Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Tölvuþjálfun
Windows • Word
Internet • Excel
Það er aldrei of seint að byrja!
60 stunda námskeið þar sem þátttakendur
kynnast grundvallarþáttum tölvuvinnslu
og fá hagnýta þjálfun.
Vönduð kennslubók innifalin í verði.
Innritun stendur yfir.
Fjárfestu í framtíðinni!
Tölvuskóli íslands
BÍLDSHÖFÐI 18, SÍMI 5671466
Málþing um skipulag ferðamannastaða
laugardaginn 4. september kl. 9.30-16.00
Ferðamálaráð Islands, Háskólinn á Akureyri, Stofnun Vilhjálms
Stefánssonar og Háskóli íslands standa fyrir málþingi um skipulag
ferðamannastaða.
Tími Efni Framsaga
9.30-10.00 Setning og kynning. Páll Skúlason rektor Háskóla íslands.
10.00-10.45 Skipulag ferðamannastaða. Prófessor Gerda Priestley.
10.45-11.00 Umræður og fyrirspurnir.
11.00-11.45 Landsvirkjun sem skipuleggjandi ferðamannastaða. Benedikt Karl Valdimarsson og Birkir Fanndal.
11.45-12.00 Umræður.
13.00-13.45 Áhrif ferðamennsku á menningu og samfélag. Áhrif þess að skipuleggja villt og ósnortin víðerni. Prófessor Valene L. Smith.
13.45-14.00 Umræður.
14.00-14.45 Viðhorf ferðaþjónustunnar til skipulags ferðamannastaða. Þorleifur Þór Jónsson hagfræðingur SAF.
15.00-16.00 Umræður og málþingi slitið.
Málþinginu verður varpað um fjarfundabúnað milli Akureyrar
og Reykjavíkur og fer fram í sal Endurmenntunarstofnunar
Háskóía íslands að Dunhaga 7 og í fjarfundasal Háskólans á
Akureyri við Þingvallastræti. Skráning í síma 525 4923
og á netfang endurm@hi.is
Aðgangseyrir er kr. 2.000 (kr. 1.000 fyrir stúdenta gegn
framvísun skólaskírteinis). Öllum er heimill aðgangur.
FERÐAMALARAÐ ISLANDS
SKYRSLUTÆKWIFELAti ISLANOS
Smáar en knáar
Stóra iitla byltingín í tölvuheimínum
Ráðstefna og sýning á Hótel Loftleiðum
föstudagínn 3. september 1999
DAGSKRA
13:00
13:15
13:55
14:35
15:15
16:05
16:45
Innritun fundargesta
Myndir í stafrænu umhverfi
Gunnar Hilmarsson, Hans Petersen hf., tæknideild
Tvívítt strikamerki - PDF 417
Þórarinn Kópsson, Nýherja hf.
Kaffihlé / sýningarsvæði opið
Tækniþróun framtíðarinnar
Fredrik Carlsson, Strategic Product Manager hjá
Ericsson í Svíþjóð
Þriðja kynslóða far-fjarskipta
Sigfús Bjömsson, prófessor við Háskóla fslands
Ráðstefnuslit
Þátttökugjöld Kr. 8.800 fyrir félagsmenn SÍ, kr. 11.800 fyrir utan-
félagsmenn, fimmti hver þátttakandi frá fyrirtæki fær fritt.
Þátttöku þarf að tilkynna í síðasta lagi 2. september 1999
Sími 553 2460 - Netfang sky@sky.is
UMRÆÐAN
Ráðherra rekur
raunir sínar
SAMFELAGIÐ
þróast og breytist frá
einum tíma til annars.
Tíminn stendur ekki
kyrr og veruleiki sem
var birtist gjarnan
samtímanum sem
leiftur liðinna tíma.
Heimsmynd gærdags-
ins er lærdómsrík, en
er ekki aflvaki umræð-
unnar í núinu.
