Morgunblaðið - 12.11.1999, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samkeppnisráð bannar ákvæði í samningi Félags
kjúklingabænda við tvo framleiðendur
Samning’urinn brýtur í
bága við samkeppnislög
SAMKVÆMT ákvörðun samkeppn-
isráðs (nr. 27/1999), sem tekin var á
fundi hinn 8. nóvember sl. brýtur
málsgr. 4 í samningi Félags kjúkl-
ingabænda við tvo kjúklingabændur
um tímabundna rekstrarstöðvun í
bága við samkeppnislög. Af þessum
sökum bannar samkeppnisráð við-
komandi ákvæði sem eru, að mati
ráðsins, „skaðleg samkeppni og
andstæð 10. gr. sbr. 12. gr. og 17.
gr. samkeppnislaga. Skal ákvæðið
fellt út úr greindum samningi.
Forsaga málsins er sú að Neyt-
endasamtökin kærðu téðan samn-
ing sem Félag kjúklingabænda
gerði við kjúklingabænduma tvo,
Asgeú’ Eiríksson ehf. og Fjöregg
hf., um að hætta kjúklingarækt. Fé-
lag kjúklingabænda sagði samning-
inn aðgerð í því að útrýma salmon-
ellu í kjúklingarækt. Samkvæmt
samningnum fengu ofangreindir
kjúklingaræktendur 25 milljóna
króna bætur hvor fyrir að hætta
rekstri búa sinna. Af þeirri upphæð
lagði landbúnaðarráðuneytið til 40
milljónir en Félag kjúklingabænda
10 milljónir.
Tekið var fram í samingnum að
þeir einstaklingar sem ættu þátt í
rekstri búanna, m.a. með setu í
stjóm, kæmu ekki nálægt kjúklinga-
rekstri í sjö ár og þinglýst yrði sér-
stakri kvöð á þau hús sem notuð
hefðu verið til rekstrarins um að þau
mætti ekki nota til kjúklingaeldis í
sjö ár frá undirritun samningsins.
Niðurstaða samkeppnisráðs er sú
að aðgerðir Félags kjúklingabænda
væm „í eðli sínu til þess fallnar að
stuðla að markaðsskiptingu í kjúkl-
ingaframleiðslu og á samkeppni í
skilningi 17. gr. samkeppnislaga".
Aðgerðirnar hefðu „skaðleg áhrif á
samkeppni í skilningi 17. gr. sam-
keppnislaga“ þar sem þær hefðu í
för með sér að keppinautum væri
fækkað. Þá taldi samkeppnisráð
ekki að persónulegt bann til margi-a
ára þjónaði yfii’lýstum markmiðum
Félags kjúklingabænda um útrým-
ingu á salmonellu.
Samningurinn ólöglegnr
og ýtir undir fákeppni
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, segist sam-
mála niðurstöðum samkeppnisráðs í
þeim tveimur ákvörðunum sem það
hafi látið frá sér fara um málið.
Ráðið hafí fyrst í stað úrskurðað að
það væri ekki hægt að banna
kjúklingabændunum tveimur að
stunda kjúklingarækt, samningur-
inn væri ólöglegur hvað það bann
varðaði. Síðan hafi samkepnnisráð
úrskurðað, eftir að leitað var eftir
frekari skýringum, að banna ákvæði
sem lýtur að kjúklingarækt í til-
teknum húsum.
Hann telur að með ákvörðuninni
hafi samkeppnisráð staðfest ólög-
mæti samningsins sem hafi fyrst og
fremst verið til þess fallinn að skapa
meiri fákeppni á viðkomandi mark-
aði og það hafi gengið eftir. „Þess
vegna kom kampýlóbakter-málið
verulega við okkur. Vegna þess að
ráðandi aðili á markaði var ekki
með sína vöru í lagi. Þess vegna
varð þetta mál svona stórt,“ segir
Jóhannes.
Afskipti landbúnaðarráðuneytis-
ins að málinu voru frá byrjun óeðli-
leg, að sögn Jóhannesar. „Mér
Minkapelsar - síðir
Verð frá 255 þúsund
( !?■ ) W Ný sendinq
Vi*a ra0gr*fðsiur
f allt að 36 mánuði.
