Morgunblaðið - 24.08.1999, Qupperneq 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
Símenntun Dagur símenntunar verður laugardaginn 28. ágúst og gefst námfúsum þá kostur á að kynna sér
viðamikið úrvalið um land allt. Gunnar Hersveinn komst að því að ætlunin er að upplýsa fólk hvernig það geti
öðlast nýja þekkingu með nýrri tækni og leyfa því t.d. að taka þátt í námskeiðum þennan dag.
Líflegur
Dagur
símenntunar
• Menntun er æviverk, ferli sem varir
allt lífið. Hún er auðlind.
• Hvernig er best að búa sig undir
framtíðina? Hvað stendur til boða?
LIFANpi dagskrá um land
allt verður á Degi sí-
menntunar laugardaginn
^ 28. ágúst frá klukkan 10 til
’ 17. Markmiðið er að hvetja fólk til
að: „Auka þekkingu og
fæmi fyrir lífsgleðina,“
„að vita meira og
meira“, „treysta stöðu
sína á vinnumarkaði"
og einnig til að „efla
starf skóla og annarrar
fræðslu".
Dagur símenntunar
er haldinn um víða um
land og mun fólk geta
kynnt sér á næstu dög-
'um auglýsingar um ná-
kvæmar stað- og tíma-
setningar á efni.
MENNT - samstarfs-
vettvangur atvinnulífs
og skóla sér um skipu-
lag og framkvæmd
dagskrár. „Tilgangur-
inn er að hvetja fólk til
að íhuga stöðu sína í
ljósi menntunar," segir Hrönn Pét-
ursdóttir, framkvæmdastjóri
MENNTAR, „fólk getur ekki leng-
ur gert ráð fyrir að grunnþekkingin
dugi og því þarf ævinlega að spyrja:
Hvað get ég gert núna til að undir-
búa framtíðina?"
Hrönn telur að sterkt samband
►sé milli menntunar, lífsskilyrða og
öryggis. Þjóðfélagið breytist hratt
og besta leiðin til að vera vel búinn
undir breytingar sé að vera sífellt
að mennta sig. „Við ætlum þennan
dag að gefa fólki kost á að kynna
sér hvað er í boði,“ segir hún, en
framboð á endurmenntun og öðru
námi er mikið."
Dagskráin á laugardaginn er á
þrjátíu stöðum á landinu, mismikil
eftir aðstæðum. Þar verða opin hús
og kynning á námi sem í boði er,
fjamámi og sjálfsnámi. Hrönn segir
að dagskráin verði lifandi og að fólk
geti t.a.m. prófað að vera á nám-
skeiði. „Boðið verður upp á röð fyr-
irlestra, erinda og kaffiumræðna
' um símenntun og einnig gefst fólki
kostur á að sjá sýnikennslu. Fólk á
að geta sett puttana í hlutina,“ segir
hún og að einnig verði námsráðgjaf-
ar á nokkrum stöðum.
Aðalbækistöð Dags símenntunar
í Reykjavík verður í Viðskiptahá-
skóla Islands og Verzlunarskólan-
um í Ofanleiti og verða húsakynnin
nýtt til hins ýtrasta. Á Akureyri
munu menn tengja saman menntun
og menningu t.d. með tónleikum og
dansi. „Við tengjum svo saman
flesta staðina á landinu á Netinu og
• gmeð fjarfundabúnaðinum. Forseti
skólar/námskeið
nudd
■ www.nudd.is
íslands og menntamálaráðherra
opna daginn og setja dagskrána
samtímis um land allt, einnig með
fyrirlestrum sem varpað verður út á
Netið. Það verður samræmd dag-
skrá að hluta til á þrjá-
tíu stöðum."
Hrönn nefnir að
meðal viðburða þennan
dag er stofnun sí-
menntunarmiðstöðva
Suðurlands og Þingeyj-
arsýslu og vígsla fjar-
fundabúnaðar sveitar-
félaga og Símenntunar-
miðstöðvar Vestur-
lands. Hún segir að
fólk geti fengið gott yf-
irlit yfir menntunar-
möguleikana á landinu
og einnig upplýsingar
um hvemig það geti
lært þótt fjarlægðir
skilji að nemendur og
kennara. „Dagurinn
verður lifandi og
skemmtilegur með al-
varlegu ívafi,“ segir hún.
