Morgunblaðið - 01.09.1999, Qupperneq 1
196. TBL. 87. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Allt veltur á
leiðtogunum
Jerúsalem. Reuters.
ÍSRAELSKIR og palestínskir
samningamenn hafa að mestu geng-
ið frá samkomulagi um framkvæmd
Wye-sáttmálans um landaafsal í
skiptum fyrir öryggisráðstafanir og
er það nú undir Yasser Arafat og
Ehud Barak komið að reka smiðs-
höggið á samninginn, að því er haft
var eftir embættismönnum beggja
aðila í gær.
Wye-sáttmálinn, sem Bandaríkja-
menn höfðu miiligöngu um, hefur
verið að engu hafður undanfama
átta mánuði. Arafat, forseti heima-
stjórnar Palestínumanna, og Barak,
forsætisráðherra Israels, ræddust
við í síma á mánudag.
Sögðu embættismenn í gær að
líklegt væri að leiðtogamir myndu
eiga frekari fundi og reyna að ná
sáttum svo að þeir gætu undirritað
formlegt samkomulag ásamt Mad-
eleine Albright, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, í Alexandríu í
Egyptalandi á morgun.
Helstu ásteytingarsteinarnir
væra fjöldi þeirra palestínsku fanga
sem látnir yrðu lausir úr ísraelskum
fangelsum og dagsetning brottflutn-
ings ísraelskra hermanna frá Vest-
urbakkanum í byrjun næsta árs.
„Við eram nú á því stigi að öll
óleyst ágreiningsefni [...] era mál
sem ekki verða leyst með samninga-
viðræðum," sagði Saeb Erekat, að-
alsamningamaður Palestínumanna,
í samtali við Reuters í gær. „[Þessi
mál] ki-efjast pólitískra ákvarðana."
Haft var eftir háttsettum ísra-
elskum embættismanni að þessi
málefni væra svo smávægileg að
ágreiningur um þau væri „fáránleg-
ur“. Wye-sáttmálinn var undirritað-
ur í október í fyrra af Arafat og
Benjamin Netanyahu, þáverandi
forsætisráðherra Israels. Netanya-
hu hefti framkvæmd sáttmálans
tveim mánuðum síðar eftir að hafa
afhent um það bil tvö prósent lands
á Vesturbakkanum heimastjóm
Palestínumanna.
Samkvæmt sáttmálanum bar
Israelum að verða á brott frá 13%
lands á Vesturbakkanum gegn til-
teknum öryggisráðstöfunum af
hálfu Palestínumanna. Þá var
einnig kveðið á um, án nákvæmra
útlistana, að Israelar létu lausa 750
palestínska fanga í þrem áföngum.
Israelskir samningamenn hafa
hingað til ekki viljað að fleiri en 500
fangar verði látnir lausir, en Palest-
ínumenn krefjast þess að fá 650
leysta úr haldi. Deilan stendur nú
um 50-60 fanga, að því er ísraelskir
embættismenn sögðu í gær.
Framkvæmd atkvæðagreiðslu um framtíð A-Tímor lofuð
Ottast aðgerðir and-
stæðinga siálfstæðis
Dili, Sameinuðu þjóðunum, Jakarta. Reuters, AP,
UTANRÍKISRÁÐHERRA
Indónesíu, Ali Alatas, lofaði í gær
framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar á Austur-Tímor og vísaði á
bug ásökunum sameiningarafla
andstæðinga sjálfstæðis þess efnis
að starfsmenn eftirlitssveita Sam-
einuðu þjóðanna (SÞ) hefðu sýnt
hlutdrægni við störf sín. Sagði
David Wimhurst, talsmaður yfir-
stjómar eftirlitssveita SÞ, orðróm
Þing Venes-
úela svipt
völdum
Caracas. AFP.
STJÓRNARSKRARSAMKUNDA
Venesúela hefur svipt þing lands-
ins nær öllum völdum og segir
stjórnarandstaðan í landinu að til-
skipunin geri það að verkum að
Hugo Chavez, forseti landsins, sé
nú í raun einráður í stjórnmálalífi
landsins. í liðinni viku voru völd
þingsins skert verulega og sögðust
stjórnvöld hafa gripið til þeirra að-
gerða til að stemma stigu við út-
breiddri spillingu innan stjórnkerf-
AFP.
um að þrír starfsmenn SÞ hefðu
verið myrtir í umsátri herskárra
uppreisnarmanna í bænum Gleno
ósannan. Var um 150 starfsmönn-
um SÞ haldið í gíslingu í sex
klukkustundir en þeim síðan leyft
að halda til höfuðborgarinnar Dili.
Eru sveitir andstæðinga sjálfstæð-
is sagðar hafa safnast saman víða
og talin hætta á að til frekari of-
beldisverka geti komið á næstu
dögum.
Framkvæmdastjórn SÞ og ríkis-
stjórnir á Vesturlöndum fögnuðu í
gær mikilli kosningaþátttöku í at-
kvæðagreiðslunni á mánudag, en
samkvæmt nýjustu tölum er talið
að um 99% skráðra kosningabærra
manna hafi mætt á kjörstað.
