Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
KVIKMYIVDIR
Háskólabfé
TANGÓ ■kirk'k
Leikstjóri og handritshöfundur Carlos
Saura. Kvikinyndatökustjóri Vittorio
Storaro. Tónskáld Lalo Schifrin. Aðal-
leikendur Miguel Angel Sola, Cecilia
Narova, Mia Maestro, Juan Luis Gali-
ardo. 112 mín. Argentína 1998.
SPÁNVERJINN Carlos Saura er
ur í aðalhlutverki. Hann vill ráða
fyrrum eiginkonu sína, dansarann
Lauru Fuentes (Cecilia Narova), en
það gengur ekki. Hún hefur slökkt á
sambandinu. Ur verður að hann velur
Elenu (Mia Maestro), unga og lítt
reynda stúlku með ótvíræða hæfi-
leika, til að fara með stærsta hlutverk
myndarinnar. Gerir það í fyrstunni
fyrir orð vafasams
auðkýfings sem
hefur fjármagnað
kvikmyndagerðina.
tíguleiki einkenna allan danshópinn.
Þáttur meistara tökustjóranna, þeg-
ar komið er að listrænni úrvinnslu,
Vittorio Storaro (The Last Emperor,
Síðasti tangó í París, Flamenco), er
stór þar sem hann stýrir vandasöm-
um tökunum af kunnri snilld. Lýs-
ingin er magnþrungin og notkun
hans á rauða litnum hrífandi. Tón-
listin er í sama gæðaflokki. Sjálfur
Lalo Schifrin heldur um sprotann og
fléttar fimlega saman klassískri
tangótónlist og sinni eigin. Leikur
Sola í aðalhlutverkinu er mátulega
sterkur. Samband hans og Elenu er
reyndar ekki sérlega trúverðugt,
hinsvegar túlkar hann vel það vald
og gáfur sem með þarf til að stýra
stórverkefni sem Tangó, og heilla
stúlku á borð við Elenu.
Saura vinnur glæsiiegan sigur
ásamt öllu sínu góða fóiki. Tekst
einnig að setja fram ískalda gagn-
rýni á einræðisöflin í landinu í hroii-
vekjandi balletatriði, sem er jafnvel
það sterkasta í heillandi mynd -
þ.e.a.s. þegar Narova drottnar ekki
yfir sviðinu. Tangó er þó fullkomlega
jákvæð, stórbrotin upplifun í alla
staði, sálin flýgur skýjum ofar að
lokinni sýningu.
Sæbjörn Valdimarsson
Amazonkonurnar
Háskólabfó
UPP MEÐ HENDUR „QUE
PERSONNE NE BOUGE!" irtck
eftir Sólveigu Anspach
Heimildarmynd Sólveigar An-
spach, Upp með hendur, er í senn
spaugileg og alvarleg úttekt á furðu-
legu glæpagengi. Hún segir sögu
nokkurra kvenna sem tóku upp á því
að ræna banka í Avignonhéraði í
Frakklandi fyrir um áratug og hlutu
fjölmiðlaheitið Amazongengið. Þær
voru fullkomnir plebbar í bankaræn-
ingjamálum en náðust samt ekki fyrr
en eftir að þær höfðu rænt nokkrar
bankastofnanir. Einn karlmann
höfðu þær með sér í byrjun en hann
var soddan aumingi að þær ráku
hann úr genginu.
Sólveig segir þessa makalausu
sögu með því að taka viðtöl við þátt-
takendur og þau bera myndina uppi.
Hún taiar við nokkrar af konunum,
móður einnar þeirrar, karlmanninn í
hópnum, lögreglumenn, rannsóknar-
dómarann, lögfræðinga og fleiri og
úr verður frásögn sem einkennist af
góðu jafnvægi. Hún er bæði kómísk í
lýsingu á þessum ofur hversdagslegu
ræningjum (stundum minnir hún á
gömlu þykjustuheimildarmyndir
Woody Allens) en einnig alvarleg því
ránin höfðu sínar slæmu afleiðingar
eins og nærri má geta, vinslit og
fangelsisdóma. Fram kemur skiln-
ingur á veruleika meðlima Amazon-
gengisins. Konurnar notuðu ekki al-
vöru byssur og rændu til þess að
eiga fyrir nauðsynjavörum (hórdóm-
ur og dópsala voru hinir kostirnir
sem þær stóðu frammi fyrir). Þegar
þær líta til baka hlæjum við með
þeim að klaufaganginum.
