Morgunblaðið - 31.08.1999, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Afram forsæt-
isráðherra!
EINS og lands-
mönnum er kunnugt
er forsætisráðherra
reiður. Tilefnið er sá
óvenjulegi atburður að
fyrirtæki seldi öðru
fyrirtæki hlut í þriðja
fyrirtækinu. Almenn-
ingi er vitaskuld
^ brugðið og fínnur til
með forsætisráðherra.
Sem betur fer er þó
hugsanlegt að hinn vá-
legi atburður muni
verða þess valdandi að
framþróun muni eiga
sér stað í íslensku at-
vinnulífi. Ástæðu
þessa, að ég tel, er að fínna í um-
mælum forsætisráðherra. Það er
að vísu svo að ummæli forsætisráð-
herra í máli Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins (FBA) hafa verið fjöl-
breytileg og skoðanir hans ýmist
til austurs eða vesturs. Oft hefur
verið erfitt að henda reiður á öðru
en að ráðherrann væri mjög reiður.
- En með góðum vilja og töluverðri
yfirlegu má hins vegar greina í um-
mælum forsætisráðherra hugsan-
lega viðhorfsbreytingu að því er
varðar samþjöppun valds í íslensku
viðskiptalífi.
Dreifð eignaraðild
Þó að því megi halda fram með
gildum rökum að fá ef nokkurt ís-
lenskt fjármálafyrirtæki starfi í
meiri samkeppni en FBA tek ég
undir þá skoðun forsætisráðherra
að óæskilegt sé að einstaka hlut-
hafar hafi of mikil áhrif í fjármála-
fyrirtækjum og það
beri að stefna að eins
dreifðri eignaraðild að
þeim eins og kostur er.
Ef skoðun forsætisráð-
herra byggist á því
grundvaÚarviðhorfi að
of mikil samþjöppun
valds í íslensku við-
skiptalífi sé skaðleg
samfélaginu þá fæst
ekki séð að hann geti
látið staðar numið við
þessi viðskipti heldur
hlýtur þegar í stað að
hefja ítarlega leit með
ráðuneyti sínu að leið-
um tÚ að tryggja
dreifða eignaraðild að mikilvægum
fyrirtækjum í íslensku atvinnulífi. í
því verki á forsætisráðherra fullan
stuðning minn og vonandi allra
annarra sem aðhyllast frjálsa sam-
keppni og vilja heilbrigt atvinnulíf.
Verk að vinna
Þar sem forsætisráðherra hefur
áhyggjur af samþjöppun valds inn-
an FBA, sem þó starfar í alþjóð-
legu samkeppnisumhverfi, þá hlýt-
ur hann að vera heltekinn af kvíða
vegna fákeppni á samgöngumark-
aðinum. Stærsta skipafélagið sem
stjórnað er af fáum drottnar yfir
flestum þáttum samgangna. Það á
ráðandi hlut í stærsta flugfélaginu
og stundar það markvisst að kaupa
upp keppinauta sína jafnframt því
að kaupa sér áhrif hjá viðskiptavin-
um sínum. Því segi ég, áfram for-
sætisráðherra á samgöngumark-
aðnum! Fleiri dæmi má nefna. Fá-
Lúðvík
Bergvinsson
Fjárfestingarbankinn
Ég vona að forsætis-
ráðherra sé nú í
hjarta sínu þeirrar
skoðunar, segir Lúðvík
Bergvinsson, að sam-
þjöppun valds sé hinni
íslensku þjóð til ills.
keppni og samþjöppun valds ríkir á
tryggingamarkaðnum. Hið sama á
við um olíumarkaðinn. Þar er verk
að vinna, forsætisráðherra. Til
stendur að selja Landssímann sem
gín yfir fjarskiptamarkaðinn. I því
máli hefur forsætisráðherra ein-
stæða möguleika til að tryggja
dreifða eignaraðild og vinna gegn
samþjöppun valds á gífurlega mik-
ilvægu sviði. Látum ekki eyði-
leggja fyrir okkur einkavæðingará-
formin á því sviði, hr. forsætisráð-
herra.
Öflugur
bandamaður
Ég er ekki einn af þeim sem trú-
ir því að viðbrögð forsætisráðherra
í ÉBA-málinu séu byggð alfarið á
því að vinir og hans greiðendur í
gullkistu Sjálfstæðisflokksins hafi
ekki fengið banka sem búið var að
lofa þeim. Þess í stað tel ég, eða
a.m.k. vona, að forsætisráðherra sé
nú í hjarta sínu þeirrar skoðunar
að samþjöppun valds sé hinni ís-
lensku þjóð til ills. Sé skilningur
minn réttur höfum við jafnaðar-
menn öðlast öflugan bandamann í
baráttunni fyrir heilbrigðri sam-
keppni í íslensku atvinnulífi. Því
segi ég; áfram forsætisráðherra.
