Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 27

Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 27 ERLENT ^ Reuters A leið í nautahlaup KNAPAR á þeysireið niður þurrar og rykugar brekkurnar ofan við borgina Cuellar á Spáni í til- efni af víðfrægu nautahlaupi borgarinnar sem er liður í árlegum hátíðahöldum. A hverjum morgni er nautunum sleppt lausum og þau rekin inn í þröng stræti borgarinnar þar sem hið eiginlega nauta- hlaup hefst. Borgaryfirvöld í Cuellar segja að nautahlaupið þar sé hið elsta sinnar tegundar og fagna því í ár að 500 ár séu liðin frá fyrsta nauta- hlaupinu. Mikil verðhækk- un á vmdlingum Astæðan bótagreidsliir tóbaksfyrir- tækjanna, um 18.000 milljarðar kr. Richmond. AP. VERÐ á tóbaki hefur hækkað verulega í Bandaríkjunum að und- anförnu og búist er við enn meiri hækkunum á næstunni. Stafa hækkanirnar af þeim gífurlegu upphæðum, sem tóbaksfyrirtækin hafa fallist á að greiða sem eins konar bætur fyrir óhollustuna, en þær svara til nærri 18.000 millj- arða ísl. kr. Heildsöluverð á bandarískum vindlingum hefur hækkað um rúm- lega 13 kr. ísl. og búist er við, að innan skamms muni smásöluverðið hækka um rúmar 16 kr. Vindlinga- pakkinn vestra kostar nú frá 182 kr. og upp í 237 kr. eftir því hvar í landinu er. Talsmaður Philip Morr- is, stærsta tóbaksframleiðanda í heimi, gaf til kynna fyrir síðustu helgi, að ný hækkun væri á döfinni og talsmenn annarra tóbaksfyrir- tækja staðfestu það einnig. Verður væntanleg hækkun sú næstmesta í sögu bandarísks tóbaksiðnaðar á eftir hækkuninni í nóvember sl. en þá hækkaði verð á hverjum pakka um nærri 33 kr. ísl. Kom sú hækk- un í kjölfar samninga tóbaksiðnað- ai-ins við 46 ríki um 15.000 millj- arða kr. bætur en áður hafði hann fallist á að greiða fjórum ríkjum tæplega 3.000 milljarða kr. Um næstu áramót og aftur eftir rúmlega tvö ár munu opinberir skattar á vindlingum hækka og kostnaður fyrirtækjanna vegna samninganna við ríkin mun aukast á nokkrum næstu árum. Þau hafa þó dálítið borð fyrir báru ef marka má markaðsfræðinga, sem segja, að sagan sýni, að hækkun upp á 8% svo tekið sé dæmi dragi aðeins úr eftirspurn um 2%. Jórdanar þjarma að starfsemi Hamas Vladimír Akopian frá Armeníu og Rússinn Alexander Khah'fman að tafli í einvíginu í Ceasar’s Palaee í Las Vegas. Fyrrverandi heimsmeistarar stefna FIDE FYRRVERANDI heimsmeistarar í skák, í opnum flokki og kvenna- flokki, hafa stefnt Alþjóðaskáksam- bandinu, FIDE. Anatolí Karpov krefst þess m.a. í stefnu sinni að sigurvegarinn í heimsmeistaramót- inu, sem lauk um helgina í Las Veg- as, tefli við sig einvígi um heims- meistaratitilinn. Þá hefur Zsuzsa Polgai' fyrrver- andi heimsmeistari í skák stefnt FIDE og heldur því fram að sam- bandið hafi svipt sig titlinum ólög- lega. Hún fór fram á að einvígi um titilinn, sem háð var í mars, yrði frestað meðan hún væri að jafna sig eftir bamsburð, en á það hafi FIDE ekki fallist og það sé ólöglegt. FIDE heldur því hins vegar fram að Polgai' hafi haft næg tækifæri til að keppa um titilinn en hreinlega ekki viljað það. Kirsan