nú í sumar þátt í ljóðahátíðinni „Geta Poesi och Visa“ á Álandseyj- um. Á hátíðinni, sem er árlegur við- burður, las hún upp ljóð að nóttu til ásamt Álandseyja-skáldinu Karl- Erik Bergman. Ein bóka hans, Ljóð á landi og sjó, hefur verið þýdd á ís- lensku. Hvernig hátíð er Geta Poesi och Visa? „Hátíðin hefur verið haldin und- anfarin 15 ár. Þar er reynt að tengja saman ljóð og tónlist með því að kalla til vísnasöngvara, klassíska listamenn og trúbadora sem syngja ljóð. Þetta er fullskipuð tveggja daga dagskrá, en hátíðin er alltaf haldin fyrstu helgina eftir Jóns- messu. Hugmyndin að hátíðinni er falleg og það er með hana eins og sumar bækur, að margir hefðu viljað skrifa þær. Eg sé mig því fara aftur og aftur til Álandseyja og ætla þá að miða komur mínar við ljóðahátíðina. Ég varð ástfangin af þessum eyjum og vil vera hinn eilífi sumargestur." Hvernig kom þátttaka þín í ljóða- hátíðinni til? „Ég var á námskeiði á Biskops Arnö, fyiir utan Stokkhólm, í fyrra - en Biskops Arnö er hálfgerður stefnumótastaður rithöfunda á Norðurlöndunum - og þar hitti ég Karl-Erik Bergman, ljóðskáld frá Álandseyjum og það var í gegnum hann sem mér bauðst að taka þátt í hátíðinni. Það er vísnasöngvarinn Kim Hanson og Marianne Hágg- blom kona hans sem sjá um hátíðina og ég var eina gestaskáldið því Karl-Erik kemur alltaf fram. Hann er helsta skáld Álandseyja og er kallaður „fískarpoeten" því hann er sjómaður og hefur verið trillukarl í 50 ár.“ Hvernig var að lesa ljóð við hafið um miðja nótt? „Þetta var mjög skemmtileg upp- lifun. Það var klifrað í klettum og farið langan veg því hver hátíð er haldin á nýjum stað. Það er því alltaf ákveðinn óvissuþáttur í þessu og svo er spennan líka að sjá hverjir vilja koma. Kannski var dásamleg- asta upplifunin fyrir mig að standa og bíða á klöppunum og sjá fólkið koma. Það voru sextíu manns sem komu og fylgdust með í þessu litla landi. Þegar við lásum svo ljóðin tóku vindurinn og hafíð til sín eina og eina setningu, en það gerði ekkert til og þetta er upplifun sem fylgir mér. Þegar við vorum búin að lesa fékk fólk síðan tækifæri til að lesa sín uppáhaldsljóð. Einn las meðal annars skemmtilegt ljóð eftir Claes Anderssson og þar fann ég nýtt ljóðskáld sem ég hef gaman af. Þannig að maður var líka í því að njóta.“ Réðist ljóðavalið af einhverju ákveðnu þema? „Ég flutti ljóð bæði á íslensku og sænsku. Val ljóðaefnis á hátíðinni var annars frjálst en auðvitað valdi maður hafljóðin sín. Ég á nefnilega fullt af ljóðum um hafið þó að ég hafi verið að fara í mínar fyrstu siglingar á báti nú í sumar. Ég las líka ljóð sem ég hef skrifað um blóm sem vaxa í klettagjótum. En blómin voru þarna þannig að ég endurupplifði gömul Ijóð og fannst þau verða lifandi á ný. Síðan fékk maður náttúrlega þá hugmynd að gera þetta hérna heima og ég sé Viðey alveg í anda, því mig langar að skipuleggja svona hátíð á næst- unni.