Morgunblaðið - 19.08.1999, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 19.08.1999, Blaðsíða 58
58 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens M£R PÆTTT GAMAN AÐ SJA ÞO EKKIVÆRINEMA EINU SINNI„EINHVERN FRAMBJOÖANDA SEM SEGIR SANNLEIKANN! Grettir $IDAN SETJUM VIÍ) PQTTINN IOFNINN OG LÁTUM RETTINN BAKAST í 45 MÍNÚTUR PESSILIDUR PATTARINS ER OFTAST MJÖS LEIUINLESUR Hundalíf Ljóska Ferdinand Smáfólk CAMP7NO, I PON'T WANT T0 60 TO YOUR CAMP..5TOP CALLIN6 ME.. 6-30 FÆáyS I TOLDTHEM I TöOOP^fc DIDN'T WANTTO FOR 1 meanthatt^T™"^ 600D FOR ME! Sumarbúðir? Nei, - Ég sagði þeim að mig iangaði í alvöra? Áttu við að ég hefði Gott þjá mér! mig langar ekki að ekki til að fara f gert rétt? fara í sumarbúðirnar sumarbúðimar þeirra.. - Fullkomlega! ykkar..hættið að - Gott hjá þér.. hringja í mig.. JlfotgtitilHröife BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Hvert liggur leið 7? Frá Erlu Hlynsdóttur: ÞETTA er nú víst ekki í fyrsta skipti sem SVR er gagnrýnt hér á þessum síðum. Hingað til hef ég haldið mig utan við þær umræður, en nú get ég ekki orða bundist. Þannig er mál með vexti að ég er að vinna nálægt Reykjavíkurflugvelli og tek jafnan strætó í vinnuna. Þykir mér mjög miður að leið 1, sem fór upp að Loft- leiðum, hafi verið lögð niður, en það er hins vegar ekki efni þessa bréfs, enda mikið búið að fjalla um það. Mitt hugðarefni er leið 7, sú hin sama sem tekið hefur að hluta við leið 1 og þjónar nú m.a. þeim farþegum sem leggja leið sína að Loftleiðum. Eins og einhverjir sjálfsagt vita ekur leið 7 milli Lækjartorgs og Ártúns. Hvort sem vagninn er á leið niður á Torg eða uppeftir beygir hann inn Flug- vallarveg á leið sinni. Semsagt, sú leið 7 sem er á leið niður í bæ kemur akandi sömu götu, úr sömu átt og leið 7 sem síðan fer upp í Ártún. Þetta væri kannski ekki mikið vandamál ef vagnarnir kæmu með hálftíma milli- bili en þar sem á virkum dögum fyrir kl. 19, eru 5 mínútur á milli þess sem þeir eiga að koma að Loftleiðum og 7 mínútur á kvöldin og um helgar, þá er þetta þegar orðið vandamál. Sér- staklega þar sem strætisvagnar eru nú ekki alltaf fullkomlega stundvísir. Eitt hefur SVR þó reynt að gera til að koma í veg fyrir þennan mis- skilning, og það er að setja blað af stærðinni A4 neðst í framrúðuna þar sem stendur með ekkert allt of stór- um stöfum hvort vagninn er á leið uppeftir eða niðureftir. Þetta er að mínu mati ekki nógu góð lausn, þótt ekki væri nema bara það að vagn- stjórnarnir virðast vera gjarnir á að ýmist gleyma að setja þetta blað upp, eða þá að gleyma að skipta um blað eftir því á hvorri leiðinni þeir eru. Sjálf hef ég tekið vagn upp í Ár- tún þegar ég ætlaði mér að fara nið- ur á Torg og er ég ung, með óskerta athyglisgáfu og sjónina enn í fínu lagi. Mikið af útlendingum sem gista á Loftleiðum ferðast að sjálfsögðu með SVR og fá þeir væntanlega þær leiðbeiningar að taka leið 7. Eins og áður hefur komið fram þá tek ég iðu- lega strætó í vinnuna og oftar en ekki era útlendingar að bíða eftir vagni eins og ég. Margsinnis hefur komið fyrir að þeir fara að spyrja mig um Reykjavík og merkisstaði þar á meðan á biðinni stendur og margoft hef ég orðið vitni að því að ferðalangar sem eru á leið niður í Miðbæ ætla að æða inn í þann vagn nr. 7 sem er á leið í Ártún. Þetta er það slæmt að ég er farin að spyrja útlendinga sem ég sé í strætóskýlinu hvert þeir séu að fara og segi þeim síðan að það séu tveir vagnar nr. 7 sem séu