Morgunblaðið - 19.08.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.08.1999, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Verðlaun veitt fyrir lóðir og endurbygg- ingu gamals húss Morgunblaðið/Golli Eigendum Miðstrætis 10 var veitt viðurkenning fyrir endumýjun hússins. • • Ollum þykir vænt um húsið Reykjavík Á AFMÆLISDEGI Reykja- víkurborgar í gær voru hús- eigendum veittar viðurkenn- ingar vegna fegurstu lóða fjölbýlishúsa og fyrirtækja og vegna endurbóta á eldra húsi í Reykjavík árið 1999. Eigendur hússins að Mið- stræti 10 hlutu viðurkenningu nefndar, sem skipuð var af skipulags- og umferðamefnd Reykjavíkur. í rökstuðningi nefndarinnar segir að við Miðstræti hafí nokkrir af um- svifamestu iðnaðarmönnum bæjarins reist sér hús skömmu eftir síðustu alda- mót. Einar J. Pálsson smiður reisti húsið númer 10. „Hús þessi vitna um seinasta skeið- ið í þróun íslenskra íbúðar- húsa úr timbri. Á það jafnt við um stærð þeirra, frágang og stfl. í tillögum Húsvemdar- nefndar Reykjavíkur er mælst til þess að timburhúsin við Miðstræti verði friðuð,“ segir í rökstuðningi fyrir við- urkenningunni. Þar segir að litlar sem engar breytingar hafi verið gerðar á Miðstræti 10 og sé það eitt af glæsilegri timburhúsunum í Reykjavik frá þessum tíma. ,Á því er mikið skraut og utskurður og ber það íslenskum aldamóta- smiðum mjög gott vitni. Mikil endumýjun hefur átt sér stað á húsinu. Öll er endurgerðin útfærð á faglegan máta og greinilegt að vinna hefur ver- ið lögð í að gera hana sem réttasta, miðað við aldur og gerð hússins. Er vonandi að ARI Tómasson og Sigríður Stephensen mættu í Höfða til að taka á móti viður- kenningu fyrir endurbæt- ur á húsinu við Miðstræti 10, þar sem þau búa. Ari hefur búið allan sinn aldur í húsinu en foreldrar hans fluttu þangið árið 1979. Sigríður býr á efstu hæð og segir að foreldrar Ara, þau Tómas Jónsson og Þórunn Sveinsdóttir, eigi mikinn heiður af endur- bótum hússins. Að ógleymdum þeim Gunn- laugi Hjartarsyni og Ragnheiði Guðmundsdótt- ur sem búið hafa í húsinu í 30 ár. Alls eru fimm íbúðir í húsinu. Þau Ari og Sig- ríður eru bæði sammála um að yndislegt sé að búa í húsinu. Það hefur verið unnið hægt og bftandi við endurbætur í gegnum árin og í fyrra var síðan allt húsið málað. Þá segir Sig- ríður að húsið hafí breyst úr bárujárnsklæddu timb- urhúsi í glæsilega bygg- ingu sem tekið sé eftir. Hún segir að íbúum húss- ins þyki vænt um húsið, sem sé bæði fallegt og hlý- legt, og að ekkert sé nota- legra en að hlusta á brak í stigum og viðjum hússins. þessi tilnefning verði öðrum eigendum húsa í nágrenninu, sem er ein heillegasta byggð eldri timburhúsa í Reykjavík, til eftirbreytni og fyrirmynd- ar um það hvemig sé rétt að standa að endurgerð gamalla timburhúsa, segir í rökstuðn- ingnum. Þrjú fjölbýlishús verðlaunuð Einnig voru veittar viður- kenningar vegna lóða þriggja fjölbýlishúsa. Þau eru Boga- hlíð 2-6, írabakki 18-34 og Næfurás 13-17. Um Boga- hlíðina segir að lóðin kring- um húsið beri vitni um næmt auga fyrir umhverfinu, gott viðhald og hugmyndaríka út- færslu. Eigi það jafnt við um bflastæði, gangstéttir, gróð- ursvæði, stoðveggi og stein- hleðslur. „Samspfl húss og garðs sem hefld eru hugvit- samlega útfærð og tfl fyrir- myndar,“ segir í rökstuðningi nefndarinnar. Um Irabakka 18-34 segir að lóðin sé gott dæmi um hvemig hægt er að endur- nýja inngarða fjölbýlishúsa sem oft em úr sér gengnir og þarfnast endurbóta. ,Á lóð- inni við húsið er mikill og fjölbreyttur eldri gróður sem myndar umgjörð um leik- svæði fyrir böm og gangstétt sem hefur verið endumýjuð að hluta. Aðstaða fyrir böm á lóðinni er til eftirbreytni,“ segir í rökstuðningnum. Hvað varðar Næfurás 13-17 segir að lóðin framan við húsið sé ólík lóðum flestra fjölbýlishúsa. „Hún ber vott um natni og hirðusemi þar sem finna má mjög fjöl- breyttan gróður í steinbeðum og er viðhald þeirra til fyrir- myndar. Lóðin er gott dæmi um hvemig útfæra má fram- garða fjölbýlishúsa á eftir- tektarverðan og skemmtileg- an máta,“ segir nefndin, sem valdi þá sem hlutu viður- kenningu. Einnig vora veitt verðlaun vegna lóða tveggja fyrir- tækja. Annars vegar lóðar Hampiðjunnar, Bfldshöfða 9, og hins vegar vegna