Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLADIÐ
FRÉTTIR
Margrét Frímannsdóttir formaður Alþýðubandalags
Líklegt að sam-
tök verði stofnuð
TÓLF manna neíhd á vegum Sam-
fylkingarinnar hefur skilað af sér
hugmyndum um skipulagsmál Sam-
fylkingarmnar í náinni framtíð. Þess-
ar tillögur verða, að sögn Margrétar
Frímannsdóttur, formanns Alþýðu-
bandalagsins, kynntar innan ílokk-
anna á næstu vikum, ræddar í félög-
um þeirra og um þær fjallað á lands-
fundum í haust.
Margrét kveður ekkert liggja fyrir
um hvort eða hvenær flokkamir
verði lagðir niður og Samíylkingin
stofnuð sem flokkur eða samtök.
„Frá nefndinni eru bara komnar
nokkrar hugmyndir um hvemig
hægt er að standa að slíkri stofhun.
Auðvitað kemur að því að Samíylk-
ingin verður til en hvort hún verður
flokkur eða samtök þeirra flokka sem
standa að henni eiga flokkamir efth-
að ákveða.
Það stendur ekki til að leggja nið-
ur flokkana alveg á næstunni. Enda
er það ákvörðun landsfunda A-flokk-
anna og Kvennalista að fjalla um það
þegar þar að kemur. Ég á frekar von
á því að þessir flokkar verði til áfram
vegna þess að þeir eiga jú sínar
skuldbindingar og þurfa að ganga frá
ýmsum málum. Og það tekur langan
tíma. Ég á því frekar von á því að
þeir gangi í samtök án þess að þeir
verði lagðir niður,“ segir Margrét.
Margrét gerir ráð fyrir því að
Samfylkingin muni áfram vera með
starfsmann og reka skrifstofu og það
verði dregið úr skrifstofuhaldi á veg-
um flokkanna að sama skapi. Hún
segir mikinn áhuga á því, bæði innan
flokkanna og hjá þeim sem komið
hafa að Samfylkingunni án þess að
tilheyra einum þeirra, að til verði
formlegur vettvangur þar sem hægt
sé að ræðast við. „Ég tel slíkan vett-
vang nauðsynlegan án þess þó að það
þurfi að leggja niður flokkana sem að
Samfylkingunni standa."
Hefur safnað um
400 derhúfum
Hveragerði. Morgunblaðiö.
ÞAÐ er óneitanlega sér-
kennileg veggskreytingin
í einu herberginu hjá
Guðbjörgu Traustadóttur
og Sigurði Tryggvasyni í
Hveragerði því neðan úr
loftinu og á veggjunum
hanga ríflega 400 derhúf-
ur sem Guðbjörg hefur
safnað undanfarin ár.
Húfurnar eru jafnfjöl-
breyttar og þær eni
margar og eru bæði frá
innlendum sem og er-
lendum fyrirtækjum og
margar komnar langt að
svo sem ein sem upp-
runnin er í Rússlandi.
„Ég átti nokkrar derhúf-
ur og þetta herbergi var
autt þannig að það var
tilvalið að hengja þær
upp, þá fannst mér þetta
svo flott að ég fór að
safna húfum markvisst.
Eftir að vinir og vanda-
menn fréttu um áhuga
minn á derhúfum muna
þeir eftír mér og senda
mér húfur sem þeim
áskotnast, enda hefur
safnið vaxið hratt undanfarin
ár,“ segir Guðbjörg.
Innan um derhúfurnar má
einnig sjá safn af gömlum háls-
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
Derhúfusafn Guðbjargar Traustadóttur
hefur vaxið stöðugt síðustu ár.
bindum, glasamottum, upptök-
urum, könnum og fleiru þannig
að það má með sanni segja að
söfnunaráráttan ráði ríkjum hjá
Guðbjörgu og Sigurði.
Vísitasíu lýkur
um næstu helgi
BISKUP íslands, herra Karl Sig-
urbjörnsson, lýkur um næstu
helgi vísitasíuferð sinni um Aust-
urland. Biskup hefur verið þar á
ferð að undanförnu og m.a. skoð-
að fyrirhugað virkjanasvæði á há-
lendinu.
í dag, fimmtudag, á hann fund
með sóknarpresti Norðfjarðar-
prestakalls, hefur helgistund á
Sjúkrahúsinu í Neskaupstað og
messar í Norðfjarðarkirkju í kvöld.
