Morgunblaðið - 24.08.1999, Page 47

Morgunblaðið - 24.08.1999, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR PRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999 47 + Margrét Ingi- niundardóttir fæddist í Reykjavík 23. september 1910. Hún lést á heimili sínu, Dalbraut 18, 14. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru hjónin Þorbjörg Bjarna- dóttir frá Króki (1879-1966) og Ingimundur Hall- grímsson frá Brekku (1875-1962) í Biskupstungum. Þorbjörg var seinni kona Ingimundar en áður var hann kvæntur systur hennar, Margréti Bjarnadóttur, sem dó úr taugaveiki. Hálfsystkini hennar voru Ingileif (1901-1962) og Þorgrímur (1903-1933). Alsystur hennar voru Bjarnheiður (1913-1996) og Guðrún (1915-1976). Mar- grét giftist 10. janúar 1942 Ás- grími Ágústssyni bakara, f. 10.1. 1907, d. 31.5. 1965. Börn Margrétar og Ásgríms eru: 1) Sigríður Ágústa, f. 2.7. 1943, maki Björn Erlendsson. Synir þeirra: a) Ásgrímur, f. 1971, d. 1997. b) Erlendur, f. 1973. 2) Þorbjörg Kolbrún, f. 4.2. 1945, maki Rögnvaldur Gunnarsson. Börn þeirra: a) Vaka, f. 1976. b) Þrándur, f. 1978. c) Tinna Mar- grét, f. 1980. 3) Ása Margrét, f. 18.9. 1950, maki Óli J. Hjálm- arsson. Dætur þeirra: a) Auður Agla, f. 1982. b) Ylfa Rún, f. 1984. c) Iðunn Asa, f. 1986. 4) Inga Hlíf, f. 21.4. 1956, maki Steinþór Gunnarsson. Dætur þeirra: a) Saga, f. 1978. b) Affegurðblóms verður aldrei sagt aldrei sagt með orðum né þinni með neinum orðum. (Stefán Hðrður Grímsson.) Við kveðjum þig, ástkær móðir, tengdamóðir og amma. Við þökkum þér alla þá tryggð, ást og umhyggju sem þú veittir okkur í lífinu. Inga Hlíf, Steinþór, Saga og Brynja litla. I dag kveð ég tengdamóður mína, Margréti Ingimundardóttur, sem hefði orðið níræð á næsta ári. Hún var búin að vera höfuð fjölskyldu sinnar í áratugi. Fyrir tæpum 30 ár- um tók Margrét mér opnum örmum þegar ég kynntist dóttur hennar, Sigríði Agústu. Margrét var að eðl- isfari skyldurækin og heiðarleg. Hún gerði ekki miklar kröfur til samborgaranna fyrir sína hönd. Margrét fylgdist vel með allri þjóð- málaumræðu og var vel að sér um þau málefni sem efst voru á baugi hverju sinni. Einnig var hún mjög minnug og kunni vel að segja frá liðnum atburðum. Mér verður alltaf minnisstæð ferð okkar hjóna með Margréti til Kanada sumarið 1975 til að heim- sækja nákomna ættingja hennar í Vancouver, Winnipeg og víðar. Árið 1968 höfðu náfrændi hennar, Gor- don Tallman, og eiginkona hans, Brynja, f. 1996. Fyrstu æviárin var heimili Mar- grétar í Garða- stræti en árið 1919 fluttu foreldrar hennar inn í Laug- ardal og brutu þar land og byggðu bæ og nefndu Litla- Hvamm. Margrét gekk í Ingimars- skólann og lauk þaðan gagnfræða- prófí árið 1929. Hún vann eftir það ýmis störf, meðal annars um tíma í Keflavík. Hún kynnt- ist eiginmanni sínum þegar þau voru samtíða starfandi á Korp- úlfsstaðabúinu í Mosfellssveit, hann matsveinn en hún kaupa- kona. Bjuggu þau í Reykjavík nær allan sinn búskap, fyrst á Leifsgötunni en lengst af á Engjavegi 21 í landi Litla- Hvamms. Þau hjónin tóku bæði þátt í kórstarfí, m.a. í Biskups- tungnakórnum. Margrét söng í mörg ár í kirkjukór Laugarnes- kirkju og við jarðarfarir í Foss- vogskapellu. Síðustu árin söng hún í Kór eldri borgara í Reykjavík. Auk húsmóðurstarf- anna vann Margrét í nokkur ár við ræstingar í Langholtsskóla. Eftir lát Ásgríms starfaði hún á upptökuheimilinu Dalbraut við saumaskap uns hún lét af störf- um sjötíu ára að aldri. Síðustu tólf árin bjó hún á Dalbraut 18 í Reykjavík. Útför Margrétar