Morgunblaðið - 24.08.1999, Side 2

Morgunblaðið - 24.08.1999, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Vísitasían er ævintýri líkust „ÞETTA er ævintýri líkast og hefur gengið ljómandi vel, viðtökur og viðmót fólksins alúðlegt og veðrið indælt," sagði Karl Sigurbjömsson biskup sem nú vísiterar söfnuði á Austurlandi. í gær var hann á Vopnafirði og Jökuldal og í dag messar hann í Áskirkju og Valþjófs- stað í kvöld. Vísitasíunni um Múlaprófasts- dæmi lýkur á föstudag og eftir næstu helgi fer hann um Aust- fjarðaprófastsdæmi eftir að hafa tekið þátt í héraðsfundi og kirkju- hátíð á Djúpavogi. Biskup segir sérstakt að ferðast um Austurland og heimsækja ann- ars vegar eyðijarðir og skoða kirkj- ur sem þar er vel haldið við, svo sem í Húsavík, og hins vegar koma á rót- gróna kirkjustaði og skynja kraftinn í fólkinu sem stendur í fremstu víg- línu í byggðunum sem eiga í vök að verjast vegna byggðaþróunar. Víða standi örfáar manneskjur á bak við varðveislu þjóðargersema og nefndi biskup t.d. Kirkjubæ í Hróarstungu sem dæmi. „Ég skynja áhyggjur fólksins vegna framvindu í atvinnu- og byggðamálum sem koma fram um leið og við eigum gagnlegar við- ræður um starf kirkjunnar á hverj- um stað,“ segir biskup. Á fimmtudag verður biskup í Hallormsstað og tekur þátt í guðs- þjónustu í Þingmúla síðdegis og í Vallanesi um kvöldið. Á föstudag er ferðinni heitið til Seyðisfjarðar þar sem biskup lítur á fomleifauppgröft á Þórarinsstöðum, hefur helgistund á sjúkrahúsinu og messar í Seyðis- fjarðarkirkju um kvöldið. Morgunblaðið/Sverrir Umhverfísráðherrar Norðurlanda ræða umhverfísvernd á norðurheimskautssvæðum N áttúru verndar- áætlun samþykkt Umhverfisráðherrar Norðurlanda; Alfred Jacobsen úr landstjórn Færeyja, Guro Fjellanger frá Noregi, Siv Friðleifsdóttir, Eydun Eltör úr Iandstjóm Færeyja og Kjell Larsson, umhverfisráðherra Svíþjóðar. Finnski ráðherrann, Satu Hassi, yfirgaf fundinn fyrir blaðamannafund. UMHVERFISRÁÐHERRAR Norðurlanda samþykktu einróma náttúruverndaráætlun fyrir norður- heimskautssvæðið á fundi sínum í Hótel Reynihlíð við Mývatn í gær. Áætlunin er til fimm ára og öðlast gUdi á næsta ári. Hún varðar fyrst og fremst náttúruvemd á Islandi, Grænlandi og Svalbarða en önnur Norðurlönd geta einnig tekið þátt í verkefnum hennar. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra lýsti ánægju með fund ráð- herranna en auk náttúmvemdar- áætlunarinnar var meðal annars rætt um mengun sjávar, norrænt samstarf að umhverfismálum í Rússlandi, Sellafíeld, framkvæmd yfirlýsingar norrænu forsætisráð- herranna um sjálfbæra þróun í um- hverfismálum og umhverfisstefnu ESB. Viðkvæm náttúra sem þarfnast verndar Fundinn sátu um 40 fulltrúar, þar á meðal umhverfisráðherrar allra Norðurlandanna utan Danmerkur. Áætlun um náttúravemd á norður- heimskautssvæðinu, unnin á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, var aðalefni fundarins. Náttúra norðurheimskautsins þykir sérlega viðkvæm og fram kom að það sem ógnar henni einna mest nú er vax- andi umferð, mengun, ósjálfbær auðlindanýting og loftlagsbreyting- ar af manna völdum. Áætlunin sem samþykkt var á fundinum hefur að geyma marg- þættar tillögur til vemdar umhverf- inu. í henni er til að mynda rætt um samþættingu umhverfissjónarmiða í ferðaþjónustu, vísindarannsóknum og í skólakerfinu. Þar er meðal ann- ars fjallað um hvemig koma megi í veg fyrir umhverfisglæpi á borð við akstur utan vega, sem er þekkt vandamál á Islandi, og hugað sér- staklega að vemdun vissra dýrateg- unda. Mikilvægt er að ná jafnvægi milli ferðaþjónustu og náttúravemdar, að mati umhverfisráðherranna. Siv Friðleifsdóttir vakti athygli á því að ferðamenn á íslandi á þessu ári verða að líkindum nær jafnmargir íbúum landsins og útlit fyrir að þeim fjölgi mjög á næstu