Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 33

Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 33 andi nenn- ennin gang að heilaslagdeild." Albert fullyrðir að heilaslagdeildir leiði ekki til aukins kostnaðar þar sem einungis sé um að ræða endur- skipulagningu á þjónustu sem þegar er veitt innan heilbrigðiskerfísins. Upplýsii’ hann ennfremur að heilaslagdeildh’ hafí verið í uppbygg- ingu bæði á taugasjúkdómadeild Landspítalans og Sjúkrahúss Reykjavíkur á síðustu árum. Segaleysandi meðferð Fram kemur hjá Alberti að erlend- is sé farið að beita í auknum mæli segaleysandi meðferð í baráttunni gegn heilablóðþurrð og nýlega hófst notkun lyfsins einnig á taugalækn- ingadeild Landspítalans. „Slík með- ferð leiðii- til þess að a.m.k. 30% fleiri sjúklingar hafa litla sem enga fötlun síðar meir og eru fullkomlega sjálf- bjarga," segir hann. En hvernig er þessi svokall- aða segaleysandi meðferð? „Meðferðin felst í því að gefa lyfið t-PA (tissue plasminogen activator) í æð, en það leiðir til þess að blóðtappi í heilaæð leysist upp þannig að blóðflæði komist aftur á og staðbundið svæði £ heila deyi ekki,“ segir Albert en tekur fram að með- ferðin eigi því miður aðeins við hjá minnihluta sjúklinga með heilablóðþun-ð þar sem einung- is um 5% sjúklinga koma nógu tímanlega til meðferðar. „Nauðsynlegt er að þessi meðferð sé í höndum sérfræð- inga, þar sem hún er ekki hættulaus vegna aukinnar hættu á heilablæðingum. Beita þarf segaleysandi meðferð inn- an þriggja klukkustunda frá upphafi einkenna til þess að hún komi að gagni. Því er mik- ilvægt að fólk sé vel upplýst um og hver einkenni heilaslags eru og leiti nægOega fljótt til læknis svo hægt sé að bjóða upp á slíka meðferð." Eftirmeðferð mikilvæg Að lokum fjalla þeir Elías og Albert um mikilvægi þess að sjúklingar sem fá heilaslag njóti fullnægjandi eftirmeð- ferðar hjá taugasjúkdómalækn- um eftir að þeir útski’ifast. „Tryggja þai’f fullnægjandi meðferð áhættuþátta þannig að minni líkur séu á að sjúklingur fái aftur heilaslag. Einnig er mikilvægt að vera á varðbergi gagnvart ýmsum fylgikvillum sem upp kunna að koma,“ segir Albert og nefnir sem dæmi þunglyndi, en það hrjáir þriðj- ung sjúklinganna. „Miklu skipt- ir að greina þunglyndi og með- ■ila- höndla, en það torveldar ann- ars endurhæfingu." Þeh’ segja einnig mikilvægt að sjúklingar fái nauðsynlega þjálfun eftir áfallið, fyrst á sjúkrahúsinu, og er það hluti af starfsemi heilaslag- deildarinnar, en síðan sé mikilvægt að útskrifa sjúklingana heim eins fljótt og mögulegt er. „Heppilegast væri að geta sinnt þessum sjúkling- um á göngudeild taugalækninga- deildar þannig að sjúklingur fengi þar nauðsynlega þjónustu, þ.m.t. þjálfun, eftir að heim er komið,“ segir Elías. „Mikilvægt er að vinna að áframhaldandi uppbyggingu á þjón- ustu fyrir heilaslagssjúklinga á taugalækningadeild Landspítalans og hefur það mætt skilningi meðal stjómenda spítalans. Unnið er að uppbyggingu heilaslagdeildar og göngudeildar, en niðurskurður á taugalækningadeildinni um nær helming á síðasta ári auk viðvarandi skorts á hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum hefur tafið þessa þróun,“ segir Elías að lokum. 1 ísfélagið og Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum undirrita viljayfírlýsingu um sameiningu Morgunblaðið/Sigurgeir Nýtt fyrirtæki mun ráða yfír 20 þúsund þorskígildistonnum Mjög öflugt sjávarútvegsfyrirtæki verður til með sameiningu Isfélags Vestmannaeyja hf., Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum, -----------------------------7------------ Krossaness hf. á Akureyri og Oslands ehf. á Hornafírði, en félögin hafa undirritað viljayf- irlýsingu um sameiningu í eitt félag. Verði af samruna fyrirtækjanna mun fyrirtækið ráða yfír 20 þúsund þorskígildistonna kvóta. SAMEINAÐ félag mun hafa til umráða um 15% heildar- loðnukvótanum. F orsvars- menn fyrirtækjanna tveggja í Vestmannaeyjum segja hagkvæmni- sjónarmið