Morgunblaðið - 24.08.1999, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999 29
ÚR VERINU
Lýsi leggur áherslu á Danmörku
Danir vilja auka
neyslu á lýsinu
BIossi ís 125 á siglingn inn Önundarfjörð.
Nýr Gáski í flotann
Morgunblaðið/Egill
ÞINGMENN danska stjórnmála-
flokksins Venstre hafa reifað hug-
myndir um að lýsi verði niðurgreitt
af stjórnvöldum þar í landi. Jörgen
Winther, helsti hvatamaður máls-
ins innan flokksins, segir að rann-
sóknir sem sýna fyrirbyggjandi
áhrif lýsis á hjarta- og æðasjúk-
dóma réttlæti að varan verði niður-
greidd.
Hörð samkeppni
og vaxandi áhugi
Andri Þór Guðmundsson hjá
Lýsi hf. segir að þessi umræða sé
mjög jákvæð. „Danir standa mjög
framarlega í heilbrigðismálum og
fólk þar í landi er mjög áhugasamt
og meðvitað um þessi mál. Hvort
sem þetta mál fer gegnum þingið
eða ekki kemur það til með að hafa
jákvæð áhrif á sölumál hjá okkur.
Við höfum flutt út lýsi til Danmerk-
ur í rúm 15 ár og ætlum að notfæra
okkur meðbyrinn núna til þess að
endurmarkaðssetja vöru okkar.
Það hafa allir Islendingar ákveðna
ímynd af þorskalýsinu sem sumir
minnast með óbragð í munninum
en þessu er öðruvísi farið annars
staðar. I Danmörku hefur ungt fólk
til að mynda mjög jákvæða ímynd
af fiskiolíu. Það tengir hana við
hollustu og heilbrigt líferni."
Andri segir að mörg fyrirtæki
flytji út lýsi til Danmerkur. „Það er
gríðarleg samkeppni í þessum
geira, ekki bara í Danmörku, held-
ur alls staðar í heiminum. Lýsi hf.
er reyndar eitt af stærri fyrirtækj-
um í þessum bransa og við skerum
okkur frá öðrum fyi'irtækjum því
að við vinnum vöruna frá upphafi
til enda. Önnur fyrirtæki kaupa til-
búið lýsi og pakka því svo inn. En
þrátt fyrir það erum við í harðri
samkeppni við önnur fyrirtæki sem
eru stór, eða í eigu stærri aðila. Við
fínnum líka fyrir vaxandi áhuga hjá
alþjóðlegum fyrirtækjum um að
færa sig inn í þennan geira. Þetta
er mjög vaxandi markaður - þó að
Lýsi sé búið að vera í þessu í 60 ár
er það fyrst núna sem þetta er orð-
ið verulega spennandi."
Andri telur að þessi umræða í
Danmörku eigi tvímælalaust eftir
að stækka markaðinn þar í landi.
„Við verðum líka að átta okkur á
því að Danir eru í Evrópusam-
bandinu og náin tengsl ríkjanna í
sambandinu gerir það að verkum
að þegar eitthvað gerist í einu
landi eru mjög góðar líkur á að
það endurtaki sig í öðrum. Sér-
staklega í ljósi áhuga ýmissa
áhrifamikilla aðila innan ESB á
heilbrigðismálum."
Morgunbladið. Flateyri.
NYR smábátur bættist nýlega við í
ört vaxandi smábátaflota á Flat-
eyri. Báturinn Blossi ÍS 125 er af
Gáskagerð 960d. Það er Einar
Guðbjartsson og sonur Einars,
Birkir, ásamt fjölskyldu sem
standa að rekstri bátsins, en hann
verður gerður út á línu. Fyrir áttu
þau smábátinn Má, frá árinu 1980,
og var kominn tími til að skipta
honum út fyrir stærri og öflugri
bát. Blossi IS 125 er með Cumm-
ingsvél sem er 350 hestöfl. Bátur-
inn var smíðaður hjá Mótun ehf. í
Hafnarfirði. Báturinn tekur tíu kör
í lest og aflarými er 5,9 tonn. Sonur
Einars, Birkir Einarsson, verður
skipstjóri á bátnum.
Það er líkt og Renault Mégane
Scénic stækki þegar þú sest inn í
hann, enda er hann fyrsti fjölnota-
bíllinn í flokki bfla í miilistærð. Segja
má að Scénic sé í raun þrír bflar,
fjölskyldubíll, ferðabíll og sendibfll.
Hann er aðeins 4,23 m á lengd
en hugmyndarík hönnun og mikió
innanrými gerir hann ótrúlega
notadrjúgan og hagkvæman fyrir
einstaklinga og fjölskyldur.
Þaó er því engin furða þó hann hafi
umsvifalaust verið valinn bíll ársins
aföllum helstu bílatímaritum
í Evrópu þegar hann var kynntur.
Hér á landi hefur hann þegar
fengið frábærar viðtökur.
f
1 F^ossháls i 1 CO
B&L
Hestháls iU^^-^Grjótháls
■wr
Vesturiandsvegur
RENAULT