Fréttaskýrendur telja þátttökuna
til marks um vilja mikils meiri-
hluta íbúa landsins til að slíta
ríkjasambandi við Indónesíu og
öðlast sjálfstæði eftir 23 ára ógn-
arstjórn sem kostað hefur rúmlega
200.000 manns lífið. „Það var met-
þátttaka. Það hefði ekki gerst ef
þjóðin vildi búa við óbreytt
ástand,“ sagði talsmaður mann-
réttindasamtaka er starfa á eyj-
unni.
Sameiningaröfl andstæðinga
sjálfstæðis sem aðhyllast áfram-
haldandi ríkjasamband við
Indónesíu kröfðust þess í fréttatil-
kynningu í gær að kosningarnar
yrðu ógiltar og sökuðu starfsmenn
eftirlitssveita SÞ um hlutdrægni.
Saka andstæðingar sjálfstæðis
starfsmenn SÞ um að hafa stutt við
bakið á sjálfstæðissinnum og reynt
að tala um fyrir óákveðnum að
kjósa sjálfstæði. Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri SÞ, hvatti fólk eftir
kosningarnar á mánudaginn til að
sýna stillingu og una niðurstöðu
kosninganna hver sem hún yrði.
Úrslit kunngerð
að viku liðinni
Búist er við að úrslit atkvæða-
greiðslunnar verði gerð kunn að
viku liðinni. Atkvæði voru í gær
flutt með þyrlum SÞ til höfuðstað-
arins Dili þar sem talning hefst í
dag. Ef niðurstaða atkvæðagreiðsl-
unnar er sú að meirihluti íbúa hef-
ur kosið sjálfstæði ber stjórnvöld-
um Indónesíu að gera stjómar-
skrárbreytingu þess efnis og bera
niðurstöðurnar undir þjóðþingið,
en búist er við að það fjalli um mál-
ið um miðjan október næstkom-
andi. Sérfræðingar telja að ferli
stjórnai-farsbreytinganna geti var-
að í allt að fimm ár og að SÞ muni
halda um stjórnartaumana svo
lengi er þörf krefur.
Reuters
Flugeldar í
Kúala Lúmpúr
FLUGELDAR lýstu upp hæstu
byggingu heims í gær, Petronas-
tvíburaturnana í Kúala Lúmpúr í
Malasíu, þegar húsin voru form-
lega opnuð á þjóðhátíðardegi
landsins. Forsætisráðherrann,
Mahathir Mohamad, stjórnaði at-
höfninni, en Malasía hlaut sjálf-
stæði frá Bretum 1957.
Undu sér
betur hjá
»nýju“
mönnunum
Peking. The Daily Telegraph.
VOPNIN snerust heldur bet-
ur í höndunum á fjórum kín-
verskum smábændum nýverið
eftir að þeir höfðu gert tilraun
til að hafa fé af öðram körlum
með því að „selja“ þeim eigin-
konur sínar. Konurnar ákváðu
nefnilega að þær yndu sér
mun betur hjá „nýju“ mönn-
unum.
Raunir bændanna fjöguraa
urðu fréttaefni eftir að þeir
leituðu aðstoðar lögreglunnar
til þess að endurheimta eigin-
konur sínar.
AUar áttu konurnar börn og
heimili í Guizhou en eiginmenn
þeirra voru hins vegar svo
snauðir að þeir skipuðu þeim
að afla heimilinu tekna. Fóru
þær á stúfana með þau fyrir-
mæli í farteskinu að segjast
vera einstæðar eða fráskildar.
Eftir skamma hríð giftust þær
mönnum í öðra þorpi og
tryggðu bændunum fjóram
heimanmund upp á samanlagt
eitt hundrað þúsund krónur.
Fengu sitt fram
Hugðust bændurnir koma
og endurheimta konurnar eft-
ir tvo mánuði, en á daginn
kom að þær höfðu það mun
betra hjá nýjum eiginmönn-
um, vildu engan veginn snúa
aftur í örbirgðina og kröfðust
skilnaðar.
Það fylgir hins vegar sög-
unni að bændumir fjórir höfðu
sitt fram á endanum þegar ný-
ir eiginmenn kvennanna höfðu
áttað sig á því að brögð hefðu
verið í tafli. Óvíst er hins vegar
að fjórmenningarnir þori að
leika sama leikinn aftur.
y regELy-iMj íí'JÍÆ, mMBPg wSi
-omw sen
—'■ r;
Sprenging í Moskvu
AP
Moskvu. AP, Reuters.
ÖRY GGISLÖGREGLUMENN
hefja rannsókn á sprengingu
sem varð í tölvuleiktæki í stórri
verslanamiðstöð í miðborg
Moskvu í gærkvöldi. Að sögn
lögreglu slösuðust að minnsta
kosti tuttugu manns, þar af fjór-
ir eða fimm alvarlega. Ekki var
ljóst hver orsök sprengingarinn-
ar var. Að sögn rússnesku frétta-
stofunnar Itar-Tass hefur sak-
sóknari í Moskvu hafið rannsókn
á orsökum sprengingarinnar og
talið er mögulegt að um
sprengjutilræði hafi verið að
ræða. Verslanamiðstöðin er neð-
anjarðar og staðsett við Kreml-
armúra. Júrí Lúzkov, borgar-
stjóri í Moskvu, fullyrti að um
hryðjuverk væri að ræða og
sagði að hinum seku yrði refsað.
Algengt. er að glæpaflokkar
grípi til sprengjutilræða til að
jafna sakir við keppinauta.