Heimildarmyndin er fín en er
þetta ekki fyrirtaksefni í leikna bíó-
mynd?
Arnaldur Indriðason
Þýskaland
nútímans
lláskólabíó
NÆTURRÖLT
„NIGHT SHAPES" ★★%
Þýski leikstjórinn Andreas Dresen
sem gerir Næturrölt hefur ugglaust
séð hvernig Robert Altman getur
raðað saman fjölda sagna af ólíkum
persónum í eina stóra mósaíkmynd
eins og „Short Cuts“. Næturrölt er
byggð upp nokkuð svipað. Við fylgj-
umst með fólki úr ýmsum áttum nótt
eina í Berlín þegar páfinn er kominn
í heimsókn til borgarinnar. Við fylgj-
umst með útigangsfólki sem reynir
að sýna stolt við erfiðar aðstæður;
strákur frá Angóla er skilinn eftir á
flugvellinum en kaupsýslumaður
veitir honum skjól; utanbæjarmaður
kynnist kornungri mellu og dópista
og reynir að tjónka við hana; ungt
vandræðafólk stelur bifreið og ekur
út í buskann.
Dresen vill bregða upp mynd af
Þýskalandi nútímans, Þýskalandi
eftir sameiningu, og tekur á ýmsum
samfélagslegum vandamálum eins
og kynþáttahatri, fátækt, eiturlyfja-
notkun án þess að neins staðar sé að
finna predikunartón. Hann vill sýna
veruleikann eins og hann er í gegn-
um handhelda myndavél og tekst
ágætlega upp að raða brotunum í
heildstæða sýn, hrjúfa á yfirborðinu
en furðulega mjúka að innan.
Arnaldur Indriðason
Sérkennilegur
ástarþrfliyrningur
lláskólabíó
TONY LITLI - „KLEINE TEUN“
irtrk
eftir Alex van Warmerdam.
Tony litli er yndislega kómísk lítil
saga úr nútímanum um ástarþrí-
hyrning á hollensku sveitabýli sem
tekur á sig æ hræðilegri mynd þar til
hún endar með hreinum ósköpum.
Það eru aðeins þrjár persónur sem
koma við sögu; durgslegur bóndinn,
eiginkona hans, feitlagin mjög, og
ljóska sem eiginkonan hefur fengið
til þess að kenna manni sínum að
lesa og skrifa. Bóndinn girnist ljósk-
una ákaflega, eiginkonan hvetur
hann til átaka, með launráð í huga,
og ljóskuna, sem er sæmilega til-
kippileg, grunar aldrei neitt.
Myndin er mjög skemmtilega gerð
og vel leikin og leikstjóranum og
handritshöfundinum, Alex van War-
merdam, tekst að fjalla af innsæi,
með þetta þrönga sögusvið og fáu
persónur, um stór-
ar og miklar mann-
legar tilfinningar
eins og ást, afbrýði
og hatur, alltaf
lúmskt kómískur og hnyttirin og með
staðgóða þekkingu á mannlegum
breyskleika.
Arnaldur Indriðason
Krafsað yfir
sársauka
Itíóburgin
SEX: THE ANNABEL CHONG
STORY - KYNLÍF: SAGA
ANNABEL CHONG. ★★★
Lcikstjórn: Gough Lewis.
Bandaríkin 1999.
Árið 1995 setti 22ja ára nemi í
kynjafræði Grace Quek, sem tók sér
klámstjörnunafnið Annabel Chong,
heimsmet í hjásofelsi með því að
hafa samfarir við 251 karlmann á tíu
klukkustundum. í þessari heimilda-
mynd er farið í forsögu þessa mets.
Það er svo sannarlega forvitnilegt
fyrir þá sem aldrei hafa kynnst
klámmyndaheiminum og hugarfari
fólksins sem hann byggir að sjá
þessa heimildamynd. En þeir sem
sáu kvikmyndina Boogie Nights láta
sér fæst koma á óvart í þeim efnum.
Hvort fólk hefur áhuga á að kynnast
þeim heimi eða ekki, skiptir ekki
meginmáli í þessari mynd, þar sem
sóst er eftir að gefa nákvæma og
raunsæja mynd af sérstakri mann-
eskju. Við kynnumst töffaranum
Önnubel Chong sem er feministi á
sínum eigin forsendum, og sækist
eftir að gefa út yfirlýsingar um sjálf-
stæði kvenna í kynferðismálum með
því að gerast klámmyndastjarna.
