Morgunblaðið - 24.08.1999, Page 32

Morgunblaðið - 24.08.1999, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999 ERLENT LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Sex milljónir Bandaríkjamanna í fangelsi eða undir eftirliti lögreglu Glæpatíðni nær hámarki Washington. Reuters. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkj- anna kynnti á sunnudag ársskýrslu sína um glæpi og glæpatíðni í land- inu. Samkvæmt henni eru tæplega sex milljónir Bandaríkjamanna, eða þrír af hundraði, fyrir hina ýmsu glæpi bak við lás og slá eða undir eftirliti lögreglu. Eru þetta hæstu tölur er skráðar hafa verið til þessa, en glæpatíðni hefur verið ört vax- andi í Bandaríkjunum síðan árið 1990. Niðurstöður skýrslunnar sýna mikla aukningu á milli ára, eða því sem nemur um 150.000 manns. En samkvæmt skýrslunni sitja tæpar tvær milljónir Bandaríkjamanna í fangelsum landsins og eru um fjór- ar milljónir annaðhvort á skilorði eða undir eftirliti lögreglu. Thomas Bonczar sem er höfundur skýrsl- unnar segir tíðni glæpa hafa aukist jafnt og þétt allt frá byrjun áratug- arins og eru mörg fangelsi landsins farin að kvarta undan skorti á rými til að taka við fleiri afbrotamönnum. Ofbeldisdýrkun ungra karlmanna Samkvæmt skýrslu dómsmála- ráðuneytisins eru allt að áttatíu af hundraði allra afbrotamanna karl- menn. Þykir það varla í frásögur færandi nema hvað ofbeldi meðal karlmanna undir tvítugu hefur auk- ist allverulega. Ársþing samtaka bandan'skra sálfræðinga var haldið fyrir skömmu, með það fyrir augum að bregðast við þjóðfélagslegri orð- ræðu um ofbeldishneigð ungra pilta og undangengnum manndrápum af þeirra völdum í skólum landsins. En manndráp í skólum, þar sem fómar- lömbin telja eitt til sextán, voru alls átta talsins á árunum 1992-1998 og öll framin af ungum karlmönnum. Úrelt kynbundið uppeldi Telja sálfræðingamir kynbundið uppeldi vera meginorsök þess að drengir beinist inn á braut ofbeldis- ins og jafnvel vera undirrót mann- drápanna í skólum landsins. Klisjan um að karlmenn skuli vera sterkar, þöglar og harðgerðar manneskjur sem láta engan bilbug á sér finna er enn í hávegum höfð í bandarísku samfélagi. „Þeir mega kýla hver annan en öll önnur snerting er álitin asnaleg,“ sagði Dan Kindlon sál- fræðingur við Harvard-Háskóla í viðtali við The New York Times. Vísindamennimir segja unga karl- menn í Bandaríkjunum eiga í vanda með kynhlutverk sitt því uppalend- ur, foreldrar og kennarar, leiðbeini börnum enn samkvæmt stöðluðum en úreltum hugmyndum um kynja- hlutverk. Útgöngubann unglinga I höfuðborginni Washington, þar sem mikil vargöld hefur geisað síð- astliðin misseri grípa ráðamenn nú tfl aðgerða tfl að spoma við afbrot- um yngri kynslóðarinnar með að- ferðum alls óskyldum kynjahlut- verkum. Eftir fjögurra ára umræðu hefur verið ákveðið að meina börn- um undir sautján ára aldri að vera úti á kvöldin eftir klukkan ellefu ella þurfí foreldrar þeirra að borga háa fjársekt. Hafa margar stærri borgir í Bandaríkjunum sett sambærileg lög með það fyrir augum að halda bömum og unglingum frá næturlíf- inu og vernda umhverfið fyrir þeim. 6% net- verja fíklar Boston. AP. NIÐURSTÖÐUR nýrrar