Ilyumzhinov forseti FIDE hengdi gullverðlaun um háls Alex- anders Khalífmans í Las Vegas á sunnudag í lokahófi heimsmeistara- mótsins í skák, en Khalífman vann Vladimír Akopian í sex skáka ein- vígi um titilinn í sjöundu lotu út- sláttarkeppi sem hófst fyrir mánuði. Hvorki Garrí Kasparov, stigahæsti skákmeistari heims, né Anatolí Kar- pov fyi-rverandi heimsmeistari, tóku þátt í mótinu. Karpov lagði fram stefnu fyrir áfrýjunardómstóli íþrótta í Laus- anne í Sviss. Hann heldur því fram að FIDE hafi brotið samninga og krefst 1 milljónar dollara í skaða- bætur. I stefnunni segist Karpov ekki hafa fengið réttmætt tækifæri til að verja heimsmeistaratitilinn. Hann segir að embættismenn FIDE hafi hvorki ráðfært sig við hann um dag- setningar mótsins né þátttöku hans í mótinu. Gerir Karpov kröfu um að sigurvegarinn í Las Vegas mæti sér í einvígi um titilinn. Til þessa hefur verið háð langt einvígi um heimsmeistaratitilinn milli heimsmeistarans og áskoranda sem vinnur sér rétt í þriggja ára ferli. FIDE telur að slíkt kerfi sé úrelt og ætlar að láta keppa árlega um heimsmeistaratitilinn með sama sniði og gert var í Las Vegas. Emmanuel Omuku aðstoðarfram- kvæmdastjóri FIDE segir að sam- bandið muni ekki lengur láta stjóm- ast af duttlungum heimsmeistar- anna. Þeir verði að hlýta sömu regl- um og aðrir skákmenn vilji þeir taka þátt í heimsmeistaramóti. A meðan þessu fer fram nýtur Khalífman óvæntrar frægðai'. I frétt AP-fréttastofunnar segir að á sunnudag hafi hann brosað meira en hann hafi gert allan þann mánuð sem mótið stóð yfir. Hann hlaut jafnvirði 4,8 milljóna króna í verð- laun og þegar fréttamenn spurðu hann hvað hann ætlaði að gera við féð sagðist hann ekki vita það. „En konan mín er hagsýn húsmóðir og mun ekki eyða því öllu á rnánuði." Gaza, Amman. Reuters, AP. STJÓRNVÖLD í Jórdaníu skipuðu í gær fyrir um handtöku fjögurra leiðtoga Hamas-hreyfingarinnar palestínsku en í fyrradag létu þau loka skrifstofum hennar í Amman, höfuðborg Jórdaníu. Háttsettur Hamas-maður á Gaza sagði í gær, að með aðgerðunum vildi Jórdaníu- stjóm þóknast Madeleine Albright, utanríldsráðherra Bandaríkjanna, en hún er væntanleg til Amman á morgun. Meðal Hamas-leiðtoganna, sem Jórdaníustjórn lýsir eftir, er Khalid Mashaal, yfirmaður stjórnmála- skrifstofu hreyfmgarinnar og æðsti fulltrúi hennar í Jórdaníu. Komst hann lífs af 1997 er ísraelskir leyni- þjónustumenn reyndu að ráða hann af dögum. Talið er, að hann og fé- lagar hans þrír séu nú staddir í Sýr- landi og með handtökutilskipuninni sé verið að koma í veg fyi’ir, að þeir Adapazari, Istanbul. Reuters, AP. STERKUR jarðskjálfti varð í Norð- vestur-Tyrklandi í gærmorgun, á sömu slóðum og stóri skjálftinn fyr- ir hálfum mánuði, og olli hann mik- illi skelfingu meðal fólks. Flýðu margir úr húsum sínum og vitað er einn mann, sem beið bana. 166 slös- uðust. Skjálftinn í gær var 5,2 stig á Richters-kvarða eða sá öflugasti frá því í hamförunum 17. ágúst. Þá fór- ust a.m.k. 14.202 menn en allt að 30.000 manna er saknað. Um 600.000 manns misstu heimili sitt. Varð