Morgunblaðið - 12.11.1999, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 12.11.1999, Blaðsíða 70
 MORGUNBLAÐIÐ æ70 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999 Smáfólk Sjáðu. Kennarinn hefur hengt upp allar blómamy ndirnar sem bekkurinn hefur gert. Og lengst út í horni þar sem enginn sér hana er neðanjarðarmyndin sem þú teiknaðir Hún er á hvolfi. t*T BREF TIL BLAÐSINS Kringiunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Af ljótum, feitum og leiðinlegum körlum Frá Svavarí Knúti Kristinssyni: ÁGÆTU lesendur, mér varð um daginn, (þriðjudaginn annan nóvem- ber), litið í blað okkar landsmanna, Morgunblaðið, eins og gerist oft með íslendinga. Margt bar þar skemmti- legt á góma og ekki síst beindist at- hygli mín að opnugrein blaðsins, sem fjallaði um hið hræðilega klámvanda- mál okkar Islendinga. Mér þykir ís- lenska pressan og jafnvel þjóðin öll, fara svolítið offari með þetta annars óttalega hversdagslega fyrirbæri sem kynlífsiðnaðurinn er. Jaðra þá aðfarir fjölmiðlanna við hasarblaða- mennsku eins og neyðarleg umfjöll- un Stöðvar 2 um kúkinn í fjörunni. Þarna fóru hamförum ungfeminíst- ar, dansarar, stjórnmálamenn og prestar, og kepptist hver við næsta mann að fordæma þennan ósóma og viðbjóð sem nektardans þykir. Samt slógu mig harðast ummæli kven- prests nokkurs sem sagðist hafa tal- að við dyravörð á einum slíkum ,sorastað“ og spurt hann hvers kyns skrímsl sæktu þessa staði. Kvað hún dyravörðinn hafa svarað að bragði að það væri einfalt, þetta væru mest- megnis ,nördar“. Gat ég ekki annað en túlkað þetta sem einhvers konar rök gegn tilvist skemmtistaða og finnst mér því ummæli þessi hlaðin fordómum í garð ,nörda“. Staðimir eru sumsagt samkomuhús ljótra, horaðra, bólugrafinna bókaorma og tölvukalla með óvenjuleg áhugamál. Væri sumsagt betra ef þessa staði sæktu æskilegri karlmenn eins og starfsmenn kjörbúða, pípulagninga- menn, framsóknannenn eða uppar (sem ég hef nú samt heyrt í fréttum að séu algengustu viðskiptamenn vændiskvenna). í rauninni sýnist mér þetta mál allt farið að lykta eins og „ástandið“ forðum. Að íslenskar konur þoli ekki frekar en bræður þeirra íyrir nímri hálfri öld að gagn- stæða kynið sé að glápa á eitthvert útlenskt ruslfæði þegar íslenska lambakjötið og slátrið standa til boða. Þessi umræða öll er komin í verstu lágkúru og í henni kristallast for- dómar og hræsni hins ,réttláta“ fólks, í garð „Ijótra og leiðinlegra" karlmanna og „ósómakvenda" sem dirfast að kalla starf sitt „list“. Einnig las ég í Bleiku og bláu nú rétt áðan grein eftir tvær ungar konur sem sögðu sem svo: „Mjúki maður- inn á einungis að vera mjúkur að innan en hafa velmótaða vöðva og ekki sakar að rassinn sé stinnur. Konum finnst nefnilega fátt skemmtilegra en að horfa á eftir vel byggðum karlmanni. Við höfum aft- ur á móti litla ánægju af því að horfa á slappholda og perralegan karl- mann“ (Bleikt og blátt nr. 55 bls. 28). Þetta finnst mér enn endurspegla staðlaðar hugmyndir kvenna um feg- urð karlmannsins. Já, hamingju nýt ég sem sjálfur er frekar slappholda og perralegur með bumbu að eiga svo umburðarlynda konu að henni finnst ennþá hrein unun á að horfa. Fegurðin er nefnilega öll í auga sjá- andans eins og smekkmennimir Pró- þagóras og David Hume gerðu okk- ur ljóst. Sjálfur hef ég í gegnum tíðina haft á mér vissan „nörda“stimpil, og upp- lifði sem „nörd“ ótrúlega höfnun frá ótrúlegasta fólki, en nú er ég „afnör- daður“ samkvæmt hugmyndum hinna réttlátu, góðu og skynsömu. Eg á fallega konu og barn og hef enga sérstaka löngun til að kíkja inn á nektarstaði. Hins vegar get ég ekki láð kynbræðrum mínum sem annað- hvort eru svo fagurfræðilega haml- aðir að konur geta ekki hugsað sér að sænga með þeim eða vantar bara sjónrænt krydd í tilveruna að kíkka inn á slíka staði. Þeir sem telja að vandi okkar verði leystur með því að útrýma nektarstöðum, klámblöðum og klámi yfirleitt fara villur vegar. Það er rétt eins og að stífla nefið til að útrýma hnerranum, og kæfa röddina til að útrýma öskrinu. Vandamál okkar liggur mun dýpra í þjóðfélaginu og klámið er einungis sjúkdómsein- kenni þess. Vandamálið er okkar eig- in fordómar og staðalmyndir samfé- lagsins um hvað er gott, fallegt og skemmtilegt. Ef við tökum klámið og stríplið af dónaköllunum gera þeir bara eitthvað annað og verra í stað- inn. Við þurfum frekar að ráðast að rótum vandans strax í uppeldi barna okkar og kenna þeim umburðarlyndi og opinn hugsunarhátt fyrir því sem er ólíkt og framandi. Við verðum að útrýma hinum stöðluðu fegurðar- myndum bæði kvenna og karla. Að- eins þá getum við séð einhver bata- merki okkar siðferðislegu inflúensu. SVAVAR KNÚTUR KRISTINSSON, kerfisfræðingur og heimspekinemi, Lönguhlíð 19, Reykjavík. Um minningargreinar Frá Mörtu Ragnarsdóttur: ÉG VIL leyfa mér að þakka Nirði P. Njarðvík fyrir síðasta pistil hans, en hann fjallaði þar um skrif minningar- greina í Morgunblaðið. Ég hef talað við fjölda fólks sem lesið hefur grein- ina og er undantekningarlítið að fólk tekur undir með Nirði. í framhaldi af þessum skrifum Njarðar langar mig til að benda aðstandendum á aðferð sem ég veit að er töluvert tíðkuð í Svíþjóð. Þar er það þannig að í sálmaskránni, sem mjög algengt er að útbúin sé fyrir útför, er syrgjend- um gefinn kostur á að birta minning- argreinar eða hugleiðingar um hinn látna. Slíkar minningargreinar mega gjarnan vera mjög persónulegar og tilfinningaríkar, þar sem þær koma einungis fyrir augu vina og vanda- manna hins látna. Nánustu aðstand- endum þykir síðan vænt um að eiga sálmaskrámar og geta jafnvel sent fjarstöddum vinum þessa skrá sem yfirleitt er bæði falleg og vönduð. MARTA RAGNARSDÓTTIR, Bergstaðastræti 7, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.