Ingimund- ardóttur fer fram frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Joice, komið hingað í heimsókn til frændfólksins í gamla landinu. Gor- don og Margrét voru systkinaböm. Hann var sonur Ágústu Tallman Hallgrímsdóttur, systur Ingimund- ar Hallgrímssonar (Bachman), föð- ur Margrétar. Hún átti orðið margt nákomið frændfólk í Vesturheimi. Afi og amma Margrétar, Hallgrím- ur og Þórey Bachman, fluttust til Kanada árið 1888 með þrjú ung börn sín en önnur fjögur urðu eftir á íslandi. Eitt af þessum fjórum bömum var Ingimundur, faðir Mar- grétai’. Það urðu fagnaðarfundir þegar Margrét hitti ættingja sína í Vest- urheimi. Einkum var það henni mikil ánægja að hitta tvö föður- systkini sín, sem bæði vom fædd í Kanada en töluðu reiprennandi ís- lensku. Það vora Skúli Bachman (f. 1893), búsettur í Winnipeg, og Cl- ara Henriksen (f. 1895), búsett í Selkirk. Það fór Margréti einkar vel að klæðast íslenska þjóðbúningnum. Það vora hrifnir ættingjar sem fylgdust álengdar með Margréti á peysufötum, í íylgd íslenskra glímu- kappa, í skrúðgöngu í tilefni af hundrað ára landnámi íslendinga í Kanada á „íslendingadeginum“ í Gimli. Ári eftir Kanadaferð okkar heim- sótti svo Skúli bróðurdóttur sína, Margréti. Hann hafði aldrei áður komið til íslands. Margrét stóð fyr- ir því að farið var með Skúla um- hverfis landið og þótti honum mikið til koma. Ógleymanleg fannst hon- um ferðin yfir sandana undir jökl- um sunnanlands. Á einum dvalar- stað okkar á þessari hringferð orti Mai’grét af sinni hagmælsku eftir- farandi vísu: Æ meðan dvöldumst á Eiði eigi skein sólin í heiði. En átum af afburða veiði svo allur á burtu hvarf leiði. Móðir mín, Katrín Jónsdóttir, og Margrét urðu miklir mátar. Þær höfðu báðar yndi af tónlist og oft þegar stórfjölskyldan kom saman leiddi tengdamamma söng og mamma spilaði undir á píanó. Mar- grét spilaði líka stundum sjálf á hljóðfærið. Sýnir okkar tveir voru hennar fyrstu bamaböm og var oft leitað til ömmu með pössun. Hún var óþreyt- andi að sinna þeim og þeir hændust að henni og elskuðu alla tíð. Eftir erfið veikindi um síðustu jól bar Margrét sig ótrúlega vel og bjó ein á heimili sínu þótt líkamlegm’ styrkur hafi farið þverrandi. And- legt þrek hennar hélst til síðasta dags. Eg vil að endingu þakka Mar- gréti góða samfylgd. Björn Erlendsson. Elsku amma okkar. Þótt við höfum kvatt ásjónu þína í hinsta sinn, eigum við í hjarta okkar ljóslifandi minningar um ástkæra ömmu. Minningum okkar um bros þitt bjarta munum við deila með börnum okkar og fjölskyldum um ókomin ár. Amma Dúlla, eins og vinir okkar kölluðu hana, missti mann sinn fyrir okkar tíð og því þekktum við hana sem fullorðna konu sem stóð á eigin fótum. Dugur hennar og þrek í gegnum árin við að passa okkur óþekktarormana, leika við okkur og deila með okkur hugsjónum sinnar kynslóðar mun verða okkur bjarg tH að byggja á. Þú varst sífellt að koma okkur á óvart, elsku amma, þegar þú komst til okkar með strætó á níræðisaldri, færandi okkur ómetanlegax- gjafir, allt frá ullarsokkum til postulíns- vasa. Við trúðum vart að þetta hefði verið handavinna þín, svo fallegt var þetta allt. Þegar við voram yngri kenndir þú okkur að spila svarta Pétur og marías og spiluðum við oft fram á rauða nótt. Einnig varstu iðin við píanóleik og hlustuðum við oft á þig spOa hin ýmsu lög. Þér voru allir vegir færir og nýttir þú óspart hæfi- leika þína í kórsöng, handavinnu og útivist. Keramikvinna þín er vel varðveitt meðal ættmenna þinna. Við vitum að loks ertu komin til afa og saman á ný fylgist þið með framtíð okkar bamabamanna. Okk- ur langar að svæfa þig með vísunni sem þú fórst oft með fyrir okkur þegar við voram lítil. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þín barnaböm, Vaka, Þrándur og Tinna Margrét. Elsku amma. Nú ertu farin frá okkur og við sjáum þig aldrei fram- ar, en við vitum að þú fylgist með okkur og ert í hjörtum okkar. Það er samt alltaf erfitt að kveðja þó að við vitum að svona er gangur lífsins. Það var alltaf svo gaman þegar þú varst hjá okkur á jólunum og við pöntuðum alltaf að hafa þig hjá okk- ur á aðfangadagskvöld. Þú varst ómissandi hluti af jólahaldinu. Það vai’ gott að þú gast komið til okkar síðustu jólin þín. Stundum þegar við voram yngri komst þú til okkar og bakaðir með okkur kleinur því það kunnir þú svo vel. Við gátum alltaf komið til þín í hádegishléum í skólanum eða eftir skóla. Þú tókst alltaf svo vel á móti okkur og varst tilbúin með mat handa okkur. Takk fyrir hvað þú varst góð við okkur og við munum aldrei gleyma þér. Auður Agla, Ylfa Rún og Iðunn Ása. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kr- inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. MARGRET INGIMUNDARDÓTTIR AGUSTA GUÐMUNDSDÓTTIR + Ágústa Guð- mundsdóttir fæddist í Reykjavík 8. ágúst 1902. Hún lést að Dvalarheim- ilinu Garðvangi, Garði, mánudaginn 16. ágúst síðastlið- inn. Ágústa bjó lengst af á Garða- vegi 4 í Keflavík. Foreldrar: Guð- mundur Pálsson, f. 25.9. 1850, d. 4.7. 1932 frá Eystri Leirárgörðum í Melasveit og Hall- dóra Árnadóttir, f. 24.5.1867, d. 14.11. 1918 frá Skarðskoti í Melasveit. Allir forfeður Ágústu í marga ættliði hafa búið í Leir- ársveitinni og í Skorradal, en upphaflega má rekja ættina til hjónanna Þórðar Pálssonar og Ingveldar Jónsdóttur, sem lengst af bjuggu á Stórakroppi í Reykholtsdal um 1700. Halldóra lést í spönsku veikinni frosta- veturinn mikla 1918, en Guð- mundur hélt heimili með börn- um sínum þar til hann lést 1932. Systkini Agústu voru: Stein- grímur Klingeberg, málara- meistari í Reykjavík, og Sigur- veig Hammarström, en hún giftist ung til Svíþjóðar og bjó í Stokkhólmi í 50 ár. Systkinin eru bæði látin. Ágústa stundaði öll ungdómsárin af- greiðslustörf í verzlunum - fyrst í Reykjavík, en 1932 réðst hún til Þor- steins Þorsteinsson- ar og Margrétar í Þorsteinsbúð í Keflavík, sem þá var eina verzlunin í Keflavík og nánast á öllum Rcykja- nesskaganum. Ágústa giflisl 1939 Jóni G. Pálssyni, skipstjóra frá Hjörtsbæ í Kefla- vík, f.11.3. 1899, d. 5.9. 1968. Einkasonur þeirra er: Páll Jóns- son, fv. sparisjóðsstjóri, f.9.1. 1935. Eiginkona hans er Mar- grét Jakobsdóttir, sem ættuð er úr Hafnarfírði og frá Forsæti í Villingaholtshreppi. Synir Mar- grétar og stjúpsynir Páls eru; Gísli Viðar og Jakob Már og eiga þeir þrjú börn hvor. Jón átti áður Hörð Reyni, fv. yfir- vélstjóra, sem var Ágústu alla tíð sem sonur. Reynir er kvænt- ur Birnu Björnsdóttur og eiga þau tvo syni. Útför Ágústu fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Einstaklingar og heildir hlíta því órjúfanlega lögmáli náttúrunnar að fæðast, þroskast, hnigna og deyja. Það er svo oft er samferðamennirn- ir hverfa úr hópnum yfir til ókunna landsins, að hjá okkur vakna ótal spurningar um tilgang lífsins og gildi. Þá hópast einnig í hugann minningar og myndir úr lífi þessara horfnu vina sem vert er að skrá og geyma. Þannig varð mér við er ég varð vitni að andláti tengdamóður minnar og vinkonu, Ágústu Guð- mundsdóttur, er hún lést á Dvalar- heimilinu