verslun- ar- og skrifstofuhússins við Laugaveg 163. Að þessu sinni var ákveðið að veita ekki viðurkenningar fyrir einstaka garða sérbýla og fegursta gata borgarinnar var ekki valin. Að sögn Helga Péturssonar er ástæðan sú að margar götur komi ekki til álita sökum stærðar og fjölda íbúa sem geri erfitt fyrir um samstöðu. Þar ráði fólk oft litlu um heildarsvip götunn- ar. Minni götur fái oftar þessar viðurkenningar þar sem auðveldara er fyrir íbú- ana að ná saman. Helgi segir að markmiðið með þessum viðurkenningum sé að hvetja eigendur húsa og lóða til eft- irbreytni og að mest þörf sé á að fegra í kringum fyrirtæki og fjölbýlishús í borginni. Því var ákveðið að veita aðeins viðurkenningar fyrir um- hverfi fjölbýlishúsa og fyrir- tækja. Lóðin við Bogahlíð 2-6 hlaut viðurkenningu þar sem hún beri vitni um næmt auga fyrir umhverfínu, gott viðhald og hugmyndaríka útfærslu. Lóðin við Næfurás 13-17 þykir bera vott um natni og hirðusemi. Lóðin við írabakka 18-34 þykir dæmi um hvernig hægt sé að endurnýja inngarða eldri fjölbýlishúsa. Ekkert svar við tveggja ára erindi Kópavogur BOLLI Valgarðsson, íbúi við Kjarrhólma, segir bæjarstjórann í Kópavogi reyna að snúa út úr mál- flutningi íbúa vegna umferðarör- yggis í götunni. Hann segist ekki enn hafa fengið svör við bréfum, sem hann skrifaði bæjarstjóm Kópavogs fyrir tveimur ámm vegna umferðarmála við Kjarr- hólma og heldur ekki við persónu- legu bréfi sem hann sendi Gunnari I. Birgissyni, forseta bæjarstjórn- ar, vegna málsins í vor. „Það hafa aldrei nein svör komið frá bæjar- stjórninni um hvort það væri áhugi á eða ætlan um að gera eitthvað í málinu,“ segir Bolli. í Morgunblaðinu í fyrradag lýsti Rakel Ragnarsdóttir, sem skrifaði bæjarstjórn bréf fyrir hönd stjórnar húsfélagsins við Kjarrhólma í vor, áhyggjum sín- um vegna ástands umferðarmála við Kjarrhólma og kvað bæjar- stjómina ekki hafa svarað erindi sínu, sem skrifað var í nafni húsfé- lagsins. í blaðinu í gær sagði Sig- urður Geirdal bæjarstjóri að sér kæmi á óvart að íbúar segðust engin svör hafa fengið; hann vissi ekki betur en þeir hefðu fylgst með gangi málsins og verið í sam- ráði við tæknideild bæjarins. Bréf fyrir tveimur árum Bolli Valgarðsson, fyrrverandi stjórnarmaður í húsfélaginu Kjarrhólma 2-38, sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði skrifað bréf til bæjarstjórnar vegna umferðarmálanna fyrir tveimur árum. „Valþór Hlöðvers- son bæjarfulltrúi fékk það bréf í hendur og minnihlutinn lagði það fram og málinu var vísað til skipu- lagsnefndar. Síðan hefur ekkert gerst og aldrei komið nein svör frá bæjarstjórninni," segir Bolli. „Að- almálið er að hluti af blokkinni Kjarrhólma 2-38, þ.e. frá 20-38, er með næg bflastæði en hjá efri hlutanum, frá nr. 2-20, er mun þrengra og nálægð bíla gríðarlega mikil fyrir umferð. Maður er mjög stressaður að keyra þarna niður vegna barnanna. Maður sér þau ekki. Um leið og komið er að bíl sem lagður er í bílastæði stendur barnið við akandi bíla. Þess vegna báðum við um að efri hluti aðkom- unnar yrði breikkaður til sam- ræmis við það sem gerist neðar í Kjarrhólmanum. Þetta var fyrir tveimur árum og ég lét fylgja upp- drátt með hugmyndunum og ég endurtók það sama í bréfi til for- seta bæjarstjórnar, Gunnars I. Birgissonar, í maí sl. Það hafa engin svör borist. Hússtjórnin sem lét af störfum í vor fékk aldrei nein viðbrögð frá bæjaryfir- völdum.“ Bolli sagði að nýlegar skipulags- breytingar vegna leikskóla við Álfatún væra að sínu mati klúðurs- legar hvað varðar aðkomu að leik- skólanum inni í íbúðarhverfi og eyðilegðu um leið möguleika á að breikka og bæta aðkomu inn í Kjarrhólma. Ætlunin væri að færa bflastæði á krossgötur þar sem skapist örtröð, sem sé slæmt fyrir þá sem koma upp brekkuna úr Kjarrhólma. Útúrsnúningur Þá sagðist Bolli átelja að Sigurð- ur Geirdal bæjarstjóri legðist í út- úrsnúning á málflutningi íbúa við Kjarrhólma þegar hann segði að þeir legðu sjálfir við húsin og væru á hraða í götunni. Bærinn ráði ekki hvar íbúar leggi þótt hann geti rýmkað um stæðin. „Hvar á maður að leggja annars staðar en í merkt bflastæði heima hjá sér? Þetta er hreinn útúrsnúningur," sagði Bolli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.