Morgunblaðið - 05.09.1999, Síða 20
20 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Stærðfræðin
er tungumál
náttúrunnar
KVIKMYJVDIR
Bfóbnrgin
„PÍ“ ★★★
eftir Darren Aronofsky
„PI“ er bandarískur vísinda-
skáldskapartryllir sem gerður er af
óháðum aðilum fyrir lítinn sem eng-
an pen-
ing en
er betri
en margur 100 milljón dollara
Hollywoodtryllirinn. Darren
Aronofsky heitir höfundur myndar-
innar sem segir frá stærðfræðingi
er vinnur við að finna númerakerfi
innan verðbréfamarkaðarins á Wall
Perlur
Sigfúsar
í Salnum
FYRSTU tónleikar í áskriftar-
röð Tíbrár í Salnum verða
þriðjudagskvöldið 7. september
kl. 20:30 og
ber þá upp á
fæðingardag
tónskáldsins
og heiðurs-
borgara
Kópavogs-
bæjar, Sig-
fúsar Hall-
dórssonar.
Það eru
þau Sigrún
Hjálmtýs-
dóttir, Bergþór Pálsson og
Jónas Ingimundarson sem
flytja ýmsar af þekktustu perl-
um Sigfúsar en auk þess leika
þau og syngja ýmis atriði úr
söngleikjum eftir Andrew
Lloyd-Webber, Jerome Kern,
Leonard Bernstein, Jerry
Herman og Gíeorge Gershwin.
Tónleikamir verða endur-
teknir fímmtudagskvöldið 9.
september kl. 20:30.
Street sem hann getur notað til
þess að segja fyrir um þróun mark-
aðarins. Lífsmottó hans er eftirfar-
andi: Stærðfræðin er tungumál
náttúrunnar. Hann er sannfærður
um að allt hér á jörðinni byggist á
stærðfræðiformúlum og hvers
vegna þá ekki verðbréfamarkaður-
inn líka? Fleiri virðast hafa djúpan
áhuga á því sem hann er að gera og
koma við
sögu
strang-
trúaðir gyðingar, fulltrúar fjármála-
heimsins, gamli kennarinn hans og
næstu nágrannar í blokkinni þar
sem hann býr.
Aronofsky byggir upp þessa
spennumynd sína á frábærlega
skemmtilegan máta. Stærðfræðing-
urinn er einbúi og kvalinn af of-
sóknarkennd svo hann hræðist allt
það sem mætir honum utan dyra.
Að auki á hann í heilmikilli innri
baráttu vegna þeirrar snilligáfu
sem hann hefur sem stærðfræðing-
ur og þeirrar sífelldu leitar sem hún
rekur hann í að svörum, að kerfum,
að hinum dularfullu spírallaga fyrir-
bærum sem eru allt í öllu í alheimi.
Niðurstaðan er mynd sem kemur
fjarska mikið á óvart. Hún er tekin á
svart/hvíta fílmu og á David Lynch
margt að þakka hvað varðar
drungalega og fráhrindandi per-
sónusköpun og niðumítt umhverfi.
Ibúð snillingsins er vaðandi í skor-
dýrum og hann þjáist af ofskynjun-
um þar sem við sögu kemur manns-
heilinn (kannski miðstöð hans eigin
snilldar) og hin geðsýkislega ofsókn-
arkennd í sambland við snilligáfuna
gerir hann að furðufyrirbæri.
Aronofsky tekst að setja fram
mjög spennandi athuganir um
stærðfræði og leitina að kerfum í
náttúrunni, leitina jafnvel að guði
og í leiðinni fjalla á skynugan hátt
um ofsafengna togstreitu milli ein-
staklingsins og gáfunnar sem hon-
um er gefin í umhverfi sem verður
sífellt myrkara og jafnvel á endan-
um lífshættulegt. Aronofsky hefur
búið til spírallaga frásögn úr stærð-
fræðigátu sem er allt í senn spenn-
andi, fróðleg og heillandi.
Arnaldur Indriðason
Jazzleikskóli
barnanna
Jazzballett
4-7
ara
Skemmtilegur dans,
þjálfun í líkamsburði,
jafnvægi, teygjur
og leikur.
J azzballetnámskeið
fyrir allan aldur.
Góðar og styrkjandi
æfingar fyrir
líkamann - góðar
teygjur og dansar.
14 vikna námskeið
AP
Munch á uppboð
JUSSI Pylkkanen, deildarstjóri
hjá Christies-uppboðsfyrirtæk-
inu í London, sýnir máiverk
Norðmannsins Edvards
Munchs, „Madonna", í Berlín á
fímmtudag. Málverkið, sem
metið er á um 840 milljónir ísl.
króna, verður sett á uppboð hjá
Christies í London 7. október
næstkomandi.
Islensk listakona vekur
atliygli í Hong Kong
SÝNING Ingu Svölu Þórs-
dóttur og kínverska lista-
mannsins Wu Shanzhuan
vakti athygli í Hong Kong
nýlega. Sýningin var haldin
í Hanart galleríinu og bar
nafnið „Vege pleasures",
en hún hlaut góð viðbrögð
að sögn Ingu Svölu sem og
jákvæð viðbrögð þarlendra
fjölmiðla.
