Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 39 . '1 | LISTIR Morgunblaðið/Jim Smart sinni um ísland hafa Zeitlmann-hjónin fetað í fótspor Maurers. Málverkið talið vera af Konrad Maurer Málverkið af Konrad Maurer 19 ára gömlum sem lengst af var talið vera af föður hans, Georg Ludwig Maurer. HÉR á landi var nýverið staddur í heimsókn dr. Stephan Zeitlmann en hann er einn afkomenda Islandsvinarins Konrads Maurer sem ritaði merka ferðabók um dvöl sína á Isl- andi árið 1858. Dr. Zeitl- mann var hér ásamt eigin- konu sinni og kynnti sér ýmsa staði er langalangafi hans segir frá í bók sinni og sagði það hafa verið sér- staka upplifun að snæða málsverð í sömu herbergj- um í Dillonshúsi í Árbæjar- safni og Konrad Maurer bjó í um þriggja mánaða skeið vorið 1858. Ferðabók Maurers hafði um rúmlega 100 ára skeið verið talin glötuð er hand- ritið kom óvænt í leitimar fýrir um 20 árum og átti norrænufræðingurinn dr. Kurt Schier við háskólann í Múnchen stærstan þátt í að hún yrði gerð hæf tU prent- unar. Ferðafélag íslands réðst svo í það stórvirki fyrir um tveimur ár- um að gefa bókina út í íslenskri þýð- ingu dr. Baldurs Hafstað í tilefni 70 ára afmælis félagsins árið 1997. Er það eina útgáfa ferðabókarinnar til þessa en að sögn Baldurs Hafstað og Jóhanns J. Olafssonar forstjóra sem beitti sér á sínum tíma iyrir út- gáfu bókarinnar standa nú vonir til að bókin verði gefin út í Þýskalandi áður en langt um líður. „Það er Bæverska vísindaaka- demían, undir stjórn dr. Peter Landau lagaprófessors, sem hefur boðist til að kosta útgáfii bókarinn- ar. Dr. Schier mun annast ritstjórn útgáfunnar en á þessari stundu er ekki hægt að segja til um hvenær ráðist verður í útgáfuna þar sem dr. Schier er önnum kafinn við rit- stjórn útgáfu Islendingasagna á vegum Diederichs Verlag í Múnchen,“ sagði Jóhann J. Olafs- son í samtali við Morgunblaðið. Dr. Zeitlmann segir að fjölskylda sín hafi ávallt haft sérstakar taugar til Islands vegna tengsla Konrads Maurer við landið og þeirrar virð- ingar sem Maurer hefur notið af hálfu Islendinga en stuðningur hans við sjálfstæðisbaráttu Islend- inga á 19. öld hafði mikil áhrif á af- stöðu málsmetandi manna í Evrópu á málstað íslands gagnvart Dan- mörku. „Samt hafa fáir úr fjölskyld- unni heimsótt ísland og við erum þau fyrstu sem koma hingað síðan ömmusystir mín var hér á ferðalagi árið 1956 ásamt dóttur sinni sem nú er orðin 91 árs. Eftir þessa daga hér skiljum við betur hrifningu Kon- rads Maurer á landinu." Dr. Zeitlmann, sem er afkomandi Maurers í fjórða lið, segir að nýver- ið hafi komið í ljós að málverk sem lengst af var talið af Georg Ludwig Maurer, föður Konrads, sé raunar af Konrad Maurer sjálfum. „Þetta málverk er í minni eigu og á bakhlið þess er ritað ártalið 1842 og mála- rinn var Joseph Bernhardt sem var þekktur málari mannamynda á þeim tíma í Múnchen. Myndin er því óumdeilanlega af Konrad Maur- er 19 ára gömlum og er eina myndin sem til er af honum svo ungum. Annað málverk af honum 53 ára gömlum kom í leitirnar íyrir ekki mörgum árum í Osló en þar hafði það verið frá þvíyinir og velunnarar Maurers við Óslóarháskóla létu mála myndina árið 1877.“ f Fróbærir Namkvæmiskjólar og dragtir til sölu eða leigu, i öllum stærðum. Ath! eitt í nr. Fataleiga Garðabæjar Sími 565 6680 Opið 9-16, lou. 10-12 Bókhald fyrir nýja öld KERFISÞROUN HF. Fákafeni 11 • Simi 568 8055 www.islandia.is/keifisthroun Bentu á þann sem þér þykir bestur Yfirlitsmynd af sýningu Söru Björnsdóttur á Mokka. MYNÐLIST Höggmjndir Sara Itjörnsdóttir MOKKAKAFFI, SKÓLAVÖRÐUSTÍG Til 6. september. Opið daglega frá kl. 10-23:30, en sunnudaga frá kl. 14-23:30. SARA Björnsdóttir heldur bráð- skemmtilega sýningu á Mokka, þar sem hún biður gesti, góðfúslega, að gera upp við sig hver af sautján litl- um höggmyndum þeim finnst fal- legust. Niðurstöðuna geta gestirnir fest á litla gula atkvæðaseðla og stungið í kjörkassa við útidyr kaffi- hússins. Talið verður upp úr kass- anum með viðhöfn í september og þá kemur í ljós hvaða höggmynd hefur sigrað sem fegursti hlutur- inn á sýningunni. Uppátæki Söru er verðug til- raun til að draga fram álit gesta á því sem hangir á veggjum kaffi- hússins. Með því flyst álit áhor- fandans burt úr hugskotinu yfir í kjörkassann. Hin persónulega skoðun verður allt í einu opinber og afgerandi. Hún öðlast eilítið vægi á sama hátt og atkvæði greitt í pólitískum kosningum. Munurinn er sá að bakvið pólitíska atkvæðið liggja þjóðmálin; áþreifanleg má- lefni sem hver kjósandi getur fund- ið brenna á sjálfum sér; buddu sinni og buru. Ekkert því um líkt er hægt að heimfæra upp á list Söru. Val á verki eftir hana breytir varla miklu um efnislega líðan okkar. Skiptir það þá miklu máli hvað við veljum sem fegursta verkið á sýningunni? I fljótu bragði virðast verk Söru keimlík þótt hvert viðarstykkið sé með sínum ólíka lit og lögun. Það er því hverjum manni vandi á höndum að velja eitt verk öðru fremur sem fegursta verk sýningarinnar. En haldi einhver fram fáfengileik slíks vals ætti sá hinn sami að hugsa til allra þeirra átaka, hreinsana og of- sókna sem látin voru bitna á mönn- um fyrir það eitt að hafa ekki feg- urðarsmekk í takt við þjóðar- forystuna. Þar sannast einmitt hið merkilega og óútkljáða í hópsálar- fræðinni, að þeim mun minni sem munurinn er í ágreiningi manna í millum því hatrammara getur upp- gjörið orðið. Kjörkassi Söru og sautján verkin eru þar af leiðandi ekki eins saklaus og virðist við fyrstu sýn, því með hugmyndinni öðlast heildin þá krít- ísku fyllingu sem einstök verk án skýringa fá ekki miðlað. Halldór Björn Runólfsson Skrifstofur VÍS eru opnar frá 9-17 alla virka daga í vetur. Þú færð svör við spurningum þínum í þjónustuveri VÍS, 560 5000, frá 8:00 til 19:00 alla virka daga. Skrifstofur V(S (útibúum Landsbankans á Höfn í Hornarfirði og í Ólafsvík eru opnar frá 9:15 ■ 16:00. Þar sem tryqglngar snúast um fólk Vetrartíminn er kominn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.