Morgunblaðið - 21.10.1999, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Flóttinn mikli.
Vegnr 66 . Sighvatur Björgvinsson
Höfuðástæðan (yrir
þessu væri að kvótakóngarnir
fara með allt sitt burt úr sjávar-
plássunum og eftir stæði at-
vinnulaust fólk í þorpum og bæj-
um sem ætti engan annan kost
Og enn horfa menn hissa um öxl.
Þú hefur tíma til
10. nóvember
til að ákveða þig
FJÖLBREYTT ÚRVAL - STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI
Úrval HTH-innréttinganna er mjög fjölbreytt, þar sem útfærslur
geta verið margvíslegar. Afgreiðslutími á HTH-innréttingum er fjórar
vikur, en getur farið í sex vikur ef um sérsmíði er að ræða. Ef þú
ákveður þig fyrir 10. nóvember næstkomandi getur þú fengið
innréttinguna fyrir jól.
ÖLL TÆKI í ELDHÚSIÐ
Auk eldhúsinnréttinga er boðið upp á öll tæki, sem þarf í
nútímaeldhús, svo sem eldunartæki hvers konar, viftur, háfa,
kæliskápa, frystiskápa, vaska, blöndunartæki, Ijós o.fl. Séu raftækin
keypt með eldhúsinnréttingunni, bjóðast þau á heildsöluverði.
ÆJi
Gæði og glæsileiki í fyrirrúmi
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
HÖNNUN OG RÁÐGJÖF
Við veitum fólki ráðgjöf og leggjum fram hugmyndir að því hvernig
best er að haga innréttingunni þar sem þarfir fjölskyldunnar eru
hafðar í fyrirrúmi.
Líttu inn í glæsilegan sýningarsal
að Lágmúla 8, 3. hæð
og kynntu þér málið.
Opið laugardag frá 10 til 16
Heilsufarsvandamál í lok 20. aldar
Fræðslu-
fundaröð LR
Ólafur Þór Ævarsson
VEGUM Lækna-
félags Reykjavík-
ur (LR) er nú haf-
in röð fræðslufunda fyrir
almenning til að minnast
níutíu ára afmælis félags-
ins nú í haust. Fyrirlestr-
aröðin er haldin undir yf-
irskriftinni: Heilsufars-
vandamál í lok tuttugustu
aldar. Ólafur Þór Ævars-
son geðlæknir er formað-
ur Læknafélags Reykja-
víkur. Hann var spurður
um hvað fyrirlestrarnir
myndu fjalla?
„I kvöld verður í hús-
næði læknasamtakanna á
fjórðu hæð í Hlíðasmára
8 í Kópavogi haldinn íyr-
irlestur um reykingar og
æðaskemmdir. Þar tala
æðaskurðlæknarnir Stef-
án E. Matthíasson og Georg
Steinþórsson. Fimmtudaginn 28.
október mun Kristín Þórisdóttir
húðlæknir ræða um skaðleg áhrif
sólargeislunar á húð. Hinn 4.
nóvember nk. fjalla þau María
Ólafsdóttir heimilislæknir og
Sigurður P. Pálsson og Ólafur
Þór Ævarsson geðlæknar um
geðtruflanir hjá öldruðum, 11.
nóvember mun Helgi Guðbergs-
son, sérfræðingur í atvinnusjúk-
dómum, tala um mengun og
lungnasjúkdóma og 18. nóvem-
ber ræðir Jens A. Guðmundsson
kvensjúkdómalæknh- um tíða-
hvörf og breytingaskeið kvenna.
Hinn 25. nóvember verður síðasti
fræðslufundurinn. Þá munu þeir
Asgeir Theodórs, sérfræðingur í
meltingarsjúkdómum, og Gunnar
Valtýsson, sérfræðingur í inn-
kirtla- og efnaskiptasjúkdómum,
ræða um offitu og leiðir til megr-
unar. Allir fræðslufundfrnir hefj-
ast klukkan 20.30 og eru eins og
fyrr kom fram haldnir í húsnæði
læknasamtakanna í Hlíðasmára 8
í Kópavogi.“
- Hefur starf lækna ekki breyst
ótrúlega mikið á þessum 90 árum
sem liðin eru frá því Læknafélag
Reykjavíkur var stofnað?