Það ætlar að verða
bið á því að mennta-
málaráðherra þjóðar-
innar, Bjöm Bjarna-
son, komi til byggða í
umræðunni um örygg-
is- og varnarmál það
ætlar seint að gerast að augu hans
opnist fyrir nýjum veruleika nútím-
ans í alþjóðastjómmálum. Það má
lesa í grein hans í Morgunblaðinu
24. ágúst síðastliðinn, þar sem hann
reynir að svara viðhorfum mínum
til alþjóðamála.
I þeirri grein ber þó mest á hefð-
bundinni ólund og venjubundnum
hroka, sem hann bregður gjaman
iyrir sig í skoðanaskiptum um þessi
mál. Honum finnst síðan alvont að
ritgerðir hans og greinar síðustu 10
árin um alþjóðamál hafi ekki vera
skyldulesning á heimilum hérlend-
is!!! Það sem ég hefi lesið af bók-
menntaverkum Björns um alþjóð-
astjómmál staðfestir það sem er:
Björn Bjarnason hefur átt erfitt
með að fóta sig á vettvangi alþjóð-
astjómmálanna eftir að svart/hvíta
heimsmyndin hans hrandi með
Berlínarmúrnum. Það er einföld og
óumflýjanleg stað-
reynd.
Snúið út úr
Öll þessi svargrein
Björns byggist að
öðra leyti efnislega á
tilbúnum og röngum
forsendum. Hann ger-
ir mér upp eftirfarandi
skoðanir: „I fyrsta lagi
að Sameinuðu þjóðirn-
ar (SÞ) taki við hlut-
verki NATO. í öðru
lagi að Bandaríkjast-
jóm vilji rifta vamar-
samningnum við Is-
Guðmundur Arni lendinga. í þriðja lagi
Stefánsson að söguleg nauðsyn
leiði til aðildar Islands að Evrópu-
sambandinu.“
Allt er þetta tóm vitleysa og hug-
arburður Bjöms. I fyrsta lagi sagði
ég að ég sæi það fyrir mér í fram-
tíðinni að SÞ gæti tekið við fjöl-
mörgum verkefnum, sem NATO
hefur haft með höndum. Það hafa
verið ofarlega á baugi almenn skoð-
anaskipti í þessa vera, er lúta að
skörun verkefna NATO og SÞ, þeg-
ar um er að ræða svæði utan Atl-
antshafsríkja, s.s. í Kosovo og al-
mennt á Balkanskaga. I öðra lagi
sagði ég að bandarísk stjórnvöld
hefðu viljað draga úr starfsemi
Keflavíkurstöðvarinnar. Því er
ómótmælt, enda staðreynd. Riftun
vamarsamningsins í því samhengi
er nýtt innlegg frá menntamálar-
áðherra.
I þriðja lagi tel ég að ítarleg
Evrópuumræða muni knýja á um
Varnarmál
ísland og umheimurinn
í nýrri heimsmynd,
segir Guðmundur Arni
Stefánsson, er brýnt
viðfangsefni íslenzkra
stjórnmála.
afstöðu íslendinga um aðild eður ei
á næstu árum. Því getur Björn
heldur ekki mótmælt, enda standa
öll efni til þess, þrátt fyrir fælni
þeirra sjálfstæðismanna, þegar að
umræðunni um ESB er komið.
Fastur
í fortíð
Þetta er kjami málsins og ótrú-
legt, að verða að því vitni, að starf-
andi ráðherra skuli kveina undan
því, að ræða nýja stöðu alþjóðamála
og nýleg viðhorf sem til hafa orðið
að þreyttu breytanda.
Island og umheimurinn í nýrri
heimsmynd er brýnt viðfangsefni
íslenskra stjórnmála. Samfylkingin
mætir þar til leiks með skýrar
áherslur. Það er aftur á móti aug-
ljóst að Bjöm Bjamason mun ekki
auðga mikið þær umræður, verandi
fastur í fortíðinni í eigin fQabeinst-
urni. Það er hins vegar hans vanda-
mál, en ekki annarra.
Höfundur er alþingismaður.