borgin Izmit verst úti. Skjálftinn í gær átti einmitt upp- tök sín við Izmit og á hæla honum kom annai' skjálfti, sem var 4,6 að styrkleika. Fundust þeir báðir í Ist- anbul, sem er í 80 km fjarlægð. Olli skjálftinn mikilli skelfingu meðal íbúanna, sem þustu út á götu af ótta við, að húsin, sem stóðust jarðhrær- ingarnar fyrir hálfum mánuði, komi aftur til Jórdaníu. Er þeim gefið að sök að tilheyra ólöglegum samtökum. Ismail Abu Shanab, háttsettur Hamas-maðui' á Gaza, sagði í gær, að tilgangurinn með aðgerðunum væri að þjarma að Hamas og þókn- ast Bandaríkjamönnum. Þeir og Israelar líta á hreyfinguna sem hryðjuverkasamtök og hafa lagt hart að palestínskum ráðamönnum og Jórdönum að uppræta hana. Er hún mjög andvíg friðarsamningun- um frá 1993 og hefur drepið marga Israela í sjálfsmorðsárásum. Greitt fyrir samningum? Jórdönsk yfirvöld segja, að Hamas-skrifstofunum í Amman hafi verið lokað vegna þess, að þær væru skráðar sem fyrirtæki en hefðu verið notaðar fyrir stjómmálastarfsemi. Jórdaníustjóm hefur lengi amast við Sextán bygg- ingaverktakar hafa verið handteknir kynnu að hrynja nú. I bænum Adapazari var nokkuð um, að hálf- hranin hús eða skemmd hryndu al- veg. Einn maðui' lést í Izmit er hann varð undir braki úr húsi, sem hrandi, og að minnsta kosti 166 slösuðust. Vetur á næstu grösum Vetur gengur í garð í Tyrklandi eftir hálfan annan mánuð og fyrir þann tíma verða stjórnvöld að finna nýtt húsnæði fyrir um 600.000 manns. Sumt af þessu fólki á raunar starfsemi Hamas í landinu en Abu Shanab sagði, að Múslímska bræðra- lagið í Jórdaníu, öflug samtök, sem hafa söguleg tengsl við konungsætt- ina og einnig við Hamas, myndi reyna að bera sáttarorð á milli. Shanab sagði, að Hussein heitinn konungur hefði lengi varið rétt Hamas til að vera með starfsemi i Jórdaníu en hugsanleg ástæða fyrir aðgerðunum nú er væntanlegt sam- komulag Israela og Palestínumanna um brottflutning ísraelsks herliðs frá Vesturbakkanum. Þeim sé þvi ætlað að greiða fyrir því, að samn- ingar takist. Róttæk samtök Palestínumanna og talsmenn ýmissa kommúnista- flokka í arabaríkjunum fordæmdu í gær aðgerðh' Jórdaníustjórnar og stjórnarandstaðan þar í landi sagði, að með þeim væri verið að draga úr pólitísku frelsi í landinu. húsin sín uppistandandi en sum eru löskuð og inn í önnur þorir fólk ekki þótt ekkert sé á þeim að sjá. Óttast það, að sprungur kunni að leynast í þeim. Fulltrúai' erlendra ríkja og stofn- ana eru nú að meta fjárhagstjónið af völdum jarðskjálftanna í Tyrk- landi en tyrkneskir embættismenn áætla, að það sé um 730 milljarðar ísl. kr. Verktakar í varðhaldi Sextán verktakar, sem sakaðir era um efnissvik varðandi bygging- ar á jarðskjálftasvæðunum, voru handteknir í gær og eru þá alls 22 verktakar í gæsluvarðhaldi. Er 11 enn leitað en talið, að sumir þeirra hafi týnt lífi í stóra skjálftanum. Verða mennirnir sakaðir um að bera ábyrgð á dauða 117 manna í 29 húsum. • • Oflugur skjálfti í Norðvestur-Tyrklandi Einn maður lést og tugir slösuðust

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.