Morgunblaðið - 05.09.1999, Síða 36
36 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Frá höfninni í Djúpavogi. „Gísli í Papey“ ferðbúinn
13. ágúst 1999.
Vitinn á Hellisbjargi í Papey, byggður 1922.
Kirkjan og kirkjugarðurinn í Papey.
Góðabjarg, eitt fengsælasta fuglabjargið í Papey. Horft til lands úr Papey.
Papeyj arbréf
Fyrir fuglaskoðara,
segir Leifur Sveinsson,
er Papey alger paradís.
i.
ÞAÐ ER laugardaginn 14. ágúst
1999 kl. 13.00 að siglt er út frá
Djúpavogi á bátnum „Gísla í Pa-
pey“, áleiðis til Papeyjar. Farþegar
eru um 14. Nokkur gjóla var, en
ekki til vandræða á útleið. Leið-
sögumaður var Ingimar Sveinsson
fyrrum kennari og skólastjóri, sem
reyndist okkur farþegunum hafsjór
af fróðleik, bæði um Papey og
Djúpavog, enda reit hann árið 1989
bókina „Djúpivogur 400 ár við Vog-
inn“, sem ég mun m.a. styðjast við í
grein þessari. Lengi hafði það verið
draumur minn, að komast út í Pa-
pey, en kona mín hafði komið út í
Papey sumarið 1953 á vegum Páls
Arasonar, hins kunna ferðamála-
frömuðar, sem nú er einbúi í Bug í
Hörgárdal, 84 ára, en eldhress.
II.
I Landnámu segir svo: „Þeir fóst-
bræður bjuggu skip mikið, er þeir
áttu og fóru að leita lands þess, er
» Hrafna-Flóki hafði fundið og þá var
Island kallað. Þeir fundu landið og
voru í Austfjörðum í Álftafírði hin-
um syðra. Þeim virtist landið betra
suður en norður. Þeir voru einn vet-
ur í landipu og fóru þá aftur til Nor-
egs.“ I Arbók Ferðafélags íslands
1955 skrifar dr. Stefán Einarsson,
en hann var fæddur og uppalinn í
Breiðdal og því kunnugur á Suður-
fjörðum: „Sagt er að þeir fóstbræð-
ur, Ingólfur og Hjörleifur, hafi
dvalist á Geithellum veturinn, sem
þeir voru hér, áður en þeir fluttust
« alfarnir til Isjands, og jafnvel hald-
ið, að nafnið Geithellar sé síðan.“
Enn bætir Ingimar Sveinsson við í
bók sinni, er fyrr er nefnd: „Sög-
unni fylgir, að um vorið hafi konur
gengið upp í fjall og séð reyk úti í
Papey. Konumar voru að leita að
geitum, sem hurfu frá þeim, og
fundu þær í hellisskúta uppi í fjall-
inu. Þegar farið var að athuga um
reykinn, voru þar Papar fyrir.“
Papamir voru kristnir menn frá Ir-
landi, sem höfðu sig á brott, þegar
Norðmenn fóru að byggja ísland,
því þeir vildu ekki vera innan um
heiðna menn.
III.
Heimildir herma, að fyrsti ábú-
andi eyjarinnar, sem kunnugt er
um, hafi verið séra Eiríkur
Höskuldsson prestur að Heydölum
Einarssonar skálds Sigurðssonar.
Hann var prestur að Hálsi í
Hamarsfirði 1635-1653. Margir
hafa búið í Papey síðan og átt það
sameiginlegt að vera taldir vel efn-
aðir bændur. Einna þekktastur
þeirra var Mensalder Raben Jóns-
son, sem kallaður var hinn auðgi.
Mun hann sennilega hafa búið þar
frá 1762-1799, alla tíð einhleypur.
Arið 1900 kaupir Gísli Þorvarðsson
Papey af Sigríði Bjarnadóttur,
ekkju Eiríks Jónssonar frá Hlíð í
Lóni, á tólf þúsund krónur, sem
þótti geypiverð á þeim tíma. Gísli
hafði áður búið á Fagurhólsmýri í
Oræfasveit. I bréfi, er Finnur
Malmquist á Starmýri í Álftafirði
skrifar Gísla 21. janúar árið 1900 og
óskar Gísla til hamingju með kaupin
á Papey, ritar Finnur m.a. „Ekki
deyr sá, er dýrt kaupir." Gísli Þor-
varðsson var fæddur 3. október
1868 og dó 12. október 1948. Hann
var skörungur mikill og gerði Pa-
pey að stórbýli. Afkomendur Gísla
eiga núna Papeyna og hafa m.a.
reist sér tvö sumarhús á eynni.
Gamli bærinn, sem Gísli reisti árið
1902, er nú orðinn talsvert lúinn, en
samt er reynt að halda hluta hans
við.
IV.
Siglingin út í Papey tók röskan
klukkutíma, enda siglt fram hjá ey
einni, þar sem selir spókuðu sig í
blíðunni án þess að styggjast af sigl-
ingu bátsins. Tvær hafnir eru í Pa-
pey, Selavogur og Áttahringsvogur.
