Morgunblaðið - 01.09.1999, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 01.09.1999, Qupperneq 42
42 MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Intm Litaðu myndina af Línu og félögum og sendu með nafni og heimilisfangi til Morgunblaðsins. Þú gætir unnið • Panasonic stafræna myndbandsupptökuvél að verðmæti 120.000 kr. • Panasonic myndbandstæki • 50 myndbandsspólur með Línu Langsokk • 50 stubbavinninga frá SS • 200 bíómiða á Línu Langsokk 2 - Ævintýri í Suðurhöfum Lína Langsokkur 2 verður frumsýnd föstudaginn 24. september. Sendu myndina Inn fyrlr 23. september merkta: Litalelkur línu, Morgunblaflið, Kringlunni 1,103 Reykjavík. LAUGA Wló JAPIS Nttfn vinningshafa verfla birt i Morgunblaflinu 30. september. JTtrnfijrnfifí?) Panasonic Nafn: Heimilisfang:___________________________________Sími: Upphlaup Kaupmanna- samtakanna í SÍÐUSTU viku ijölluðu fjölmiðlar tals- vert um mótmæli Kaup- mannasamtaka Islands gegn drögum að nýrri reglugerð um fæðubót- arefni og náttúruvörur. Birt voru viðtöl við Ein- ar Magnússon hjá heil- brigðisráðuneytinu, Örn Svavarsson, eig- anda Heilsuhússins, og Sigurð Jónsson, fram- kvæmdastjóra Kaup- mannasamtaka Islands, en samtökin mótmæltu gjaldtöku og því að leyf- isveitingar falli undir Lyfjaeftirlit ríkisins. Það er eðlilegt að Kaupmannasamtökin standi vörð um hagsmuni félagsmanna á sama hátt og það er skylda ráðherra að standa vörð um hagsmuni neytenda. Þegar verið er að semja nýjar reglu- gerðir er nauðsynlegt að vanda til allra verka. Drög eru því jafnan send til umsagnar hjá aðilum er málin varða. Umsagnaraðili leggur síðan ákveðna vinnu í sína umsögn og kannar sem flestar hliðar máls- ins. Af fréttaflutningi að dæma hafa Kaupmannasamtökin annaðhvort brugðist í þessu grundvallaratriði varðandi vönduð vinnubrögð eða eru að reyna að þyrla upp moldviðri til að við- halda úreltum vinnu- brögðum, sem löngu er tímabært að breyta. Samtökin mótmæla því að léyfisveitingar falli undir Lyfjaeftirlit- ið. Með einu símtali hefði Sigurður komist að því að Lyfjaeftirlitið hefur alltaf séð um þennan málaflokk. Engu er breytt með til- komu nýju reglugerð- arinnar. Oft má deila um vistun einstakra verkefna hins opin- bera, en hjá Lyfjaeftir- litinu hefur byggst upp nauðsynleg þekking fyrir þennan málaflokk. Auk þess mun ráðherra skipa ráðgefandi nefnd er fjalli um hvaða efni teljist skaðlaus og megi flytja inn. Starf þessarar nefndar mun tryggja að ávallt verði unnið eftir bestu upplýsingum. I umsögn samtakanna segir að umræddai- vör- ur séu að ýmsu leyti skyldari mat- vörum en lyfjum og því ekki eðlilegt að fella þær undir Lyfjaeftirlitið. Hafi Sigurður lesið 4. gr. að drögun- um á hann að hafa tekið eftir því að í nefndinni munu sitja fulltrúar frá Hollustuvernd og Manneldisráði. Hannes Hafsteinsson Yfírgangur á Hveravöllum UNDARLEGA grein skrifar Páll Sig- urðsson lagaprófessor í Morgunblaðið 28. ágúst s.l. um Hvera- velli og „yfirgang“ Svínhreppinga gegn starfsemi Ferðafélags íslands þar. Meginat- riði greinarinnar - þegar horft er framhjá stóryrðunum - virðist það að „fégjarnir" for- svarsmenn Svína- vatnshrepps séu að reyna að bola ferðafé- lagsmönnum út af svæðinu. Prófessorinn nefnir nokkrum sinnum „bætur“ sem Svínhreppingar hafí fengið frá Landsvirkjun og talar um peninga á bankabók. Eins og lagaprófess- orinn veit eru bætur að jafnaði greiddar fyrir tjón eða skaða sem einhver verður fyrir. Umræddar bætur eru fyrir land sem glataðist við virkjun Blöndu en þá fóru um 40-50 ferkílómetrar gróins lands undir vatn. Bæturnar fólust fyrst og fremst í því að græða upp ógró- ið land í stað þess sem tapaðist en ekki í peningagreiðslum og voru ekki til Svínavatnshrepps ein- göngu heldur til Upprekstrarfé- lags Auðkúluheiðar en í því eru Svínavatnshreppur, Torfalækjar- hreppur og Blönduóshreppur. Hins vegar fær Svínavatnshrepp- ur fasteignagjöld af Blönduvirkjun sem eru umtalsverð upphæð fyrir fámennt sveitarfélag. Páll segir að landsvirkjun hafi byggt skálann sunnan við Afanga- fell „handa hreppnum" í „grónu (uppgræddu en ekki sjálfbæru) umhverfi". Þessi skáli var byggður í stað gangnaskála við Kólkuhól, sem fór undir stíflu, og var hluti af um- ræddum bótum til upprekstrarfélagsins. Umhverfis Afangafell er gróið land en ekki uppgrætt eins og hver maður sér sem fer þar um. Þarna hefur pró- fessornum því tekist að koma tveim rang- færslum fyrir í einni málsgrein. Einhverra hluta vegna reynir prófess- orinn að gera lítið úr forsvarsmönnum Svínhreppinga. Hann segir að þeir stjórnist af „lítt dulinni fégirnd“; þeir séu haldnir „óraunhæfum hagnaðar- vonum“; hugmyndir þeirra um landnýtingu séu í „andstöðu við Ferðaþjónusta Prófessornum, segir Jón Torfason, verður tíðrætt um fégirnd og hagnaðarvonir Svín- hreppinga vegna ferða- mannaþjónustu á Hveravöllum. allar viðurkenndar stefnur í nátt- úruverndarmálum“; þeir sæki „hratt fram gegn mönnum og um- hverfi"; þeim sé stjórnað af „blind- um öflum“; þeir fari fram með „vígvélum og bryntólum gegn náttúrunni“. Ef þetta væri rétt hjá prófessornum þá eru frændur Jdn Torfason
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.