MENNT var falin umsjón með
deginum fyi-ir hönd verkefnisstjóm-
ar menntamálaráðuneytis um sí-
menntun. „MENNT er samtök
þeirra sem eiga hagsmuna að gæta í
fræðslumálum," segir Hrönn, „og
innan þeirrar eru meðal annars
ASÍ, VSÍ, háskólar, iðnmenntskól-
ar, Endurmenntunaraðilai- og ýmsir
aðrir. Markmiðið er að auka sam-
starfið milli atvinnulífs og skóla og
veita þjónustu, einnig tökum við að
okkur verkefni sem styðja starfið."
Hún segir að fylgst sé með í ýmsum
löndum Evrópu um hvemig til tak-
ist hjá MENNT því þar þekkist
ekki enn samstarf launþega, at-
vinnurekenda og skóla í mennta-
málum.
Dagur símenntunar hefur verið
annasamt verkefni, en þegar hann
var fyrst haldinn árið 1996 var hann
aðeins í Reykjavík. Núna verður
fræðslan samtengd í öllum lands-
hlutum og breiður hópur tekur þátt
í honum. „Menntun verður æ mikil-
vægari í augum fólks og núna hefur
tæknibyltingin opnað alþjóðlegan
markað í þessum efnum,“ segir
Hrönn.
Hún nefnir t.d. að skólar bjóði
upp á sveigjanlegri námsleiðir og
hún bendir einnig á breyttar at-
vinnuauglýsingar. „Fyrir nokkrum
árum var hamrað á prófskírteinum
en núna er í auknu mæli leitað eftir
reynslu og hæfileikum," segir hún
og að því sé oft mikilvægt fyrir fólk
að hafa lagt stund á símenntun.
„Núna er mikilvægt að kunna að ná
sér í þekkingu. Þetta á jafnt við um
faglærða sem Ofagiærða, en þeir
þurfa meira en áður að t.d. öðlast
einhverja tæknimenntun til að
stunda sín störf. Starfsfólk þarf því
að búa við gott endurmenntunar-
kerfi og með því auka líkur fyrir-
tækja á að standast samkeppnina."
„Núna er mikilvægt
að kunna að ná sér í
þekkingu," segir
Hrönn.
Símenntun er hugmynd að öryggi og betri lífsskilyrðum.
Sigrast á hindrun-
um til lærdóms
Emil Hörður
Björnsson Ríkarðsson
Símenntunarmiðstöðvar hafa
undanfarin ár verið stofnaðar
víða um land og eru nú orðn-
ar átta. Þær gegna mikil-
vægu hlutverki í heimabyggð
tfi að fjölga og opna mögu-
leika fólks til að öðlast nýja
þekkingu án þess að þurfa að
flytjast búferlum. Meðal hlut-
verka þeirra er að greiða fyr-
ir fjarnámi. Miðstöðvamar
era umboðsaðilar fyrir
menntun sem fengin er frá
öðram aðilum auk þess sem
þær sérhanna námskeið fyrir
þá sem þess þurfa, bæði ein-
staklinga og fyrirtæki.
Miklar væntingar era
bundnar við þessar miðstöðvar sí-
menntunar. Nefna má sem dæmi að
fyrir tilstuðlan fjarfundabúnaðar og
samstarfs Háskólans á Akureyri,
Fjórðungssambands Vestfjarða,
Framhaldsskóla Vestfjarða, Fjórð-
ungssjúkrahússins á Isafirði, Isa-
fjarðarbæjar og Farskóla Vest-
fjarða var hægt að bjóða upp á fjar-
nám á Isafirði í hjúkrunarfræði og
leggja um leið grann að Símennt-
unarmiðstöð þar.
Aðstaða
til menntunar
Nú hafa símenntunarmiðstöðvar
bundist samtökum og eru Emil
Björnsson hjá Fræðsluneti Aust-
fjarða og Hörður Ríkarðsson á
Blönduósi í forsvari fyrir þau, en
verkefnið til að byrja með er m.a.
að skilgreina og túlka brýnustu
hagsmunamál símenntunaraðila.
„Alþingi veitti á síðustu fjárlög-
um peninga í starfsemi og rekstur
símenntunarmiðstöða á landinu,
m.a. vegna fjarkennslu," segir Emil
Björnsson. Fyrir austan fara pen-
ingamir m.a. í að greiða fyrir fólki
að stunda háskólanám í heimahér-
aði, auk þess að efla símenntun.
