Morgunblaðið - 05.09.1999, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999 41
MINNINGAR
+ Margrét Ingi-
niundardóttir
fæddist í Reykjavík
23. september 1910.
Hún lést á heimili
sínu 14. ágúst síð-
astliðinn og fór út-
fpr hennar fram frá
Askirkju 24. ágiíst.
Til moldar hefur ver-
ið borin, á 89. ald-
ursári, elskuleg frænka
mín, Margrét Ingi-
mundardóttir, eða
Magga eins og hún var
ætíð kölluð meðal
fólksins frá Litlahvammi. Magga
var í miðjum systkinahópnum í
Litlahvammi við Engjaveg, eldri en
Heiða og Dúna, yngri en Inga og
Toggi. Og nú við andlát Möggu eru
systkinin frá Litlahvammi öll horfin
af sjónarsviðinu. Magga fæddist og
lifði alla ævi sína í Reykjavík, sann-
ur Reykvíkingur. í Litlahvammi
drakk hún í sig dálæti á söng og
fögrum listum og bjó
við ástríki foreldra
sinna, Ingimundar og
Þorbjargar. í Litla-
hvammi ríkti gleði og
nægjusemi þótt oft
væri þröngt í búi og
vistarverur litlar í
lágreistum bæ. Þessi
glaðværð og nægju-
semi fylgdi Möggu alla
ævi en með þessum
eiginleikum, ásamt
dugnaði og æðruleysi,
yfirvann hún alla erfið-
leika í lífinu, sigraðist á
öllum þrautum. Hún
eignaðist fjórar dætur með eigin-
manni sínum, Ásgrími Ágústssyni,
en hann var af listamannakyni,
systursonur nafna síns Jónssonar
listmálara. Ásgrímur var listhneigð-
ur og listrænn maður, málaði, lék á
orgel og deildi með Möggu ást á
listum og menningu, hinu fagra í líf-
inu. Hjónaband þeirra var innilegt
og hamingjuríkt og á heimilinu ríkti
glaðværð og friðsæld. Ásgrímur féll
frá í blóma lífsins, sárt tregaður af
eiginkonu og dætrum. Eftir lát Ás-
gríms helgaði Magga dætrunum
alla sína umhyggju og starfsorku.
Þær urðu og móður sinni til sannrar
ánægju í lífinu, allar gæfusamar og
menntaðar konur; Sigríður Ágústa,
rafmagnsverkfræðingur og hag-
fræðingur, Kolbrún kennari, Ása
Margrét hjúkrunarfræðingur, Inga
Hlíf myndlistarmaður og í miðjum
þessum fríða hópi var Magga eins
og drottning í ríki sínu! Magga
hafði mikla ást á bamabörnum sín-
um og fylgdist stolt með þroska
þeirra og uppvexti, en þau eru við
andlát hennar níu talsins.
Það var alltaf sérstök ánægja að
hitta Möggu hvort sem var heima, í
veislum eða á öðrum mannamótum
og mér fannst hún alltaf sönn hefð-
arkona, fáguð, víðsýn og vel að sér
um alla hluti. Og nú hefur þessi
elskulega frænka kvatt þennan
heim eftir dagsverk sem margir
gætu öfundað hana af.
Það er með söknuði í hjarta, virð-
ingu og þakklæti sem ég kveð mína
góðu frænku, Möggu frá Litla-
hvammi, í hinsta sinn. Farðu vel,
frænka mín, og góða heimkomu.
Steinar Harðarson.
MARGRÉT
INGIMUNDARDÓTTIR
+ Anna Sigurðar-
dóttir fæddist á
Öngulsstöðum í
Eyjafjarðarsveit 9.
nóvember 1910.
Hún lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Akureyri 14. ágúst
siðastliðinn og fór
útför hcnnar fram
frá Akureyrar-
kirkju 31. ágúst.
Anna Sigurðardótt-
ir, mamma, tengda-
mamma, amma og
langamma er látin.
Hún er gengin í Guðs faðm en
skilur eftir sig í hug okkar og
hjarta minningar og tilfinningar
um konuna sem tengdi okkur sem
einn hóp. Við erum öll frá henni
komin eða tengd. Anna Sig. í Norð-
urgötunni, eða amma í Norró, var
fyrst og fremst mamma og amma
sem ól upp börnin sín og kom þeim
til manns og veitti bamabörnum og
bamabamabörnum
sínum hlýjan faðm og
gaukaði að þeim góð-
gæti og öðm sem
henni fannst þau hefðu
not fyrir. Hún var góð
manneskja.
Ævi hennar var um
margt eins og margra
jafnaldra hennar. Það
var mikið unnið við
ýmisleg störf og
stundum tekið á með
hörkunni. Hún vann
við bústörfin heima á
Syðra-Hóli, hún vann
sem húshjálp, við af-
greiðslustörf og starfaði lengi í eld-
húsi Sjallans og að síðustu í H-100;
frá þeim stöðum kannast margir
við hana. Hún var mikil hannyrða-
kona, prjónaði mikið og má segja
að hún hafi heklað fram á síðasta
dag. Það var aðdáunarvert að sjá
færni hennar með hekluprjóninn,
hvemig hún töfraði úr fínasta
garni dúka, kappa, gardínur, serví-
ettuhringi og hvaðeina sem hugur
hennar stóð til. Hún bakaði mikið
og átti alltaf heimabakað sæta-
brauð þegar gestir litu inn. Eld-
húsið var sá staður á heimilinu þar
sem flest fór fram, þaðan komu
bestu kleinur veraldar, fiskibollur
og bestu piparkökurnar. Þar
dmkku menn kaffi daglangt og
spjölluðu. Þar sameinuðust móðir
og dætur í sláturtöku, laufabrauðs-
útskurði og jólabakstri svo fátt eitt
sé nefnt en hún vildi gjarnan hafa
stelpurnar sínai' hjá sér í þessum
verkum. Á þeim tíma er gosdrykk-
ir vora ekki algengir átti hún alltaf
flöskur með Vallasi í búrinu sínu,
bamabörnum hennar til óblandinn-
ar ánægju. Árin liðu og hún eltist
eins og við öll hin. Það var gott að
eiga hana að, vitandi að í Norður-
götu 60 vora allir velkomnir. Þar
var alltaf von á góðu. Nú er hún
dáin en það er gott að eiga minn-
inguna um hana. Megi Drottinn
blessa minningu hennar og varð-
veita. Fari hún í Guðs friði.
