Morgunblaðið - 05.09.1999, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 05.09.1999, Qupperneq 40
40 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999 ý--------------------------- MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SIGFÚS SIGURÐSSON OSWALDS si'mi 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN ADAi.srR/i:ri 4u • 101 rlykjavík l starf og kórstarf og voru virk í leikjum okkar í hverfínu. Sig- fús sýndi okkur krökk- unum alltaf mikla góð- vild og áhuga. Eftir- minnilegt er þegar hann, einn af fáum fullorðnum, kom á leiksýningu sem haldin var í kjallaranum heima. Þar var þá sýnt frumsamið leikrit sem krakkarnir í götunni höfðu æft. Þá fannst okkur mikið til okkar koma þegar Sigfús með bros á vör reiddi fram 50 aurana sem krafist var í aðgangs- eyri. Seinna þegar þau hjónin ráku veitingastaðinn Þrastalund í nokkur sumur með börnum sínum fékk ég vinnu hjá þeim. Það var lærdóms- ríkt. Mikill metnaður var lagður í að allt væri vel gert og til fyrirmyndar, bæði veitingar, umhverfi og mót- taka gesta. Oft var glatt á hjalla þessi sumur. Mig minnir að það hafi verið á Þrastalundarárunum sem hið svokallaða „pu-u“ hóf göngu sína. Sigfús tók virkan þátt í þessu gríni ungdómsins, okkur til mikils gamans, og sýndi þar milda leikni. Eins og gerist og gengur þá skildu leiðir um tíma, ég fór í skóla til Reykjavíkur, Þau fluttust vestur til Stykkishólms á æskuslóðir Sig- fúsar. Þegar ég síðar settist að í Stykkishólmi, langt frá minni heimabyggð, var það mér mikill styrkur að eiga þar þessa gömlu góðu vini, reyndar tel ég þau eiga mikinn þátt í að svo fór. Sigfús og Esther, mín gamla vinkona Maja og dóttir hennar, afastelpan Heiða, voru mér þá eins og önnur fjöl- skylda. Þangað gat ég leitað með hverskonar vandamál og kvabb ungrar húsmóður, hvort sem það varðaði suðu á nýjum rauðmaga, uppskriftir að jólakræsingum eða + Sigfús Sigurðs- son fæddist á Hofsstöðum, Mikla- holtshreppi, Snæ- feiisnesi 19. febrúar 1922. Hann Iést 21. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Selfoss- kirkju 27. ágúst. Sigfús Sigurðsson varð einn af föstu - punktunum í tilverunni þegar ég, fjögurra ára, fluttist með foreldrum mínum og systrum á Skólavelli 10 á Selfossi. Fljótlega kynntist ég Maju, sem var sex ára og átti heima á Skólavöllum 2. Hún átti einn yngri bróður, einn eldri bróður og þrjár eldri systur. Mamma hennar var Esther hár- greiðslukona. Pabbi hennar átti Skoda og var oftast kallaður Fúsi í Kaupfélaginu. Mér var strax vel tekið sem vin- konu í fjölskyldunni og fljótt skynj- aði ég hvað innan fjölskyldunnar ríkti mikil vinátta og glaðværð. Þangað var alltaf gott og gaman að • koma. Það var greinilegt að vina- hópur barnanna á heimilinu var stór og þangað var hann líka vel- kominn. I fjölskyldunni var mikill bókaáhugi og íþróttaáhugi, heimilið var fallegt og garðurinn líka með fjölbreyttri blóma- og trjárækt. Krakkarnir stunduðu frjálsar íþróttir, sund og fótbolta, skáta- LÍKKJSTUVINNUSTOFA EYVINDAR ÁRNASONAR Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Altan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ Blómustofa Friðjtnns Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, sími 553 1099. Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll tilefni. Gjafavörur. y -• ■; ’„■'•• j i Þegar andlót ber að höndum Útfararstofan annast meginhluta allra útfara ó höfuðborgarsvæíinu. Þar starfa nú 15 manns við útfararþjónustu og kistuframleiðslu. Alúélegþjánusta sem bygglr á langrl reynslu Útfararstofa Kirkjugarðanna ehf. Vesturhlíð2-Fossvogi-Sími 551 1266 barnagæslu. Synir mínir minnast þess ennþá hve gott var að koma til þeirra. Sigfús var alla tíð mikill áhuga- maður um íþróttir og átti sjálfur frægðarferil sem íþróttamaður. Ég var ekki há í loftinu