Morgunblaðið - 05.09.1999, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999 51
í DAG
BRIDS
Umsjón Guðmiindur
l'áll Arnar.son
SUÐUR spilar sex hjörtu
og fær út tígulkóng.
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður * ÁK43 ¥ ÁDG * Á103 * ÁKD
Vestur Austur
*G95 * D102
¥ K765 ¥ —
♦ KDG ♦ 976542
*1063 * G942
Suður * 876 ¥ 1098432 ♦ 8 * 875
Vestur Norður Austur Suður
21auf* Pass 2tíg]ar**
Pass 3grönd Pass 4hjörtu
Pass 6 hjörtu Allir pass
* Alkrafa.
** Afmelding.
Hann drepur með ás,
trompar tígul og svínar
hjartagosa. Svíningin
heppnast, sem eru góðar
fréttir, en vondu fréttirnar
eru þær að austur hendir
tígli. Er einhver leið að
komast hjá því að gefa tvo
slagi: einn á tromp og annan
á spaða?
Það má reyna. Sagnhafí
trompar aftur tígul og svín-
ar hjartadrottningu. Tekur
svo AK í spaða og þrjá efstu
í laufi. Nú eru þrjú spil eftir
á hendi:
Norður
* 43
¥ Á
♦ —
* —
Austur
* D
¥ —
* 9
* 2
Suður
♦ 8
¥ 109
♦ —
* —
Spaða er spilað og austur
á slaginn á drottninguna.
Hvort sem hann spilar nú
tígli eða laufi, þá kæfir hann
trompkóng makkers.
Austur getur hnekkt spil-
inu með því að henda spaða-
drottningunni undir ásinn
eða kónginn, því þá kemst
vestur inn á gosann og getur
trompað út. En það er erfið
vörn, einkum þegar sagn-
hafi hefur vit á því að taka
spaðaslagina tvo áður en
hann hreinsar upp laufið.
Vcstur
*G
¥ K7
♦ _
*
HVERNIG er veðrið í
dag, elskan?
ÁRA afmæli. Næst-
komandi mánudag, 6.
september, verður níræð
Sigurveig Guðmundsdóttir,
kennari, Hafnarfirði. Hún
tekur á móti gestum á af-
mælisdaginn kl. 17 í Garða-
holti, samkomuhúsi Garða-
bæjar, sem er í nágrenni
Garðakirkju.
ÁRA afmæli. í dag,
sunnudaginn 5. sept-
ember, verður áttatíu og
fimm ára Páll Guðmunds-
son, fv. verslunarmaður.
Páll tekur á móti gestum,
ásamt dóttur sinni, á Hrafn-
istu í Reykjavík, Helgafelli,
4. hæð 4-C, milli kl. 15-19 á
afmælisdaginn.
/\ÁRA afmæli. í dag,
tf v/sunnudaginn 5. sept-
ember, verður fimmtugur
Sigurður Valgeirsson,
Norðurvöllum 4, Keflavík.
Hann er að heiman.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara íyrir sunnudags-
blað. Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í síma
569-1100, Sent í bréfsíma
569-1329, sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavi"k.
pT /ÁÁRA afmæli. Á
Ov/morgun, mánudag-
inn 6. september, verður
fimmtugur Ágúst Tómas-
son, fisksali, Hafnarfirði,
Fífuseli 37, Reykjavík.
Eiginkona hans er Elísa-
bet Guðmundsdóttir, sem
verður fimmtug þann 29.
desember nk. Af því til-
efni taka þau á móti vin-
um og vandamönnum í
Fjörukránni, Hafnarfirði,
sunnudaginn 12. septem-
ber kl. 17-22.
1021
ÞETTA verður þá að
vera stutt trúlofun, því
ég giftist Sigga á næsta
laugardag.
LJOÐABROT
SKYLDARA AÐ KUNNA
ÍSLENZKU E N LATÍNU
Svar Jóns Arasonar biskups (1484/1550)
Latína er list mæt,
lögsnar Böðvar,
í henni eg kann
ekki par, Böðvar.
Þætti mér þó rétt
þitt svar, Böðvar,
míns ef væri móðurlands
málfar, Böðvar.
ORÐABÓKIN
Breikka - breidd
í síðasta pistli komu of-
angreind orð fyrir í sam-
bandi við so. að undir-
strika. Var dæmi tekið úr
Mbl. frá í marz sl., þar
sem talað var um að und-
irstrika breidd flokks í
merkingunni að leggja
áherzlu á það, hversu
flokkurinn væri víðfeðmur
og margvíslegar skoðanir
manna rúmuðust innan
hans. Kom þetta fram í
samtali við varaformann
flokksins. Síðar í samtal-
inu var talað um „að
breikka forystu flokksins"
með því að kjósa konu
sem varaformann. Svo var
talað um, hversu „mjög
mikilvægt sé að undir-
strika þá breidd sem
Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur staðið fyrir“. Enginn
misskilur, við hvað er átt.
En mætti ekki finna
skemmtilegra orðalag?