ráða mestu um sameining- una en þau fari um leið saman við hagsmuni byggðarlagsins. Samþykki stjórnir félaganna vilja- yfirlýsingu um samruna ber þeim að leggja tillögu þess efnis fyrir hlut- hafafundi eða aðalfundi. Því má búast við að endanleg staðfesting á sam- runa fáist ekki fyrr en seint í haust, að loknum aðalfundum í Isfélagi Vestmannaeyja hf. og Vinnslustöð- inni hf. Stefnt er að því að skrá félag- ið á Verðbréfaþing Islands en Vinnslustöðin hf. er nú þegar á aðall- ista þingsins en Krossanes hf. á vaxt- arlista. Ræður 15% loðnukvótans Verði af sameiningunni verða fjór- ar fiskimjölsverksmiðjur í eigu hins nýja félags. Krossanesverksmiðjan er á Akureyri, Ósland á nýja bræðslu á Höfn og ísfélagið og Vinnslustöðin eiga sína bræðsluna hvort í Vest- mannaeyjum. Samtals er afkastageta allra verksmiðjanna um 3.500 tonn á sólarhring. Nýja fyrh’tækið mun ráða yfir 15% af loðnukvótanum en sam- kvæmt lögum um stjórn fiskveiða má ekkert fyrirtæki eiga meira en 20% af kvótanum. Miðað við upphafskvóta sem Hafrannsóknastofnun hefur út- hlutað á loðnu mun hið nýja fyrirtæki ráða yfír um 120 þúsund tonnum af loðnukvóta. Er því ljóst að fyrirtækið mun eiga mikla möguleika fyrir sér í veiðum og vinnslu á loðnu og öðrum uppsjávartegundum. Það mun einnig hafa yfir að ráða umtalsverðum bol- fiskkvóta, þar af um 6.000 tonna þorskkvóta, 1.800 tonna ýsukvóta, 1.700 tonna ufsakvóta og um 3.500 karfakvóta. Sameinað félag mun gera út samtals 13 skip, þar af á Isfélag Vestmannaeyja hf. sjö skip en Vinnslustöðin hf. sex skip. Sameinað fyrirtæki mun eiga sex nótaveiðiskip en flest eru þau komin til ára sinna og væntanlega þyrfti fyrirtækið að endurnýja eitthvað af þeim skipum. Isfélag Vestmannaeyja hf. á rúm- lega 40% hlut í Krossanesi hf. en aðr- ir hluthafar, um 100 talsins, eiga minna en 10% hlut. Afkastageta verksmiðjunnar á Krossanesi er um 800 tonn á sólarhring. Þar starfa að jafnaði 16 til 20 starfsmenn. Þá á Ker hf., eignarhaldsfélag Olíufélagsins hf„ 80% hlut í Óslandi ehf. á móti 20% hlut Borgeyjar hf. á Hornafirði. Olíufélagið hf. er ráðandi hluthafi í Vinnslustöðinni hf. Starfsfólki Vinnslustöðvarinnar hefur fækkað umtalsvert í sumar en þar starfa nú um 150 manns. Hjá Is- félagi Vestmannaeyja hf. starfa nú samtals um 280 manns. Heildarvelta Vinnslustöðvarinnar hf. á síðasta ári var um 3,5 milljarðar króna en gera má ráð fyrir að veltan verði minni á þessu ári, einkum vegna samdráttar í loðnuveiðum. Heildarvelta ísfélags Vestmannaeyja hf. nam á síðasta ári um 2,5 milljörð- um króna og samanlögð heOdarvelta Krossaness hf. og Óslands ehf. nam um einum milljarði króna. Augljós samlegðaráhrif Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar- innar, segir tiltölulega einfalt að sam- eina umrædd fyrirtæki og samlegðar- áhrif þess að vera með eitt fyrirtæki í Vestmannaeyjum í stað tveggja séu augljós. Þar að auki hafí þessi félög yfir að ráða stórum loðnukvóta sem nýtist vel fiskimjölsverksmiðjum Krossaness hf. og Óslands ehf. Hann segir sameinað fyrirtæki verða mjög öflugt í veiðum og vinnslu uppsjávar- fiska en bolfiskvinnsla fyrirtækjanna tveggja í Vestmannaeyjum verði lík- lega með svipuðum hætti fyrst um sinn. „Við höfum að verulegu leyti lagt af frystingu og snúið okkur að mestu að saltfiskvinnslu. Þessu er hins vegar öfugt farið í Isfélaginu. Eg tel sameiningu vera góðan kost fyrir bæði fyrirtækin og þar af leiðandi fyrir byggðarlagið einnig," segir hann. Hagkvæmni- sjónarmið réðu Sigurður Einarsson, forstjóri Isfé- lags Vestmannaeyja hf„ segir hag- kvæmnissjónarmið hafa ráðið því að umrædd fyrirtæki hafi hugað að sam- starfi. „Þetta verður stórt og öflugt fyrirtæki sem mun ráða yfir um 20 þúsund þorskígildistonnum. Hags- munir fyrirtækjanna fara saman við hagsmuni fólksins og við vonum að þetta fyrirtæki muni eiga góða ævi fyrh’ höndum hér í Vestmanneyjum." Sigurður bætir við að honum hafi þótt starfsfólk fyrirtækjanna taka