Morgunblaðið - 19.08.1999, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 19.08.1999, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ með Resilience fyrir andlit og háls SPF 15 frá ESTEE LAUDER Hér er komin lyftingin sem húð þín þarfnast til þess að líða sem best þegar þú ert komin yfir fertugt. Yndisleg áferð, afar virk rakagjöf og öflug orkuvæðing fyrir þreytta húð. Athyglisverð formúla með einstöku „lift complex" veitir húð þinni nýjan þrótt til að takast á við tilveruna. Innan fárra vikna geturðu glaðst yfir sléttara og fastmótaðra andliti geislandi af nýju lífi. Hygea Kringlunni, Lyfja Lágmúla, Gullbrá Nóatúni, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Lyfja Setbergi, Amaró, Akureyri, Sara Bankastræti, Lyfja Hamraborg, Apótek Keflavfkur. Hygea Laugavegi, Snyrtistofan Hrund, Grænatúni, UMRÆÐAN Um siðferði og NÚ ÞEGAR heil- brigðisráðherra hefur sett ný reglugerðará- kvæði um vísindasiða- nefnd má velta íýrir sér hvaða sjónarmið eigi að gilda um skipan slíkrar nefndar. Hingað til hef- ur Háskóli Islands til- nefnt meirihluta nefnd- armanna, og voru 6 af þeim 7 nefndarmönnum sem síðast störfuðu í nefndinni prófessorar við skólann. Þar sem flest erindi sem berast til nefndarmnar eru einmitt frá starfsmönn- um háskólans má telja Ijóst að þetta var óhent- ugt fyrirkomulag, að minnsta kosti ef menn telja það leiða til vanhæfís nefndarmanns ef hann starfar við sömu stofnun eða sama fyrirtæki og umsækjandi. Hitt var reyndar ekki síður an- kannalegt, að þegar aðilar utan há- skólans báru erindi upp við nefndina stóðu þeir frammi fyrir því að keppi- nautar þeirra voru að dæma umsókn- irnar. Ekki má á milli sjá hvort talið verður óheppilegra, frá siðferðislegu sjónarmiði, að góðvinir manns eða keppinautar dæmi um siðferðislegt ágæti þeirra rannsóknaráætlana sem maður kann að hafa á prjónunum. Því er ekki furða þótt ráðherra hafí séð ástæðu til að endurskoða þetta fyrirkomulag. Háskóli íslands er ríkisfyrirtæki Kannski væri ekki úr vegi að skjóta því að fróðum mönnum og sið- spökum í Háskóla íslands, að skólinn er ekki yfir hagsmunatogstreitur hafinn. Hann hefur hagsmuni gagn- vart öðrum stofnunum, deildir skól- ans og stofnanir gæta sinna hags- muna hver gagnvart annarri og þeir sem stunda rannsóknir við háskólann hafa vís- ast hagsmuni sína og sinna rannsókna að leiðarljósi. Loks má minna á að skólinn er ríkisstofnun og gera má ráð fyrir að háskóla- menn sýni vinnuveit- anda sínum a.m.k. lág- markshollustu eins og aðrir. Eg er ekki frá því að menn gleymi þessu stundum og haldi að alltaf þegar þörf sé hlutlægni og hlutleysis skuli spyi’ja háskóla- kennara álits. Háskól- inn kann að vera hlut- laus í sumum málum, á stundum, en á sviði rannsókna er hann það sjaldnast, enda málsaðili. Þá vil ég líka vekja athygli á því að sem betur fer höfum við nú fleiri há- skóla en einn, og óþarfí á að vera að sækja alltaf úrskurðarmenn í þennan sama háskóla, þó góður sé. Hvernig á að velja fulltrúa? Heilbrigðisráðuneytið hefur nú hafnað því að Háskóli Islands ráði meirihluta vísindasiðanefndar og hef- ur gefíð út reglugerð um að þrír ráð- herrar auk landlæknis skuli velja þá í staðinn. Þessi ráðabreytni er að vísu eflaust til bóta, en hún hefur þó sætt gagnrýni undanfarna daga. Af því til- efni vil ég í fyrsta lagi nefna að það breytir kannski ekki ýkja miklu hvort ráðuneyti eða háskóli skipa fulltrúa ríkisvaldsins, því fulltrúar háskólans eru nefnilega líka fulltrúar og starfsmenn ríkisvaldsins. I öðru lagi má benda þeim sem óttast að sjónarmið stjómmálaflokka blandist nú með óæsídlegum hætti inn í vís- indasiðfræðileg efni á, að ekki er víst að þesskonar flokkadrættir séu verri meinsemd en flokkadrættirnir í vís- Árni Signrjónsson nefndir Vísindasiðanefnd Það er ekki sjálfsagt mál að þegar skipunarvald vísindanefndar er tekið af háskólanum, segir Árni Sigurjónsson, sé það flutt til ráðuneyta. Þar sýnist mér að hlutur atvinnulífsins sé fyrir borð borinn. indasamfélaginu. Hvernig væri þá réttast að skipa menn í vísindasiðanefnd? Því er erfítt að svara svo öllum líki. Kannski ætti þjóðkirkjan að tilnefna menn, eða Al- þingi, kannski samtök sjúklinga eða neytenda. I Ijósi þess að þorri ís- lenskra erfðafræðinga starfar nú í einkageiranum, mætti hugsa sér að ríkisvaldið skipaði tvo fulltrúa (þeir gætu t.d. verið úr ríkisháskólunum eða heilbrigðiskerfinu) en einkafyrir- tæki í rannsóknageiranum aðra tvo. Loks gæti oddamaður komið úr dómskerfinu. Væri það ekki hugsan- leg leið til að gæta meðalhófs í þess- um efnum? Það er ekki sjálfsagt mál að þegar skipunarvald vísindanefndar er tekið af ríkisháskólanum sé það flutt til ráðuneyta. Þar sýnist mér að hlutur atvinnulífsins sé fyrir borð borinn. Hvers vegna þarf að útiloka einka- geirann? Höfundur starfar við upplýsinga- deild íslenskrar erfðagreiningar en tjáir hér eigin skoðanir. HAGKAUP Meiraúrval - betri kaup
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.