Emilía Sigríður Sveinsdóttir,
Finnur S. Kjartansson,
Viðar Garðarsson,
Geir Hólmarsson,
Andri Gylfason
og fjölskyldur þeirra.
ANNA
SIG URÐARDÓTTIR
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textameðferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá
er enn fremur unnt að senda
greinamar í símbréfi (569 1115)
og í tölvupósti (minning@mbl.-
is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem
viðhengi.
Auðveldust er móttaka svokall-
aðra ASCII skráa sem í daglegu
tali eru nefndar DOS-texta-
skrár. Þá eru ritvinnslukerfin
Word og WordPerfect einnig
nokkuð auðveld úrvinnslu.
Um hvern látinn einstakling
birtist ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar grein-
ar um sama einstakling tak-
markast við eina örk, A-4, miðað
við meðallínubil og hæfilega
línulengd, - eða 2.200 slög (um
25 dálksentimetra í blaðinu).
Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi.
Greinarhöfundar eru beðnir að
hafa skímarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
+
Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir,
HAFSTEINN JÓNSSON,
sem lést þriðjudaginn 31. ágúst, verður
jarðsunginn frá Háteigskirkju miðvikudaginn
8. september kl. 13.30.
Elín Jóna Hafsteinsdóttir,
Sóley Hafsteinsdóttir,
Elín Sólmundardóttir,
Jón Bárðarson,
Guðlaug Erna Jónsdóttir,
Birna Jónsdóttir,
Guðmundur Ingi Jónsson.
LEGSTEINAR
Komið og skoðið
í sýningarsal okkar eða
fáið sendan myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími: 587 1960,fax: 587 1986
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR MAGNÚS MAGNÚSSON,
Lynghaga 26,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 7. september kl. 13.30.
Borghiidur Guðmundsdóttir,
Arndís J. Gunnarsdóttir, Erlingur Viðar Leifsson,
Guðmundur Örn Gunnarsson, Lena Hallbáck,
Hildigunnur Gunnarsdóttir, Ásbjörn Jónsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
GUÐNA V. BJÖRNSSONAR,
Heiðvangi 12,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deilda
L-1 og L-4 á Landakoti og starfsfólki Hlíðarþæjar fyrir góða umönnun.
Hallbjörg Gunnarsdóttir,
Björn Guðnason, Steinunn Ólafsdóttir,
Gunnar Guðnason, Guðrún Tryggvadóttir,
Guðjón Guðnason, Hafdis Ólafsdóttir,
Grétar Guðnason, Edda Arinbjarnardóttir,
Guðni Guðnason, Jenný Guðmundsdóttir,
María Jóna Guðnadóttir, Hallgrímur Smári Þorvaldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu, þar á meðal
starfsfólk á gjörgæslu- og krabbameinsdeild
Landspítalans, sem sýndu ókkur ómetanlega
vin- áttu, hlýhug og samúð við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu minnar, móður og tengda-
móður,
SIGURJÓNU SIGURJÓNSDÓTTUR,
Syðra-Langholti.
Ykkar vinátta er okkur mikill styrkur.
Guð blessi ykkur öll.
Þórður Þórðarson,
Sigurjón Þórðarson, Guðrún Sigurðardóttir,
Jóna Soffía Þórðardóttir, Sveinn Flosi Jóhannsson,
Þórir Ágúst Þórðarson, Sigrún Guðmundsdóttir,
Kristján Garðar Þórðarson, Ingibjörg Steindórsdóttir.
+
Innilegar þakkir færum við öllum, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við fráfall hjartkærrar
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
DAGBJARTAR FINNBOGADÓTTUR,
Selbraut 9,
Seltjarnarnesi.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
öldrunardeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Hrafnkell Eiríksson,
Valgerður Franklínsdóttir,
Eiríkur Kristinn Hrafnkelsson,
Patrick Hrafnkelsson,
Ragnar Ingi Hrafnkelsson,
Ingunn Gyða Hrafnkelsdóttir.
Elísabet F. Eiríksdóttir,
Þórleifur Jónsson,
Dagbjört Þórleifsdóttir,
Eiríkur Þórleifsson,
Unnur Þórleifsdóttir,
+
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug vegna andláts og útfarar
HEDVIGAR ARNDÍSAR BLÖNDAL,
Leifsgötu 30.
t
Ingibjörg Blöndal Stenning, Alan Stenning,
Ragnheiður I. Blöndal,
Ágúst I. Sigurðsson, Sigrún Óskarsdóttir,
Kristín Blöndal, Pétur Björn Pétursson
og börn.
6 r