Hörður Ríkarðsson segir að t.d. á
Norðurlandi vestra og Reykjanesi
sé byggt á menntunarhefð sem hafi
orðið til í kringum gömlu farskól-
ana. „Síðan er reynt að spinna ofan
á það háskólanám og að tengja íbú-
ana í dreifbýlinu við menntastofn-
anir í dreifbýlinu án þess að til bú-
ferlaflutninga þurfi að koma,“ segir
Hörður. Einnig er boðið upp á ým-
iskonar símenntun á þessum stöð-
um. Markmiðið er að bæta aðstöðu
til menntunar á landsbyggðinni.
„Átta miðstöðvar era núna starf-
andi þótt form þeirra sé mismun-
andi,“ segir Emil, „en þær vinna
allar á þeim forsendum að koma
menntun á framfæri og við teljum
það mjög öfluga aðferð til að efla
landsbyggðina og styrkja búsetu
þar.“ Hann segir að miðstöðvarnar
séu með ákveðna dagskrá hvert
skólaár sem geti flokkast undir
framhaldsnám, háskólanám, endur-
menntun og tómstundanám. Hörð-
ur nefnir einnig skipulagt nám ým-
issa menntastofnana sem ljúki með
prófum eða réttindum.
„Það má segja að rannsókn Stef-
áns Ólafssonar á viðhorfum Islend-
inga til búsetu hafi opnað augu
manna fyrir því hversu miklu máli
menntunarmöguleikar skipta þegar
fólk velur sér búsetu og það eykur
einnig líkurnar á því að fólk verði
um kyrrt,“ segir Hörður og nefnir
að upplýsingatæknin, byggðabrú
Byggðastofnunar (fjarfundabúnað-
ur) og væntingar til ljósleiðarans
hafi gert það mögulegt fyrir nem-
endur að læra óháð búsetu. „Sí-
menntunarmiðstöðvarnar era eins
konar net, fjöltengi, og þær hafa
sýn yfir það sem er í boði og hvetja
fólk til að bera sig eftir því,“ segir
Hörður.
Emil segir að samningar hafi
verið gerðir tii að koma þessu upp-
haflega af stað og hann segist von-
ast til að háskóiarnir verði svo opn-
ar stofnanir að þær hafi markmið
símenntunarmiðstöðva á dagskrá
sinni. „Hlutverk miðstöðvanna er að
vera sterkir tengiliðh-
við skóla og nám-
skeiðshaldara," segir
hann og nefnir að
fólk, sem myndi e.t.v.
ekki leita til hákól-
anna beint, leiti til
stöðvanna. „Við veit-
um fólki upplýsingar
og hjálpum því að yf-
irvinna fjarlægðir,“
segir hann.
Fjarfundabúnaöur
Fjarfundabúnaður-
inn skipth' miklu í
þessari starfsemi og
Hörður segir að á
Norðurlandi vestra
séu menn fremur vel
settir með hann á Blönduósi,
Skagaströnd, Sauðárkróki og Siglu-
firði. Hann nefnir einnig að fólk
sem búi við góðan tölvukost heima
hjá sér geti stundað mörg námskeið
á Netinu. „Hver aðili metur hvaða
aðferðum hann beitir til að koma
kennslunni á framfæri," segir Emil,
„fundabúnaðurinn er ágætur til
ákveðinna hluta, hann er útvíkkuna
á veggjum kennslustofunnar. Hann
er hins vegar dýr og því eru tak-
mörk fyrir því hvað hægt er að nýta
hann mikið. Hann hentar t.d. þeim
vel sem ekki nota tölvur mikið.“
Hörður segir að fjarfundabúnað-
urinn komi t.d. ófaglærðum vel.
„Þegar atvinna í frumframlciðslu-
greinum snarminnkar hefur fólk
e.t.v. ekki að mörgu að hverfa,“
segir hann, „en leið til að gera þetta
fólk hæfara á breyttum vinnumark-
aði er að eiga kost á endurmenntun
og starfsþjálfun."
Markhópar símenntunarstöðva
eru tæknilega misjafnlega vel
staddir og Emil nefnir að í raun séu
allir að læra; kennarar, tæknimenn
og nemendur og að fjamám sé að
vinna sér sess í þjóðfélaginu.
„Landsbyggðarfólk gerir sterkar
kröfur um að skólarnir svari kalli
tímans og veiti þessa þjónustu. Nið-
urstaðan er að minnsta kosti sú að
ekki verður aftur snúið,“ segir
hann.
Hörður segir að lokum að sí-
menntunarstöðvar séu fyrst og
fremst ný vídd í starfi stofnana sem
nú þegar eru fyrir hendi og leiði til
betri nýtingar og framfara.