Þegar talað er um breidd
flokks er að sjálfsögðu átt
við það, að margir menn
geti rúmazt innan hans og
með mismunandi skoðanir
í ýmsum málum. Orð eins
og fjölbreytni eða fjöl-
breytileiki gætu oft sagt
hið sama og breidd flokks
eða félagsskapar. Stund-
um er einnig talað um að
breikka stjórn flokks eða
félags. Mun tilgangurinn
venjulegast sá, að ný sjón-
armið og oft fersk komi
með fjölgun stjórnar-
manna. Hér held ég væri
engu óskýrara að kveðið,
þótt talað væri um að
fjölga í stjórn félagsins -
eða hvað? - J.A.J.
STJÖRIVUSPA
cftir Frances Ilrake
MEYJA
Afmælisbarn dagsins: Þú
átt gott með að greina
kjarnann frá hisminu og
ferð ekki í launkofa með
skoðanir þínar.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Þú mátt eiga von á harðri
gagnrýni ef þú hefur ekki
stjóm á skapi þínu. Hafðu
því hemil á þérsvo þú verðir
ekki niðurlægður opinber-
lega.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er sjálfsagt að lífga upp
á tilveruna með léttu gríni ef
þú gætir þess bara að það sé
ekki á annarra kostnað.
Vertu nærgætinn á öllum
sviðum.
Tvíburar . .
(21.maí-20.júní) nA
Láttu það ekki hvarfla að þér
að kasta til höndunum við
verk þín því þú færð þau
bara í hausinn aftur. Sinntu
þeim því af alúð.
Krnbbi
(21. júní - 22. júlí)
Þegar verkefnaskráin er orð-
in svona hlaðin eins og hjá
þér er nauðsynlegt að raða
hlutunum upp í forgangsröð.
Þá íyrst getur þú um frjálst
höfuð strokið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Varastu að blanda eigin til-
finningum inn í viðkvæmt
vandamál sem þér hefur ver-
ið falið að úrslnirða í. Farðu
vandlega yfir alla þætti.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) ©ÍL
Einhver þér nákominn þarf á
stuðningi þínum að halda.
Yttu öllu öðru tii hliðar á
meðan því þetta mál þarf að
ganga fyrir öllu öðru.
(23. sept. - 22. október) m
Menn eru að halda að þér
allskonar málefnum og vilja
fá þig til fylgis við þau.
Farðu þér samt hægt og
brjóttu málin til mergjar áð-
ur en þú ákveður nokkuð.
Sporbdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Llfið er eins og dans á rósum
hjá og þér finnst þú svífa um
í draumi.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. desember) nt r
Þú ert ekki í góðu jafnvægi
og kemur ekki auga á ástæð-
una. Einsettu þér að halda
jafnvægi á miUi einkalífs og
starfs og þá koma hlutimir af
sjáifu sér.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) <mC
Ef þú gleymir þér gætu
vandamál annarra farið að
trufla þitt eigið líf. Finndu
þér einhvem góðan stað þar
sem þú finnur frelsi og frið.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar)
Þótt þú viljir grípa öil þau
tækifærí sem bjóðast skaltu
gæta þín því það kann ekki
góðri iukku að stýra.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú færð tækifæri til þess að
eiga góðar stund með félög-
um þínum og skalt njóta þess
því ekki er víst að önnur slík
bjóðist á næstunni.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægraðvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Okkar vinsælu
sérmerktu
handklæði
Fáanleg f ýmsum litum í st. 70x140 sm.
Ámáluð merkingin er áberandi og falleg.
Tilvalið f skólann og fþróttimar.
Aðeins kr. 1.490 með nafni n
Sendingarkostnaður bætist við
vöruverð.
Afhendingartími
7-14dagar
PONTUNARSIMI
virka daga kl 16-19
557 1960
BRIDSSKÓLINN
Námskeið á haustönn
hefjast 14. og 16. september
(5) (^)
# ii
Byrjendanámskeið: Hefst þriðjudaginn 14. september og stend-
ur yfir í 10 þriðjudagskvöld, frá kl. 20-23.
Framhaldsnámskeið: Hefst fimmtudaginn 16. september og
stendur yfir í 10 fimmtudagskvöld, frá kl. 20-23.
Nánari upplýsingar og innritun
í síma 564 4247 milli kl. 13 og 18 daglega.
Bæði námskeiðin eru haldin í húsnæði Bridssambands íslands,
Þönglabakka 1 í Mjódd, þriðju hæð.
Nýjar vörur
Pelsjakkar
Kápur
Úlpur
Ullarjakkar — stórar stærðir
Hattar og húSur
\(#HI/I5IÐ
Mörkinni 6
Sími 588 5518
LAGERSALA!
í tilefni af 25 ára afmæli verslunarinnar
heldur lagersalan áfram í dag.
Mikill afsláttur af húsgögnum í gömlum stíl, tréstyttum,
antíkhúsgögnum (lítilsháttar útlistgölluð) o.fl.
25-50%
afsláttur!
Opið sun. frá kl. 13-18.
Lagersalan er á Klapparstíg 26 (gengið inn portið).
= _
Laugavegur
X
Hverfisgata
A