Síðdegis í dag vitjar hann kirkjunn-
ar í Mjóafirði.
A morgun verður biskup í Fá-
skrúðsfirði og messar þar kl. 16 og
annað kvöld er messa í Stöðvar-
fjarðarkirkju eftir fund með sóknar-
nefnd.
Föstudeginum verður varið til
fundahalda og guðsþjónustu í Hey-
dalaprestakalli, á laugardag verður
biskup í Beruneskirkju og Hofs-
kirkju og á sunnudag á Djúpavogi.
Biskup messar í Papey
á sunnudag
Vísitasíunni um Austfjarðapró-
fastsdæmi lýkur með guðsþjónustu
í Papey kl. 16 á sunnudag.
A mánudag á biskup síðan fund
og kyrrðardag með prestum úr
Múla- og Austfjarðaprófastsdæmi
og fer hann fram að Eiðum.
Morgunblaðið/jt
Þoturnar fjórar voru af gerðunum Cessna Citation, Gulf Stream, Challenger og H25B frá British Aerospace.
Fjórar smáþotur á
Egilsstaðaflugvelli
FJÓRIR utanríkisráðherrar sem
sátu fund á Egilsstöðum á sunnu-
dag og mánudag komu þangað á
litlum þotum ríkja sinna. Hafa
aldrei svo margar þotur verið á
Egilsstaðaflugvelli í einu.
Ráðherrarnir voru sá sænski,
norski og finnski auk hins
kanadíska sem einnig sótti fund ut-
anríkisráðherra Norðurlanda og
Eystrasaltsríkjanna. Ingólfur Arn-
arson, stöðvarstjóri Flugmála-
stjómar á Egilsstaðaflugvelli, sagði
sjaldgæft að smáþotur færu um
völlinn en það kæmi þó fyrir. Völl-
urinn er varaflugvöllur fyrir milli-
landaflug og hann sagði Færeyinga
einna helst þurfa á honum að halda
þegar veðurskilyrði þar væru slæm.
Sagði hann færeyskar vélar nýlega
hafa lent á vellinum af þeim sökum.
Ekki sagði Ingólfur völlinn fá mikl-
ar tekjur af umferð sem þessari,
smáþotumar væra yfirleitt fremur
léttar en lendingargjöld era reiknuð
eftir þyngd vélanna.
Innritun í síma 561 9039
ÍW>';
fflk&É.....
Balletskóli
I Reykjavík og Kópavogi
Námskeið fyrir byrjendur (yngst 4 ára)
og framhaldsnemendur.
Ath! Kennum í nýjum og glæsilegum
sal í félagsheimili Þróttar í Laugardal
Kennslustaðir:
Félagsheimili Þróttar í Laugardal
og íþróttahúsi Breiðabliks, Smáranum
Aðalfundur Afls
fyrir Austurland í
október
Fleiri
deildir
hugsan-
lega
stofnaðar
í FRAMHALDI af stofnun
samtakanna Afl fyrir Austur-
land, sem hafa það markmið
að hvetja stjórnvöld til að
hvika ekki frá áformum um
virkjun fallvatna á Austur-
landi og uppbyggingu stóriðju
í Reyðarfirði, hafa komið fram
hugmyndir um stofnun deilda
annars staðar á landinu.
Einar Rafn Haraldsson,
formaður samtakanna, tjáði
Morgunblaðinu að fram hefði
komið á fundinum að áhugi
væri á því að stofna deild í
Reykjavík og kvaðst hann
einnig vita af slíkum áhuga á
Akureyri. Hann sagði stjórn-
ina nú vinna að því að safna
inn nöfnum þeirra sem gerast
vildu stofnfélagar og skrifað
hefðu undir áskorun til stjórn-
valda um að virkja. Liggja
listar frammi víða á Austur-
landi en um 1.200 manns
höfðu skráð sig á stofnfundin-
um sem haldinn var á Egils-
stöðum á laugardag. Einar
sagði stefnt að því að afhenda
iðnaðarráðherra undirskrifta-
lista innan hálfs mánaðar.
Hægt er að gerast stofnfé-
lagi að samtökunum Afl fyrir
Austurland fram í október en
þá er ráðgerður fyrsti aðal-
fundur samtakanna.