Dagblaðið Hong Kong
Standard beinir athygli sinni þó
einna mest að ljósmyndinni „Para-
dises“, sem sýnir listamennina
nakta í ávaxtadeild þýsks stór-
markaðar. En nekt er bönnuð með
lögum í Hong Kong og kemur fram
á forsíðu blaðsins að sýningin sé
undir ströngu eftirliti Tela, stofn-
unar sem sjái um leyfisveitingar
sjónvarpsútsendinga og ákveðna
ritskoðun fjölmiðlaefnis. I blaðinu
kemur enn fremur fram að
berist kvartanir vegna sýn-
ingarinnar verði þær tekn-
ar fyrir hjá nefnd sem skil-
greini klám og annað óvið-
urkvæmilegt athæfí.
Engar aðgerðir fóru þó
fram af hálfu Tela, en
nokkrar kvartanir bárust
vegna sýningarinnar að því
er Inga Svala segir. „Lögin
eru hins vegar nokkuð loð-
in og því getur verið erfitt fyrir yf-
irvöld að bregðast við þeim,“ bætir
hún við og kveður sýninguna al-
mennt hafa fengið jákvæða um-
fjöllun, m.a. í viðtali sem Hong
Kong Standard tók við hana og
Shanzhuan.
„Paradises" var meðal þeirra
verka sem voru á sýningunni Flögð
og fögur skinn í Nýlistasafninu í
fyrra.
Inga Svala
Þórsdóttir
Kór Flensborgarskóla.
heQast 11. september
Kennt er í Baðhúsinu -
Innritun í síma 553 0786
milli kl. 13.00 og 18.00.
Skólakór
KÓR Flensborgarskólans í
Hafnarfírði heldur tónleika í
Hásölum í Hafnarfjarðarkirkju
í kvöld, sunnudagskvöld, kl.
20.30. Kórinn flytur hluta efnis-
Hásölum
skrár sinnar frá síðastliðnu
vori, en þá tók kórinn þátt í al-
þjóðlegu kóramóti í Portúgal.
Söngstjóri kórsins er Hrafn-
hildur Blomsterberg.
Einsöngstón-
leikar í Há-
sölum og
Bolungarvík
SIGRÚN Pálmadóttir sópran-
söngkona heldur einsöngstón-
leika í Hásölum (safnaðarsal
Hafnarfjarð-
arkirkju)
þriðjudags-
kvöldið 7.
september
kl. 20.30 og í
Félagsheim-
ilinu Víkur-
bæ í Bolung-
arvík
fimmtudag-
inn 9. sept-
ember kl.
20.30. Und-
irleikari á tónleikunum verður
Iwpna Jagla.
A efnisskránni eru m.a. ís-
lenskir ljóðasöngvar eftir Sig-
valda Kaldalóns, næturljóð eft-
ir þrjá höfunda, Richard
Strauss, Benjamin Britten, og
Alban Berg, og einnig verða
flutt norræn ljóð eftir Grieg og
Sibelius. Flutt verða atriði úr
óperum, s.s. arían Juliette úr
Rómeó og Júlíu.
Sigrún hóf ung tónlistarnám
við Tónlistarskóla Bolungar-
víkur og lauk þaðan 5. stigi í pí-
anóleik. Söngnám stundaði hún
við Tónlistarskólann á Akur-
eyri og hóf nám við Söngskól-
ann í Reykjavík árið 1996 og
lauk burtfararprófi (Advanced
Certificate) sl. vor.
Sigrún hefur starfað með
Nemendaóperu Söngskólans
undanfarin tvö ár og m.a. tekið
þátt í uppfærslum á Töfraflaut-
unni, þar sem hún söng bæði
hlutverk Fyrstu dömu og
Papagenu og í Leðurblökunni,
þar sem hún fór með hlutverk
Adele. Hún er félagi í Kór ís-
lensku óperunnar, og tók þar
þátt í uppfærslum á Turandot
og Leðurblökunni sem var á
fjölum óperunnai- sl. vor. Hún
hefur komið fram sem ein-
söngvari við ýmis tækifæri og
hélt hádegistónleika ásamt
Iwonu Jagla í Norræna húsinu
í febrúar sl.
Sigrún stefnir nú á fram-
haldsnám í Þýskalandi og fer
utan í lok september.
Iwona Jagla er kennari við
Söngskólann í Reykjavík.
Björg Þórhallsdóttir og
Daníel Þorsteinsson.
Ljóða-
tónleikar á
Austurlandi
BJÖRG Þórhallsdóttir sópran-
söngkona og Daníel Þorsteins-
son píanóleikari halda ljóðatón-
leika í safnaðarheimili Norð-
fjarðarkirkju í kvöld, sunnu-
dag, og í Egilsstaðakirkju
mánudaginn 6. september.
Tónleikamir hefjast báðir kl.
20.30. A efnisskránni er ein-
göngu trúarleg tónlist er
spannar yfir 300 ár í tónlistar-
sögunni. Meðal höfunda eru
Ami Thorsteinsson, Sigvaldi
Kaldalóns, Jón Leifs, Hándel,
Schubert, Dvorák, Barber og
Copland.
Björg og Daníel fluttu sömu
efnisskrá við setningu Kristni-
hátíðar á íslandi á Kirkjulista-
viku í Akureyrarkirkju í apríl
sl.
Signín Pálma-
dóttir sópran-
söngkona.