Höfundur er alþingismaður.
Skólavörubúðin
Sérverslun fyrir alla fróðleiksfúsa
Hjá okkurfœrðu:
Kennsltfforrit
Námsbœkur
Rifföng
Skólatqflur
Kennslutœki
Kortabrautakerfl
Sérkennslugögn
Myndvarpa og segulbönd
Tómstundavörur
Landakort ojl. ojl....
• Við bjóðum eirmig upp á sérpöntunarþjónustu
• Verið velkomin t Skólavörubúðina, sérverslun
með námsgögn og kennslutœki.
• Við hlökkum til að þjónustaykkur.
Skólavörabúðin
Lasgavcgi 166 - 105 Reyfcjatvík
Sími 552 80®» - Símbrétr 562 4137
• •
Orlagadagur í
handritamálinu
MEÐ nokkurri furðu hef ég lesið
tvær greinar eftir gamlan íslands-
vin og ótrauðan stuðningsmann
okkar Islendinga í
handritamálinu, Bent
A. Koch ritstjóra,
vegna bókar Sigrúnar
Davíðsdóttur um þetta
mál, sem ég hef reynd-
ar ekki séð. Satt að
segja þykir mér heldur
óviðfelldið að fara að
metast um það hver
hafi átt stærstan eða
minnstan þátt í farsælli
lausn þessa máls, sem
verður Dönum til
ævarandi sóma.
Hins vegar vöktu við-
brögð Gylfa Þ. Gísla-
sonar, fyrrverandi
menntamálaráðherra,
þess manns sem að öðrum ólöstuð-
um var í lykilhlutverki af hálfu okkar
Islendinga við iausn þessa fordæma-
lausa máls, minni furðu mína.
Þannig var, að faðir minn, Einar
Olafur Sveinsson, var formaður ráð-
gjafanefndai' ríkisstjómarinnar í
þessu máli. Ég fór til Parísar frá
Stokkhólmi um það leyti sem þetta
gerðist í apríl 1961 og varð þess
áskynja í símtali, að faðir minn var
að fara í eins konar leyniferð sem
hann vildi þá ekki segja mér deili á.
Atvik höguðu því þannig, að þá síðar
um vorið átti hann leið til Parísar
vegna fyrirlestrahalds og þá gat ég
spurt hann út úr um þetta mál, því
að mig grunaði að hér hefði verið
fjallað um handritamálið. Hann
sagði mér þá frá þessum tveimur
GÓLFEFNABÚÐIN
Mikið úrval
fallegra flísa
Borgartún 33 • RVK
Laufásgata 9 • AK
handritum, Edduhandriti og Njálu-
handriti, sem hann hefði stungið upp
á við ríkisstjómina, áður en lagt var
upp til Kaupmanna-
hafnar, að Dönum yrðu
boðin, ef allt færi í hnút,
og að ríkisstjómin hefði
samþykkt þessa uppá-
stungu. Hann kallaði
hana „leynivopnið“.
Hann bætti við: „Þetta
átt þú að muna, ef ein-
hverju öðra verður ein-
hvem tímann haldið
fram.“
Ég man líka mín
fyrstu viðbrögð við
þessum tíðindum:
„Tímdirðu að láta
Njálu af hendi?" spurði
ég. „Við eigum aðrar
Njálur," sagði þá Einar
Olafur og brosti.
Þó að nú hafi verið rituð bók til að
„skýra mikilvægt hlutverk Sigurðar
Nordals á þessum lokaspretti", eins
Handritin
Hann sagði mér frá
þessum tveimur hand-
ritum, segir Sveinn
Einarsson, Edduhand-
riti og Njáluhandriti.
og Bent Koch kemst að orði í Morg-
unblaðinu 28. ágúst sl., sé ég ekki að
það rýri álit þess mikilhæfa fræði-
manns, þó að ég efni hér með þetta
heit við föður minn, sem kemur
heim og saman við orð Gylfa Þ.
Gíslasonar í Morgunblaðinu 18.
ágúst sl., og minni á, að fleiri komu
að þessu máli. Öllu þarf að halda til
haga í annálum.
Höfundur er fv. leikhússtjóri.
^mb l.i is
ALL.TAf= EITTHtSAÐ NYTl
Einar Ólafur
Sveinsson
Leitaðu ekki langt yfir skammt
Islenskir vefir eiga heima á Vefskinnu