Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 64
Heimavörn <jU Sími: 580 7000 Drögum næst 10. sept. HAPPDRÆTTI feOli HÁSKÓLA ÍSLANDS fr vænlegast til vinnings MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVTK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 VERÐ I LAUSASOLU 150 KR. MEÐ VSK Fjögur sjávarútvegs- fyrirtæki sameinast Ráða yfir 20 þúsund þorskígildistonnum EITT öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins verður til með samein- ingu ísfélags Vestmannaeyja hf., Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmanna- eyjum, Krossaness hf. á Akureyri og Óslands ehf. á Hornafirði, en fé- lögin hafa undirritað viljayfírlýsingu um sameiningu í eitt félag. Gert er ráð fyrir að stjórair félag- anna taki afstöðu til sameiningarinn- ar í lok þessarar viku en búast má við að endanleg staðfesting á sam- runa fáist ekki fyrr en á haustmán- uðum. Verði af samruna fyrirtækj- anna mun fyrirtækið ráða yfir 20 _______________ þúsund þorskígildistonna kvóta og ' ~ - - hafa tii umráða um 15% heildar- loðnukvótans og tæp 10% af síldar- kvótanum. Stefnt er að því að skrá félagið á Verðbréfaþing íslands. Forsvarsmenn fyrirtækjanna tveggja í Vestmannaeyjum segja hagkvæmnisjónarmið ráða mestu um sameininguna en þau fari um leið saman við hagsmuni byggðarlagsins. Gleðileg tíðindi Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir tíðindin um ‘i * Dróst 100 metra með neðan- jarðarlest ÍSLENSKUR ferðamaður lá ellefu daga á sjúkrahúsi í París vegna áverka sem hann hlaut þegar hann kræktist í neðan- jarðarlest og dróst á milli hennar og brautarpallsins um 100 metra leið. íslendingurinn er kominn heim og lítur ekki út fyrir að hann beri varanlegt líkamstjón af slysinu. Hópur íslendinga var að skipta um lest á neðanjarðar- brautarstöð í París, á leið frá flugvellinum að hóteli. Einn úr hópnum var að benda félögum sínum að yfirgefa lestina þegar lestin krækti einhvern veginn í myndavélartösku sem hann var með bundna um mittið. Dróst hann með lestinni, með fætur uppi en höfuð og axlir milli lestarinnar og brautar- pallsins, þar til lestin var stöðvuð. Hafði hann þá dregist með lestinni um 100 metra leið. Ekki segist maðurinn muna eftir atvikinu, hann hafi sennilega rotast. Ellefu daga á spítala Maðurinn varð fyrir mikium áverkum á efri hluta líkamans, ekki síst annarri öxlinni. Hann var fluttur á gjörgæsludeild sjúkrahúss þar sem gert var að sárum hans. Þar féll annað lungað saman, enda höfðu tvö eða þrjú rifbein brotnað. Hann var ellefu daga á sjúkrahúsinu og kom heim í fylgd læknis í fyrradag. Gerir maðurinn sér góðar vonir um að ná sér að fullu af meiðslunum. fyrirhugaða sameiningu ákaflega gleðileg. Öllum hafi verið ljóst að Vinnslustöðin hafi að undanfömu átt í viðræðum við sjávarútvegsfyrir- tæki annars staðar á landinu með samruna í huga. „Þannig hefðum við getað misst aflaheimildir frá Eyjum en það hefði orðið gríðarlegt reiðar- slag fyrir byggðina hér. Það er því mjög jákvætt að fyrirtækin hér á staðnum viiji taka höndum saman.“ Guðjón segir viðbúið að starfs- fólki kunni að fækka þegar slíkar hagræðingar eigi sér stað. „En til lengri tíma litið er þessi sameining styrking fyrir fyrirtækin og Vest- mannaeyjar því verði af sameiningu verður til mjög öflugt fyrirtæki," segir Guðjón. Viðskipti áttu sér stað með hluta- bréf Vinnslustöðvarinnar á Verð- bréfaþingi í gær fyrir 6,3 milljónir króna. Gengi hlutabréfa í fyrirtæk- inu hækkaði um 10,5%. ■ Hagsmunir/33 • • Ortröð við bensínstöðvar í gær vegna yfírvofandi hækkunar Bensín hefur hækkað um 25% á árinu Verðþróun á bensíni með fullrí þjónustu 1998 og 1999 95 Krónur/lítrinn AlsfQJMÍQ 19981 92,40 kr. »87,70 kr. 1999 Morgunblaðið/Ásdfs Miklar annir voru hjá starfsmönnum bensínstöðva eftir að fréttist af fyrirhugaðri hækkun í gær. VERÐ á bensíni hækkar í dag um 5,30 krónur lítrinn. Lítrinn af 95 oktana bensíni kostar nú 87,70 kr. og hefur verðið aldrei verið hærra. Bensínverð hefur hækkað um 25% frá áramótum. Miklar annir voru á bensínstöðv- um víða um land í gær