Morgunblaðið - 01.09.1999, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 23
íslenski hlutabréfasjóðurinn býður út allt að 400 milljóna króna nýtt hlutafé
íslenski hlutabréfasjóðurinn hf.
efnir til hlutafjárútboðs og skrán-
ingar hlutabréfa á Verðbréfaþing
Islands á tímabilinu 1. september
1999 til 1. september 2000. Tekið
er fram í útboðs- og skráningarlýs-
ingu að tímabilið geti orðið styttra
ef öll hlutabréf seljast fyi'ir 1. sept-
ember 2000.
Alls verða boðin út hlutabréf fyr-
ir allt að 400 milljónum króna að
nafnverði og hefur Landsbanki Is-
lands - Viðskiptastofa umsjón með
útboðinu. Aður útgefin hlutabréf
sjóðsins nema rúmlega 1,2 millj-
örðum að nafnverði og eru skráð á
Aðallista VPÍ.
Utboðið nú kemur í framhaldi af
aðalfundi íslenska hlutabréfa-
Afkoma
Sparisjóðs
vélstjóra
57 milljónir
í hagnað
Sparisjóður vélstjóra skilaði rúm-
lega 57 milljóna króna rekstrar-
hagnaði á fyrri hluta þessa árs en
skilaði um 52 milljóna króna hagn-
aði á sama tímabili í fyrra. Hagnað-
ur fyrir skatta nam rúmum 90 millj-
ónum nú en var rúmar 70 milljónir
fyrstu sex mánuði síðasta árs.
Reiknaður tekjuskattur fyrir
fyrri hluta þessa árs nemur 27 millj-
ónum króna en fyrir fyrri hluta síð-
asta árs nam tekjuskattur tæpum
12 milljónum. Hreinar vaxtatekjur
Sparisjóðs vélstjóra námu rúmlega
223 milljónum kt'óna á fyrri helm-
ingi þessa árs en voru rúmar 198
milljónir á sama tímabili árið 1998.
Aðrar rekstrartekjur námu tæplega
342 milljónum króna á fyrri hluta
þessa árs og rekstrargjöld voru alls
251,5 milljónir króna.
Hallgrímur Jónsson, sparisjóðs-
stjóri, segir að vegna góðrar af-
komu hafi verið unnt að auka varúð-
arframlag í afskriftarreikning út-
lána. A fyrstu sex mánuðum síðasta
árs var framlagið um 13,6 milljónir
króna en var rúmar 23,5 milljónir
nú. „Þetta má hafa til marks um
góða afkomu," segir Hallgrímur.
Launakostnaður hefur aukist um
næstum 40 milljónir milli ára og að
sögn Hallgríms skýrist það af aukn-
um umsvifum, auk þess sem lífeyr-
isskuldbindingar hafi verið upp-
reiknaðar að fullu.
---------------
Hmark með
25 milljónir
í hagnað
HAGNAÐUR Hlutabréfamarkað-
arins hf., Hmarks, sem er í vörslu
VIB, nam 25 milijónum króna eftir
skatta fyrstu sex mánuði ársins en
var 21 milljón króna á sama tímabili
í fyrra. Hagnaður tímabilsins var 38
milljónir króna fyrir skatta en var
32 milljónir króna í fyrra. Arðsemi
eigin fjár var 20%.
í fréttatilkynningu kemur fram
að heildareignir Hmarks voru í lok
júní 374 milijónir króna. Hlutafé fé-
lagsins nam 86 milijónum króna og
eigið fé alls var 316 milljónir króna.
Hluthafar Hmarks voru 523 í júní-
lok en vora 458 í ársbyrjun.
„Tilgangur Hmarks er að opna
einstaklingum, stofnanafjárfestum
og öðrum aðilum greiða og hag-
kvæma leið að því að verða þátttak-
endur á hlutabréfamarkaði. Nú
fylgja tveir þriðju hlutar verðbréfa-
eignar Hmarks MSCI-heimsvísitöl-
unni sem Morgan Stanley gefur út,
en sú vísitala mælir ávöxtun í iðn-
ríkjum,“ að því er fram kemur í
fréttatilkynningu.
Selma Filippusdóttir hefur verið
ráðin framkvæmdastjóri Hluta-
bréfamarkaðarins hf.
Sölugengi miðast
við markaðsgengi
sjóðsins 1997, sem veitti stjórn fé-
lagsins heimild til að auka hlutafé
þess um allt að 1,5 milljörðum.
Akvörðun um útboðið var tekin á
stjórnarfundi í ágúst á síðasta ári.
I útboðslýsingu kemur fram að
Verðbréfaþing hafi samþykkt að
taka hin nýju hlutabréf félagsins á
skrá eftir að útboði lýkur, enda
uppfylli þau þá öll skilyrði skrán-
ingar.
Eldri hluthafar hafa
ekki forkaupsrétt
Bréfin verða ekki gefin út í föst-
um einingum en verða þó 10.000
krónur að lágmarki. Sölugengi
miðast við markaðsgengi hverju
sinni og verða bréfin annað hvort
seld gegn staðgreiðslu eða boð-
greiðslum Visa eða Eurocard, til
allt að 24 mánuða. Fram kemur í
útboðslýsingu að eldri hlutahafar
Islenska hlutabréfasjóðsins hafi
ekki forkaupsrétt á hinu nýja
hlutafé.
Islenski hlutabréfasjóðurinn hf.
var stofnaður 13. mars árið 1990.
Stofnendur sjóðsins vora Lands-
bréf hf. og einstaklingar tengdir
Landsbréfum. Sjóðurinn hefur
enga starfsmenn á sínum snærum
en hefur gert rekstrarsamning við
Landsvaka ehf., sem annast dag-
legan rekstur. Hluthafar í sjóðnum
voru tæplega 7.400 talsins í lok júlí
á þessu ári. Fjárfestingastefna
sjóðsins, samkvæmt samþykktum,
miðar að því að 50-80% af eignum
félagsins sé að jafnaði bundið í inn-
lendum hlutabréfum en 20-50% í
öðrum innlendum og erlendum
verðbréfum.
Eiaa aúmeriö
sem þú þarft að muaa
Síminn býður viðskiptavinum sínum upp á nýja og þægilega þjónustu.
Um leið og þú færð upplýsingar um símanúmer í 118 geturðu fengið beint
samband við viðkomandi númer og þarft því ekki að leggja á og hringja aftur.
118 er því eina símanúmerið sem þú þarft að muna ...
Verð fyrir beint samband er 33 krónur og eftir að samband hefur verið gefið áfram
fer símtalið yfir á venjulegt talsíma- eða farsímagjald eftir því sem við á.
SIMINN
www.simi.is
HKKI ER HÆGT AÐ TENGJA BEINT ÚR ÖLLUM SÍMANÚMERUM, T.D. EKKIEF HRINGT
ER ÚR SJÁLFSÖLUM, ÚR FRELSI FRÁ SÍMANUM GSM EÐA SÍMANÚMERUM TALS.