EKKI þarf að koma
í opna skjöldu, að sí-
fellt þróaðri tækni
fylgir stórfengleg
fækkun einhæfra
sóðastarfa við flæðilín-
ur á borð við þær, sem
tíðkast í loftmettum
álverum. Þau hafa
sterklega verið orðuð
við alzheimer-sjúk-
dóminn. Tölvuvædd
vélmenni leysa þar
vitaskuld mannshönd-
ina jafnt og þétt af
hólmi. Áhugi manna
víðast hvar á byggðu
bóli beinist í seinni tíð
meir að tölvustýrðum
vélmennum til bjargráða en
spúandi álverum nema ef til vill í
mörkuðum reit austfírskra sveitar-
stjórnarmanna.
Alver era bæði fokdýr og þurfta-
frek og eru fyrirvaralaust lögð nið-
ur þjónki þau ekki hagsýnum eig-
endum sínum. Og hver spyr þá um
Óðinsboða? Ef til vill taka sveitar-
stjómarmenn á Austurlandi fullt
mark á þeirri dæmalausu færslu í
þjóðhagsreikningi, að ál sé innlend
framleiðsla, íslensk útflutningsaf-
urð, enda þannig til stofnað. Hverj-
ir greiða kostnaðinn af
rafmagninu, fram-
kvæmdarótinu og
skaðann, sem vissu-
lega af hlýst? Ríkið
innheimtir sína skatta
og sveitarstjórnimar
útsvarið, skuldir era
greiddar niður með
vöxtum og vaxtavöxt-
um. Skiptir ekki
mestu í lífinu að pen-
ingar skipti um hend-
ur.sama hvemig?
Islenzkir ráðherrar
í fararbroddi spekú-
lanta heima í héraði
ásamt lúsiðnum kon-
tóristum hjá Landsv-
irkjun eru engu síður hættulegir
landinu, sjálfum sér og allri afkomu
manna en sveitarstjórnarmenn og
hvarvetna til skammar þar sem
þeir fara, látlaust sífrandi með betl-
istafinn grátbiðjandi Pétur og Pál
um nýtt virki undir nýja tekju-
pósta. Hvað liggur í kaldakoli undir
sýltum tungurótum þessara
manna? Sjálfsímyndin, heilt vega-
kei-fi, smekkur, næmi, vit, búhygg-
indi?
Eru fyrrverandi kjósendur Eyst-
eins Jónssonar og Lúðvíks Jóseps-
sonar gengnir í björg, gramir út í
lífið sakir ferlegra blankheita og
brostinna vona, eiga harma að
hefna og ætla sér ekki lakari
strandhögg en hermangið gaf vorið
góða sælla minninga? Ætla Aust-
firðingar sér allt viðhald á tækjum
Norsk Hydro á lokuðum útboðsm-
arkaði um leið og þeir freista þess
blessaðir að hækka lítillega laun-
astigið í fjórðungnum en gjörspilla
og eyðileggja í leiðinni eigin bjar-
Landvernd
Skiptir ekki mestu, spyr
Jón Bergsteinsson, að
peningarnir skipti um
hendur, sama hvernig?
græði, efnilegustu þjóðlendu
Evrópu, sem sífellt fleiri vilja njóta.
Villt náttúra verður ekki hönnuð af
mannahöndum þegar hún tapast.
Til þess dygði ekki Marshallaðstoð,
mínir kæra, ekki norðan Vatnajök-
uls. Hvers vegna að setja allt sitt á
annan eins vonarpening, herrar
mínir og frúr.
Að lokum kemur í hug vísa eftir
Káinn, flutt langt að, rati hún boð-
leið í fjórðunginn:
Norður á söndum Nástrandar
nepjan blandin svita
hvort að landinn þrífist þar
þaðmáfjandinnvita.
Höfundur er verkamaður.
Um hernaðinn
gegn landinu
Jón Bergsteinsson
Nýr o$?læsile?ur
Frábær
netklúbbstilboð
•:'v
FLUGFELAG ISLANDS
— fyrir fólk eins og þig!