Við lendum í Selavogi og síðan hófst
gangan um eyna. Góðabjarg var
barið augum, klifrað upp að vitan-
um á Hellisbjargi, sem reistur var
árið 1922. Hellisbjargið er 58 m á
hæð og er þaðan mikið útsýni og
fagurt. Fyrir fuglaskoðara er Papey
alger paradís. Bjargsig var mikið
stundað á dögum Gísla Þorvarðs-
sonar. Sigið var í björgin eftir ritu-
ungunum, rétt áður en þeir urðu
fleygir. Lundinn gaf einnig góðar
tekjur, kofan tekin úr holunum, er
hún var fullþroska, en fullorðni
lundinn veiddur í háf og náði Gísli
bóndi eitt sinn 845 lundum í eynni á
einum degi. Æðarvarp var gríðar-
mikið í Papey, t.d. fengust 103 j>und
af æðardún í eynni árið 1900. Ymsir
fuglar koma við á ferðum sínum í
Papey, og ber þar mest á heiðló-
unni, sem kemur í stórhópum síðari
hluta sumars og dvelst oft langt
fram á haust. Hún er fáliðaðri og
dvelur skemur á vorin. Þá sjást oft
grágæsir, helsingjar og stöku svan-
ir, en hafa vanalega stutta viðdvöl.
V.
Nú var stefnan tekin á kirkjuna,
en hún er að stofni til frá 1807, en
hefur nú verið endurbyggð
nokkrum sinnum og er nú í hinu
prýðilegasta ástandi, svo og kirkju-
garðurinn. Papeyjarkirkja var end-
urvígð árið 1996. Kirkjan reyndist
okkar eina afdrep í ferðinni og þar
las Ingimar Sveinsson okkur pistil-
inn og kom víða við. Kirkjan í Pa-
pey er talin vera önnur af tveim
minnstu kirkjum landsins. Knapps-
staðakirkja í Fljótum keppir við
hana um titilinn: „Minnsta kirkja
landsins". Nú var farið að rigna
heldur hressilega og bátur okkar
„Gísli í Papey“ eitthvað á eftir áætl-
un. Hafði sótt nýjan hóp til Djúpa-
vogs meðan við skoðuðum eyna.
Var nú úr vöndu að ráða, annað-
hvort að snúa aftur til kirkjunnar,
eða leita skjóls hjá sumarhúsafólki
Gísla Þorvarðssonar. Meðan skegg-
rætt var um þessa valkosti kom
mér í hug frásögnin um dvöl
Gústafs Gíslasonar (Þorvarðssonar)
í Papey í lok 7. áratugarins, en þá
voru frost hörð fyrir austan og ísa-
lög mikil. Þannig segir Trausti
Jónsson frá veðrinu í apíl 1968:
„Mikill hafís var við N- og A-
ströndina í mánuðinum lengst suð-
ur að Papey. Isinn olli verulegum
truflunum á samgöngum og fisk-
veiði.“ Líklegast hefur það verið
þennan vetur, sem Gústaf svaf með
hlaðna haglabyssu undir rúmi sínu í
Papey, en þá dvaldi hann einn í
eynni. Vildi Gústaf vera við öllu bú-
inn, ef hann fengi ísbjörn í heim-
sókn. Skömmu síðar komu skilaboð
úr sumarhúsi, að „Gísli í Papey“
væri væntanlegur eftir stundar-
fjórðung. Urðu menn komu hans
alls hugar fegnir. Nokkur ágjöf var
á heimleiðinni, en samt sofnuðum
við hjónin bæði um stund, svo þetla
hefur ekki verið svo slæmt. Og-
leymanlegri heimsókn í Papey er
lokið. Draumur hafði ræst. Með
hrærðum huga lítum við í átt til Pa-
peyjar og tökum undir með Haraldi
Briem frá Eyjum í Breiðdal:
Papey hátt úr hafí rís,
helgar geymir sögur.
Hún er eins og dagsins dís
dýrðarlega fögur.
Sjóðheitt kaffi beið okkar í hinu
frábæra Hótel Framtíðinni á
Djúpavogi, sem nú hefur verið
stækkað að mun, finnskur bjálka-
viður og öll aðstaða hin ákjósanleg-
asta. Nýbyggingin ilmar öll af hin-
um finnska við, og er ekki laklegt
fyrir mann, sem vann við timbur
meira og minna í 45 ár, að gista í
slíku húsi. Það er með söknuði, að
við kveðjum Djúpavog, ákveðin í því
að koma þangað sem fyrst aftur og
njóta hinnar frábæru gestrisni
starfsfólksins í Hótel Framtíðinni.
Hvet ég ferðafólk eindregið til þess
að heimsækja Djúpavog, því þar
hefur orðið bylting í ferðaþjónustu.
HeimUdir:
1 Landnámabók Islands, Helgafeli
1948, Einar Arnórsson bjó til prent-
unar.
2 Austurland III. bindi, bls. 9-54:
„Papeyjarsaga og Papeyinga" eftir
Halldór Stefánsson og Eirík Sigurðs-
son, Bókaútg. Norðri P.O.B. 1951.
3 Arbók Ferðafélags íslands 1955,
bls. 40-47, eftir dr. Stefán Einarsson
prófessor í Baltimore.
4 Múlaþing, 12. árgangur, árið 1982,
bls. 165-171: „Papeyjarpistill" eftir
Rósu Gísladóttur.
5 Djúpivogur 400 ár við Voginn eftir
Ingimar Sveinsson kennara, bls.
153-158, Héraðsprent sf., Egilsstöð-
um, ár 1989.
6 Veður á Islandi í 100 ár eftir
Trausta Jónsson veðurfræðing, ísa-
fold 1993.
7 „Velkomin út í Papey“, leiðsögu-
bæklingur frá „Papeyjarferðum" í
samantekt Más Karissonar. Odag-
settur.
Höfundur er lögfræðingur.