rann- sóknar vestur í Bandaríkjunum þykja benda til að næstum sex prósent þeirra sem nota Netið - eða um ellefu milljónir manns - séu í reynd eins konar netfíkl- ar. Þykir rannsóknin, sem er sú umfangsmesta sem gerð hefur verið á notendum Netsins, festa í sessi þá kenningu að líta beri á áráttukennda notkun Netsins sem nýja tegund sálfræðikvilla. „Hjónaband leysast upp, börn lenda í vandræðum, fólk fremur lögbrot, það eyðir um efni fram. Ég fæ til mín svona sjúklinga og þetta vandamál er til staðar,“ sagði David Greenfí- eld, sálfræðingur og einn þeirra sem stóðu að rannsókninni. Þykja niðurstöðumar styrkja þá kenningu að hægt sé að ánetjast Netinu. Engu að síður reyndist tala þeirra, sem segja mætti að séu netfíklar, lægri en menn höfðu búist við en fyrri kannanir hafa gefíð til kynna að allt að tíu pró- sent netverja væru netfíklar. í rannsókninni voru notend- ur Netsins spurðir spurninga sem ekki eru ólíkar þeim sem notaðar eru til að leggja mat á hvort menn eru spilafíklar eður ei. Þannig vora þátttakendur í rannsókninni spurðir hvort þeir notuðu Netið til að flýja vanda- mál úr daglega lífinu, hvort þeir hefðu gert misheppnaðar tilraunir til að draga úr net- notkun sinni og hvort þeir stæðu sjálfa sig að því að hugsa um Netið jafnvel þegar þeir væra víðs fjarri tölvum. Deilt um vopnahlé IRA Belfast. Reuters. DAVID Andrews, utanríkisráðherra Irlands, sagði í gær að hann og Mo Mowlam, Norður-írlandsmálaráð- herra bresku ríkisstjórnarinnar, væra á þeirri skoðun að vopnahlé Irska lýðveldishersins (IRA) héldi enn. Mowlam dró hins vegar úr orð- um Andrews og lagði áherslu á að hún biði enn upplýsinga sem hjálpað gætu henni að meta hvort IRA hefði rofíð vopnahlé sitt með nokkram ódæðisverkum á síðustu vikum. Ummæli ráðherranna bentu til að þeir væra ekki á eitt sáttir um hvort IRA hefði rofíð vopnahlé sitt eður ei, en þeir fullvissuðu þó fréttamenn, að afloknum fundi sem þeir áttu í Belfast, um að samstarf þeirra væri með ágætum. Mowlam hefur þó aug- sýnilega ekki sagt sitt síðasta orð, og hún á enn eftir að tilkynna formlega niðurstöðu sína um vopnahlé IRA Mowlam sagði hins vegar fyrir helgi að ólíklegt væri að hún vísaði Sinn Féin, stjórnmálaarmi IRA, á dyr í komandi friðarviðræðum vegna hugsanlegra vopnahlésbrota IRA. Gaf hún í skyn að ef hún kæmist að þeirri niðurstöðu að IRA hefði sann- arlega rofið vopnahléð myndi hún frekar hætta að veita föngum, sem sitja inni fyrir illvirki IRA, frelsi. Þessi ummæli vöktu reiði Martins McGuinness, eins af forystumönnum Sinn Féin, sem hótaði að Sinn Féin drægi sig út úr viðræðum um hvern- ig hægt verður að bjarga friðarsam- komulaginu frá því í fyrra, hætti Mowlam að sleppa IRA-föngunum. Cook gengur í lið með brezkum Evrópusinnum London. Reuters. ROBIN Cook, utanríkisráðherra Bretlands, hyggst leggja sitt lóð á vogarskálar áróðursherferðar sem fólk úr öllum stjórnmálaflokkum Bretlands hefur á prjónunum og mið- ar að því að hvetja til virkari þátttöku Breta í Evrópu- samstarfinu. Cook, sem áður gat sér orð fyrir að hafa vissar efa- semdir um Evrópu- samstarfíð, mun leggja lið hreyfíng- unni „Bretland í Evrópu", en henni hafði þegar tekizt að fá