Morgunblaðið - 24.08.1999, Page 23

Morgunblaðið - 24.08.1999, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999 23 Wm 1 Samherji lækk- ar um 11,4% VIÐSKIPTI á Verðbréfaþingi ís- lands námu alls 128 milljónum króna í gær og urðu einungis viðskipti með hlutabréf. Mest viðskipti voru með hlutabréf í Samherja eða fyrir 21 milljón króna og lækkaði gengi bréf- anna um 11,4%, úr 10,95 í 9,70, en fé- lagið sendi frá sér sex mánaða upp- gjör á föstudag. 19 milljóna króna viðskipti voru með hlutabréf í Flugleiðum og hækkaði gengi þeirra um 1,1%. 12 milljóna króna viðskipti voru með hlutabréf í Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins og lækkaði gengi þeirra um 5,5%. Eins voru viðskipti með hlutabréf í íslandsbanka fyrir 12 milljónir króna og hækkaði gengi þeirra um 0,4%. Mest hækkun varð á verði bréfa Islenskra sjávarafurða eða um 9,3%. Gengi hlutabréfa í ís- lenska járnblendifélaginu lækkaði um 6,3% en félagið sendi frá sér milliuppgjör í gær. Úrvalsvísitala Aðallista lækkaði um 1,12% í gær og er nú 1.259 stig. EBÍ greidir 130 milljónir i ágódahlut EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Bruna- bótafélag Islands hefur ákveðið að greiða samtals 130 milljónir króna í framlag til ágóðahlutar í ár, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu. Greiðslan rennur til þeirra 86 sveitarfélaga sem aðild eiga að Sameignarsjóði EBÍ í réttu hlutfalli við eignaraðild þeirra að sjóðnum og fær Akureyri hæstu greiðsluna, eða rúmar 14 milijónir króna. í samræmi við samþykktir félags; ins mælast stjórn og fulltrúaráð EBI til þess við sveitarfélögin að þau verji framlaginu meðal annars til forvarna, greiðslu iðgjalda af trygg- ingum sveitarstjórna og brunavarna í sveitarfélaginu. EBÍ hefur um langt skeið greitt aðildarsveitarfélögum framlag til ágóðahlutar af starfsemi sinni og gerði Brunabótafélag íslands samn- inga við sveitarfélög um fjármögnun slökkvitækja. í fréttatilkynningunni kemur fram að útboði á tækjabúnaði fyrir slökkvilið sveitarfélaga sé nýlokið og fimm sveitarfélög hafi þegar lýst yfir vilja sínum til að festa kaup á nýjum slökkvibifreiðum. EBI mun bjóða hagstæð kjör við fjármögnun kaupanna. Krónan ekki sterkari í 7 mánuði SÍÐUSTU tvær vikurnar hefur vísi- tala krónunnar verið á niðurleið og þar með krónan að styrkjast. Krón- an hefur ekki verið jafnsterk í lang- an tíma en vísitölugildi hennar, sem mældist 112,73 í gær, er nú að nálg- ast sitt lægsta gildi á árinu en 28. janúar mældist gildi hennar 112,62. Að því er fram kemur í morgun- komi Fjárfestingarbanka atvinnu- lífsins hefur styrking krónunnar nú komið nokkuð á óvart, sérstaklega í ljósi þess að sú styrking sem átti sér stað eftir síðustu vaxtahækkun Seðlabankans hafði í lok júlí að mestu gengið til baka. „Fyrirtækjum hafa hins vegar að undanförnu staðið til boða háir inn- lánsvextir í krónum og hafa tölur á bilinu 10-11% heyrst fyrir innlán í 3-5 vikur. Hugsanlegt er að þessi kjör hafi freistað fyrirtækja sem hafa aðgang að lánalínum í erlendum myntum og að styrkinguna megi rekja til þess að fyrirtækin dragi á þær línur og umbreyti yfir í krónur til að tryggja sér háa innlánsvexti," að því er fram kemur í morgunkorni FBA í gær. Forstjóri sænsku