„Jú, vissulega hefur starfsvett-
vangur og aðstaða lækna breyst
mikið á þessum 90 árum, en bar-
áttumál Læknafélags Reykjavík-
ur hafa hins vegar mikið til verið
þau sömu; að sameina lækna um
áhuga- og hagsmunamál stéttar-
innar og vinna að stefnumótun í
heilbrigðismálum í samvinnu við
heilbrigðisyfirvöld og veita al-
menningi fræðslu. Þó hefur síð-
asti þátturinn orðið veigaminni á
síðustu árum og viljum við nú
bæta úr því.“
- Eru margir læknar í Læknafé-
lagi Reykjavíkur?
„Þeir eru um sjö hundruð núna
í þessu langstærsta svæðafélagi
Læknafélags Islands (LI). Stjórn
félagsins skipa auk Ólafs Þór
Ævarssonar formanns þau Mar-
grét Georgsdóttir heimilislæknir,
sem er ritari félagsins, og Run-
ólfur Pálsson lyflækn-
ir, sem er gjaldkeri.
Að auki sitja níu full-
trúar og þrír varafull-
trúar í meðstjórn.
Stjórn og meðstjóm
kallast stórráð. Meðstjórnendur
eru valdir þannig að fulltrúar
komi frá sem flestum sérgreinum
læknisfræðinnar og hefð er fyrir
því að fulltrúi ungra lækna sitji í
stórráðinu. Viðamestu viðfangs-
efni í félagsstarfi eru, auk ofan-
nefnds, kjaramál. Síðustu samn-
ingar LÍ og LR við sjúkrahúsin
voru tímamótasamningar þar
sem mikilvæg spor voru stigin í
átt að breyttu launakerfi í takt
►Ólafur Þór Ævarsson fædd-
ist 13. nóvember 1958. Hann
varð stúdent frá Menntaskól-
anum á Akureyri 1978 og tók
læknapróf frá Háskóla ís-
lands 1985. Sérfræðingur í
geðlækningum varð hann ár-
ið 1992 og dr. med. í geð-
læknisfræðum 1998 frá há-
skólanum í Gautaborg. Hann
hefur starfað sem geðlæknir
á geðdeild Landsspítalans
frá 1995. Ólafur er nú for-
maður Læknafélags Reykja-
víkur. Hann er kvæntur
Mörtu Lárusdóttur heimilis-
lækni í Kópavogi og eiga þau
þijú börn.
við nútímalega vinnulöggjöf Evr-
ópulanda. Hefð er fyrir því að
LR sjái um samninga lækna við
Tryggingastofnun ríkisins í sam-
vinnu við LI. Mikil og góð sam-
vinna er milli Tryggingastofnun-
ar og samráðsnefndar LR, þar
sem stöðugt er unnið að bættri
þjónustu við sjúklinga. Kjaramál
heilsugæslulækna eru sér á báti
en þeir hafa heyrt undir Kjara-
nefnd frá 11. september 1996.
Ljóst er að þetta fyrirkomulag
hefur ekki leyst vandann varð-
andi mönnun á landsbyggðinni
og á höfuðborgarsvæðinu hafa
heilsugæslulæknar unað misvel
við ný kjör sín og umdeilt hvort
breytt fyrirkomulag hefur bætt
þjónustuna við sjúklingana. A
síðustu árum hefur talvert verið
rætt um sjálfstætt starfandi
heimilislækna. Þrátt fyrir að
fylgi við slíkt starfsfyrirkomulag
virðist hafa aukist meðal lækna
og heilbrigðisyfirvalda og nokkr-
ir sérfræðingar í heimilislækn-
ingum hafi sótt um að fá að
starfa sjálfstætt hefur engin ný-
liðun orðið. Stjórn Læknafélags
Reykjavíkur hefur skýra stefnu í
þessum málum og telur eðlilegt
að sérfræðingar í heimilislækn-
ingum hafi sambærilegar skyldur
og réttindi og sérfræðingar í öðr-
um greinum læknisfræðinnar."
-Hvað með framtíð-
arsýn?
„Á nýrri öld mun
sérhæfing innan
læknisfræðinnar
halda áfram að vaxa í
takt við aukna þekkingu. Margir
telja að aukin sérhæfing muni
leiða til þess að fræðigreinin
brotni niður í margar einingar.
En á sama tíma mun þörf sér-
fræðinga til að vinna saman að
meðferð sjúklingsins aukast.
Læknar vilja stuðla að faglegri
samvinnu milli lækna og við ann-
að starfsfólk heilbrigðisþjónust-
unnar, sjúklinginn og aðstand-
endur hans.“
Sérhæfing
vex með auk-
inni þekkingu
i
|
v.