þegar ég fyrst fékk að líta verðlaunapeninginn sem hann fékk á Ólympíuleikunum 1948. Mörgum árum seinna, þegar annar sonur minn átti að vinna verkefni í grunnskólanum um Ólympíuleikana, sagði hann bekkj- arfélögum sínum stoltur frá þessu afreki Sigfúsar vinar síns og því að hann hefði einnig séð þennan dýr- grip. Þegar Sigfús og fjölskylda flutt- ist til Reykjavíkur myndaðist stórt skarð, ekki bara hjá mér, heldur hjá bæjarbúum öllum. Þau hjónin settu sterkan svip á samfélagið í Stykkishólmi, alveg eins og á Sel- fossi áður. Með Sigfúsi hvarf einn af föstu áhorfendunum á íþrótta- kappleikjum bæjarins og er hans ennþá minnst þar. Hans er einnig minnst sem öflugs Lionsmann, góðs söngmanns, bridge-spilara, garð- yrkjumanns og gestgjafa. Síðast en ekki síst er hans minnst sem góðs vinar og samborgara. Ég sendi Esther og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur mín- ar og fjölskyldu minnar og bið Guð að blessa minningu Sigfúsar Sig- urðssonar. Jóhanna Guðmundsdóttir. Mikill og merkur maður hefur kvatt okkur að sinni. Það er hugg- un harmi gegn að vita að hann kemur til með að vaka yfir sínum nánustu um ókomna tíð, því að ekk- ert var honum mikilvægara en gæfa og gengi stóru fjölskyldunnar hans. Þegar Sigþór maðurinn minn kynnti mig fyrst fullur stolts fyrir „afa í Hólminum“ varð mér það strax ljóst að þarna var enginn venjulegur maður á ferð. Hann var óvenju rólegur og yfirvegaður á all- an hátt, og frá honum streymdi ör- yggi og hlýja. Ég komst að því er á leið að líklega eru fáir menn sem njóta jafnmikillar virðingar og væntumþykju fjölskyldu sinnar og Sigfús. Hann var stoð og stytta allra í fjölskyldunni á sinn rólega hátt, og hégóma og tilgerð þekkti hann ekki. Hann hafði þann eigin- leika að geta alltaf séð skoplegu hliðina á lífinu, og mikið má læra af því. Ég vil þakka fyrir viðkynningu af einstökum manni og bið Guð að styrkja fjölskylduna í sorg sinni. Sigrún (Silla). RAGNAR SIGURÐSSON + Ragnar Sig- urðsson læknir fæddist á Ljósa- vatni í S-Þingeyjar- sýslu 17. apríl 1916. Hann lést á Land- spítalanum 24. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Áskirkju 31. ágúst. Það er sárt að kveðja þá sem alltaf hafa verið til staðar og upplifa það að góðu stundir bemskunnar verða enn fjarlægari. Það var alltaf efst á óskalistanum að fara í heim- sókn til Rúnu og Ragnars þegar farið var til Reykjavíkur. Þar átt- um við margar góðar stundir um- vafin þeim hlýleika sem einkenndi þau bæði. Það var fátt meira spennandi en að sitja við eldhús- borðið í Sporðagrunninu, borða rúnstykki og drekka Sinalco úr flösku. Vera svo boðið í nefið í dessert. Glottsins og laumulega augna- ráðsins verður sárt saknað, að ógleymdum athugasemdunum sem oft fylgdu. Það fylgdi því alltaf til- hlökkun að kynna nýja vini eða vinkonur fyrir Ragnari og fylgjast með hversu langt hann gengi til að fá fram eldrauðar kinnar hjá við- komandi. Sem oftar en ekki gekk fljótt og vel. Þið hjónin báruð af hvar sem þið komuð, svo ástfangin og natin hvort við annað. Enda vorum við systurnar ekki gamlar þegar við ákváðum að verða svona „flott gömul hjón“ eins og þið Rúna voruð. Elsku Ragnar okk- ar, það er þó huggun harmi gegn að loksins ertu kominn aftur til elsku Rúnu þinnar. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, Margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarlmoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Andrea, Gunnur og Hjálmur Dór INGIMARÍA ÞOR- BJÖRG KARLSDÓTTIR + Ingimana Þorbjörg Karls- dóttir fæddist á Draflastöð- um í Fnjóskadal 15. janúar 1911. Hún lést á Sólvangi í Hafnarfírði 20. ágúst siðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Hallgrímskirkju 27. ágúst. Hinn 27. ágúst sl. var til moldar borin Ingimaría Karlsdóttir. Á kveðjustundu leita á hugann minn- ingar liðinna ára. Ingu hef ég þekkt í áratugi og hefur aldrei borið skugga á vinskap okkar. I fjölda- mörg ár störfuðum við Inga saman að félagsmálum í Kvenfélagi Hvera- gerðis. Hún var heiðarleg, traust og dugleg í öllu því sem hún tók sér fyrir hendur. Saman spiluðum við brids í spilaklúbbum og hafði ég af því sérstaka ánægju því Inga var ávallt skemmtileg og hvers manns hugljúfi. Aldrei gleymast okkur hjónunum öll þau garðyrkju- og listamanna- böll sem við fórum á með Ingu og eiginmanni hennar Gunnari heitn- um Bjömssyni. Að leiðarlokum hugsa ég með gleði til þeirra stunda sem við Inga áttum saman. Dætrum Ingu og fjölskyldum þeirra votta ég mína dýpstu samúð Jytte. RÓSA BJÖRNSDÓTTIR + Rósa Björns- dóttir fæddist í Helli í Breiðadal 21. júnf 1922. Hún lést á Landakoti 13. ágúst siðastliðinn og fór útför hcnnar fram frá Óháðu kirkjunni 26. ágúst. Ástkær frænka mín, Rósa Bjömsdóttir, er látin. Minningin um hana mun ávallt fylgja mér í lotningu. Rósa lét sér mjög annt um mig allt frá því ég leit dagsins ljós og var í góðu sambandi við móður mína. Ég dvaldi oft á heimili Rósu og Kristjáns sem bam og á margar góðar minningar frá þeim stundum. Það var t.d. á heimili þeirra sem ég hitti pabba minn í fyrsta sinn, en hann er bróðir Rósu. Með ámnum fækkaði fundum okkar, en þó vor- um við alltaf í góðu sambandi, þannig var hún t.d. ávallt með þeim efstu á gestalistum hjá mér ef eitt- hvað stóð til. Mér var það mikils virði þegar Rósa var samferða mér og fjölskyldu minni frá Homafirði eitt sumarið og drengimir mínir fengu tækifæri til að kynnast henni í eigin persónu, en þeim fannst þeir þekkja hana þar sem ég talaði svo oft um „Rósu frænku“. Síð- ustu samvisir okkar vom sl. sumar þegar ég og dóttir mín vomm í helgarfríi í Reykjavík og heimsóttum Rósu. Það var eins með dótt- ur mína og synina forð- um, hún varð heilluð af þessari frænku sinni. Ég vil með þessum fátæklegu orðum þakka fyrir að hafa fengið að kynnast Rósu og þær stundir sem við áttum saman, ég er rík manneskja að hafa átt þessa góðu frænku að. Ég og fjölskylda mín biðjum góð- an Guð að blessa ástvini hennar. Hinsta kveðja, Iljördís Áraadóttir. Elsku amma okkar. Við þökkum fyrir þann tíma sem við fengum með þér og allar góðu, fallegu minn- ingamar sem við eigum eftir. Við munum öll eftir pönnukökun- um, grjónagrautnum, loftkökunum, ísnum og súkkulaðinu, sem aldrei mátti kalla kakó, sem við úðuðum í okkur í hvert skipti sem við komum í heimsókn. í öllum fjölskylduboðum voru öll flottu skópörin þín rifin út úr skápunum og mátuð og á örskammri stundu var fjólubláa baðherberginu í Furugerðinu breytt í hina fínustu tölubúð þar sem þú varst ávallt dyggasti viðskiptavinurinn. I fjölskylduboðunum var alltaf mikið að gerast og þá sérstaklega fyrir jólin þegar við komum saman og skárum út laufabrauð í tugatali. Engin ein regla var um hvemig ætti að skera út, þér fannst öll laufa- brauðin voða falleg og smart, sama hversu frumleg þau voru. Það var alltaf mikið líf og fjör í kringum þig og í einu skiptin sem við vorum róleg var þegar við hlust- uðum á Karíus og Baktus og svo á kvöldin þegar við skriðum upp í rúm og þú kenndir okkur allar fal- legu bænirnar. Elsku amma okkar. Við þökkum fyrir hvem dag sem við lifðum með þér og söknum þín hvem dag sem við lifum án þín. Seinustu dagamir voru erfiðir, en þú fékkst þína hvíld og þó svo að þú sért farin lifirðu enn í hjörtum okkar. Um stræti rölti ég og hugsa um horfinn veg á kinnar mína heit falla tár. Allt sem áður var eru nú minningar Því aldrei aftur koma þau ár. Hjarta sárt ég kenni saknaðar er ég hugsa til þín af því ég man er ég h'til var hver kyssti tárin mín. (G. Ægisson) Þínar dótturdætur Björt, Bylgja, Hera og Katla.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.