þegar fréttir bárust af fyrirhugaðri hækkun. Myndaðist örtröð við margar bens- ínstöðvar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Heimsmarkaðsverð á bensíni hef- ur hækkað mikið á árinu. Astæðan fyrir hækkun útsöluverðs nú er að sögn Gunnars Karls Guðmundsson- ar, framkvæmdastjóra fjármála- sviðs Skeljungs hf., sú að eldri birgðir sem olíufélögin hafa keypt við lægra verði og dregið hafa úr hækkunum eru að ganga til þurrðar og hið háa heimsmarkaðsverð kem- ur nú beint fram í útsöluverðinu. Verðið hækkar jafnt hjá öllum ol- íufélögunum og er hið sama hjá þeim öllum. Verð á bensíni hækkar um 5,30 kr. lítrinn eða um 6 til 6,5%. Lítrinn af 95 oktana bensíni kostar í dag 87,70 en 98 oktana bensínið hækkar í 92,40. Verð á gasolíu hækkar um 1,60 kr. lítrinn, í 31,30 krónur. í sögulegu hámarki Lítri af 95 oktana bensíni kostaði 70,20 kr. um síðustu áramót og er breytingin nú sjöunda hækkunin á árinu. Hefur lítrinn hækkað um 25% á þessum tíma. Verð á 95 okt- ana bensíni fór í fyrsta skipti yfir 80 kr. í ágúst og er því í sögulegu há- marki. Gunnar Karl Guðmundsson vek- ur í þessu sambandi athygli á því að innkaupsverð á bensíni hafi hækk- að um 112% frá áramótum en út- söluverðið um 25%. Ha'nn minnir á bensíngjaldshækkun í júní og þá staðreynd að 70% af hækkun bens- ínverðs frá áramótum gangi í ríkis- sjóð og 30% til erlendra birgja. 01- íufélögin hafi ekki breytt álagn- ingu. . Nýir hlut- hafar í Plast- prenti NÝIR eigendur eru komnir inn í Plastprent hf. með kaupum á hluta af hlutafé félagsins. Nýr fram- kvæmdastjóri tekur og til starfa. Prentsmiðjan Oddi hf., Sigurður Bragi Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Sigurplasts hf., og fleiri aðilar hafa keypt hluta af hlutafé fjöl- ^skyldu Hauks Eggertssonar í Plast- prenti. í framhaldi af breytingum á eignarhaldi hefur Eysteinn Helga- son, sem verið hefur framkvæmda- stjóri í ellefu ár, ákveðið að láta af störfum síðar í þessum mánuði. Við framkvæmdastjóm tekur einn af nýju eigendunum, Sigurður Bragi ^Guðmundsson. ■ Prentsmiðjan Oddi/22 Ríkið lagði fram tillögu um fímm stjórnarmenn á hluthafafundi FBA Fulltrúi ríkisins segir ekki samkomulag um annað JÓN Ingvarsson, fyirverandi stjórnarformaður Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, voru kosn- ir í stjórn Fjárfestingarbanka atvinnulífsins á hluthafafundi bankans sem haldinn var í gær. Atkvæðanefnd ríkissjóðs lagði fram tillögu um fimm stjórnarmenn ásamt varamönnum. „Við lögðum fram lista með nöfnum fimm manna, enda lá ekkert samkomulag fyrir um annað. Orca S.A. gaf ekkert upp um það fyrirfram hvort lögð yrði fram tillaga um stjórnarmenn af þess hálfu, eða hve margir yrðu tilnefndir," segir Þorsteinn Geirsson, formaður atkvæðanefndar ríkissjóðs. Meirihluta stjómar FBA skipa eftir sem áður Þorsteinn Ólafsson stjómarformaður, Magnús Gunnarsson varaformaður og Öm Gústafsson, sem fulltrúar ríkissjóðs. Stjómin var kosin með margfeldiskosningu sem forsvarsmenn Orca S.A, eiganda að 28% hlutafjár í FBA fóm fram á. Eyjólfur Sveinsson, stjórnarformaður Orca S.A., segir markmið félagsins eftir sem áður að vinna FBA heilt. Hann segir það vissulega hafa komið til greina að eigendur hlutafjárins gættu sjálfir fjárfestingar sinnar. „Okkur þótti rétt, með hliðsjón af þeim umræðum sem orðið hafa um Fjárfestingarbankann, að menn sæju að hug- ur fylgdi máli og engin undirliggjandi sjónarmið ráði fjárfestingu okkar. Þeir menn sem við gerð- um tillögu um hafa víðtæka reynslu af viðskipta- lífinu og við vildum fá þá til liðs við okkur.“ Jón Ingvarsson, nýr stjórnarmaður í FBA, segir ákaflega mikilvægt fyrir eigendur FBA að ró og friður skapist um bankann. Þorsteinn Ólafsson, stjórnarformaður FBA, segist munu beita sér fyrir því innan stjórnarinn- ar að friður skapist um starfsemi bankans. „Ég tel að stjómin muni vinna vel saman og ég tel það mikilvægt að hluthafar og allur almenningur skynji að áfram verður unnið í sama anda innan bankans og verið hefur." ■ Vildum sýna/12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.