Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Heimilt að skrá
hverjir kjósa
TOLVUNEFND telur að umboðs-
mönnum framboðslista sé heimilt að
vera viðstaddir kosningu í kjör-
deildum og skrá upplýsingar um
það hverjir mæta til kjörstaðar og
eftir atvikum senda þær á skrifstofu
viðkomandi lista. Nefndin getur
þess þó að hún hafí talið þennan víð-
tæka rétt lítt samrýmanlegan
grundvallarsjónarmiðum laga um
einkalífsvemd.
Tölvunefnd fjallaði um bréf
Kjartans Valgarðssonar þar sem
kvartað var undan viðveru fulltrúa
stjómmálaflokkanna við kosningar
á hinum einstöku kjörstöðum og
skráningu þeirra á upplýsingum um
hverjir neyta kosningaréttar.
Fram kemur í svarbréfí Tölvu-
nefndar það álit að upplýsingar um
það hvort maður mæti til kjörfund-
ar séu persónuupplýsingar í skiln-
ingi laga um skráningu og meðferð
persónuupplýsinga, sem sanngjamt
sé og eðlilegt að leynt fari. Slík
skráning sé ótvírætt kerfisbundin í
skilningi laganna.
I áliti Tölvunefndar er vísað til
þess að í lögum um kosningar til Al-
þingis sé umboðsmönnum fram-
boðslista heimilað að vera viðstadd-
ir á kjörstöðum og þeir hafi öðlast á
nýjan leik heimild til að skrá nöfn
þeirra sem neyta kosningaréttar
með gildistöku laga sem fólu í sér
afnám banns við því.
Notaður BMW til sölu á rúmlega tíu milljónir
Langfjölmennasta námskeið við Háskóla Islands frá upphafí
Morgunblaðið/Kristinn
Tæplega 600 nemendur sátu á skólabekk í aðalsal Háskölabíós í fyrsta tíma í rekstrarhagfræði síðdegis í gær.
600 manna „bekkur“
í rekstrarhagfræði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Með dýrari
bílum á landinu
FLAGGSKIP Bflasölunnar, Skeif-
unni 5, sem opnar sal í húsakynn-
um sínum á iaugardag, er bifreið
af tegundinni BMW 740 IAL.
Bifreiðin var flutt ný til landsins
í fyrra og kostaði þá 11,8 milljón-
ir króna en er nú verðlögð á 10,2
milljónir króna. Að sögn
Tryggva Rúnars Guðjónssonar,
eiganda Bflasölunnar, heyrir til
undantekninga að svo dýrir bflar
séu keyptir hingað.
Bfllinn er langur, sjálfskiptur
og með beinni innspýtingu. Vél
bifreiðarinnar er 286 hestöfl og
bfllinn er ekinn 9 þúsund kfló-
metra. Tveir umgangar af felg-
um fylgja bifreiðinni og í henni
FISKISTOFA hefur úthlutað afla-
heimildum iyrir nýtt fískveiðiár sem
hefst í dag. Samtals gefur Fiskistofa
út 897 leyfí til veiða í atvinnuskyni í
aflamarkskerfí en þar af er úthlutað
aflamarki á grundvelli aflahlutdeilda
til 763 skipa. Skipum í aflamarks-
kerfí hefur fjölgað um 10 frá síðasta
fiskveiðiári. Af einstökum skipum
fær frystitogari Skagstrendings hf.,
Amar HU, úthlutað mestum kvóta,
samtals 6.269 þorskígildistonnum
eða 1,73% af heildarkvótanum. Par á
eftir koma Sléttbakur EA með 4.538
tonn og Baldvin Þorsteinsson EA
með 4.383 tonn.
Samkvæmt ákvörðun sjávarút-
vegsráðherra hafa veiðar á þykkva-
lúru nú verið bundnar aflamarki. Út-
hlutaðar aflaheimildir einstakra
fískiskipa ráðast af aflareynslu
þeirra á tímabilinu 1. júní 1996 til 31.
maí 1999. Alls fá 399 skip úthlutað
einhverri aflahlutdeild og aflamarki.
er nær allur fáanlegur aukabún-
aður. Topplúga er á bflnum, raf-
magn er í stýri, sæti eru raf-
magnsstýrð og búin minni, inn-
byggður farsími er í bflnum og
tólf hátalara hUómtæki svo fátt
eitt sé nefnt.
