Morgunblaðið - 01.09.1999, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 01.09.1999, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 47 i líka að allir færu eftir settum reglum og lét í sér heyra ef einhver brá út af því. Sama gilti um okkur fullorðna fólkið, starfsfélaga hennar. Hún var oftast allra manna hressust, hló mik- ið, söng og trallaði en var líka bein- skeytt í athugasemdum. Það var eng- in hálfvelgja í neinu hjá Kötu. Hún var sannur Vestfirðingur og bar ef til vill merki vestfirskrar náttúru, oftast mild en stundum hvöss. Þegar Kata hóf störf hér bjó hún á Digranesvegi skammt frá skólan- um ásamt manni sínum Haraldi Pét- urssyni og sonunum tveimur. Halli var oftast á sjó svo daglegt umstang heimilisins lenti mikið til á Kötu. Hún hafði alltaf nóg að gera og allt þurfti að drífa af. Hún vildi hvers manns vanda leysa og var afskap- lega örlát. Það var mjög gaman að koma til þeirra hjóna. Þau áttu margt muna sem Halli hafði keypt erlendis og sem gaman var að skoða. Þau voru höfðingjar heim að sækja og þótt tæp sautján ár séu liðin frá fimmtugsafmæli Kötu er oft í okkar hópi minnst á það heimboð og myndir teknar í afmælinu sýna að við skemmtum okkur konunglega. Á fyrstu árum Kötu í skólanum hafa trúlega verið fleiri klukkutímar í sólarhringnum en eru í dag því menn gáfu sér tíma eftir vinnu til að taka í spil. Kata var liðtækur bridgespilari og tók það spil alvar- lega. Hún hafði á takteinum ýmis orðatiltæki við spilamennskuna og fagnaði á sinn hátt þegar vel gekk. Það er eitthvað sem maður sér og heyrir fyrir sér áfram. Kata kunni ógrynni af söngtextum og marga texta sem öðrum hér voru óþekktir. Einn þeirra höfum við sérstaklega tekið ástfóstri við og syngjum við skemmtileg tækifæri. Kata hætti störfum hér fyrir tæp- um fjórum árum vegna heilsubrests. Hún bjó hin síðari ár í Hamraborg- inni rétt við skólann og leit inn til okkar öðru hverju. Síðast kom hún í Kópavogsskóla þegar haldið var uppá fimmtugsafmæli skólans í jan- úar sl. Hún var þá hress og kát en skömmu síðar fréttum við að hún hefði greinst með krabbamein. Næstu fréttir voru að hún hefði selt íbúðina og væri að ganga frá sínum málum eins og kostur var. Hún lét veikindin ekki hindra sig í að drífa í hlutunum og gaf sig ekki fyrr en hún mátti til. í bókinni sem vitnað var í í upp- hafi þessarar greinar er ljóð dagsins í dag, 1. september, ljóðið Trú- aiTaun eftir Matthías Jochumsson. Síðasta erindið hljóðar svo: Vér sjáum, hvar sumar rennur með sól yfir dauðans haf, og lyftir í eilífan aldingarð þvi öllu, sem Drottinn gaf. Sonum Kötu og fjölskyldu allri sendum við samúðarkveðjur. Við minnumst Kötu með hlýhug. Með kveðju frá Kópavogsskóla. Jóna Möller. t Ástkær móðir okkar, ANNA ÓLAFSDÓTTIR, áður til heimilis á Kleppsvegi 134, lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn 29. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar. Jóhanna Bjarnadóttir, Steinunn Bjarnadóttir, Bergmann Bjarnason, Valdís Bjarnadóttir, Bjarni Bærings Bjarnason. t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR, Silfurteigi 3, Reykjavík, lést á Landakoti mánudaginn 30. ágúst. Guðmundur Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson, Steinunn K. Árnadóttir, Guðmundur Guðmundsson, Þórey K. Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN H. GISSURARDÓTTIR, Mávahlíð 21, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju fimmtu- daginn 2. september kl. 13.30. Erla Ófeigsdóttir, Ingvar Pálsson, Ólafur Ófeigsson, Ragnhildur Björnsdóttir, Gísli Ófeigsson, Guðrún Bjarnadóttir og fjölskyldur. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, GERÐAR SIGURÐARDÓTTUR, Mýrarvegi 116, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri. Guð blessi ykkur öll. Ég var nýkomin til íslands þegar ég hitti Katrínu fyrst. Ég var að leita að húsnæði og hún hafði aug- lýst herbergi til leigu. Þegar hún opnaði dymar sá ég strax að hún var auðmjúk. Hún brosti mikið. Ég var ekki lengi að hugsa mig um og ég vildi vera hjá henni. Skoðun mín var ekki röng. Hún var aldrei annað en góð við mig í þetta eina og hálfa ár, sem ég bjó hjá henni. Ég, sem er útlendingur, hefði getað verið einmana og liðið illa á meðan ég var að reyna að að- lagast íslandi, en alltaf fann ég að ég var velkomin á hennar heimili. Þegar ég kom heim að kvöldi tók hún á móti mér með gleðibrosi. Hún sýndi svo mikinn áhuga á hvernig mér liði, að mér fannst ég vera heima. Hún veitti mér mikla hlýju á þeim tíma sem var erfiður fyrir mig. Ég trúi því að hún hvíli nú í faðmi föðurins. Hún hafði mjúkt hjarta gagnvart Jesú og elskaði hann. Nú fær hún að uppskera fyrir þann kærleika og gleði sem hún gaf öllum sem hún þekkti hér. Ég hlakka til að sjá hana aftur, þegar Jesús kemur að sækja alla sem elska hann og velja að ganga á hans vegi. Vinkona hennar, Melissa Lyle. Svavar Guðni Gunnarsson, Sigurður Svavarsson, Peggy Lynn Berry, Gunnar Þór Svavarsson, Steinunn Ásta Zebitz, Kristlaug Þórhildur Svavarsdóttir, Bernard Zuidema, Ari Svavarsson, Ágústa Gullý Malmquist og barnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem heiðruðu minningu okkar ástkæra EÐVARÐS SIGURGEIRSSONAR Ijósmyndara, Möðruvallastræti 4, Akureyri, og sýndu okkur ástvinum hans samúð og vinarhug. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahjúkrunar og Heimilisaðstoðar á Akureyri sem aðstoðaði við umönnun Eðvarðs. Marta Jónsdóttir, Egill Eðvarðsson, Sigríður Guðiaugsdóttir, Elsa Friðrika Eðvarðsdóttir, Bjarni Torfason, Anna Dóra Harðardóttir, Hjörleifur Einarsson, Kristín Huld Harðardóttir, Jón Guðlaugsson, Hanna Stefánsdóttir og barnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og iangamma, ELÍN HELGA HELGADÓTTIR frá Núpum, Fljótshverfi, til heimilis í Bogahlíð 14, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum laugardaginn 26. ágúst. Agnes H. Vigfúsdóttir, Baldur J. Vigfússon, Guðmundur H. Vigfússon, Hörður B. Vigfússon, Þórhildur Vigfúsdóttir, Kristján Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar og fósturfaðir, JÓHANN B. VALDIMARSSON, Kársnesbraut 29, Kópavogi, lést á Grensásdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur fimmtudaginn 19. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Lára Pálmarsdóttir og fjölskylda, Klara Jóhannsdóttir og fjölskylda, Heiðrún Jóhannsdóttir og fjölskylda, Svava Jóhannsdóttir og fjölskylda, Indíana Höskuldsdóttir og fjölskylda. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR HANSÍNA SIGFÚSDÓTTIR frá.Hörgshóli í Vesturhópi, sem andaðist á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga að morgni sunnudagsins 29. ágúst, verður jarðsungin frá Breiðabólsstaðarkirkju í Vestur- hópi föstudaginn 3. september kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Sjúkrahúsið á Hvamms- tanga. Björn Traustason, Sigríður Kerúlf Frímannsdóttir, Þorkell Traustason, Halldóra Kristinsdóttir, Agnar Traustason, Þráinn Traustason, Ása Ólafsdóttir, Guðbjörg Stella Traustadóttir, Sigfús Traustason, Sigurveig Guðjónsdóttir, Hörður Traustason, Sigurður Rósberg Traustason, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hiýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu, iangömmu og langalangömmu, ÞÓRUNNAR SVEINSDÓTTUR, Grandavegi 47. Björn Stefánsson, Stefán Björnsson, Gyða Guðbjörnsdóttir, Helga Björnsdóttir, Stefán Ágústsson, Sveinn Björnsson, Örn Björnsson, Þórdís Vilhjálmsdóttir, Jón Björnsson, Svana Júlíusdóttir, Þórdís Björnsdóttir, Stefán Sæmundsson, barnabörn, barnabarnabörn og langalangömmubarn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu, samúð og hlýhug við andiát og útför ástkærs eigin- manns míns, EYÞÓRS FANNBERGS, Aðallandi 7, Reykjavík. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki hjúkrunarþjónustunnar Karitas. Fyrir hönd aðstandenda, X Þóra Kristinsdóttir. *
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.