“ Stökktu til Benidorm 8. september trá 29.955 sæti laus Heimsferðir bjóða nú þetta ótrúlega tilboð til Benidorm þessa vinsælasta áfangastaðar íslendinga 8. september nk. Þú bókar núna og tryggir þér sæti í ferðinni og fjórum dögum fyrir brottför hringjum við í þig og tilkynnum þér á hvaða gististað þú gistir í fríinu. A Benidorm er sumarið í hámarki og þar nýtur þú frísins við frábærar aðstæður um leið og þú getur valið um spennandi kynnisferðir með fararstjórum Heimsferða. Verð kr. 29.955 M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára, vika, 8. sept., skattar innifaldir. HEIMSFERÐIR M Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is Verðkr. 39«990 M.v. 2 í herbergi/íbúð, vika, 8. sept., skattar innifaldir. Verð kr. 49>990 M.v. 2 í herbergi/íbúð, 2 vikur, 8. sept., skattar innifaldir. Nýjar bækur • ÞVÍað þitt er landslagið - Þættir Veru frá Tungu er fyrsta ljóðabók Kristínar Bjarnadóttur. Bókin er í fjór- um hlutum: Flæðarmál, Ferðir, Vilfríð- armál og Aftur- hvarf. Soffía Auður Birgisdóttir bókmennta- fræðingur skrif- ar umsögn á baksíðu bókar- innar og segir m.a.: „Því að þitt er landslagið segir frá ferðalagi þeirra Stein- varar, Marþallar, Þungbúans og Vilfríðar yfír hafíð. Raddir þeirra mynda saman vef sem ofinn er úr töfrandi ljóðmáli kveiktu af ís- lenskri náttúru, minningum, brot- gjörnum tilfinningum og vonum Veru frá Tungu - sem bíður ferðalanganna óþreyjufull handan við hafið. í einstöku ljóðmáli bókarinnar er samspil náttúru, tungumáls og hugveru sá þráður sem höfundur spinnur sífellt út frá þar til mynd- in er fullgerð - ferðalangarnir hafa náð áfangastað og sameinast Veru.“ Kristín Bjarnadóttir er fædd á Blönduósi 1948. Hún er leikari að mennt og hefur fengist við leiklist á íslandi, í Danmörku og Svíþjóð. Ljóð hennar, smásögur, örverk og frásagnir hafa birst í blöðum og tímaritum. Hún hefur auk þess fengist við þýðingar. Ljóðin í bók- inni hafa ekki birst áður. Utgefandi er Uglur og ormar. Bókin er 94 bls., prentuð í Félags- prentsmiðjunni ehf. Kristín mun taka þátt í upp- lestri úr nýjum ljóðabókum kvenna í Kaffíleikhúsinu kl. 22 á Menningarnótt. Hún mun einnig verða á ferðinni um bæinn og lesa úr bók sinni. Jón Stefáns- son leikur á hádegis- tónleikum JÓN Stefánsson organisti leikur á hádegistónleikum í Hallgríms- kirkju í dag, fimmtudag, kl. 12 og standa tónleik- arnir í háltíma. Þeir eru haldnir í tengslum við Kirkjulistahátíð 1999 og tónleika- röðina Sumar- kvöld við orgelið. Jón Stefáns- son leikur ein- göngu verk eftir Johann Sebasti- an Bach. Fyrst leikur hann þrjá sálmforleiki og síðan Prelúdíu og fúgu í D-dúr en fúgan en þekkt fyr- ir krefjandi fótspil, segir í fréttatil- kynningu frá Hallgrímskirkju. Jón Stefánsson er Mývetningur, var nemandi Páls Isólfssonar og hefur starfað sem organisti og kór- stjóri við Langholtskirkju í Reykjavík um margra ára skeið. Laugardaginn 21. ágúst leikur sænski organistinn Lars Anders- son á hádegistónleikunum. Hann leikur m.a. Prelúdíu og fúgu í A- dúr eftir Johann Sebastian Bach og Piece heroique eftir César Franck. Lars Ándersson leikur einnig á sunnudagstónleikunum 22. ágúst. -------------- Sýning framlengd MYNDLISTARSÝNING Hafdísar Helgadóttur í Ash galleríi, Varmahlíð í Skagafirði, hefur verið framlengd til 28. ágúst. Sýningin er opin alla daga frá kl. 10-18. Jón Stefánsson ■ .. Cinde^ella B-YOUNG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.