Morgunblaðið - 24.08.1999, Side 57

Morgunblaðið - 24.08.1999, Side 57
- ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999 '57 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Wfjms Ur dagbók lögreglunnar —............■ Fjölmennt á áfallalausri lielgi í miðborginni 20. til 23. ágúst 1999 FJÖLMENNT var í miðborginni að- faranótt föstudags. Fjórir voru hand- teknir en höfð afskipti af 17 einstak- lingum vegna ölvunar og óspekta. Talsvert var af fólki á veitingahúsun- um fram eftir morgni og því aldrei mikill mannfjöldi sem safnaðist sam- an á götum úti auk þess sem vel gekk að flytja fólk til síns heima. Aðfaranótt laugardags veitti lög- reglan því athygli í eftirlitsmynda- vélum að fjórir piltar sátu út um glugga bifreiðar sem ekið var í Póst- hússtræti. Bifreiðina stöðvuðu því nærstaddir lögi-eglumenn og má ökumaður vænta sekta fyrir athæfí farþega sinna. Hópslagsmál urðu á veitingastað á Eiðistorgi. Menn hlutu minniháttar áverka og fatnað- ur skemmdist eitthvað. Menningarnótt hófst síðdegis á laugardag og stóð mislangt frameftir sunnudagsmorgni hjá borgarbúum og gestum þeirra. Þegar á heildina er litið gekk hátíðin áfallalaust fyrir sig, en nokkuð var um ölvun. Að mati lögreglu var vel á þriðja tug þúsunda íbúa í miðbænum þegar mest var en fækkaði síðan er leið á nóttina. Mikið verk var síðan að hreinsa til í bænum til að Reykjavíkurmaraþon gæti hafist í tíma. Aðeins fjórir gistu fangageymslur lögreglu þessa nótt, allir vegna ölvunar, sem verður að teljast viðunandi sé tekið mið af þeim mikla fjölda sem var í miðbæn- um. Eitthvað var um samskiptaerfið- leika og pústra milli manna. Ölvaður maður gekk í veg fyrir bifreið á Lækjargötu að morgni sunnudags. Hann var fluttur á slysadeild. Umferðarmál ITalsverðar tafir voru í umferðinni þessa helgi. í fyrsta lagi varð að loka nokkrum götum í miðborginni vegna framkvæmda við nýbyggingu við Al- þingishúsið. Þá urðu tafir á Miklu- braut vegna framkvæmda við mis- læg gatnamót við Réttarholtsveg. Sömu sögu er að segja um lokanir vegna menningarnætur og Reykja- víkurmaraþons. Nær undantekning- arlaust tóku ökumenn þessum töfum með skilningi. Ökumaður ók á ljósastaur í Graf- J arvogi síðdegis á föstudag. Ók hann af vettvangi án þess að tilkynna lög- reglu um óhappið en ljósastaurinn er ónýtur. Lögreglan hafði uppi á manninum og voru gerðar viðeigandi ráðstafanir. Ökumaður á Iéttu bifhjóli var stöðvaður á Gagnvegi á föstudags- kvöld. Ökumaðurinn var með far- þega á hjólinu sem er óheimilt en auk þess var ökumaðurinn réttinda- laus og hjólið óskráð. Á fjórða tug ökutækja var stöðv- aður á Vesturlandsvegi síðla morg- uns á sunnudag. Kannað var ástand ökumanna og ökutækja. í öllum til- vikum var það til fyrirmyndar og ekki þörf frekai'i afskipta lögreglu. Um helgina voru 15 ökumenn stöðv- aðir vegna gruns um ölvun við akst- ur og 19 vegna hraðakstm’s. Ökumaður var stöðvaður á Gullin- brú klukkan tvö aðfaranótt sunnu- dags. Ökumaðurinn hafði ekið bifreið sinni á 117 km hraða þar sem er 50 km hámarkshraði. Hann var því sviptur ökuréttindum sínum til bráðabirgða á staðnum. Bifreið var ekið yfir á rangan veg- arhelming og á ljósastaur á Kringlu- mýrarbraut við Háaleitisbraut á sunnudagskvöld. Ökumaður var fluttur á slysadeild með höfuðáverka auk innvortis meiðsla. Ökumaður var ekki í bflbelti. Hald lagt á fíkniefni Lagt var hald á fíkniefni við húsleit í Seljahverfi síðdegis á föstudag. Einnig fundust fíkniefni við leit í bif- reið pilts sem kom á vettvang. Sex einstaklingai- voru handteknir vegna málsins og fluttir á lögreglustöð. Enn eitt tilvikið kom upp um helgina þar sem einstaklingur var fluttur á slysa- deild eftir neyslu e-töflu. I þessu til- viki var um 26 ára stúlku að ræða. Síðdegis á sunnudag var lögreglu tilkynnt um innbrot og þjófnað úr bifreið í vesturbænum. Skömmu síð- ar hafði lögreglan afskipti af öku- manni bifreiðar þar skammt frá. Við leit í bifreiðinni fannst mest af því sem stolið hafði verið. Kona var handtekin vegna málsins. Lögreglan hefur undanfarna daga kannað leyfi þeirra sem hyggjast stunda gæsaveiðar. Að morgni mánudags var hald lagt á eina hagla- byssu og einn riffil auk skota þar sem ekki voru fyrir hendi afnotaleyfi fyrir þessum vopnum. I I I Tilboð á Kodak Royal B Gnoðarvogi 44 • s. 5680018 A móti Menntaskólanum við Sund n^; pjpið: /lánud-fimmtud. 10-18 Föstudaga 10-19 Laugardaga 10-18 Sunnudaga 12-17 # MÝ KYMetOÐ V6: V6 DÍMXbL IÁTTU TKKI 6C>MA P\g mx> mmx> BOKVAL Sumarsmellur Aukabúnaður sem fylgir með... NOKIA 6110 kr. stgr. Handfijáls búnaður Hlaóinn aukabúnaði! Taska, bílhieðsla, handfijáls búnaður og festing í bíl fylgir með. Verð aðelns 17.900 26.900 NOKIA 5110 Hlaðinn aukabúnaði! Taska, bílhleðsla, handfrjáls búnaður og festing í bíl fylgir með. •* t

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.