tíðindunum vel þegar þau voru kynnt fyrir þeim í gærmorgun. Sigurður segir að viðræðurnar hafi staðið yfir í stuttan tíma og enn sé nokkuð langt í land. „Viðræður hófust fyrir nokkrum vikum. Ekki er búið að ákveða hvenær málið verður komið í höfn en það verður borið und- ir stjórnir fyrirtækjanna á næstunni. Ef samruninn verður samþykktur mun hið nýja fyrirtæki verða stofnað og það verða skráð á Verðbréfaþingi íslands." Sigurður vildi ekkert segja um hvort önnur fyrirtæki ættu eftir að koma inn í sameiningarferlið. „Maður veit aldrei hvernig þau mál þróast. En þetta er kannski nóg í bili.“ Ólíkir viðskiptahættir Að sögn Sigurðar er ekkert hægt að fullyrða enn þá um hvemig sölu- málum fyrirtækisins verður háttað. ísfélagið og Vinnslustöðin hafa selt hjá ólíkum aðilum gegnum tíðina. Viðskipti Isfélagsins hafa að mestu farið gegnum Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna. Fyrirtækið átti um tíma talsverðan hlut í SH en hefur selt hann en haldið tryggð við fyrirtækið. Islenskar sjávarafurðir seldu afurðir Vinnslustöðvarinnar áður fyrr en undanfarin misseri hafa stjómendur fyrirtækisins leitað til annarra sölu- aðila í auknu mæli. Vinnslustöðin sel- ur mest í gegnum Norway Seafood og hefur viðhaldið ákveðnum sveigj- anleika í sölu - fyrirtækið selur með- al annars mjölafurðir sínar gegnum ÍS. Einnig má benda á að fyrirtækin kaupa olíu og tryggingar af mismun- andi aðilum. Stjórnendur koma til með að ráða framtíðarmöguleikum Heiðar Guðjónsson, verðbréfamiðl- ari hjá íslandsbanka, segir væntan- legan samruna vera stórfrétt í ís- lenskum viðskiptum. „Þetta hlýtur að vera mikið fagnaðarefni fyrir Vest- mannaeyinga. Möguleikar Vinnslu- stöðvarinnar voru margir. Þeir hefðu geta sameinast fyrirtækjum sem þeir falla pjög vel að, eins og Samherja eða ÚA, en ef það hefði gerst hefðu aflaheimildimar sennilega flust í ein- hverjum mæli frá Vestmannaeyjum. En með þessari sameiningu er tryggt að umsvifin verða fyrst og fremst í Eyjum. En ég hef það á tilfinning- unni þama séu arðsemisjónarmið á ferðinni en ekki byggðarsjónarmið.“ Heiðar segir möguleika hins nýja fyrirtækis mikla. „Það er engum blöðum um það að fletta að ef af sam- runanum verður á fyrirtækið mögu- leika á því að vera eitt það best rekna á íslandi. En áður en að hægt er að fullyrða um það verður að skýrast hvemig eignarhlutfallið verður í fyr- irtækinu. Eg held að það skipti miklu máli fyrir framtíð fyrirtækisins hvort Sigurður Einarsson verði við stjórn- völinn." Þegar fyrirtæki af þessari stærð- argi’áðu sameinast er nánast óumflýj- anlegt að einhverjar breytingar verði á rekstri þeirra að sögn Heiðars. Hann sér ýmislegt fyrir sér í þeim efnum. „Eg held að hið nýja fyrirtæki þurfi að breyta uppstillingu í rekstr- inum. Það stendur vel að vígi í bol- og uppsjávarfiski en samt sem áður er þöi’f á hagræðingu. Landvinnslan hefur gengið illa hjá Vinnslustöðinni og sennilega þyrftu þeir að færa hana að einhverju leyti út á sjó. Eg held að þeii’ ættu að taka Þorbjörn hf. í Gr- indavík sér til fyrirmyndar og vera með alla bolfiskvinnslu úti á sjó og með saltfiskvinnslu í landi. Fyrirtæk- ið stendur mjög vel í uppsjávarfiski en sennilega em fjórar bræðslur of mikið og væntanlega þyrfti að taka þau mál til skoðunar.“ Þýðir væntanlega ekki fækkun starfsfólks Jón Kjartansson, formaður Verka- lýðsfélags Vestmannaeyja, segir fyr- irhugaða sameiningu af hinu góða. Hann segist ekki eiga von á því að sameining fyrirtækjanna hafi mikla fækkun starfsfólks í för með sér, að minnsta kosti ekki verkafólks. „Það - hefur lengi legið í loftinu að hið illa stæða fyrirtæki, Vinnslustöðin hf„ væri auðveld bráð fyrir stóru risana í sjávarútveginum. Það hefði getað þýtt að kvóti félagsins færi frá Eyj- um og skilið íbúana eftir í sámm, eins og tíðkast nú til dags. Ég fagna því þess vegna mjög að kvótin verði áfram hér í byggðarlaginu," segir Jón.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.