Garðvangi í Garði mánu- daginn 16. þ.m., 97 ára gömul, en þar hafði hún dvalið í 10 ár við frá- bæra umönnun góðs starfsfólks, sem hér með er þakkað af alúð. Við sem komin erum í seinni hálfleik æviskeiðsins megum alltaf eiga von á því að vinir og samferða- menn hverfi úr lestinni og leggi upp í langferðina miklu og slíti samvist- um, a.m.k. um sinn, okkur bregður þó alltaf við, jafnvel þótt um há- aldraða vini sé að ræða. Ágústu hef ég þekkt frá barnæsku minni því ég er alin upp í næsta húsi við hið myndarlega heimili þeirra Jóns á Garðavegi 4 í Keflavík. Móðir mín og hún vora miklar vinkonur og hef ég margs að minn- ast frá þessu góða nábýli, svo sem heimsóknaminna með móður minni til Gústu. Ágústa var glöð í viðmóti, alúðleg og einlæg. Gjafmildi og barngæska hennar var rómuð og hændust öll börn að henni og mörg vora þau gegnum árin sem bönk- uðu uppá hjá henni til að fá eitthvað í munninn. Hún var mjög trúuð kona og allt hennar líf.snerist um trú, heiðar- leika og að gera aldrei á hlut nokk- urs manns, þá var hún og ávallt til- búin að rétta öllum hjálparhönd. Hún var gædd þeim mannkost- um að hún sagði aldrei styggðar- yrði um eða til nokkurs manns. Þá minnist ég þess ekki í eitt einasta skipti öll þau ár er ég þekkti hana að hafa heyrt hana bölva. Hún not- aði aldrei ljót orð á ævinni, hún þurfi þess ekki með, því hún hafði trú og fyrirgefningu að leiðarljósi. Elsku Gústa mín! Guð blessi þér sporin og minningarnar. Fari mín gamla vinkona og tengdamóðir vel og hafi hún þökk fyrir samfylgdina og tryggðina. Ég veit að Ágústa Guðmunds- dóttir er kvödd með söknuði af öll- um sem höfðu af henni kynni. Margrét Jakobsdóttir. Lífsgöngu Ágústu Guðmundsdótt- ur er lokið. Minningarnar streyma fram í hugann. Ég sé fyrir mér fal- lega, lágvaxna og glaðlega konu, sem fyrir tæpum þrjátíu áram kom á nýstofnað heimili okkar Reynis,__ stjúpsonar hennai’. Ég var að hitta tilvonandi tengdafólk mitt í fyrsta sinn og var hálfkvíðin, en ótti minn reyndist ástæðulaus. Gústa mín tók mér opnum örmum, það var eins og við hefðum alltaf þekkst. Þetta kvöld urðum við vinkonur. Á þessum tíma var Jón, tengda- faðir minn, látinn, en hún bjó áfram á fallega heimilinu á Garðavegi 4 í Keflavík með einkasyni sínum, Páli, sem alla tíð reyndist henni einstak- lega góður. Þaðan eigum við fjöl- skyldan ljúfar minningar og vil ég sérstaklega þakka þeim báðum fyr- ir hvað þau vora eldri börnum mín- um góð. Þó Gústa væri komin yfir sjötugt, var hún dugleg að koma til Reykja- víkur með rútunni, alltaf var hún jafnfín og vel til höfð. Þá fóram við gjaman í bíltúr um gamla bæinn. Hún minntist þá oft uppvaxtarára sinna á Bergstaðastræti, Veigu systur sinnar sem var búsett í Sví- þjóð og Steingríms bróður síns sem var henni svo kær. Hún rifjaði upp tímann, þegar hún ung stúlka vann á Kleppsspítala. Hún fræddi mig um gömlu Reykjavík. Ég minnist gleði hennar þegar Jón Reynir fæddist og síðan Bjarni Birkir og hún saumaði og prjónaði á ömmustráka. En þar kom að elli tók völdin, Gústa gat ekki lengur búið ein og ^ síðustu árin bjó hún á Garðvangi, þar sem hún lést, 97 ára gömul, hinn 16. ágúst. Hún var í raun löngu lögð af stað yfir landamærin. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Birna Björnsdóttir. Handrit afmœlis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru ^ nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðai- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.^*

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.