1
PEISINN rftl
Kirkjuhvoli - simi 5520160 I J M I
finnst mjög dapurlegt að heyra eftir
kokhraustum starfsmanni landbún-
aðarráðuneytisins, þegar búið að að
dæma þetta allt ólöglegt, að þetta
breyti ekki nokkru. En kjúklinga-
bændur fengu 40 milljónir í ríkis-
styrk, frá skattgreiðendum, til þess
að koma á meiri fákeppni á markaði
og kaupa tvo bændur út úr kjúkl-
ingaframleiðslu,“ segir Jóhannes og
spyr: „Getur stjórnvald eins og
landbúnaðarráðuneytið hunsað nið-
urstöðu samkeppnisráðs?"
Aðgerðin hefur heppnast
Aðspurður kvaðst Bjami Ásgeir
Jónsson, formaður Félags kjúkl-
ingabænda, undrandi á niðurstöðu
samkeppnisráðs. „Það var farið í
þetta mál á sínum tíma og allt sem
þar var gert hefur staðist. Við gerð-
um samning við landbúnaðarráðu-
neytið og yfirdýralækni um að fara í
útrýmingu á salmonellu í kjúklinga-
ræktinni. Samningurinn var þáttur í
þeim aðgerðum því þarna voru tvö
bú sem höfðu ekki náð tökum á
vandamálinu. Síðan hefur ekki kom-
ið upp salmonella í kjúklingarækt
og aðgerðin hefur því heppnast full-
komlega," segir hann.
Bjami hafnar því algerlega að að-
gerðimar hafi verið til þess fallnar
að koma á fákeppni á markaði. Töl-
ur sýni að það sé ekki rétt enda hafi
kjúklingar lækkað í verði. „Og það
er náttúrlega vegna þess að það er
bullandi samkeppni á markaðnum.
Urskurðurinn er á skjön við þann
árangur sem hefur náðst af þessum
aðgerðum.“
Bjami segir að ekki sé ástæða af
hálfu Félags kjúklingabænda til að
bregðast við. „Samkeppnisráð óskar
eftir því að við göngum þannig frá
að þessi árafjöldi sé tekinn út úr
samningi." Að öðra leyti segir
Bjami ekki ástæðu til viðbragða
enda hafi viðkomandi aðilar verið
sáttir við aðgerðirnar og samning-
inn. „Þetta var unnið í sátt og sam-
lyndi á milli aðila á þeim tíma og
samkvæmt þeim kröfum sem voru
gerðar þá. Við höfum náð þeim ár-
angri sem til var ætlast og hefur
gengið mjög vel.“
Ljósakrónur N. Bókahillur
Borðstofusett / //T \ íkonar
[JZlnm ' \
' -laiofnnö lliuntt *
Nýkomnar vörur
Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977.
GRACE
TISKUVERSLUN
Kvenfataverslun í Bláu húsunum við Fákafen
Kápur og jakkar
frá Aquascutum, Cinzia Rocca, Dannimac, Goidix og Rosner
Ullarpeysur frá Hirsch
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsunum við Fákafen.)
Sími 553-0100 / Opið virka daga 10-18, lauqardaqa 10-16
FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999 9
PAPPÍRSSTANS í BÚÐINNE
ÓKEYPIS AFNOT MEÐ PAPPÍR FRÁ OKKUR
ucóðinsgötu 7 Upfflfi® Sími 562 8448i*
Afmælistilboð________________
20% afsláttur
Neðst við Dunhaga Opið virka daga 9-18
* —.—..sími 562 2230 laugardaga 10-14
Ný sending
af samkvæmisdrögtu m og
síðum kjólum með bolero-jökkum
marion
F teykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • Sími 565 1141 r
Skólavörðustíg 8, sími 551 3469. OPIÐ LAUGARDAGA FRÁ 10-16
:LASKAN OG
iTAUPIN ERU KOMIN
ROYALCOPENHAGEN
Flaska og staup
fyrir jólin 1999
í fallegri
gjafaöskju.
Flaskan kostar
2.370- og staup
(2 stk.) kosta
1.475-
XS KÚNfeÚND
Glpsilegur
samkviHtiis-
fatnaðui'