járnbrautanna ávítaður fyrir einkavæðingartal Kaupmannahöfn. Morgunbladið. LAUSN Daniel Johannesson for- stjóra sænsku jámbrautanna, SJ, á rekstrarvanda SJ er að einkavæða hluta rekstursins og það tilkynnti hann starfsfólkinu í bréfi í síðustu viku. Sú tilkynning fór heldur fyrir brjóstið á Bjöm Rosengren at- vinnuráðherra, sem hefur sett ofan í við Johannesson fyrir vikið, þar sem aðeins ríkið, eigandi SJ, geti tekið slíkar ákvarðanir. Vandi SJ er lítill hagnaður og skortur á fé til að end- umýja starfsemina. I bréfi sínu til starfsfólksins lýsir Johannesson því yfir að einn mögu- leiki sé að skipta fyrirtækinu upp í sjálfstæða hluta, sem hægt væri að einkavæða að einhverju leyti. Hug- myndin er að SJ verði eignarhalds- félag fyrir einstaka hluta. Pannig megi fá aukið fé inn í fyrirtækið, þar sem ekki sé við því að búast að ríkið vilji leggjá til frekara fé. Hallur undir einkavæðingu í samtali við Dagens Industrí mátti skilja sem svo að forstjórinn stefndi á að SJ færi á hlutabréfa- markað, en í Svenska Dagbladet bendir Johannesson á að slíkt eigi aðeins við þegar til mjög langs tíma sé litið og sé þá auðvitað undir eig- endunum komið. Hins vegar sé hann hallur undir að hlutar SJ verði einkavæddir, líkt og fram komi í bréfinu. Að mati forstjórans væri það kostur að fá utanaðkomandi að- ila inn í reksturinn. Johannesson hefur í kjölfar bréfs- ins sagt að hann hafi ekki með þessu haft í hyggju að grípa fram iyrir hendur eiganda SJ, heldur aðeins viljað brydda upp á umræðum um framtíð SJ. Bjöm Rosengren er þó ekki á sama máli og álítur þetta frumhlaup af hálfu forstjórans. Hann þvertekur þó ekki fyrir einka- væðingu að hluta, en í stað þess að einkavæða hluta af rekstrinum, til dæmis veitingareksturinn, hefur Rosengren bent á að SJ ætti að selja frá sér rekstur, sem ekki getur talist kjarnarekstur. Ráðherrann er hins vegar alfarið á móti hugmyndum um eignarhaldsfélag, þar sem það væri þá komið sem eigandi í stað ríkisins. ■ breiðtjald Þao gerist ekki öllu glæsilegra! PHILIPS 32" breioljald með myndbandstæki Einstök hönnun PHILIPS BlackLineS,32"breiðtjald ■ Svartur, flatur skjár og 100 riða flöktfrí mynd. ■ Tærari, hreinni og skarpari mynd - sjálfvirk stilling. • Skiptir sjálfvirkt um myndform, 4:3 eða 16:9. ■ 440 síðna minni í textavarpi. ■ Velur sjálfvirkt bestu mynd m.v. gæði útsendingar. > Sjálfvirk, stafræn myndsía. • Tveir hátalarar og bassahátalari, einstök hljómgæði. ■ Fullkomið 6 hausa NICAM-stereo myndbandstæki o.fl. Staðgreiðsluverð: 329.900 kr. ■ Svartur, flatur skjar. ■ 100 riða flöktfri mynd. ■ Tærari, hreinni og skarpari mynd - sjálfvirk stilling ■ Skiptir sjálfvirkt um myndform, 4:3 eða 16:9. ■ Velur sjálfvirkt bestu möguleg myndgæði. ■ Sjálfvirk, stafræn myndsia. • Tveir hátalarar og bassahátalari. ■ 440 síðna minni í textavarpi o.fl. Staðgreiðsluverð: 1 99.900 kr PHILIPS BlackLine D, 28" breiðtjald ■ Svartur, flatur skjar « 50 riða flöktfrí mynd. ■ 70 stöðva minni og 8 síðna minni í textavarpi. I • Hljóðútgangur fyrir magnara. . Tveir hátalarar og bassahátalari. ■ 2 Scart-tengi o.fl. Staðgreiðsluverð: 79.900 kf. Heimilistæki SÆTUNI 8 - SÍMI 569 1500 umboðsmenn um land allt IPS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.