Bfllinn var fluttur inn af
Bifreiðum og Iandbúnaðarvélum
og var í eigu Gísla Guðmunds-
sonar forstjóra fyrirtækisins þar
til Bflasalan festi kaup á honum.
Tryggvi Rúnar segir þrjá aðila
þegar hafa sýnt því áhuga að
kaupa bifreiðina.
Sölumaður á Bflasölunni benti
á að skipti eru möguleg á ódýrari
eða dýrari bfl.
Þá hefur samtals verið úthlutað
aflamarki sem nemur 2.071 þorsk-
ígildistonni til 45 innfjarðarrækju-
báta vegna skerðinga sem urðu á
leyfilegum heildarafla í rækju á inn-
fjarðarsvæðum, þ.m.t. Eldeyjar-
svæði, á fískiveiðiárinu 1998/1999.
Ennfremur úthlutar Fiskistofa 3.000
tonnum í þorski til 411 báta sem
höfðu einhverja aflahlutdeild 1. des-
ember 1998 og voru þann dag minni
en 200 brúttótonn.
í upphafi fískveiðiársins 1999/
2000 fá alls 809 bátar leyfi til veiða í
atvinnuskyni í veiðikerfum króka-
báta. Þar af fá 502 bátar veiðileyfi
með þorskaflahámarki, 81 bátur
veiðileyfi á sóknardögum með hand-
færum eingöngu og 30 tonna þorsk-
aflaþaki, 7 bátar fá veiðileyfí á sókn-
ardögum með handfæri og línu og 30
tonna þorskaflamarki og 219 bátar fá
leyfi til veiða á sóknardögum með
handfærum eingöngu.
TÆPLEGA sex hundruð manns
sátu íyrsta tímann á fyrsta ári í
rekstrarhagfræði hjá Agústi Ein-
arssyni, prófessor við viðskipta-
deild Háskóla íslands, síðdegis í
gær. Að sögn Agústs er námskeið-
ið, sem haldið var í aðalsal Há-
skólabíós, það lang fjölmennasta
sem haldið hefur verið við Háskól-
ann frá upphafi.
„Námskeiðið er tvisvar sinnum
fjölmennara en við höfum nokkru
sinni haft áður. I fyrra vorum við
með um þrjúhundruð nemendur.
Það er mjög spennandi að kenna
svona fjölda og óneitanlega sérstök
tilfinning að horfa yfir meira en
hálffullt bíóið en salurinn tekur
1.000 manns í sæti,“ segir Ágúst.
Stærsta kennslu-
stofa landsins
Skýringin á aðsókninni er vita-
skuld mikil fjölgun í deildinni, að
sögn Ágústs, en hátt í sex hundruð
eru nú skráðir á fyrsta ári, eða ná-
lega helmingi fleiri en í fyrra. „Við
bætast nemendur á svokölluðum
styttri námsleiðum, sem eru að
vísu skráðir í viðskiptafræði, en að
auki eru nokkrir tugir sem eru
skráðir í aðrar deildir. Þetta kemur
allt saman þarna í stærstu
kennslustofu landsins, í aðalsal Há-
skólabíós. Við urðum að kaupa upp
fimm-sýninguna til að geta komið
öllum fyrir,“ segir Ágúst.
Persónuleg samskipti minnka
óumflýjanlega þegar fjöldinn er
orðinn svo mikill, að sögn Ágústs.
„Þetta verður öðru vísi. Maður
náttúrlega þekkir ekki alla. Við
höfum þó reynt að setja upp
dæmatíma til að búa til persónu-
legri kynni. En þetta er auðvitað
það mikið að maður verður að hafa
sig allan við til að gera þetta vel.“
Netið auðveldar kennsluna að
sögn Ágústs. „Við notuðum Netið
mikið til að dreifa kennsluefni og
gögnum. Ein kennslubókin kemur
beinlínis út á Netinu. Þetta eru
verkfæri sem nemendur verða að
tileinka sér og er raunverulega
ekki hægt að kenna svo vel sé
svona stórum hópi öðru vísi en að
taka svona hjálpartæki í þjónustu
sína.“
Tveir aðrir kúrsar á fyrsta ári í
viðskiptafræði verða álíka fjöl-
mennir; í þjóðhagfræði og reikn-
ingshaldi. Ágúst segir kennara síð-
ur en svo óttast það. „Salurinn er
vel búinn tæknilega sem kennslu-
salur og þetta gekk mjög vel í dag.