væntanlegir og að öruggast sé að spyrja vagnstjórann í hvora áttina vagninn fari, til að komast nú á fyrirhugaðan áfangastað íyrr en seinna. Eg fór síðan að velta því íyrir mér hvað yrði nú um aumingja út- lendingana sem ætluðu að taka strætó þegar ég væri ekki til staðar. En auðvitað eru þetta ekki bara út- lendingar sem gera þessi mistök, því ég myndi telja að þetta væri fremur óljóst fyrir hvern þann sem ekki hef- ur heyrt um þetta fyrirkomulag hjá SVR. Ef þetta kallast þróun til hins betra, hvað verður þá næst? Verður hreinlega hætt að merkja strætis- vagnana og fólk látið alfarið um að spyrja vagnstjórana hvert þeir séu að fara? Nei, ég held að betri og sýnilegri merkingar sem alltaf eru til staðar séu mun vænni kostur. Það er varla mikið mál að merkja vagnana 7A og 7B, eða eitthvað álíka, eftir því hvert leið þeirra liggur. Annar möguleiki gæti verið að hafa blaðið í framrúðunni mun stærra þannig að eftir því sé tekið, þó held ég nú að fæstir sem eru að taka strætó séu að velta því fyrir sér hvað standi fram- an á vagninum svo lengi sem það stendur 7 þar sem tíðkast að hafa númer vagnsins, nema það sé því meira áberandi. Hvað sem því líður þá verða forsvarsmenn SVR í þess- um málum að láta til sín taka og sýna okkur það í verki að Strætis- vagnar Reykjavíkur hafi farþegann í fyrirrúmi. ERLA HLYNSDÓTTIR, Snorrabraut 32, Reykjavík. Afsökunarbeiðm til Reynis Axelssonar Frá Ólínu Kristínu Jónsdóttur: HINN 31. júlí síðastliðinn birtist hér í Morgunblaðinu bréf frá mér sem hafði yfirskriftina ,Af yfirgangi hestamanna frá Hellissandi“. I lok bréfsins segi ég frá hesti sem fannst með fullum reiðtygjum og átti að hafa tilheyrt fólki því sem hafði verið að nota kartöflugarðinn okkar sem hestarétt fyrr um daginn. Því miður voru þessar upplýsingar sem ég fékk ekki réttar. Hesturinn tilheyrði ekki fólkinu sem hafði verið með átroðn- inginn í garðinum heldur Reyni Ax- elssyni, hestamanni á Hellissandi. Reynir hringdi í mig strax og hann sá greinina. Krafðist hann þess að ég skrifaði afsökunarbeiðni í blaðið, þar sem allir vissu að hann hefði verið að leita að týndum hesti þennan dag og því héldi fólk að hann hefði verið að traðka í títtnefndum kartöflugarði. Engin nöfn voru nefnd í bréfinu. Ég bað hann að sjálfsögðu innilega af- sökunar í símann en tók hann hana ekki gilda. Sagði að mannorði hans væri stefnt í hættu vegna þessa og því myndi hann lögsækja mig fyrir meiðyrði skrifaði ég ekki afsökunar- beiðni og leiðréttingu, í Morgunblað- ið, sem hefði jafnstóra fyrirsögn og fyrrnefnt bréf. Að sjálfsögðu ræð ég engu um hvernig menn setja upp Morgunblaðið, ég vona bara að Reynir sætti sig við leturstærðina. Vegna alvarlegs hjartasjúkdóms sem faðir minn fékk þann sama dag og Reynir hringdi gafst mér hvorki tími né kostur til að setjast niður og skrifa bréf. Hringdi því Reynir aftur þann 11. ágúst og endurtók hótanir sínar um lögsókn ef ég birti ekki bréfið að nokkrum dögum liðnum. Sá ég mér þann kost vænstan að skrifa þetta bréf. Mér er bæði ljúft og skylt að biðja Reyni Axelsson innilegrar afsökunar fyrir þennan leiða misskilning. Mér var einfaldlega sagt vitlaust frá, og hafði ég enga ástæðu til að efast um réttmæti þess sem mér var sagt. Enn og aftur: Fyrirgefðu Reynir, ég vona að mannorð þitt bíði fullar bæt- ur er fólk les þetta bréf. ÓLÍNA KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, Veghúsum 31, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.