Konur eigi að hætta að vera bældar
eða fara eftir óskráðum reglum um
hvað megi og megi ekki í kynlífi,
heldur vita, eins og karlmenn, hvað
þær vilja á því sviði, og sækjast eftir
því fullum fetum. Til að vekja athygli
á málstað sínum gerir Annabel hvað
sem er til að verða frægasta klám-
stjarna í heimi, og kemur þá hug-
myndin um heimsmetið sem virkar.
Hún tekur jafnvel áhættuna á að fá
eyðni, til að ná takmarki sínu. „Eg er
Ánnabel Chong," öskrar hún á fólk
og fær sínu fram.
Smám saman koma hins vegar í
ljós aðrir þættir í persónuleika og
fortíð Önnubel sem liggja dýpra, og
sem sýna að hún er í rauninni að
reyna að krafsa yfir leyndan sárs-
auka með gjörðum sínum. Leikstjór-
inn Gough Lewis kemst alveg upp að
Önnubel, fær út úr henni hennar
leyndustu hugsanir og tilfinningar,
og tekst að gera einstaklega áhrifa-
ríka heimildamynd sem ætti að koma
við flesta sem hana sjá.
Hildur Loftsdóttir
Trylltur tang'ó
í Buenos Aires
Sér til halds og trausts hefur Saura þvílíkt úrvalsfólk að upplifun
myndarinnar er hrcinasta unun, segir m.a. í umsögn um Tangó.
ivviKmyndanatioargestum ao goou
kunnur. Nægir að nefna Carmen,
(‘83), sem sýnd var fyrir alllöngu, og
annað snilldarverk, Flamenco, (‘95),
eina bestu mynd hátíðar fyrir örfá-
um árum. Saura hefur verið í örlitl-
um öldudal, Esa luz, (‘97), Pajarico,
(‘98) og Taxi, (‘96), fengu misjafna
dóma. Svo kemur Tangó og öll með-
almennska horfin einsog dögg fyrir
sólu.
Aðalpersónan í Tangó er Mario
(Miguel Angel Sola), kvikmyndaleik-
stjóri í Buenos Aires, fyrrum
stórdansari sem hefur bæklast á fæti
í bílslysi. Hann er að undirbúa mynd
þar sem þjóðdansinn, tangóinn, verð-
iviaun tasa nyja
stefnu þegar ástin blossar upp á milli
leikstjórans og Elenu.
í Tangó sameinast tígulegustu
einkenni rómanskra þjóða. Reisn og
þokki, krefjandi ástríður, listrænn
metnaður, stolt, og allur tilfinninga-
skalinn frá funandi ást til dýpstu
sorgar. Sér til halds og trausts hefur
Saura þvílíkt úrvalsfólk að upplifun
myndarinnar er hreinasta unun.
Fyrst ber að nefna dansarana, þar
sem hin glæsilega Cecilia Narova er
fremst meðal jafningja. Mia Maestro
gefur henni lítið eftir, en Narova hef-
ur aukalega ólýsanlegan dýrslegan
kraft og fimi, en hraði, lipurð og
Stökktu til
Benidorm
15. september
trá 19.955
16 sæti laus
Heimsferðir bjóða nú þetta ótrúlega tilboð til
Benidorm þessa vinsælasta áfangastaðar Is-
lendinga 15. september nk. Þú bókar núna og
tryggir þér sæti í ferðinni og fjórum dögum
fyrir brottför hringjum við í þig og tilkynnum
þér á hvaða gististað þú gistir í fríinu. Á
Benidorm er sumarið í hámarki og þar nýtur
þú frísins við frábærar aðstæður um leið og þú
getur valið um spennandi kynnisferðir með
fararstjórum Heimsferða.
Verð kr.
19.955
Verð kr.
29.990
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára,
vika, 15. sepL, skattar innifaldir.
M.v. 2 í herbergi/íbúö, vika,
15. sept., skattar innifaldir.
y
HEIMSFERÐIR
2
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is
% Vorum að taka upp
glæsilegan prjónafatnað frá Alterna.
Einnig nýkomið frá Aria gallalína í bláu og svörtu.
Opið laugardaga kl. 10—14. Dmiarionl
Reykjavíkurvegi 64, sími 565 1147