Það var feikilega gaman að tala yf-
ir svona stórum bekk,“ segir
Ágúst.
Gliðnunin á Atlants-
hafshryggnum
Mjög dregið
úr skjálfta-
virkni
MJÖG dró úr skjálftavirkni á Atl-
antshafshrygg, um 100 km norður
af Kolbeinsey, síðdegis í fyrradag
og fram til miðnættis. Að sögn
Ragnars Stefánssonar jarðskjálfta-
fræðings varð vart við skjálfta í
gærnótt en þeir voru strjálir og
mun kraftminni en áður, eða um 3,5
til 4,0 á Richter.
„Þessi virkni virðist búin í bili.
Við reyndum að láta vita víða af
þessari hreyfingu en fengum ekki
fregnir af því að skip eða flugvélar
hefðu orðið vör við skjálftahrinuna,
sem bendir til þess að hafí gosið
þarna neðansjávar gæti þess ekki
mikið á yfirborði sjávar," segir
Ragnar.
Má bera saman við Kröfluelda
„Gliðnun á hryggnum í miklum
mæli er stöðug en það gerist öðru
hverju á hryggnum að innskot
myndast og um leið gliðnun í
smærri útgáfu. Þetta gerist á nokk-
urra áratuga fresti eða svo og alveg
til þess að vera á hundrað ára fresti.
Eitt sambærilegt dæmi, sem var
stórkostlegur atburður, er til dæmis
Kröflueldar og gliðnunin á Kröflu-
sprungukerfinu, frá Kröflu norður í
Öxarfjörð, sem byrjaði 1975. Þar
var mikið um kvikuinnskot og jarð-
skjálfta á stuttum tíma. í þessu til-
viki gerist þetta hins vegar neðan-
sjávar og er væntanlega minni at-
burður en Kröflueldar, en þó að
mörgu leyti sambærilegur atburð-
ur,“ segir Ragnar.
Fiskistofa úthlutar aflamarki til 763 skipa við upphaf nýs kvótaárs
Arnar HU fær
langmestan kvóta
Kvótahæstu skipin
1. flrnar HU1
2. Siéttbakur EA 304
3. Baldvin Þorsteins. Efl 10
4. Kaldbakur EA1
5. Hringur SH 535
6. AkureyrinEAHO
7. Páll Pálsson ÍS102
8. Haraldur Böðvars. AK12
9. Málmey SK1
10. Harðbakur EA 303
11. Björgvin EA311
12. Gnúpur GK11
13. Hrafn Sveinbj. GK 255
14. Vigrl RE 71
15. Víðir EA 910
16. Árbakur EA 308 1
17. Ásbjörn RE 50
18. Orri ÍS20
19. OttóN. Þorláks. RE 203
20. Ljósafell SU 70
1999-2000 Heildarkvóti, Hlutfall af þorskígildi, heildarkvóta,
Eigandi skips tonn 1999-2000
Skagstrendingur hf 6.269 1,73%
ÚAhf 4.538 1,25%
Samherjihf 4.383 1,21%
ÚAhf 4.366 1,20%
Guðm. Runóifs. hf 4.353 1,20%
Samherji hf 3.992 1,10%
Hraöfrystihúsið hf 3.812 1,05%
Har. Böðvarsson hf 3.646 1,01%
Fiskiðjan Skagf. hf. 3.633 1,00%
ÚAhf 3.589 0,99%
Snæfellhf 3.502 0,97%
Þorbjörn hf 3.497 0,97%
Þorbjörn hf 3.339 0,92%
Ögurvíkhf 3.275 0,90%
Samherjihf 3.266 0,90%
ÚAhf 3.039 0,84%
Grandihf * 3.012 0,83%
Básafell hf J f j 2.908 0,80%
Grandihf 2.885 0,80%
Kaupf. Fáskrúðsf. 2.849 0,79%
Samanlagt
Heildarkvóti
74.153
362.317
20,47%
100,00%