forsætisráð- herrann Tony Blair og tvo áhrifa- mikla menn úr Ihaldsflokknum - þá Michael Hezeltine og Kenneth Clar- ke - í hóp stuðningsmanna sinna. Talsmaður „Bretlands í Evrópu" EVROPA^ sagðist hæstánægður með að utan- ríkisráðherrann, sem brátt tekur við embætti framkvæmdastjóra Atlants- hafsbandalagsins, skuli ætla að taka þátt. „Skoðanir hans hafa mikið vægi og því er okkur mikill fengur í lið- sinni hans,“ sagði talsmaðurinn. Liður í áróðursbaráttu gegn Evrópustefnu Hagues Að Cook skuli bætast í hóp stuðn- ingsmanna „Bretlands í Evrópu“ er enn eitt skrefíð í vaxandi áróðurs- baráttu brezka Verkamannaflokks- ins gegn Evrópustefnu brezka íhaldsflokksins eins og leiðtogi hans, William Hague, hefur kosið að móta hana, en þar vegur þyngst neikvæð afstaða til aðildar Bretlands að Efnahags- og myntbandalagi Evr- ópu, EMU. I síðustu viku lagðist Cook á sveif með Menzies Campbell, talsmanni Frjáslyndra demókrata (LDP) í ut- anríkismálum, í gagnrýni á íhalds- menn eftir að Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra, var sögð hafa lýst því yfír að það væri sögulegt slys að Bretland skyldi hafa gerzt aðili að Evrópusambandinu. Kröfðust þeir Cook og Campbell þess að Hague, sem hefur reynt að stuðla að friði innan eigin flokks um Evrópustefnuna með „mildri ESB- andstöðu“, tæki af skarið og for- dæmdi „úrelta fordóma“ Thatcher. Robin Cook Myndræn afbrigði MY]\DLIST fíallcrf Sævars Karls VEGGSKÚLPTÚR PÉTUR MAGNÚSSON Opið á verslunartíma. Aðgangur ókeypis. Til 26. ágúst. EKKI er alltaf allt sem sýnist og hægt er að beita sjónina ýmsum brögðum; þetta fá sýningargestir að reyna á myndlistarsýningu Péturs Magnússonar í Galleríi Sævars Karls. Myndlist er gjaman skipt í tvívíða og þrívíða myndlist. I tvívíðri mynd- list er yfirborð myndflatar- ins alltaf eins, þ.e.a.s. slétt- ur, eða því sem næst. Þrívíð verk hafa rúmtak, að sjálf- sögðu, t.d. höggmyndir, samsett verk úr mismun- andi efnum og hlutum, og innsetningar. Við þetta má svo bæta fjórðu víddinni, tímanum, sem birtist t.d. í hreyfiskúlptúrum, gerning- um, eða tvívíðum myndum sem era málaðar með efn- um sem breytast eða eyð- ast með tímanum. Þarna mitt á mflli tví- og þrívíddar era svo lágmyndir, nokkurs konar útflattar höggmynd- ir, sem era þvívíðar, en er aðeins hægt að skoða frá einni hlið, eins og aðrar tví- víðar myndir. Ætli það megi ekki telja veggmyndir Péturs Magn- ússonar til síðastnefndu myndgerðarinnar. Pétur sýnir fimm verk í Galleríi Sævars Karls, sem eru smíðuð úr stáli, gleri og ljós- myndum. Myndefnið er allt mjög einfalt, sem sagt kassalaga hlutir, en form þeirra er varpað á vegginn í samræmi við reglur fjarvíddar. Pétri virðist þó ekki ganga það eitt til að sýna þrívíða hluti í tvívídd. Því allar myndimar spila á sjónskynið og senda því villandi boð. Hlutirnir fljóta í einhverju óskilgreinanlegu rými mitt á milli þess tvívíða og þrí- víða, og bjóða heilbrigðri skynsemi birginn. Slíkir leikir með fjarvídd eru náttúrlega jafngamlir fjarvíddinni sjálfri. Meðal þeirra sem hafa gert sambærilegar tilraunir með fjar- vídd í nútímalist eru t.d. hinn óvið- jafnanlegi Marcel Duchamp, og í seinni tíð má helstan telja