áram. Þess verði að gæta vel að lágmarka spjöll af þeirra völdum. Margvísleg önnur málefni Kostnaður við framkvæmd náttúruvemdaráætlunarinnar verð- ur á bilinu 60 til 75 milljónir ís- lenskra króna. Ljóst er að Norður- löndin munu deila kostnaðinum með sér en ekki liggur fyrir hvernig hann mun skiptast. Einnig var rætt um mengun sjáv- ar á fundi ráðherranna og ákveðið að grípa til tiltekinna aðgerða til að stuðla enn frekar að vemdun hafs- ins á norðurheimskautssvæðunum. „Hafið umhverfis ísland er hreint, við viljum halda því þannig," sagði íslenski ráðherrann. Rætt var um norrænt samstarf að umhverfismálum í Rússlandi á fundinum. Ráðherramir voru sam- mála um að miklu skipti fyrir Norð- urlöndin að ástand þeirra væri gott. Þá var fjallað um fyrirhugaðan fund umhverfisráðherra ESB í október. Áform vora rædd um norð- læga vídd í umhverfisstefnu sam- bandsins en ríkisstjóm Islands hef- ur ákveðið að efna til sérstakrar ráðstefnu um umhverfismál í hinni norðlægu vídd sem fram fer í Brassel 11. október. Dansað á rósum á Menningarnótt ÞÆR dreifðu rósablöðum á göt- urnar fyrir gesti Menningarnæt- ur að dansa á, leikkonurnar Edda Björg Eyjólfsdóttir og Linda Ásgeirsdóttir, sem hér sjást geislandi af gleði á Ingólfs- torgi. Menningarnóttin sem hald- in var hátíðleg um helgina, fjórða árið í röð, fór vel fram í alla staði, að sögn lögreglu og aðstandenda verkefnisins. ■ Borgin/33 ■ Fjölskrúðugt/66 Hindruðu för stjórn- ar Landsvirkjunar Egilsstöðum. Morgunblaðið. NOKKRIR félagar úr Félagi um vemdun hálendis Austurlands hindraðu för stjórnar Landsvirkj- unar í gærmorgun við brúna yfir Bessastaðaá á Fljótsdalsheiði. Stjórn Landsvirkjunar, ásamt fleirum, var á leið í kynnisferð um Eyjabakka. Var veginum lokað þannig að bíll var hafður á miðri brúnni og vír strengdur beggja vegna í brúarstólpa. Með aðgerð- um þessum vill félagið vekja at- hygli á málefnum Fljótsdalsvirkj- unar og einnig þeim aðgerðum sem félagar um vemdun hálendis á Austurlandi era tilbúnir að beita ef af virkjunarframkvæmdum verður. Lesnar vora upp tvær ályktanir, önnur til Landsvirkjunar en hin til borgarstjórans í Reykjavík, þar sem skorað er á þá aðila að þeir hafi frumkvæði að því að Fljóts- dalsvirkjun fari í lögformlegt um- hverfismat. Borgarstjóri hefur þegar lýst því yfír að hún sé hlynnt því að umhverfismat verði gert um virkjunina. Hrafnkell A. Jónsson las þessar ályktanir og að því loknu var bíllinn fjarlægður af brúnni og stjórn Landsvirkjunar og föraneyti komust óhindrað á leiðarenda. Fann sprengju á Hjálmadalsheiði SPRENGJA, sem talið er að sé úr bresku skipi og hafi átt að granda flugvél í seinni heimsstyrjöldinni, fannst í heilu lagi uppi á Hjálma- dalsheiði milli Loðmundarfjarðar og Seyðisfjarðar fyrir rúmri viku. Það var franskur leiðsögumaður sem fann sprengjuna, að sögn lög- reglunnar á Seyðisfirði. I síðustu viku fór hann upp á heiðina ásamt lögreglu til að vísa á sprengjuna. Frakkinn hafði teiknað kort til þess að geta fundið sprengjuna aft- ur en ekkert gekk að finna staðinn og því var haldið aftur niður af heiðinni. Á fimmtudaginn fór Frakkinn með hóp af fólki í gönguferð upp á heiðina og ákvað lögreglumaður að slást með í för til þess að freista þess að finna sprengjuna. Sprengj- an fannst í þetta skiptið og var hún staðsett með GPS-staðsetningar- tæki. Á föstudaginn var síðan Land- helgisgæslan kölluð austur til þess að eyða sprengjunni þar sem talið var að göngufólki stafaði hætta af henni. Landhelgisgæslan fór upp á heiðina í þyrlu og sprengdi sprengj- una og að sögn lögreglunnar var þetta heljarhvellur. Sérblöð í dag Á ÞRIÐJUDÖGUM Heimili Helgi Sigurðsson tekur Grikkland með áhlaupi / B2 Vala og Þórey Edda hafa yfirgefið Sevilla / B1 Enski boltinn www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.