hollenska konseptmanninn Jan Dibbets. Öll verkin era vel útfærð, en á hlutlausan hátt, eins og að baki liggi kænska verkfræðingsins, frekar en skapandi handbragð listamannsins. En þegar maður er búinn að ná sér eftir fýrstu undranarviðbrögðin og átta sig á leikaraskap og hugvits- semi listamannsins, þá spyr maður sig hvort eitthvað annað og meira liggi að baki. Er þetta bara leikur og hugvitssemi í meðferð fjarvídd- arlögmála, eða er þetta gert í sam- hengi við dýpri eða víðtækari hug- mynd? Ég var eiginlega að vona hið síðarnefnda, en ég á bágt með að sjá hvaða samhengi gæti gert þenn- an leik margræðari og þar af leið- andi einnig áhugaverðari. Öll tákn- ræn aukamerking og myndrænt samhengi hefur verið máð út, þannig að það er eins og að mynd- irnar svífi um í hugmyndalegu milli- bilsástandi og finni sér ekki hvíldar- stað. Gunnar J. Árnason Eitt af verkum Péturs Magnússonar í Galleríi Sævars Karls, gert úr stáli og gleri. Framhald af „An&ela’s Ashes“ New York. Reuters. AUGLÝSINGAHERFERÐ vegna útkomu framhalds æviminningabók- ar írsk-bandaríska rithöfundarins Franks McCourts „Angela’s Ashes“, sem fór sigurför um heiminn fyrir tveimur árum, og aflaði höfundinum m.a. hinna virtu Pulitzer-verðlauna, hefst um miðjan næsta mánuð þegar sjónvarpsfréttaþátturinn „60 minutes“ birtir svipmynd af hinum sjötuga McCourt. Nýju bókarinnar, sem mun verða kölluð ,,‘Tis: A Memoir", hefur verið beðið með eft- irvæntingu og þykir líklegt að hún verði þegar metsölubók. ,,‘Tis“ tekur upp þráðinn þar sem frá var horfíð í „Ángela’s Ashes“ en við lok fyrri bókarinnar var hinn ungi McCourt nýstiginn á banda- ríska grandu, eftir að hafa átt ömur- leg uppvaxtarár á Irlandi, og segir nýja bókin frá fyrstu kynnum McCo- urts af Bandaríkjunum. Fyrsta upplag bókarinnar er ein milljón eintaka en fyrri bók McCo- urts seldist í 3,5 milljónum eintaka í Bandaríkjunum og Kanada einum og sér og sat 77 vikur í efsta sæti met- sölulista Publisher’s Weekly, lengur en nokkur önnur bók. Reyndar situr bókin enn í efsta sæti á lista The New York Times yfir bækur al- menns eðlis. Kvikmynd væntanleg eftir „Ángela’s Ashes ,,‘Tis“ kemur formlega út 21. sept- ember og verður sérstakur þáttur um hana í „Todaý'-sjónvarpsþætti IVBC-sjónvarpsstöðvai'innar daginn áður, en „60 minutes" taka hins veg- ar forskot á sæluna með umfjöllun um McCourt hinn 19. september, eins og áður sagði. Bókin kemur í bókabúðir ná- kvæmlega þremur áram eftir að „Angela’s Ashes“ kom út en umfang- ið nú er talsvert meira en þegar fyrri bók McCourts, sem er kennari á eft- irlaunum, kom út. „Þetta er gjöró- líkt,“ segir Patricia Eisemann, vara- forstjóri Scribner-útgáfufyrirtækis- ins, j,en sannarlega ánægjulegt.“ „Ég myndi gera ráð fyrir að ,,‘Tis“ fari beint á topp metsölulistanna," sagði Daisy Maryles, ritstjóri Publis- her’s Weekly, m.a. vegna þess hversu fyrsta upplag bókarinnar er stórt. Á næstunni er einnig væntanleg kvikmynd Aans Parkers, sem gerð er eftir „Angela’s Ashes“, en þar fer leikkonan Emily Watson með hlut- verk móður Franks og Robert Car- lyle leikur hina vonlausu fyllibyttu, föður söguhetjunnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.